Skessuhorn - 12.08.1999, Page 1
I
VIKUBLAÐÁ VESTURLANDI - 31.tbl. 2. árg. 12. ágúst 1999 Kr. 200 í lausasölu
Innbrotafaraldur í Borgarfirði
Bíræfiiir þjófar um hábjartan dag
„Markaðssvæði“ síbrotamanna að stækka segir lögreglan
Lögreglan í Borgamesi hand-
samaði síðastliðinn fimmtudag
tvær konur á miðjum aldri sem
höfðu látið greipar sópa í húsum
og fyrirtækum í bænum.
Að sögn lögreglu var fyrst til-
kynnt um athafhir kvennanna
tveggja um kl. 14.30 en þá höfðu
þær stolið fatnaði og öðrum
munum úr búningsklefum sund-
laugarinnar í Borgamesi. Skömmu
síðar var tilkynnt um þjófnað í
Vörahúsi KB og loks vora konurn-
ar staðnar að verki þar sem þær
vora að bera myndbandstæki og
ýmsa aðra lausamuni út úr íbúðar-
húsi. Þá höfðu þær brotist inn í bíl
og stolið þaðan símtóli af farsíma.
Lögreglan handsamaði aðra
konuna eftir nokkra leit um kl.
18.00 í Hyrnunni. Hin fannst
skömmu síðar í hjólhýsi skammt
fyrir ofan Borgarnes. Að sögn
lögreglu er málið upplýst en enn er
Undanfarna daga licíur verið cinmuna blíða hér á Vesturlandi.
Strákarnir á Skaganum hafa }>W dag eftir dag getað leikið sér á
Langasandi og líkar það vel, eins og meðfylgjandi mynd ber
með sér.
Mynd: KK
nk
mjjk
; :
ap
WM
hluti þýfisins ófundinn. Konurnar
bíræfnu, sem vora undir áhrifum
áfengis eða annara vímuefna, munu
hafa safnað afraksrinum úr innbrot-
unum saman á nokkra staði og
æduðu síðan að sækja feng sinn við
betra tækifæri.
„Það er full ástæða til að hvetja
fólk til að gæta vel að eigum sínum
og muna að læsa húsum og bílum,“
sagði Þórður Sigurðsson yfirlög-
regluþjónn í Borgarnesi í samtali
við Skessuhorn. „Innbrot fara
vaxandi á þessu svæði og þjófar era
orðnir býsna bíræfnir eins og síð-
ustu dæmi sanna. Því er nauðsyn-
legt að fólk láti vita ef það verður
vart við gransamlegar mannaferðir
við hús sín og hjá nágrönnunum“.
Um helgina var einnig tilkynnt
um innbrot í sumarbústað í Skorra-
dal en það mál er óupplýst.
Samkvæmt heimildum Skessuhorns
hefur innbrotum fjölgað til muna á
Vesturlandi á undanfömum miss-
eram og í mörgum tilfellum virðist
vera um að ræða síbrotamenn af
höfuðborgarsvæðinu sem skreppa
út á Iand í ránsferðir. „Það má segja
að markaðssvæði síbrotamanna sé
að stækka og menn verða að átta sig
á að þeir era ekki óhultir í dreif-
býlinu frekar en annars staðar,“
sagði lögreglumaður í Borgarnesi í
samtali við Skessuhorn.
G.E.
Vatnaði
hrútnum...
o
o
Irskar búðir
grafiiar upp við
Gufuskála
Kvennareið