Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.1999, Blaðsíða 3

Skessuhorn - 19.08.1999, Blaðsíða 3
c xv£33Unw,- 't t i cti i i < T; n i t;..i n FIMMTUDAGUR 19. AGUST 1999 3 Kaupfélag Borgfirðinga hefur keypt Bílasölu Vesturlands til að rýma tilfyrir nýju Versl- unarhúsnæði Kaupfélagið byggir á tveimur lóðum Ahaldahúsið og bílasalan víkja fyrir nýju verslunarhúsi Á fundi bæjarstjómar Borgar- byggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt samhljóða að út- hluta Ióðinni að Borgarbraut 60 til Kaupfélags Borgfirðinga und- ir byggingu verslunar og þjón- ustuhúsnæðis í tengslum við Hymima. I framhaldi af þessari lóðarúthlutun hefur Kaupfélagið samið við Bflasölu Vesturlands um kaup á húsnæði og lóð fyrir- tækisins að Borgarbraut 58. „Það er ætlunin að byggja þama verslunarhús sem hýst gæti allar deildir Vömhúss Vesturlands og þá aðila sem lýst hafa áhuga á að vera þarna með okkur. Það ræðst síðan af möguleikum lóðarinnar hvort það tekst að koma allri þessari starfsemi þarna fyrir;“ sagði Guð- steinn Einarsson kaupfélagsstjóri í samtali við Skessuhom. Auk þeirra aðila sem leigja aðstöðu í Kaupfé- lagshúsinu að Egilsgötu 11 hefur Apotek Borgarness lýst áhuga á að flytja starfsemi sína í nýja verslun- arhúsnæðið. Guðsteinn sagði það ekki ákveð- ið hvort nýja húsið yrði samtengt Hyrnunni en það yrði óhjákvæmi- lega í mikilli nálægð við hana og einnig húsnæði Framköllunarþjón- ustunnar. „Hugmyndin er að þarna verði öflugur verslunarkjarni,“ sagði Guðsteinn. Aðspurður um hvenær mætti bú- ast við að fýrsta skóflustungan yrði tekin, sagði Guðsteinn: „Eigum við ekki að láta tímann leiða það í ljós? Næsta skref er að teikna og síðan þarf að fá teikningamar samþykkt- ar hjá bæjaryfirvöldum og að feng- inni reynslu reikna ég ekki með stuttum tíma í það ferli. Við mun- um hinsvegar hraða okkar vinnu eins og hægt er,“ sagði Guðsteinn. GE Hágæða skólatilbo HP Brio BA 400MHz Celeron 64 mb. SDRAM stækkanl. í 512 mb. 8,4 GB diskur 4 mb. SIS super AGP skjákort, stækkanl. í 8 mb. 32X geisladrif, 56 k PCI modem Labtec hátalarar, SoundBlaaster samhæft hljóðkort 17“ HP 70 skjár. Windows 98. McAfee vírusvamarforrit 3 ára ábyrgð á varahlutum 3 mánaða áskrift að Intemetinu. HP Deskjet 695C litaprentari HP ScanJet 3200C 600x1200 parallel skanni. Verð kr. 139.700,- m. vsk., staðgr. 4^ sb fcb 'T> HP OmniBook XE2 ferðatölva Intel Celeron 333MHz, 12.1“ SVGAHPAlitaskjár, 32 mb SDRAM minni, 3.83 GB diskur. 3,5“ diskl. drif, 24X geisladrif. SB 16 samhæft hljóðkort, stereó hátalarar og hljóðnemi. 56k módem, innrautt tengi, PCMCIA tengi, 25p tengi, 9p tengi, USB tengi, NiMH rafhlaða f. allt að 3 tíma notkun. Windows 98, McAfee vírusvörn. Árs ábyrgð. 3 kg. Verð kr. 149.900,- m. vsk., staðgr. jr^lr B S m Vesturgata 48, 300 Akranes ' ~ Sími 430-7000, tolva@tolva.is ÞJÓINIUSTAN

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.