Skessuhorn - 23.03.2000, Page 14
14
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
gSBSSiiHÖBRI
Árshátíð Grunnskólanema í Borgamesi
Vel heppnuð Skílaboðaskjóða
Leikstjóra og leikurum var velfagnai í sýtiingarlok.
Þriðjudaginn 14. mars síðastlið-
inn frumsýndi nemendafélag
Grunnskólans í Borgarnesi árshá-
tíðarleikrit sitt þetta árið, Skila-
boðaskjóðuna eftir Þorvald Þor-
Atrifh úr Skilaboðaskjóðunni
steinsson. Leikstjóri var Stefán
Sturla Sigurjónsson en sýnt var í fé-
lagsmiðstöðinni Oðali.
Grunnskólanemar í Borgarnesi
eru ekki þekktir fyrir að ráðast á
garðinn þar sem hann er lægstur í
verkefnavali sínu íýrir árshátíð og
svo var heldur ekki nú. Skilaboða-
skjóðan er líflegur ævintýrasöng-
leikur og býsna umfangsmikið verk
enda komu að því um 60 nemendur
úr efstu bekkjum skólans.
Það er skemmst frá því að segja
að uppfærslan í Oðali er mikið
þrekvirki og frábærlega unnin í alla
staði. Þar kemur meðal annars til
gott skipulag og hugkvæmni leik-
stjóra, áhugi og einlægni leikaranna
og annarra sem að sýningunni stan-
da. Síðast en ekki síst hlýtur að lig-
gja gríðarleg vinna að baki svona
sýningu, jafnt innan sviðs sem utan.
Frammistaða allra leikaranna var
til mikillar fýrirmyndar en ekki
gefst hér ráðrúm til að geta allra
þótt tilefnið sé ærið. Þó skal nefha
sérstaklega frammistöðu Margrétar
Brynjarsdóttur sem lék hlutverk
Möddumömmu af miklu öryggi og
Arndísar Huldar Hákonardóttur
sem var einstaklega lífleg og
skemmtileg í hlutverki Dreitils
skógardvergs. Þá var Kristín Lára
Geirsdóttir góð í hlutverki Stóra-
dvergs og Sigþrúður M Gunn-
steinsdóttir einstaklega ógnvekj-
andi og sannfærandi Norn. Geir
Konráð Theodórsson var skemmti-
legur í hlutverki Snigils njósna-
dvergs og Þorkell Stefánsson átti
mjög góða spretti sem Putti.
Það er full ástæða til að óska ung-
mennum í Borgarnesi til hamingju
með vel heppnaða sýningu og von-
andi að þau haldi áfram á sömu
braut. Með slíkri frammistöðu eru
þau til mikils sóma fýrir sitt byggð-
arlag.
GE
Hrossin ófiindin
Hestamir frá Saumm í Dalasýslu
sem týndust á gamlársdagskvöld hafa
enn ekki komið í leitimar þrátt fyrir
ítrekaða leit. Að sögn Jónínu Gunn-
arsdóttur á Saurum hefur verið leitað
á nánast öllu Snæfellsnesi. “Það er
búið að fara um 3000 km á vélsleðum
og flogið hefur verið yfir svæðið,
fjörur gengnar og mildð verið farið
fótgangandi en ekkert fundist, ekki
einu sinni að hrafn eða haföm hafi
sést í leit að æti á þessum slóðum,”
segir Jóm'na.
“Eg hef ennþá von um að eitthvað
af hestunum leynist einhversstaðar,
jafhvel í stóði annað hvort í Borgar-
firði eða í Dalasýslu. Það em margir
sem telja miklar líkur á að þeir hafi
farið langar leiðir fyrst þeir hafa ekki
fundist á Snæfellsnesi.” GE
Fjögur af hrossunum se?n leitað hefiir verið aðfrá því um áramót.
Pólskir das ^ar
í Grundamrði
Dagana 15. - 17. mars stóðu yfir
pólskir dagar í Grunnskólanum í
Grandarfirði. I skólanum eru 9
nemendur af pólsku bergi brotnir.
Það þótti því ástæða til að kynna
öðrum nemendum og Grundfirð-
ingum ítarlega land þeirra og þjóð.
Nemendur unnu í hópum og vom
viðfangsefhin af margvíslegu tagi.
Affakstur þessarar vinnu var
síðan almenningi til sýnis í
Grunnskólanum síðastliðinn
föstudag. Meðal þess sem þar
mátti sjá vora veggspjöld með
margvíslegum fróðleik um
lands- og lifhaðarhættd í Pól-
landi. Sjá mátti líkön af land-
fræðilegri legu Póllands, sum
hver meistaralega vel unnin. Þá
höfðu nemendur í 1.-4. bekk
búið til brúður í pólskum þjóð-
búningum. Gestir gátu fengið
að bragða á pólskum réttum og
sýnt var myndband sem nem-
endur höfðu gert af undirbún-
ingi pólsku daganna. Þá var sér-
stök dagskrá á föstudaginn þar
sem nemendur og kennarar
léku pólsk tónverk. En auk þess lásu
nemendur upp ljóð á pólsku og ís-
lensku. Fjöldi manns heimsótti
grunnskólann á föstudag og fékk
hver gestur afhenta pappírsrós sem
nemendur höfðu búið til ásamt sýn-
ingarskrá þar sem m.a. var að finna
uppskriftir af þeim pólsku réttum
sem boðið var upp á. GK
Þjóðbúningar Pólverja
Tónlistarskóli Borgar-
fjarðar hélt upp á „Dag
tónlistarskólanna 2000“
þann 29. febrúar og var
með opnar kennslustundir
í húsnæði tónlistarskólans
að Gunnlaugsgötu 17 í
Borgarnesi. Þar bauðst
gestum og gangandi að
fylgjast með nokkrum
kennurum og nemendum
að störfum. Dagurinn
tókst vel og var þó nokkuð
um að fólk liti við og
fylgdist með kennslu.
Nemendur, kennarar,
gestir og forráðamenn
skólans voru ánægðir með
dagínn.
Nokknr borgfirskir fiðtnsnitlingar jratntídarinnar.
Dagur tónlistarskólanna 2000
Það mátti glöggt sjá á skemmtiatriðum árshátíðarinnar að þema hennar var sjórinn ogþað sem honum viðkemur.
Mynd: PO
Arshátíð Brekkii-
bæjarskóla
Árshátíð Brekkubæjarskóla var
haldin í vikunni sem leið. Þema há-
tíðarinnar var sjórinn og jafhframt
hátíðinni sýndu nemendur verk er
tengjast sjónum. Á árshátíðinni
kom fram fjöldi nemenda sem
skemmti gestum með leik og söng.
Oll umgjörð hátíðarinnar var nem-
endum og starfsfólki skólans til
mikils sóma. Mikil vinna hefur ver-
ið lögð í að hafa árshátíðina sem
skemmtilegasta. Flutningur efnis
var vandaður og skemmtiatriði góð.
PO