Skessuhorn - 19.08.1999, Blaðsíða 13
iÍBEáSSOHÖÉR!
' FI.M.\m,DA(;UR 19. ÁGÚST 1999
13
/ ■
fí oaktinni
í brúnni á Breiðafj arðarferj -
unni Baldri stendur vaktina
þessa vikuna Þröstur Magnús-
son, skipstjóri. Hann hefúr
verið munstraður á skip fyrir-
tækisins síðan 1987. Baldur
siglir tvær ferðir yfir Breiða-
fjörð á sumrin milli Stykkis-
hólms og Brjánslækjar með
viðkomu í Flatey.
Þi-östur Magnússon. Mynd: K.K.
Hvefjir eru helstu kostir þess að
vera skipstjóri á Baldri?
„Maður kemst heim til sín öll
kvöld og veit að hverju maður
gengur og hvað fæst í vasann.
Þetta er ekki eins og á fiskiríin
þar sem allt byggist á því hvort
eitthvað aflast eða ekki. Maður á
auðveldara með að gera áætlanir
fram í tímann og vaktafyrir-
komulagið auðveldar manni líka
að skipuleggja frítímann. Við
skiptum hér á viku fresti, vinnum
eina viku og eigum síðan frí í
viku. Síðan er lítið mál að hrók-
era tímabilum ef eitthvað meira
stendur til. Á veturna erum við
færri hér um borð og vinnum þá
í hálfan mánuð og eigum frí í
viku þess á milli.“ .
Okostir?
„Þeir eru ekki margir. Það er
kannski helst langur vinnudagur
á sumrin. Við byrjum þá átta á
morgnana og erum fram til 11 á
kvöldin en þetta er eins og með
öll störf held ég, stundum er
leiðinlegt, stundum skemmti-
legt.“
Einhver eftirminnileg atvik?
„Það er ýmilegt sem kemur
upp í hugann. Við björguðum til
að mynda eitt sinn grásleppubáti
hérna við Hrauneyjakletta. Það
hafði komið gat á bátinn og við
hirtum hann upp og komum
honum að Brjánslæk. Svo höfum
við lent í alls konar æfingum við
að fara með tæki og dót í eyjarn-
ar þegar er stórstreymt en þá er
traktorsgröfum og þvílíku keyrt
beint út að aftan. Við höfum
einnig tekið þátt í leit með björg-
unarsveitir innanborðs og lið-
sinnum að sjálfsögðu við leit og
björgun á Breiðafirði."
Hvað vildir þú helst sjá breytast
hér á Vesturlandi?
„Ætli það séu ekki helst sam-
göngumálin. Það er mjög gott að
búa í Hólminum og verður enn-
þá betra eftir að hitaveitan kem-
ur en ég vildi fá betri samgöngur
á nesið. Vegur yfir Vatnaheiði er
ágætis kostur en einnig mætti at-
huga að byggja upp veginn héma
norðanmegin, brúa Álftafjörð og
laga veginn suður yfir Heydal.
Veðurhæðin er trúlega töluvert
minni þar en á Kerlingarskarði."
K.K.
Sigurbjöm og Þórður vorujafnir í 250 m. skeiði ogþurftijón mótsstjóri að varpa hlut-
kesti um hvor hlyti 1. verðlaun. Mynd K.K.
íslandsbankamót Hestamannafélagsins Dreyra
Sterkustu hestar
landsins
íslandsbankamót Hestamanna-
félagsins Dreyra fór ffam um
síðustu helgi og var þátttaka góð
að venju.
Fjölmargir hestamenn á öllum
aldri hvaðanæva af landinu reyndu
með sér á gæðingum sínum og var
almenn ánægja með skipulag og
fyrirkomulag mótsins. Margir af
sterkustu hestum landsins um þess-
ar mundir voru mættir til leiks og
árangurinn ágætur í flestum grein-
um. Vallarmet vora sett á Bárðar-
nesbrautinni en þetta er í þriðja
sinn sem keppt er þar.
Sigurbjöm Bárðarson úr Fák, ný-
bakaður heimsmethafi í 250 m
skeið varð stigahæsti knapi mótsins
í opnum flokki með 407,65 stig en
hann lætur sig aldrei vanta á þetta
mót.
Dómarar voru Steindór Guð-
mundsson, Gylfi Geirsson, Sigurð-
ur Jökulsson, Helga Ágústsdóttir
og Sigrún Olafsdóttir. Um móts-
stjórn sájón Sigurðsson.
Sigurvegarar í íslenskri tví-
keppni:
Bamaflokkur:
Sandra Líf Þórðardóttir úr Sörla á
Díönu frá Enni með 100,70 stig
Unglingaflokkur:
Sylvía Sigurbjörnsdóttir úr Fák á
Djákna frá Litla Dunhaga með
126,7 stig
Ungmennaflokkur:
Daníel Ingi Smárason úr Sörla á
Seið frá Sigmundarstöðum með
126,31 stig
Opinn flokkur
Sigurbjörn Bárðarson úr Fák á
Oddi frá Blönduósi með 140,85
stig
Skeið tvíkeppni:
Ungmennaflokkur:
Unnur Olga Ingvarsdóttir úr Sörla
á Gosa ffá Ási með 56,10 stig
Opinn flokkur:
Þórður Þorgeirsson úr Geysi á
Kjark frá Ásmúla með 168,80 stig
Stigahæstu knapar mótsins:
Bamaflokkur:
Sandra Líf Þórðardóttir úr Sörla á
Díönu ffá Enni með 100,70 stig
Unglingaflokkur:
Sylvía Sigurbjörnsdóttir úr Fák
176,52 stig
Ungmennaflokkur:
Daníel Ingi Smárason úr Sörla
204,51 stig
Opinn flokkur:
Sigurbjörn Bárðarson úr Fák með
407,65 stig
Tölt Opinn flokkur
Sigurbjörn Bárðarson á Húna frá
Torfunesi 7,88 55,13
Fjórgangur Bamaflokkur
Camilla Petra Sigurðardóttir á
Fróða frá Miðsitju 6,16 46,50
Fjórgangur Unglingaflokkur
Kafen Líndal Marteisdóttir á
Mánna frá V-Leirárgörðum 7,47
56,42
Fjórgangur Ungmennaflokkur
Daníel Ingi Smárason á Seið frá
Sigmundarst. 6,82 51,49
Fjórgangur Opinn flokkur
Guðmundur Einarsson á Otta ffá
Miðhjáleigu 7,52 56,78
B-úrslit
Þórður Þorgeirsson á Fönix frá
Tjarnarlandi 7,09 53,50
Tölt Bamaflokkur
Unnur Gréta Ásgeirsdóttir á Dögg
frá Þúfu 5,68 68,20
Tölt Unglingaflokkur
Karen Líndal Marteisdóttir á
Manna frá V-Leirárgörðum 6,89
82,70
Tölt Ungmennaflokkur
Daníel Ingi Smárason á Seið frá
Sigmundarst. 7,17 86,00
Tölt Opinn flokkur
Sigurbjörn Bárðarson á Oddi frá
Blönduósi 7,85 94,20
B-úrslit
Páll Bragi Hólmarsson á Brúnhildi
frá Minni Borg 7,08 85,00
Fimmgangur Unglingaflokkur
Sylvia Sigurbjörnsdóttir á Lykli frá
Engimýri 6,40 57,60
Fimmgangur Ungmennaflokkur
Hinrik Sigurðsson á Hrafnhildi ffá
Glæsibæ 6,11 55,03
Fimmgangur Opinn flokkur
Vignir Jónasson á Klakk frá Bú-
landi 7,78 70,03
Úrslit
Benedikt E. Líndal á Létti frá Stóra
Ási 6,60 59,40
Gæðingaskeið
Ungmennaflokkur
Berglind Rósa Guðmundsdóttir á
Ótta ffá Svignaskarði 94,30 47,00
47,30
Opinn flokkur
Þórður Þorgeirsson á Kjarki frá Ás-
múla 107,30 53,50 53,80
150 m og 250 m skeið
150 m skeið
Sigurbjörn Bárðarson á Snarfara
ffá Kjalarlandi
250 m. skeið
Sigurbjörn Bárðarson á Ósk ffá
Litla Dal 22,1
Þórður Þorgeirsson á Hnossi ffá
Ytra Dalsgerði 22,1 K.K
Ritari óskast!
SSV og Atvinnuráðgjöf Vesturlands
óska eftir að ráða ritara til starfa sem
fyrst á skrifstofu í Borgarnesi.
Verkefni felast í
símsvörun,
ritvinnslu og
almennum skrifstofustörfum.
Umsóknir sendist til:
Samtaka sveitarfélaga í
Vesturlandskjördæmi,
pósthólf 32, 310 Borgames
fyrir 30. ágúst.
SSV og Atvinnuráðgjöf
Sími 4371318
Akraneskaupstaður
Bæjarstjórn Akraness
Bæjarstjórnarfundur verður í
bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18,
þriðjudaginn 24. ágúst 1999 kl. 17:00.
Útvarpað verður fré fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir stjórnmálaflokkanna
verða sem hér segir:
Akraneslistinn í Barbró,
laugardaginn 21.ágúst kl. 10:30.
Framsóknarflokkurinn í "
Framsóknarhúsinu,
laugardaginn 21. ágúst kl. 09:30.
Sjálfstæðisflokkurinn í Sjálfstæðissalnum,
Stillholti 16-18,
mánudaginn 23. ágúst kl. 20:30.
Fundirnir eru öllum opnir.
____________IL
Bæjarritari.
BORGARBYGGÐ
Borgarbyggð
Grunnskóli
Borgarness
1. Skráning nemenda.
Það em vinsamleg tilmæli til þeirra sem ekki
ennþá hafa tilkynnt um flutning nemenda í eða
úr skólahverfinu að þeir geri það hið allra fyrsta.
2. Skólaskjól.
Þeir forráðamenn nemenda í Borgamesi sem
þurfa dagvist fyrir böm sín í skólaskjóli em
beðnir um að sækja um fyrir þá á skrifstofu skólans
en þar er að fá allar nánari upplýsingar.
Heimilt er að sækja um fyrir nemendur í
1.-4. bekk.
■
Skrifstofa skólans er opin allar virka daga
frá kl. 8-16 og er sími skólans 437 1229.
Skólastjóri.