Skessuhorn


Skessuhorn - 31.08.2000, Síða 6

Skessuhorn - 31.08.2000, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 31. AGUST 2000 Hvalfjörður er hið nýja Jerúsalem Þeir sem hafa lagt leið sína í Hval- fjörðinn nýverið, gætu hafa veitt því athygli að nánast hvert sem litið er blasa við stórir trékrossar. Þeir eru verk Grikkjans Nikolaus Kostas sem hefur verið búsettur í Hvalfirði síðan í júní. Krossarnir eru að hans sögn ætlaðir til þess að merkja landamæri hinnar nýju Jerúsalem, sem heitir Konstantía og nær frá Þyrli að Bjarteyjarsandi.. „Hvalfjörður er hið nýja land Guðs, hið nýja Jerúsalem," segir Nikolaus, sem segist vera einn af spámönnum Guðs. Auk þess að reisa trékrossa út um hvippinn og hvappinn hefur Nikolaus staðið í ströngu við að leiðrétta Biblíuna sem er að hans sögn að stórum hluta rangt rituð. „Upphafið er til dæmis kolrangt. Guð byrjaði ekki á því að skapa himin og jörð. Hann byrjaði á því að skapa mann sem hét Jóhannes og var síðar nefhdur Jó- hannes skírari," segir Nikolaus og heldur áffam ,Jóhannes var andi. Það var ekki fyrr en löngu síðar sem Guð hófst handa við að búa til jörð- ina. Einnig er það misskilningur að Jesús hafi verið sonur Guðs. Jesús og Guð eru einn og sami maðurinn. Eftír að Guð var krossfestur ákvað hann að Jerúsalem skyldi ekki vera hans land og valdi í stað þess Island. Það er töluvert langt síðan Guð á- kvað að senda mig hingað. Eg skrifa allt niður sem hann segir mér og ég passa mig á því að dagsetja allt sam- an. Þann 17. janúar 1995 talaði Guð til dæmis við mig og sagði mér að Hvalfjörðurinn ætti að bera nafnið Konstantía“ segir Nikolaus og því til sönnunar sýnir hann blaðamanni bók sem hann skrifaði það í fyrir fimm árum síðan. Hann á orðið dálaglegt safn af bókum með Guðs orði, enda segist hann vera í beinu sambandi við Guð meirihluta dags og nætur. Hann tekur það fram að Guð sé að skrifa í gegnum hann, enda hafi hann sjálfur aldrei gengið í skóla. „Það var loks María mey sem tók af skarið, vitjaði mín og skipaði mér að fara samstundis hingað til Is- lands. Heimsendir er á næsta leyri, en þeir sem koma til mín og baða sig í lind sem er hér í Hvalfirði fá nafnið sitt í nýjasta testamentið sem ég er að skrifa núna. Það eru þeir sem lifa heimsendinn af,“ segir Nikolaus og kveikir sér í sígarettu. Hann segist ekki reykja oft en reyn- ir að nýta tækifærið þegar hann er ekki í beinu sambandi við Guð. ,Já, ég spái því að heimsendirinn verði árið 2001, í síðasta lagi 2002. Þá munu aðeins þeir sem eru skrifaðir í bókina lifa af. Guð mun eftír það skapa nýja jörð sem þetta sama fólk mun lifa á. Þar mun enginn þurfa að vinna.“ En Nikolaus er fleira til lista lagt en að smíða trékrossa og hripa nið- ur Guðs orð. Hann hefur nefnilega hannað nýtt dagatal sem er sér- hannað eftir Guðs höfði. „Sérfræð- ingar erlendis hafa lengi reynt að búa til svona dagatal," segir Niko- laus stoltur og sýnir blaðamanni dagatalið sem samanstendur af margs konar undarlegum táknum á tveimur A4 blöðum. „Þeim hefur hins vegar ekki tekist það hingað til. Það tók mig fjórtán ár að búa það tíl.“ Nikolaus segir listina við dagatalið vera þá að þar sé alltaf sami dagurinn, nákvæmlega eins og Guð vill hafa það. Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvar lindin góða sé og þarf ekki að biðja um það tvisvar. Hún leyn- ist í litlum dal, örstutt frá heimili Nikolausar í Hvalfirðinum. Það er mýri allt í kring um lindina og mað- ur þarf að feta sig eftir örmjóum kindastígum til að komast að henni. Nikolaus segir að þarna sé miðjan á hinu nýja landi Guðs. I lindinni vex hátt gras og í því ku mátturinn vera. Hann segir að sig dreymi um að bæta aðgengi að lindinni í framtíð- inni svo sjúkir eigi auðveldara með að koma þar að og hljóta bót meina sinna. Til þess langar hann að láta malbika svæðið í kring og steypa litla laug sem væri hægt að baða sig í. Hann segist hafa fengið staðfest- ingu á því að í framtíðinni muni þúsundir manna af öllu þjóðerni koma í Hvalfjörðinn til að slá tvær flugur í einu höggi, læknast af öll- um mögulegum og ómögulegum kvillum og bjarga sér frá heimsend- inum sem nálgast óðum. Stórgjöf tiIHöSa Dvalarheimilinu Höfða barst myndarleg peningagjöf nýlega þegar bifvélavirkinn Jóhannes Gunnarsson gaf því hálfa millj- ón króna. Að sögn Ásmundar Olafssonar, framkvæmdastjóra Höfða, er gjöfin mjög kærkom- in og verður hún notuð til kaupa á nauðsynlegum búnaði fyrir hjúkrunardeild heimilisins, sem er í stöðugri uppbyggingu. Asmundur segir biðlista eftir vistun vera langan og að óvenju margir séu með mjög brýna þörf í dag, eða alls 14 einstak- lingar og hjón. Stjórn Dvalar- heimilisins Höfða sendir Jó- hannesi bestu þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf; einnig öðrum þeim einstaklingum og fyrir- tækjum sem sýnt hafa hemilinu og málefnum aldraðra skilning og velvild á undanförnum árum. SÓK r Ahrifaríkar lausnir innan seilingar ð£ APPLK, p! 'fi 20% AFSLÁTniK Cream for legs and feet 1capsulcs / SLDNKlim Fáðu aukna næringu, haltu orku og losaðu kílóin. Finndu lykilinn að eigin kjörþyngd og jafnvægi. Slankufit aðferðin skilar varanlegum árangri. nppiGSiim Stuðlar að heilbrigðri meltingu, dregur úr vökvasöfnun og örvar niðurbrot fitubirgða. Einföld og árangursrík aðferð til grenningar. Aðeins 1 hylki á dog með aðalmáltíð dagsins. v-nal Fttr beautifol. smooth and healtfty Icqs V-nal fótakremið vinnur á æðahnútum, æðaslitum og léttir á þreyttum og aumum fótleggjum. 20% AFSLÁTTUft FemiCare® leggangastilar með mjólkursýrugerlum Mjólkursýrugerlar eru hluti af eðlilegri flóru legganganna og hlutverk þeirra er að viðhalda réttu sýrustigi sem er ph 4. Súrt umhverfi er nauðsynlegt til aö koma í veg fyrir óæskilegar breytingar á slímhimnunni. Einnig frá FemiCare® Femicare®forðatöflur. Járn með C- vítamíni. Femicare® sápa. Mild sápa með ph gildi 4. Heilsteypt bætiefnalína. vCDj .0% SIÁTTVW PHOSPHATIDYLSERINE BRAINB0W BRAINB0W er fæðubótarefni sem eflir starfsemi heilans og talið er bæta verulega minnið með því að hjálpa taugaboðum að berast á milli taugamóta. BETRA MINNI - SKARPARI HUGSUN o BORGARNESS APÓTEK Leiiandi í lágu lyfjmerii á Vesturlandi Nauð- endur- sldns- merkin Um leið og skólarnir hefjast á haustin stíga margir einstak- lingar sín fyrstu spor í umferð- inni. A dögunum stóð Um- ferðarráð fyrir árlegu tveggja daga námskeiði fyrir 5 og 6 ára börn sem haldið var í Grunda- skóla á Akranesi Að sögn Jó- hönnu Gestsdóttur, lögreglu- þjóns, var námskeiðið mjög vel sótt og krakkarnir duglegir. Hún segir mikilvægt að for- eldrar sjái tíl þess að börnin noti endurskinsmerki og bendir á að sniðugt sé fyrir foreldra að vísa börnunum ör- uggustu leiðina í skólann og á það sérstaklega við um for- eldra þeirra barna sem eru að hefja sína skólagöngu. Á haustin er svo ætlast til þess að reiðhjólunum sé lagt. „Börnin fá tilkynningu frá skólunum um að ekki eigi að koma á hjólunum í skólann á haustin og yfirleitt hefur því nú verið fylgt eftir. En þetta eru alltaf sömu atriðin sem er nauðsyn- legt að leggja áherslu á; nota endurskinsmerkin, fara varlega í umferðinni og skilja hjólin eftir heima.“ SÓK Að byrja í skólanum Sólveig Rún Samúelsdóttir, 6 ára til- vonandi nemandi í Grundaskóla á Akranesi Hlakkarðu til að byrja í skólan- um? Já. Ertu búin að fá eitthvað nýtt skóladót? Eg er bara búin að fá penna- veski. Eg á eftír að kaupa hitt. Það eru svona rauðir og appel- sínugulir litir og hrmdur og mús framan á. Hundurinn er að hlaupa og síðan fer allt út um allt, saltið og kjötíð og bollinn og teið. Svo er yddari og stækk- unargler og strokleður og reglustika og stundaskrá og svo setti ég liti í og minnisbók og tússliti. Allar græjur. Veistu hver verður kennarinn þinn? Nei, ég man ekki hvað hún heitir. Hvenær byrjar skólinn? Þegar samúel byrjar, 1. samú- el. Nei, 1. september. Hvað hlakkarðu mest til að læra? Eg veit það ekki.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.