Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.1999, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 19.08.1999, Blaðsíða 8
T 8 FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1999 SSÍSSIÍHOÍ2KI Verðlaunahafar í Umhverfisátaki Skessuhoms 1999 ásamt Sturlu Böðvarssyni og Guðjóni Ingva Stefánssyni frá Sorpurðun Vesturlands. A myndina vantar fulltrúa frá Lyngholti í Leirár- og Melasveit og garðeigendur að Austur- holti 7 í Borgamesi. Mynd GE Umhverfisverðlaun Skessuhoms 1999 Hvalíjarðarstrandarhreppur snyrtilegastur og fiskvinnslan skarar framúr Umhverfisverðlaun Skessuhoms vom veitt annað árið í röð síðast- hðinn sunnudag og fór afhend- ing viðurkenninga fram í húsa- kynnum Snæfellsássamfélagsins að Brekkubæ á Hellnum. Þar hefur um nokkurra ára skeið verið rekin vistvæn ferðaþjónusta í góðri sátt við umhverfið. Því þótti vel við hæfi að veiting verðlaunanna færi þar fram að þessu sinni. Það var Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra og fyrsti þingmaður Vest- urlandskjördæmis sem afhenti verðlaunin að þessu sinni. I ávarpi hans kom hann m.a. inn á að um- gengni á Vesturlandi færi batnandi ár frá ári og væru fyrirtæki, einstak- lingar og sveitarfélög að verða meðvitaðri um mikilvægi þess að góð umgengni hefði mikið að segja í heildarímynd kjördæmisins. Verðlaunagripirnir sem afhentir voru eru smíðaðir af Páli Jónssyni hagleiksmanni á Hóli í Hvítársíðu og merkingar á þá gerði Bjarni Guðmtmdsson á Hvanneyri. Hvatning til snyrti- mennsku Umhverfisverðlaun Skessuhorns eru veitt þeim aðilum sem þykja skara fram úr í snyrtimennsku og góðri umgengni á Vesturlandi og er þeim ætlað að vera Vestlendingum hvaming til góðra verka í umhverf- ismálum. Verðlaunin eru veitt af Skessuhorni í samvinnu við Búnað- arsamtök Vesturlands, Sorpurðun Vesturlands og Vegagerð ríkisins. Veittar voru viðurkenningar fyrir fimm snyrtilegustu garðana, þrjú sveitabýli, þrjú fyrirtæki og snyrti- legasta sveitarfélagið að mati dóm- nefndar. Nefndina skipaði að þessu Hjónin Ingólfur Aðalsteinsson og Olöf Sveinsdóttir í Olafsvík áttu fallegasta garðinn á Vesturlandi í ár. He'r taka þau við verðlaununum ú hendi Sturlu Bóðvarssonar. Mynd GE sinni einvörðungu starfsfólk Skessuhorns, en leitað var til heimamanna í öllum byggðarlögum Vesturlands vegna tilnefninga, sem nefndin vann síðan eftir. Dómnefhd ferðaðist síðustu vikur um kjör- dæmið, gægðist inn í garða, gekk í kringum hús, tók myndir og snigl- aðist hér og hvar. Eðlilega litu sum- ir nefhdarmenn hornauga og ekki að furða í ljósi nýjustu frétta um innbrot og óknytti af ýmsu tagi nú upp á síðkastið. Umhverfið skiptir máli Ymsar kannanir hafa sýnt að um- hverfismál í víðum skilningi skipta miklu máli þegar fólk velur sér bú- setu. Þá eru það ekki einvörðungu atvinnumálin, skólamál og góðir eða slæmir vegir sem skipta öllu máli. Okkur líður jú betur innra með okkur, hvort sem það er með- vitað eða ekki, þegar umhverfið er snyrtilegt, ekki úir og grúir af drasli og sóðaskap, illa viðhöldnum bygg- ingum og niðurníðslu hverju nafni sem hún nefnist. Ekki sakar heldur að yrkja jörðina með fallegum trjá- plöntum og öðrum gróðri þar sem það á við. Segja má að undanfarin ár hafi menn orðið meðvitaðri um þátt umhverfismála og eru Vestlending- ar þar engir eftirbátar. Meira að segja frá síðast liðnu sumri hefur víða í kjördæminu orðið mikil breyting til batnaðar. Hins vegar má ýmislegt enn bæta og á það við um ákveðna þætti í öllum sveitarfé- lögum Vesturlands. Ekki verða nefhd nein ákveðin dæmi en heima- mönnum á hverjum stað látið eftir að dæma og bæta það sem bóta er þörf. Berserkseyri viö Grundaíföró var valin snyrtilegasta hújöróm. Mynd MM Úrslit Garðar á Vesturlandi Dómnefnd gekk út frá þeirri for- sendu að dæma umgengni á lóðum mjög almennt. Viðhald húsa, gang- stíga, girðinga, bílastæða, grasflata og annars gróðurs skipti þar máli. Því voru viðurkenningar veittar fyr- ir heildarásýnd lóða og mannvirkja, ffemur en einvörðungu garðana við húsin. 1. Skálholt lla, Olafsvík. Eigendur: Ingólfur Aðalsteinsson og Olöf Sveins- dóttir 2. Nestún 8, Stykkishólmi. Eigendur: Hörður Karlsson og Sigurborg Leifs- dóttir 3. Kjartansgata 6, Borgamesi. Eig- endur: Jón Finnsson og Sólrún Anna Rafnsdóttir 4. Jörundarholt 35, Akranesi. Eigend- ur: Egill Gtslason og Borghildur Birg- isdóttir 5. Austurholt 7, Borgamesi. Eigend- ur: Gísli Kjartansson og Edda Jóns- dóttir Sveitabýli á Vesturlandi I flokki bújarða var í ár ákveðið að veita viðurkenningar fyrir þrjú snyrtilegustu býlin. Eftir að nefhd- in hóf yfirreið sína kom þó í ljós að það átti eftir að reynast erfitt að geta ekki verðlaunað fleiri býli því mörg þeirra eiga viðurkenningar skildar. Þrátt fyrir að afkoma bænda- stéttarinnar hafi lítið batnað síðari árin eru sem betur fer flestir bændur sem gera betur en að halda í horfinu í viðhaldi útihúsa, girðinga og al- mennri umgengni. Slíkt ber að þakka sérstaklega í ljósi þess að um- ferð ferðamanna eykst ár ffá ári og vissulega er ásýnd bændabýla og snyrtimennska á jörðum það sem flestir sjá á ferð sinni um landið. 1. Berserkseyri, Eyrarsveit. Eigendur: Asdís Halldórsdóttir og Hreinn Bjamason. 2. Lyngholt, Leirár- og Melahreppi. Eigendur: Hafþór Harðarson, Vilborg Pétursdóttir, Hörður Ólafsson og Guð- ríður Einarsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.