Skessuhorn - 19.08.1999, Blaðsíða 14
i 14
' ’ fUÍMfuÉ>AtlUR'Í9: 'ÁGUff 1999
^•kC.99UtíÚ«L
Hið brdðefnilega lið Gnmdfirðinga sem varð í öðru sœti á Islandsmóti sjö manna liða í 4. flokki.
Grundfirðingar góðir
í fótbolta
Úrslit í íslandsmóti sjö manna liða í 4. flokki haldið í Grandarfirði
Á Grundarfirði er að vaxa upp
kynslóð öflugra knattspymumanna
eins og árangur þeirra í sumar ber
með sér. Strákamir í 4 flokki urðu í
2. sæti á Islandsmóti sjömannaliða
en úrslit þess fóm fram í Grundar-
firði um síðustu helgi.
Mun það vera í fyrsta skipti sem
úrslitakeppni Islandsmóts fer fram í
bænum. Ungmennafélag Grundar-
fjarðar sendi einnig lið í Islandsmót
3. flokks kvenna en þetta er í fyrsta
sinn í fimmtán ár sem UMFG
sendir lið á mót á vegum KSI. Ár-
angur beggja þessara liða var mjög
góður og komust þau bæði í úrslit
eftir riðlakeppni. Lið 4. flokks sigr-
aði alla leikina í sínum riðli með yf-
irburðum og vann sér þanrúg þátt-
tökurétt í úrslitakeppninni sem
ffam fór í Grundarfirði um síðustu
helgi.
Keppninn í Grundarfirði var jöfn
og spennandi og þótti mótið takast
hið besta í alla staði. Til úrslita léku
Grundfirðingar og Bolungarvík og
hömpuðu hinir síðarnenfndu bik-
arnum í lokin. I þriðja sæti varð síð-
an Sindri frá Hornafirði.
Þjálfari UMFG er Arnar Guð-
laugsson en hann fór með stúlkna-
liðið í úrslitakeppnina á Eskifirði
um síðustu helgi en mótsstjórnin í
Grundarfirði var á herðum Haf-
steins Garðarssonar formanns
knattspyrnudeildar UMFG. Að
Sigurvegararnir.; lið Bolungarvtkur.
Þrumað á markið í leik UMFG og Leifturs sem endaði 16 - Ofyrir Grundfirðingum!
Myndir: Guðlaugur Albertsson
sögn mótshaldara hjálpuðust for-
eldrar og aðrir áhugamenn að við
að gera mótið sem best úr garði og
fyrirtæki og sveitarstjórn styrktu
mótshaldið.
Skessuhorn óskar strákunum í
Grundarfirði til hamingju með
glæsilegan árangur.
GA/GE
Pepsímót ó.flokks
Allir skemmtu sér
konunglega
ÍA-Fram 1-0
Jóhannes Harðar bjargaði deginum
Skagamenn sigruðu Fram með
einu marki gegn engu í heldur
dauflegum leik á sunnudag.
Jóhannes Harðarson skoraði
mark IA beint úr aukaspyrnu á 79.
mínútu og verður markið að teljast
með þeim glæsilegri sem sést hafa á
vellinum í sumar. Eftir undanúr-
slitaleikinn við IBV þar sem liðið
fór á kostum virðist hafa orðið
heldur betur spennufall og næsta
erfitt að trúa því að um sama lið
væri að ræða.
Fyrri hálfleikurinn var nokkuð
jafh og skiptust liðin á að sækja.
Bestu færi Skagamanna voru tvær
aukaspyrnur sem Stefán Þór Þórð-
arson tók, og þá sérstaklega hin síð-
ari þar sem Friðrik Þorsteinsson
markmaður Fram náði ekki að
halda boltanum eftir fast skot og
bjargað var á línu. Framarar fengu
líka sín færi og átti Ágúst Gylfason
skot í stöng á 35. mínútu.
Skagamenn sóttu meira í seinni
hálfleik en sama deyfðin var engu
að síður yfir leik þeirra. Það sem
bjargaði deginum var glæsimark Jó-
hannesar og ágæt markvarsla Olafs
Þórs Gunnarssonar sem stóð sig
með stakri prýði í marki Skaga-
manna og átti kannski ekki minni
þátt í sigrinum en Jóhannes.
Þrír Skagamenn fengu áminn-
ingu í leiknum, þeir Kenneth Mati-
jane og Kristján Jóhannsson, og
rétt fyrir leikslok fékk Stefán Þór
gult spjald fyrir meintan leikara-
skap í vítateig andstæðinganna.
K.K.
380 strákar öttu kappi á
sparkvöllum á Akranesi um helg-
ina á árlegu Pepsímóti 6. flokks.
Mótið var sett fyrir hádegi á
fostudag á aðalleikvanginum og
síðan upphófst mikill knatt-
spymuveisla sem stóð í þrjá
daga. Urslitaleikimir fóm firam á
aðalleikvanginum og mætti fjöldi
áhorfenda til að hvetja sína
menn.
Að sögn Gunnars Viðarssonar,
mótstjóra, voru aðstandendur
mótsins hæstánægðir með hvernig
til tókst. „Allt gekk að óskum og
þar er náttúrlega lykilatriði veðrið
en við fengum ágætt veður alla
mótsdagana,“ sagði Gunnar. Hann
segir almenna ánægju hafa verið
meðal fararstjóra með skipulagn-
inguna og allir hafi skemmt sér
konunglega. „Ef að veðrið er í lagi
þá er allt í lagi. Það er fótboltinn
sjálfur sem er auðvitað aðalatriðið
og það spillti ekki fyrir að strákarn-
ir í flokki A-liða sigruðu glæslilega,
bæði í hraðmótinu og aðalkeppn-
inni,“ sagði Gunnar. Pepsímótið fer
stækkandi með hverju árinu og seg-
ir Gunnar að stefnt sé að því að
gera það ennþá stærra.
Urslit í hraðmóti
A-lið:
1. ÍA
2. Fjölnir
3. Stjarnan
B-lið:
1. Fjölnir 1
2. Fjölnir 2
3. KR
C-Iið:
1. Stjarnan
2. Fjölnir 1
3. KR
D-lið:
1. Stjarnan
2. Fjölnir 1
3. KR1
Urslit í aðalmóti
A-Iið:
1. ÍA
2. ÍBV
3. Fjölnir
B-lið:
1. Sindri
2. KR
3. Stjarnan
C-lið:
1. Stjarnan
2. KR
3. ÍA1
D-lið:
1. Stjarnan 1
2. KR1
3. KR 2 KK
A - lið IA var sigursælt á mótinu og sigraði bœði í hraðmótinu og aðalkeppninni.
Strákamir frá Keflavík voru valdir prúðastir pilta á Pepsímótinu. Mynd: KK
Landssímadeild kvenna
ÍA - KR: 0-3
KR stelpurnar hafa sigrað í öll-
um deildarleikjum sínum í sumar
og héldu sínu striki á Skaganum á
mánudag. Inga Dóra Magnús-
dóttir skoraði fyrsta mark KR á
fimmtu mínúm en skömmu síðar
varði hinn stórefnilegi mark-
vörður IA, Dúfa Dröfti Ásbjörns-
dóttir vítaspyrnu frá Ásthildi
Helgadóttur. Ásdís Þorgilsdóttir
skorði síðan tvö mörk undir lok
hálfleiksins. Skagstúlkurnar
héldu jöfnu í seinni hálfleik og
voru ekki fleiri mörk skoruð í
leiknum.
KK.
I