Skessuhorn


Skessuhorn - 13.04.2000, Side 1

Skessuhorn - 13.04.2000, Side 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 15. tbl. 3. árg. 13. apríl 2000 Kr. 200 í lausasölu Mikil þensla á vinnumarkaðnum Vantar fleiri iðnaðarmenn á svæðið Segir Guðrún Sigríður Gísladóttir forstöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Vesturlands Undanfama mánuði hefur at- vinnuleysi á Vesturlandi verið með minnsta móti og jafnframt það Isegsta á landinu, um 1%. Þó er ástandið mismunandi eftir kynjum og svæðum. I samtali við Guðrúnu Sigríði Gísladóttur forstöðumann Svæðis- vinnumiðlunar Vesturlands kom fram að einkum vantar störf fyrir konur á Akranesi og fólk til fisk- vinnslustarfa á Snæfellsnesi. Af þeim sökum eru hlutfallslega margir útlendingar við störf á Nes- inu, einkum í Snæfellsbæ. Guðrún nefndi sem dæmi um skort á störf- um fyrir kvenfólk á Skaganum að um 60 konur hefðu sótt um störf hjá Nettó, sem opnar verslun þar í dag. Skortur á iðnaðarmönnum Astandið er þó ekki svona slæmt í öllum geirum. Að sögn Guðrúnar vantar mikið af iðnaðarmönnum til starfa á Vesturlandi. “Það er sama hvort það eru smiðir, pípulagn- ingamenn, múrarar eða málarar, það virðist vanta mikið af faglærð- um iðnaðarmönnum sérstaklega á suðursvæðið”, sagði Guðrún. Hús- næðisskortur er einnig orðið vandamál, einkum á Akranesi og í Borgamesi. “Fyrirtæki hafa lent í vandræðum með að manna stöður vegna þess að skortur er á leiguhús- næði á þessum stöðum og fast- eignaskrár eru tómlegar. Þannig má segja að nauðsynlegt sé að hraða sem kostur er byggingu íbúðarhúsnæðis þannig að svæðið njóti til fullnustu þenslunnar sem ríkir í þjóðfélaginu. Hvetur til skráningar Guðrún vildi hvetja þá einstak- linga sem eru í atvinnuleit eða hyggðust skipta um starf í framtíð- inni til að láta skrá sig hjá Svæðis- vinnumiðluninni, jafnvel þó þeir væm enn í starfi. Einnig geta þeir sem áhuga hafa á að starfa erlendis, á EES svæðinu, skráð sig hjá Svæð- isvinnumiðlun. Segir hún að núna með vorinu sé heldur að lifna yfir atvinnumarkaðnum sem lýsir sér að atvinnurekendur em í auknum Nýtt ferðablað Skessuhorn mun nú annað árið í röð gefa út ferðablaðið Vesturland sem fjallar um vesdenska ferða- þjónustu, m.a. áhugaverða staði, at- burði í sumar auk ýtarlegrar þjón- ustuskrár. Vinnsla blaðsins er nú hafin og er auglýsendum bent á nánari kynningu á bls. 7 í Skessu- horni. MM mæli farnir að leita fyrir sér eftír starfsfólki. Svæðisvinnumiðlunin hefur einnig milligöngu um að útvega starfsfólk af EES svæðinu. Sá þátt- ur hefur vaxið talsvert í kjölfar minnkandi atvinnuleysis. Svæðis- vinnumiðlun Vesturlands er til- raunaskrifstofa hvað Internetið varðar. Þannig geta fyrirtæki óskað eftir starfsfólki í gegnum netíð á slóðinni: www. vinnumalastofnun.is Fyrir eldra fólk og langtímaat- vinnulausa gemr Svæðisvinnumiðl- unin gert starfsþjálfunar- eða reynsluráðningarsamninga við fyr- irtæki til að auðvelda þessum aðil- um endurkomu á vinnumarkaðinn. “Þá fá starfsmenn laun frá atvinnu- rekandanum en Atvinnuleysis- tryggingasjóður greiðir hluta af launum til fyrirtækisins á meðan verið er að komast inn í viðkom- andi starf. Nú þegar hafa 3 slíkir samningar verið gerðir við fyrirtæki á Vesturlandi”, sagði Guðrún S. Gísladóttir að lokum. MM Rósant Egilsson hafnarvörður í Gnmdarfiröi er byrjaður á vorhreingemmgum við höfnina. Mynd: GE Ferða saga úr for-<íSA tíðinni Gott gengi hjá® Trico Mikill hiti 0 ekkert vatn Slæm afkoma af 0 vöktun •• Oryggi Bu- 0 lands- höfða Vest- lenskur vestur- fari (G)

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.