Skessuhorn - 30.12.1998, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
7
Forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem gáfu styrkinn ásamt formanni og vara-
formanni Umhyggju.
Fyrirtæki á Akranesi styðja langveik börn
Styrkur til umhyggju
Þann 21. desember sl. var afhentur
styrkur til Umhyggju sem eru
regnhlífarsamtök styrktarfélaga
langveikra barna á íslandi. Það
voru 15 fyrirtæki af Akranesi og 1
úr Reykjavík sem tóku sig saman
og gáfu út jólakort og söfnuðu á
þann hátt 600.000 krónum en það
voru:
Haraldur Böðvarsson hf., Akranes-
kaupstaður, íslenskt franskt eldhús
hf., Sjúkrahúsið og heilsugæslustöð-
in á Akranesi, Sementsverksmiðjan
hf., Olíuverslun íslands hf., á Akra-
nesi, Olíufélagið hf., Akranesi, Skelj-
ungur hf., Akranesi, Prentverk Akra-
ness hf., Runólfur Hallfreðsson ehf.,
Þorgeir og Ellert hf., Skaginn hf.,
Nótastöðin hf., Verslunarþjónustan
ehf., Bókaverslun Andrésar Níels-
sonar hf. og Auglýsingastofa Æ&Ó.
Peningunum var síðan úthlutað til
styrktarsjóðs Umhyggju. Þess má
geta að styrktarsjóður Umhyggju var
stofnaður fyrir tilstuðlan HB & co á
Akranesi sem gaf eina milljón króna
í hann í upphafi. Nú stendur sjóður-
inn í um 10.000.000 kr. og hefur
margfaldast og á næsta ári mun sjóð-
urinn hefja úthlutanir til aðildarfé-
laga sinna. I Umhyggju eru foreldra-
félög langveikra bama og fagfélög
heilbrigðisstétta sem vilja vinna að
þessum málum. Það voru Dögg Páls-
dóttir formaður Umhyggju og Ragna
Marinósdóttir varaformaður Um-
hyggju sem veittu styrknum viðtöku
og fór athöfnin fram í bæjarþingsaln-
um á Akranesi.
Jólaleikur Videovals
Á abfangadag var dregib í jólaleik Videovals á Akranesi. Á myndinni
sést eigandi Videovals, Sæmundur Bæringsson (t.v.), afhenda abal-
vinninginn sem var glæsilegt myndbandstæki. Hinn heppni vinnings-
hafi er Magnús Þór Þorvaldsson.
Niðurgreiðsla ferðakostnaðar.
Bæjarstjóm Akraness hefur samþykkt reglur u
niðurgreiðslu ferðakostnaðar vegna námsmanna
sem stunda nám á Reykjavíkursvæðinu og ferðast
með áætlunarbifreiðum á milli Akraness og
Reykjavíkur.
Reglumar taka eingöngu til námsmanna sem eiga
lögheimili á Akranesi og taka þær gildi
1. janúar 1999.
Niðurgreiðslan er 15% gegn framvísun kvittunar
um greiðslu fargjalds.
Reglumar liggja frammi á bæjarsknfstofu
Akraness, Stillholti 16-18, þar sem einnig em
veittar nánari upplýsingar.
Akranesi
28. desember 1998
a
Bæjarritari.
Horfum til framtíbar
Akranes í efsta sæti
Ágætu lesendur
Við áramót er góð venja að Iíta yfir
farinn veg og spá í framtíðina.
Sumir stíga á stokk og strengja
þess heit að hætta ýmsu neikvæðu en
aðrir gefa fyrirheit um nýja sigra á
nýju ári. Ekki ætla ég mér í þessum
stutta pistli að gera neitt slíkt, aðeins
fara í fáum orðum yfrr nokkur sam-
eiginleg málefni okkar Akumesinga.
Ég bendi á að Gísli Gíslason bæjar-
stjóri skrifaði yfirlitsgrein um þessi
efni 10. des. sl. og ætla ég ekki að
endurtaka tölur né upplýsingar sem
þar komu fram.
Nýr meirihluti
Eftir bæjarstjómarkosningamar í
vor, þar sem Akraneslistinn fékk
mjög góða útkomu lá beint við að
bæjarfulltrúar hans hefðu forgöngu
um myndun nýs meirihluta í bæjar-
stjóminni. Á örfáum dögum náðist
samkomulag við Framsóknarflokk-
inn um málefnasamning fyrir yfir-
standandi kjörtímabil. Málefnasamn-
ingurinn er yfirgripsmikill og í hon-
um er fjallað um alla helstu mála-
flokkana sem koma til kasta bæjar-
stjórnarinnar. Það féll svo í skaut
undirritaðs að veita meirihlutanum
forystu fyrsta starfsárið. Samstarfið
hefur gengið vel og snurðulaust og
lofar góðu um framhaldið.
"Allir fá þá eitthvaö..?"
Á því hálfa ári sem núverandi bæj-
arstjóm hefur setið hefur margt á
daga drifið. Að vísu má segja að flest
dagleg viðfangsefni bæjarstjórnar
séu tengd óskum bæjarbúa um þjón-
ustu, framgangsmáta og framkvæmd-
ir á vegum bæjarins. Ekki em það allt
stórmál, en skipta einstaka bæjarbúa
miklu máli í hverju tilviki. Bæjar-
stjómin vill verða við þessum óskum
og ábendingum innan þess ramma
sem fjármagn og almennar reglur
leyfa. Það er því ljóst að aldrei geta
allir fengið sínar óskir uppfylltar.
Fjárhagsáætlun
samþykkt
Ef vikið er að einstökum málum er
vert að geta þess að bæjarstjómin
hefur þegar samþykkt fjárhagsáætlun
fyrir árið 1999. Er það nýlunda að
fjárhagsáætlun sé afgreidd svo
snemma fyrir næsta ár. Bæjarstjómin
hyggst með þessum hætti feta inn á
þá braut að gera fjárhagsáætlunina að
góðu og markvissu stjómtæki í fjár-
málum bæjarins, en nokkuð hefur
þótt skorta á að svo hafi verið. Við
munum kappkosta að halda fjármál-
unum innan rammans sem settur er.
Margir hafa heyrt að skuldastaða
Akraneskaupstaðar sé slæm. Svo er
þó ekki. Hér tíðkast hins vegar að
telja fram allar skuldir og skuldbind-
ingar í reikningum en það gera flest
sveitarfélög ekki. Þess vegna er allur
samanburður okkur óhagstæður. Hitt
er alveg ljóst að ekkert vit er í að
auka skuldir verði með einhverju
móti hjá því komist.
Tekið í pyngjuna
Næstu stórverkefni á vegum bæj-
arins eru einsetning gmnnskólans og
fráveitumál. Þetta em framkvæmdir
sem gætu kostað um 600 milljónir
króna. Fé til svona risaverkefna verð-
ur ekki hrist fram úr erminni. Því var
ákveðið að hækka holræsagjöld til
þess að hala upp í þann kostnað sem
liggur í framkvæmdum í holræsamál-
um, en framkvæmdum við þennan
málaflokk þarf að ljúka fyrir árið
2005. Hins vegar er lítill vafi á því að
einsetningin kemur til með að auka
skuldir bæjarsjóðs eitthvað á kjör-
tímabilinu, en einsetningunni á að
ljúka 2001.
Greiðar samgöngur-
góð þjónusta
Við Akumesingar búum nú við
gjörbreyttar aðstæður í samgöngu-
málum. Opnun Hvalfjarðarganga er
þvílík bylting að áhriftn em ekki öll
komin í ljós.
Þessarar
samgöngu-
breytingar
var beðið
með von og
ótta í bland. í mínum huga er enginn
vafi á jákvæðu áhrifunum. Auðvitað
verða menn að standa sig gagnvart
þéttbýlinu sunnan fjarðar, nú dugir
engin fjarlægðarvemd. Ég veit að
þjónustuaðilar hér í bæ hafa bmgðist
við nýrri ógnun og reynt að nýta sér
tækifærin sem skapast hafa.
Við breyttar aðstæður er mikil-
vægt að gera sér grein fyrir þeim já-
kvæðu kringumstæðum sem búið er
við. Akumesingar eiga því láni að
fagna að njóta góðrar þjónustu á sviði
samfélagsmála. Skólarnir, heilsu-
gæslan, öldrunarþjónustan og almenn
félagsþjónusta er með því besta sem
þekkist.
Almennur bæjarbragur er ágætur
og gróska á mörgum sviðum. Þess
vegna er gott að búa hér. Húshitunar-
kostnaður hefur hins vegar verið hér
í hærra lagi, en nú hefur stjóm HAB
ákveðið að lækka gjaldskrána um 5%
á næsta ári. Mikilvægt er að vinna á-
fram að lækkunum og munu fulltrúar
Akumesinga í stjórn fyrirtækisins
beita sér fyrir því. Akranes er vax-
andi bær með bjarta framtíð. Fólki
fjölgar og atvinna vex. Bæjaryfirvöld
eru þess fúllvis að vel sé tekið á móti
þeim sem hingað vilja flytja. Þess
vegna eigum við að líta til næsta árs
með gleði og bjartsýni. Við skulum
saman vinna að því að Akranes verði
í efsta sæti á sem flestum sviðum. Ég
vil að lokum óska öllum bæjarbúum
gleðilegs nýs árs og þakka kærlega
fyrir samstarfið á árinu 1998.
Sveinn Kristinsson
forseti bœjarstjómar Akraness.
Sveinn Kristinsson
PJÓNUSTfi P]ÓNCJSTfi PJÓNUSTfi
VÍRNET
H
F
JARNSMIÐJA
-gjafagrindur fyrir sauðfé
-iðnaðarhurðir - hesthúsinnréttingar -
rúllugreipar - zepro vörulyftur -
-öll almenn smíði og sérsmíði - efnissala
Einnig gerum við viðskiptavinum
tilboð þeim að kostnaðarlausu
s: 437 1000 fax: 437 1819
tölvupóstur: vimet@itn.is
#2l
8'
SKI LTAGÉRt) Ö
HÚSAMÁLUN
Bjarni Steinarsson
móiarameistari Borgarnesi
Sími 437 1439 Fax 437 1590
Steypa - Garðasandur - Fín möl -
Gróf möl - Grús - Vörubílar -
Traktorsgrafa - Pínulítil grafa -
Jarðborar - Brotfleygar - Steinsagir
- Jarðvegsskipti - Innkeyrslur -
Garðveggir og margt fleira
Höfðaseli 4 - Akranesi - Sími 431 1144
ÞORGEIR & HELGI
vötwfwmtiGHR nmtív.
SÓtaAKKA 9. SlíHASU 4J7-2039, 852-4974
böstödaítutnfogar TÖKUÍ4
AfGRoosu t arrmvlK: m Kim&sðapuM ioparnOwer: nom
STEINSOGUN
KJARNABORUN
STÍFLULOSUN
RÖRAMYNDUN
REYNIÐ VIÐSKIPTIN
SIMAR:
434 7883
854 5883
GÚSTAF
JÖKULL
Hef til leigu:
Vinnulyftu er nœr
3,5 metra, körfu-
bíl er nœr 13 metra og spjót
er fer Í20 metra hœð.
Oft má spara tíma,fé og
fyrirhöfn með réttu tcekjunum.
S: 431 2180 & 893 5536
Sími 4312028
DUtJHV Ægisbraut 30
• Gjafavara • Leikföng
’ Myndir • Málverk • Innrömmun • Speglar
• Rúllugardínur • Kappar • Gardinubrautir
Tek hross í tamningu og þjálfun
Baldur Bjömsson,
Múlakoti
S: 435 1396