Skessuhorn - 31.08.2000, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 31. AGUST 2000
ggBSSglggftBlia
Viðskiptaháskólinn á Bifröst:
Lítill og íeiðandi háskóli
s
- segir Runólfur Agústsson rektor
Frá skólasetningu Vióskiptaháskólans á Bifröst. Myndir: GE
„Samvinnunafnið sem fylgt hefur
skólanum allt frá stofnun hans
hverfur nú úr heiti stofhunarinnar
og nýtt nafn tekur þann sess, sem
er meira lýsandi fyrir þá starfsemi
sem við stundum og hentar betur
því hraða samkeppnisumhverfi sem
við störfum í,“ sagði Runólfur
Agústsson rektor á Bifröst við
skólasetningu síðastliðinn sunnu-
dag. Þá afhjúpaði Björn Bjarnason
menntamálaráðherra nýtt nafh fyr-
ir skólann sem heitir hér eftir Við-
skiptaháskólinn á Bifröst.
Runólfur segir að vissulega séu
skiptar skoðanir um nauðsyn og
gildi þess að skipta um nafn á skól-
anum. „Mörgum, ekki síst gömlum
Sigrún Eðvarðsdóttir lék áfiðlu með
miklum tilþrifum vii setningu Viðskipta-
háskólans
nemendum Samvinnuháskólans og
Samvinnuskólans, þykir eflaust
efitirsjá að Samvinnunafninu sem
fylgt hefur þessari stofnun ffá upp-
hafi. Niðurstaðan var hinsvegar sú
að nýir tímar kölluðu á nýtt nafn en
eftir stendur að sjálfsögðu arfur
Samvinnuskólans og Samvinnuhá-
skólans hvað varðar nálgun í við-
skiptanámi.“
Við skólasetninguna var einnig
kynnt ný stefna fyrir skólann sem
er árangur stefnunmótunarvinnu
sem staðið hefur síðustu misseri.
Megininntak nýrrar stefnu er að
Viðskiptaháskólinn skilgreinir sig
sem sérhæfðan viðskiptaháskóla
sem leggur áherslu á gæði í námi,
takmarkaðan fjölda nemenda og
mikla þjónustu við þá. „Við viljum
reka hér lítinn, góðan og leiðandi
háskóla og teljum okkur vera að
gera slíkt,“ segir Runólfur. „Við lít-
Runólfur Agústsson rektor
um á nemendur sem viðskiptavini
og okkar starf felst í að þjóna þeim
sem best.“ Runólfur segir að með
þessari skilgreiningu sé Viðskipta-
háskólinn á Bifröst eini sérhæfði
viðskiptaháskólinn hér á landi.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra kom í ræðu sinni inn á
stöðu íslenska skólakerfisins í al-
þjóðlegri samkeppni og sagði með-
al annars að Islenska þjóðfélagið
væri ekki jafn fjölbreytt og spenn-
andi ef menntakerfið hefði brugð-
ist þjóðinni. Hann tók Viðskipta-
háskólann á Bifröst sem dæmi um
ffamfarir í skólamálum hér á landi
og sagði m.a.: „Viðskiptaháskólinn
á Bifföst er framúrskarandi dæmi
um mikilvæga og áhrifamikla nýj-
ung í íslenska skólakerfinu. Há-
skólinn setur markið hátt og heitir
nemendum sínum afburða-
þjónustu. „
Runólfur gerði launakjör kenn-
ara að umtalsefni í sinni ræðu. „ís-
lenskt samfélag hefur ekki nægjan-
lega metið gildi skólanna. Skóla-
kerfið er á margan hátt óskilvirkt,
skólaárið stutt og nemendur eldri
þegar þeir koma út á vinnumarkað-
inn en víðast gerist. Skólakerfið er
enn sniðið að þörfum liðins tíma,
þegar þörf var á vinnuafli barna og
stúdenta yfir sumarið.
Þá má benda á kjör kennara og
starfsfólks skólanna. Starfsfólkið og
hugvit þess er í raun eina eign skól-
anna og allt þeirra starf byggir á
góðu, vel menntuðu og hæfu starfs-
fólki. Mér þykja það forréttindi að
stýra skólastofhun sem hefur það
efnahagslega og stjórnunarlega
sjálfstæði að geta greitt sæmandi
laun til að laða að gott starfsfólk.
Slíkar aðstæður þarf að skapa sem
flestum skólastjórnendum sem víð-
ast, en fáir skólar búa nú við slíkar
aðstæður hérlendis," sagði Runólf-
ur í ræðu sinni.
Metaðsókn er á Bifföst í vetur
en þrjár umsóknir voru um hvert
laust pláss við háskólann. 187 nem-
endur stunda þar nám í vetur, 31 í
Frumgreindadeild til undirbúnings
háskólanáms, 104 í rekstrarfræða-
námi til diplomagráðu og 52 á
þriðja ári til BS gráðu. Af nemend-
um í Bs deild eru 41 í fjarnámi.
GE
Félags- og skólaþjónusta Snæfellsness
Starfsemin hafinn
Eins og sagt hefur verið frá í
Skessuhomi var Félags- og skóla-
þjónusta Snæfellsness stofnuð síð-
astliðið vor. Með þeirri breytingu
taka stóra sveitarfélögin á Snæfells-
nesi skólaþjónustuna heim í hérað
en þau voru áður aðilar að skóla-
skrifstofu Vesturlands sem staðsett
var í Borgarnesi. Þá er ætlunin að
sameina félagsmálaþjónustu sveit-
arfélaganna og verður hún þá rekin
í gegnum Félags- og skólaþjónust-
una sem hefur aðsetur á Hell-
issandi.
Að sögn Sigþrúðar Guðmimds-
dóttur forstöðumanns Félags- og
skólaþjónustunnar er starfsemi
skrifstofunnar að komast af stað
hvað varðar skólaþáttinn. „Skólam-
ir eru að byrja og sá hluti starfsem-
innar sem að þeim snýr er að fara af
stað. Við höfum búið við þær
kjöraðstæður að fá tíma til að koma
okkur inn í málin.
Félagsmálaþátturinn kemur ekki
strax hingað inn, nema barnavernd-
armálin sem fylgdu einum starfs-
mannanna. Fyrst þarf að skipa sam-
eiginlega félagsmálanefnd fyrir að-
ildarsveitarfélögin og síðan þarf að
samræma ýmsar reglur og vinnu-
brögð,“ segir Sigþrúður.
Til að byrja með eru þrjú og
hálft stöðugildi við stofnunina, þ.e.
forstöðumaður, skrifstofustjóri,
námsráðgjafi og sálfræðingur í
hálfu starfi. Sigþrúður segir að til
viðbótar sé verið að ganga frá
samningum við verktaka til að
sinna ákveðnum verkefnum. Fé-
lags- og skólaþjónusta Snæfellsness
sér um þjónustu við alla skólana á
Snæfellsnesi að Laugagerðisskóla
undanskildum en heildarnemenda-
fyöldi í þeim skólum er um 750.
GE
Sigþrúður Guðmundsdóttir forstöðumaður.
Nýfæddir Vestlendingar eru
boðnir vdkomnir í heiminn um
leið og nýbökuðum foreldrum eru
fæiðar hamingjuóskir.
23. ágúst kl 10:08-Sveinbam-
Pyngd:3770-Lengd: 13 cm.
Foreldrar: Svala Sigurðardóttir og
Arsœll Jóhanwson, Reykjavík.
Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir.
27. ágúst kl 01:11-Meybam-
Þyngd:2990-Lengd:49 cm.
Foreldrar: Jóhanna Elva Ragnarsdóttir
og Hallvarður Nielsson, Akranesi,
Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir.
28. ágúst kl 21:45-Sveinbam-
Pyngd: 1775-Lengd:) 2 cm.
Foreldrar: Guðný Maren Valsdóttir og
Gauti Jóhannesson, Akranesi.
Ljósmóðir: Bima Þóra Gunnarsdóttir.
28. ágúst kl 22:03-Meybam-
Þyngd:4465-Lengd:34 cm.
Foreldrar: Eva Guðbjörg Leifsdóttir og
Guðjón Quðmundssm, Akranesi.
Ljósmóðir: Anna Elísabet Jónsdóttir.