Skessuhorn - 25.11.1999, Page 20
i
*\
BORGARNES tQlAPÓTEK
sími 437 1 168 Bakvakt 437 1 180
www.simnet. is/apotek
Leiðandi í Uýu lyfaíoedi & VeftuUúHÖi
ÆíilflKol
15% afsláttur
af hreinsun á
gardínum í nóv.
Borgarbraut 55, Borgarnesi. S: 4371930
SJOVAnjirTALMENNAR
Borgarbraut 61,310 Borgarnesi. S: 4371040
Agi og agaleysi
Dluga
Foreldrafélag
Grundaskóla á Akra-
nesi stóð fyrir fundi
um aga og agaleysi á
mánudagskvöld. Fyr-
irlesari á fundinum
var Illugi Jökulsson og
sagði hann áheyrend-
um frá hugmyndum
sínum um aga og aga-
leysi í ljósi eigin
reynslu, bæði úr upp-
vexti sínum og reynsl-
trnni af því að ala upp
barn en hann á tíu ára
gamla dóttur. Illugi
greindi m.a frá “Pitsu-
málinu” svokallaða
þegar 12 ára gamall
drengur var skikkaður
til að brjóta saman
pappakassa á pitsustað
í Reykjavík til að bæta Grundaskóla á
fyrir tjón sem hann
olli með símaati og 111-
ugi gerði að umtalsefni í einum af
landsfrægum útvarpspistlum sín-
um. Sagði hann hugmyndir sínar
um aga vera æði mótsagnakenndar
og væri hann vissulega fylgjandi
aga en án agaleysis yrði engin sköp-
mánudagskvöld.
Mynd: K. K.
un. Hann sagðist því einnig vera
hlynntur agaleysi og því fylgjandi
óþekkt upp að vissu marki - eins og
þeir vita sem hlusta á útvarp.
Fjörugar umræður urðu á fundin-
um sem var vel sóttur.
K.K.
Mannbjörg út
afRifi
Víðir KE
fékk á
sig brot
Víðir KE 101 fékk á sig brotsjó
skammt út af Malarrifi á Snæ-
fellsnesi á þriðjudag og sendu
skipverjamir tveir sem um borð
vom frá sér neyðarkall.
Bátar sem voru að veiðum á
svæðinu hófu þegar leit að Víði
KE. Þyrla Landhelgisgæslunnar
var lögð af stað en laust fyrir
klukkan 12 fann Jón Gunnlaugs
GK 444 bátinn og sneri þyrlan því
til Reykjavíkur á nýjan leik.
Jón Gunnlaugs fylgdi síðan Víði
til hafnar á Arnarstapa. Aðalsteinn
Björnsson stýrimaður á Jóni
Gunnlaugs sagði í samtali við
Skessuhorn að leiðindaveður hefði
verið á svæðinu og þegar Víðir
fékk á sig brotið hefði gluggi í stýr-
ishúsinu brotnað og öll tæki farið
úr sambandi.
K.K.
Hin aldraða, eyúslufreka enfengsœla lögregiubifreiö í Sncefellsbæ. Mynd: GE
Lélegur löggubíll
Lögreglumenn Snæfellsbæjar
eru ósáttir við þann bifreiðakost
sem þeir þurfa að búa við. Lögregl-
an á Snæfellsnesi hafði þar til fyrir
skömmu fimm bíla til umráða, þar
af tvo í Olafsvík en nú eru þeir að-
eins þrír. I Ólafsvík voru Nissan
Patrol og Econoline en þeir voru
fluttir annað og í staðinn kom Sub-
urban árgerð 1988 með bensínvél
sem eyðir um 44 lítrum á hundrað-
ið.
“Þetta er það sem við þurfum að
treysta á við öll okkar störf, hvort
sem er við hefðbundið eftirlit eða
til að flytja fanga og lík. Fólkið hér
treystir á að þessi þjónusta sé í lagi
en til þess að svo megi verða þarf
öruggan bíl,” sagði lögregluþjónn í
Ólafsvík í samtali við Skessuhom í
síðustu viku.
A lögreglustöðinni í Ólafsvík em
að jafnaði tveir lögregluþjónar á
vakt í einu en aðeins einn í Grund-
arfirði og Stykkishólmi. Það hefur
því færst í vöxt að hlutverk Ólafs-
víkurlögreglunnar sé að sinna hefð-
bundnu eftirliti og því em lög-
reglumennirnir undrandi á að ell-
efu ára gamall eyðsluhákur skuli
vera mest notaða lögreglubifreiðin.
Þess má hér til gamans geta að á
ögurstundum á ritstjóri Skessu-
horns það til að “kitla pinnann” á
ritstjórabíl sínum. Þegar hann
hafði tekið þessa frétt í Ólafsvík sl.
föstudag auk myndar af umræddum
lögreglubíl var hann stöðvaður fyr-
ir of hraðan akstur á leið sinni suð-
ur í Borgarfjörð. Og viti menn.
Lögreglubíllinn sem þar var á ferð-
inni var hinn eini og sanni lög-
reglubíll sem um ræðir af Suburban
gerð. GE/MM
Borð og 6 stólar 98.600,-
Skenkur 79.800,-
Glerskápur 79.800,-
Spegill 19.800,-
VERZLUNIN
SKOLABRAUTI
AKRANESI