Skessuhorn - 23.03.2000, Síða 15
gSÉSSIíHÖ&FI
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
15
Nýir leikmenn
í Skallagrím
Haraldur Guðbrandsson hefur Deildarbikarkeppninni unnið þá
verið ráðinn framkvæmdastjóri báða MM
knattspyrnudeildar Skallagríms.
Að sögn Haraldar leggst komandi
leiktíð vel í hann en félagið leikur
í sumar í 1. deild. Gengið hefur
verið frá ráðningu tveggja nýrra
markmanna, þeirra Pavle
Pawlovic og Kjartans Þórarins-
sonar. Auk þess mun Valdimar Kr
Sigurðsson m.a. leika með liðinu á
ný auk nokkurra nýrra leikmanna
sem fengnir hafa verið frá liðum
neðri deilda. Aðalþjálfari liðsins í
sumar verður Oli Þór Magnússon
en Gunnar M Jónsson verður
honum til aðstoðar.
Liðið hefur nú leikið tvo leiki í
Valdimar Kr Sigurðsson er kominn aftur
í raðir Skallagrímsmanna
Skallamir
byrja vel
Knattspyrnumenn Skallagríms
hafa byrjað keppnistímabilið vel og
hafa unnið báða leiki sína í Deild-
arkeppninni. Þeir eru nú í 2. sæti
eftir tvær umferðir, næst á eftir
Skagamönnum en bæði lið hafa
fullt hús stiga. Síðastliðinn sunnu-
dag lögðu Skallarnir Selfýssinga að
velli 4-3. Mörkin skoruðu þeir
Valdjmar K Sigurðsson, (3) og
Stefán Andrésson. I fyrri leiknum'
sigruðu þeir KÍB -3 1. Mörk Skalla-i
gríms í þgim feik skoruðu Stefán
Andrcsson'. Gunnar M Jónsson og
Ingi Þór Riinarsson.
NisCíiti leikur Skállagríms í Deild-
arbikarnum er gegn Stjörnunni
sunnudaginn 2. apríf á gervigrasinu
í IÍaugardal. Skallagrímur og IA
mætast á Akranesvelli þann 22. apr-
íl í síðasta leik riðlakeppninnar.
GE
Gmmar M Jónsson
Skagamenn
á siglingu
Skagamenn eru á góðri siglingu
þessa dagana. Strákarnir léku í vik-
unni æfmgaleik við Keflavík og
sýndu mikla baráttu og leikgleði.
Skagamenn lentu undir 2-0 en
Baldur Aðalsteinsson minkaði
muninn með góðum skalla. Það var
svo Hjörtur Hjartarson sem jafnaði
leikinn er hann skoraði af miklu
harðfylgi og urðu lyktir 2-2.
Á sunnudag var leikur í Deildar-
bikarnum við Stjörnuna og sigruðu
Skagamenn 3-2.
Mörk Akurnesinga gerðu þeir
Sturlaugur Haraldsson með góðu
skoti af vítateig, Baldur Aðalsteins-
son eftir fallega sókn og Jóhannes
Harðarson úr víti eftir að brotið
hafði verið á Hálfdáni Gíslasym.
Tveir leikmenn voru ekki með
vegna meiðsla, þeir Hjörtur Hjart-
arson og Andri Karvelsson en
Reynir Leósson lék aftur eftir
nokkurt hlé.
PO
Aðstaða fyrir
Keilufélagið
Á fundi bæjarráðs þann 16. mars
s.l. voru lögð fram drög að samn-
ingi milli Akraneskaupsstaðar og
Keilufélags Akraness um rekstur og
afnot húsnæðis undir keilubrautir í
íþróttahúsinu við Vesturgöm. Sam-
kvæmt drögunum er fyrirhugað að
afhenda húsnæðið fljótlega þannig
að félagið geti hafið nauðsynlegar
framkvæmdir við innréttingar og
niðursetningu keilubrauta. Bæjar-
ráð samþykkti að óska eftir umsögn
íþróttanefndar og Iþróttabandalags
Akraness. PO
Kolbrún sigursæl
íslandsmeistaramót í 25 m laug
var haldið á Keflavíkurflugvelli um
helgina. Ágæmr árangur vannst hjá
sundfólki IA. Kolbrún Yr Kristjáns-
dóttir var sigursæl á mótinu en hún
sigraði í 50m flugsundi, 50m skrið-
sundi, 50m lOOm og 200m bak-
sundi og lOOm fjórsundi. Guðgeir
Guðmundsson varð annar í 200m
flugsundi, Karítas Jónsdóttir varð
þriðja í 800m skriðsundi, Elín Mar-
ía Leósdóttir varð þriðja í 400m
fjórsundi og Jóhann Ragnarsson
varð þriðji í 400m skriðsundi. A
kvennasveit IA hafnaði í þriðja sæti
í 4x100 m fjórsundi. Skessuhorn
ó s k a r
sundfólk-
inu til
hamingju
með ár-
angurinn.
PO
Kolbn'm Ýr Kristjánsdóttir
I heimsókn hjá Arsenal
Tveir unglingaþjálfarar hjá IA,
þeir Þorlákur Árnason og Olafur
Jósefsson héldu ásamt hópi ís-
lenskra þjálfara til Arsenal á Eng-
landi í febrúarmánuði.
I þrjá daga fengu Islendingarnir
að fylgjast með æfingum aðalliðs
Arsenal undir stjóm Arsne Wenger.
Öll aðstaða hjá liðinu er stórglæsi-
leg. Ólafur Jósefsson sagði hana svo
glæsilega að fólk yrði að berja hana
augum til að trúa því. Æfingasvæð-
ið er slétt sem stofugólf. Fyrirhug-
að er að gera tíu nýja æfingavelli til
viðbótar sem munu kosta um 20
milljónir IKR hver. Það er greini-
lega lögð meiri áhersla á æfinga-
svæðið en aðalvöllinn sjálfan sem er
að sögn Ólafs sem “karföflugarður”
í samanburði við æfingavellina.
I lok þriðja dags fengu þjálfararn-
ir að fylgjast með Ieik varaliðs Arse-
nal á móti Tottenham en með vara-
liðinu að þessu sinni léku fjórir
leikmenn úr byrjunarliði félagsins
þ.á.m. stjörnurnar Adams og Berg-
kamp. Að leik loknum sat Wenger
fyrir svömm. Að sögn Ólafs kom
hann vel fyrir, virðist ákaflega
skemmtilegur og viðkunnalegur
maður. Hann er greinilega mjög vel
að sér um allt er viðkemur fótbolta
og svarar engum fyrirspurnum van-
hugsað. Þegar rætt var við Wenger
um “háan” aldur leikmanna Arsenal
svaraði hann því til að eldri leik-
mennimir taki því rólega um miðja
vikuna og komi svo og gleðji mann
á laugardögum, en yngri leikmenn-
irnir veki vonir alla vikuna og valdi
svo oft vonbrigðum á leikdag.
Islensku þjálfurunum gafst
einnig kostur á að hitta þjálfara
unglingaliðs Arsenal, Vic Akers og
einnig þjálfara kvennaliðsins. Það
var mikill ávinningur fyrir íslensku
unglingaþjálfarana að hitta Akers.
Hann gaf þeim miklar og góðar
upplýsingar um uppbyggingu æf-
inga og einnig hvernig tvinnað er
saman námi og þjálfun hjá ung-
lingaliðsmönnum. Lögð er mikil
áhersla á að hinir ungu liðsmenn
stundi nám sitt af kostgæfni.
Króatinn Sukker reyndist Islend-
ingunum mjög elskulegur og bauð
þeim til kvöldverðar á veitingastað
sem greinilega er sóttur af fræga
fólkinu. Sukker ræddi við þá um allt
milli himins og jarðar. Aðspurður
um hvern hann teldi besta knatt-
spyrnumann allra tíma var hann
ekki í vafa um að Maradonna væri
sá besti fyrr og síðar. Sukker sýndi
því áhuga að koma til Islands með
króatíska landsliðið.
Að loknum kvöldverði fengu
gestimir nasaþef að því hvað at-
vinnumenn á Englandi þurfa að
þola. Fyrir utan veitingastaðinn úði
og grúði af blaðaljósmyndurum
slúðurblaðanna og gargandi
kvensniftum er gerðu aðsúg að
Sukker. I ferðinni sáu íslensku
þjálfararnir nokkra áhugaverða
leiki þ.á.m. leiki Chelsea og Wim-
bledon, Arsenal og Liverpool og
viðureign Luton og Stoke.
Aðspurður um hvað væri efdr-
minnilegast frá dvölinni hjá Arsenal
sagði Ólafur: “Mikil virðing fyrir
Arsne Wenger. Ákaflega afslappað
andrúmsloft hjá leikmönnum. Mik-
ill agi og einstakt hreinlæti og
snyrtimennska”.
Ferðin var í alla staði vel heppn-
uð og lærdómsrík og mun án efa
skila árangri í þjálfun yngri flokka
ÍA.
PO
Stóra upplestrarkeppnin
Úrslit í upplestrarkeppni 7.
bekkja á Akranesi fór fram í
Vinaminni á Akranesi 7. mars.
Fimm manna dómnefnd hafði
það erfiða hlutverk að velja þrjá
bestu lesarana úr hópi þeirra tólf
sjöundubekkinga er komist
höfðu í úrslit. Samskonar keppni
fer fram á sextán stöðum víða um
land og frá því í nóvember hafa
nemendur og kennarar lagt ríka
áherlu á upplestur. Markmið
keppninnar er að vekja athygli og
áherslu á vönduðum upplestri og
framburði.
PO
Sigurvegaramir í upplestrarkeppninni. Ijýrstasæti: Stefán Jóhannsson, í öðrusæti:
Asdís Sigtryggsdóttir og í þriðja sæti: Ursúla Guðmundsdóttir.
Bruni berst við ofureflið
Boltafélagið Bruni hefur átt við
ofurefli að etja í þeim tveim leikjum
sem eru að baki í Deildarbikar-
keppninni í knattspyrnu. Liðið
mætti Leikni í fyrsta leiknum þann
5. mars sl. og tapaði 0-4 og síðan
tóku Brunamenn á móti IBV síð-
astliðinn sunnudag og töpuðu 1-11.
Það var Valgeir Guðmundsson sem
skoraði mark Bruna.
GE
Deildar-
keppni
kvenna
Deildarkeppni kvetma í
knattspyrnu hefst fimmtudag-
inn 30. mars og þá tekur hið
unga lið Skagakvenna á tnóti Is-
landsmeisturum KR á Ásvöll-
um í Garðabæ.
GE
Servéttur, kerti og hanskar.
Gylling á servéttur, sálmabœkur
og fermingarbœkur.
Merkt kerti.
Skrautritun^.^..
Bflka/iskemman
Stillholti 18 - 300 Akranes - Sími 431 2840