Skessuhorn - 12.08.1999, Page 3
saasstíHöBK
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999
3
Betri þjónusta fyrir bömin
Beðið um barnalækni í hálft starf við SA
Nú í vikunni var Ingibjörgu
Pálmadóttur heilbrigðisráðherra
og Sigurði Olafssyni fram-
kvæmdastjóra Sjúkrahúss Akra-
ness afhentir undirskriftalistar
þar sem foreldrar ungra bama á
Akranesi skora á stjóm SA að
ráða bamalækni í að minnsta
kosti 50% starf. Eins og staðan
er í dag er bamalæknir til viðtals
á sjúkrahúsinu tvisvar til þrisvar í
mánuði.
Að sögn Jóhönnu Olafsdóttur,
sem var í forsvari fyrir undirskrifta-
söfnuninni, eru foreldrar ungra
barna á Akranesi óánægðir með að
þurfa að sækja sérfiræðiþjónustu til
Reykjavíkur. „Það er almenn ánægja
með bamalækninn, sem starfar við
spítalann, en hann annar engan
veginn þeirri þörf sem er fyrir
hendi þá tvo daga sem hann er hér
í mánuði. Það er kostnaðarasamt og
tímafrekt að þurfa að sækja þessa
þjónusm til Reykjavíkur og okkur
finnst ótrúlegt að jafn gott
11 ;
Jóhanna Ólafsdóttir afhendir Siguröi Ólafssyni undirskrifialistana.
sjúkrahús og SA skuli ekki getað
boðið upp á þá sérffæðiþjónustu
sem böm þurfa á að halda. Við
bendum m.a. á að á Selfossi er
barnalæknir til viðtals tvisvar í
viku,“ sagði Jóhanna.
„Við viljum gjarnan bjóða upp á
sem besta þjónustu og á sem flest-
um sviðum en það hefur reynst
erfitt að fá stöðugildum fjölgað við
Sjúkrahúsið þótt þörfin hafi aukist.
Þess má reyndar geta að
stöðugildum hefur fækkað úr 161 í
148 á fáum árum,“ sagði Sigurður
Olafsson ffamkvæmdastjóri SA.
G.E.
Framhaldsskóli í Grundarfirði
Undirbúningur fjarnámsins gengur vel
Eins og greint hefur verið ffá í
Skessuhomi mun kennsla á
framhaldsskólastigi með fjar-
námi hefjast í Gmndarfirði í
haust. Að sögn Bjargar Agústs-
dóttur sveitarstjóra Eyrasveitar
hefur xmdirbúningur gengið vel
og ljóst er að aðsókn verður góð.
„Það verða átta eða níu nemend-
ur sem stunda þetta nám í vetur á 1.
og 2. ári á framhaldsskólastigi og
við erum mjög ánægð með þennan
áhuga. Menntamálaráðuneytið setti
það skilyrði að nemendur yrðu að
lágmarki 5 en þetta er mjög þægi-
legur fjöldi í fyrsta skiptið,“ sagði
Björg.
Fjarnámið í Grundarfirði er
unnið í samstarfi við FVA og Verk-
menntaskólann á Akureyri og er
það hugsað sem tilraunaverkefni í
vetur. Björg kvaðst bjartsýn á
fhamhaldið en vildi þó ekki fullyrða
um hver þróunin yrði. Aðspurð um
hvort hún sæi ffam á að á næstu
árum yrðu útskrifaðir stúdentar í
Grundarfirði, sagði Björg: „Það er
vissulega spennandi tilhugsun að
svo gæti orðið en við tökum eitt
skref fyrir í einu.“
Upphaflega stóð til að útbúa
aðstöðu fyrir fjarnámið í
Grunnskóla Eyrarsveitar en þar er
allt pláss fullnýtt. Að sögn Bjargar
er verið að ganga frá leigusamningi
um hús í næsta nágrenni og þar
verður útbúin fjarkennslumiðstöð
sem einnig er ædunin að nýtist fyrir
nám á vegum Símenntunarmið-
stöðvarinnar, fundi ofl. I fjar-
Bj'órg Agústsdóttir sveitarstjóri í Grund-
arftrdi
kennslumiðstöðinni verður komið
fyrir fjarfundabúnaði en öll stærri
sveitarfélögin á Vesturlandi hafa
ákveðið að festa kaup á slíkum
búnaði. G.E.
Fpmleifarannsóknir hafnar í
Irsku búðum í Snæfellsbæ
Vestasta víkingaaldarbýli í Evrópu
Síðastliðinn þriðjudag hófust
fomleifarannsóknir í Irsku búð-
um skanunt ffá Gufuskálum en
þar eru tóftir landnámsbýlis sem
talið er vestasta víkingaaldarbýli
í Evrópu. Rannsóknin er meðal
annars sérstök að því leyti að
hún er kostuð af heimamönnum
að stórum hluta.
„Það er afar sjaldgæff að fyrirtæki
styrki rannsóknir af þessu tagi og
mér vitanlega hafa heimamenn
aldrei stutt slíkt verkefhi með jafn
beinum hætti;“ sagði Bjarni Einars-
son hjá fslensku fornleifaffæðistof-
unni sem sér um uppgröftinn. Þeir
sem kosta rannsóknina eru
Snæfellsbær, Kristján Guðmunds-
son hf og Hraðfrystihús Hellis-
sands. Þá hlaut verkefnið styrk frá
Samgönguráðuneytinu en Irsku
búðir þykja einkar vel staðsettar
með ttilliti til ferðamennsku.
Það sem öðru fremur vekur
áhuga manna á þessum rústum er
að þær eru vel varðveittar og hér
má finna um tíu hús og meira að
segja vatnsból, brunn og kuml
þannig að segja má að hér sé allt í
einum pakka. Ég þekki raunar
engar heillegri minjar landnáms-
jarðar með nánast öllum þeim rúst-
um sem slíkum býium hefur fylgt.
Við vitum að þetta er landnámsbýli
sem hefur verið komið í eyði fyrir
árið 1000 en rústimar hafa verið
aldursgreindar, bæði húsagerðar-
ffæðilega og með geislakolgrein-
ingu C-14.“
Bjarni sagði að rannsóknirnar
miðuðu ma. að því að varpa ffekara
ljósi á uppmna býlisins. „Við von-
umst til að fá að vita eitthvað um þá
sem bjuggu hér. Hversvegna býlið
fór í eyði og hvert fólkið fór. Þetta
hefur verið stórt býli og
möguleikamir era miklir. Við gróf-
um rannsóknarholur hér árið 1996
og niðurstöður gáfu tilefni til að að
ætla að margra gripa sé að vænta úr
uppgreffrinum,“ sagði Bjarni.
Ekki írskar búðir
Nafriið írskubúðir gefur mönn-
um óneitanlega til kynna að land-
námsmennirnir hafi verið af kelt-
nesku bergi brotnir en Bjarni segir
engar líkur á því. „Við vitum að
þetta er ósköp hefðbundið skandi-
navískt býli. Það era mestar líkur á
að nafnið sé seinni tíma tilbúningur
vegna annarra ömefina á svæðinu.
Líklega hafa rústimar verið settar
beint í samband við Irskra brann en
Irsku búða er fyrst getið í rituðum
heimildum í ffásögn dansks kaup-
manns í Iok 18. aldar.
Sýslumaðurinn með
Fyrirhugað er að rannsóknirnar á
Irsku búðum standi í tvær til þrjár
vikur en Bjarni sagði ffamhaldið
ráðast af fjármögnun. „Við tökum
fyrir afmarkað svæði sem er hluti
skálans og hugsanleg viðbygging.
Ef það ætti að fullgrafa svæðið er
það tíu ára verk.“
Fimm manns taka þátt í
rannsókninni. Auk Bjarna eru það
Daníel Lindblatt sænskur forn-
leifafræðingur, Sæmundur Krist-
jánsson á Rifi, Magnús Sigurðsson
minjavörður Vesturlands og sýslu-
maður Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu; Olafur K Olafsson.
G.E.
Starsfólk vantar \ sauðfjárslátrun í
sláturhúsi okkar í Borgarnesi í haust.
Vinsamlegast hafið samband við
sláturhússtjóra í síma 430 5703
eða skrifstofu í síma 430 5700.
Sláturfélag Vesturlands h.f.
NVB Búðardal
Sláturhús
Erum að taka í notkun nýja
vinnslulínu í slátursal.
Vantar fólk til starfa.
Slátrun hefst í september.
Vinsamlegast hafið samband við
Svein sláturhússtjóra
í síma 434 1195
og á kvöldin í síma 434 1288.
ISLAN DSBAN Kl
Islandsbankamót
Hið árlega fslandsbankamót verður
haldið á félagssvæði Dreyra
Akranesi, dagana 14. og 15. ágúst.
Keppt verður í öllum greinum
hestaíþrótta. Mótið qiídir sem
stigasöfnun í Woríd Cup.
Skráningar í símum 431 2212 og
899 7355.
Skráningu lýkur fimmtudaginn 12. ágúst.
Hestamannafélagið Dreyri.