Skessuhorn

Eksemplar

Skessuhorn - 10.08.2001, Side 2

Skessuhorn - 10.08.2001, Side 2
2 FOSTUDAGUR 10. AGUST 2001 a&12íaunu>^ Páll hættir Páll Stefánsson, sem gegnt hefur starfi umdæmisstjóra Sigl- ingamálastofnunar á Vestur- landi, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með næstu mánaðarmót- um. Páll hefur gegnt starfmu uni árabil og haft aðsetur í O- lafsvík. Að sögn fulltrúa Sigl- ingamálastofnunar hafa nokkrar umsóknir borist inn á borð til þeirra en umsóknarfrestur renn- ur út nk. miðvikudag. smh Galdrastef á Ströndum Um næstu helgi stendur Galdrasýningin á Ströndum fyrir hátíðinni Galdrastef á Ströndum. Meðal þess sem boðið er upp á er minningarathöfn um brennda galdramenn, galdramenn kveða niður drauga, völuspá, ratleikur, hljómsveitin Sigur Rós, Megas, þjóðsagnamaraþon o.fl. GE Þnggja bifreiða óhapp við Búðardal Mildi þótti að enginn slasaðist í árekstri sem varð norðan við Búðardal, nánar tiltekið við ána Ljá, á laugardagskvöldið. Arekst- urinn varð þegar ökumaður fólksbifreiðar hugðist taka fram úr jeppa á nokkurri ferð. Ekki vildi betur til en svo að bifreið kom akandi úr gagnstæðri átt þegar hinir íyrmefndu voru enn hlið við hlið á veginum. Oku- maður bifreiðarinnar sem kom úr gagnstæðri átt bremsaði til að forða árekstri en missti við það stjóm á bifreið sinni og lenti framan á jeppanum sem verið var að taka ffam úr. Sá sem hugðist taka ffam úr komst hins vegar ffam fyrir áður en áreksturinn varð og slapp því algjörlega við skemmdir. Bifreiðamar tvær sem lentu í árekstrinum vom ónýtar en eins og áður sagði sluppu all- ir ökumenn og farþegar bifreið- anna þriggja ómeiddir. Alls vom átta manns í bifreiðunum. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni í Búðardal var áð- urnefnt óhapp það eina sem varð á Vesturlandi alla helgina eftir því sem þeir komast næst. Mjólkurgleði á Staðarfelli Menn skemmtu sér á misjafnan útihátíðum þá skemmtu menn sér hátt um helgina og þrátt fýrir annars staðar á friðsælli hátt. SAA fréttir af ölvun og ólátum á sumum og Dalamenn héldu sína árlegu Nýr bátur í flotann á Rifi Stakkaberg SH, 21 tonna eikarbátur, kom til Rifshafnar á dögunum. Stakkabergið, sem er netabátur, er smítjað á Akureyri árið 1914. Mjólkurgleði á Staðarfelli í Dölum um helgina. Þar skemmtu landskunnir skemmtikraftar, s.s. Ómar Ragnarsson, Björgvin Frans Gíslason, Hljómsveitin Karma og fleiri. Þá sá harmonikuhljómsveit- in Nikkólína um brekkusönginn. I stað göróttra drykkja var á Staðar- felli boðið upp á heitt kaffi og kakó. Að sögn Hjalta Björnssonar eins af mótshöldurum voru um 600 manns á Staðarfelli um helgina, mest fjölskyldufólk en einnig-ung- menni sem verið hafa í meðferð á staðnum. Hjalti segir að hátíðin á Staðarfelli sé fyrir löngu orðinn árviss viðburður í Starfsemi SAA og menn hafi verið ákveðnir í að láta ekki deigan síga þótt með- ferðarheimilið væri lokað í sumar. Hann segir umgengni og hegðun mótsgesta hafa verið til fyrir- myndar að vanda. MB/GE Skagabarinn og Pizza '61 í Langasandshúsinu Um þarnæstu helgi mun bætast í veitingahúsa- og skemmtistaða- flóru Akurnesinga þegar Pizza '67 flytur í Langasandshúsið við Garðabraut 2, auk þess sem þar mun opna nýr sportbar, Skagabar- inn. Ætlunin er að opnað verði helgina 17.-18. ágúst næstkomandi. Það er Garðbæingurinn Bjarni Ólafsson sem ætlar sér að reka Skagabarinn á effi hæð hússins. „Eg ætla að reyna að hafa þetta svo- lítið öðruvísi. Verð þarna með breiðtjald og billjardborð og ætla mér að sýna leiki og beinar útsend- ingar.“ Bjami segist ekki hafa á- kveðið hvort hann verði með lif- andi tónlist og slíkt um helgar, hann ætlar einfaldlega að sjá hvern- ig málin þróast. Barinn verður þó opinn allar helgar til klukkan þrjú. „Eg er mjög bjartsýnn á þetta,“ seg- ir Bjarni og segist hvergi smeykur Páll Matthíasson var í óða önn við að merkja nýtt aðsetur á miðvikudag. Ætlunin er að í húsinu verði sportbar auk Pizza '61. við fortíð hússins, en eins og Skaga- menn vita hefur ekki gengið sem skyldi að reka veitinga- og skemmtistaði í Langasandshúsinu. Páll Matthíasson sér um rekstur Pizza '67 á neðri hæðinni. Mannræktarmótið á Hellnum Friður undir Jökli Mannræktarmótið á Hellnum fór friðsamlega fram að venju um verslunarmannahelgina, en þetta var í fimmtánda skiptið sem skipu- lagt mótshald er þar. Skipulögð dagskrá var frá föstudegi til sunnu- dags en enginn aðgangseyrir var svo mikið var um streymi fólks á laugar- og sunnudeginum. Stærsta athöfn mótsins fór fram á laugardagskvöldinu en þá sam- einuðust allir mótsgestir, um hundrað og þrjátíu manns, í einum hring í þeim tilgangi að draga úr tálsýn fólks um aðgreiningu og hjálpa því að skilja að við erum öll eitt. Var hringurinn hugsaður sem hluti af heimshring. Bænir um frið voru settar í byggingu hringsins sem var gerður úr 108 steinum og í eldinn sem brenndur var í miðju hans við lok athafnarinnar. Var síðan manngerðum kristal, frá Rússlandi, sem forritaður hafði verið til nota í eldflaugarodd kastað á bálið sem táknræn mót- mæli um hervæðingu heimsins. A sunnudagskvöldinu var einnig bænakvöld þar sem mótsgestir sameinuðust í bæninni Megi friður ríkja á jörð. smh Skemmtistaðurinn Grandrokk var þar áður og Páll segist ekki ætla að ráðast í miklar breytingar á hús- næðinu strax. „Það verður bara að þróast hvort við breytum einhverju. Reksturinn verður með svipuðu sniði og verið hefur. Ég er með vín- veitingaleyfx og fólk getur komið og fengið sér pizzu og bjór.“ Þegar blaðið kemur út verður Páll að lík- indum fluttur í nýja húsnæðið. „Eg ætla mér að vera í heimsendingum þar til salurinn verður opnaður að fullu um þarnæstu helgi. Þá verðum við báðir með mjög góð opnunar- tilboð. Matseðillinn hjá mér verður sá sami og var á Skólabrautinni, reyndar verður einhverju bætt inn á hann, en ekki er um neinar stór- kostlegar breytingar að ræða.“ Pizza '67 hefur haft aðsetur sitt að Skólabraut 30 í ein fjögur ár en þar komast um 12 manns í sæti. A nýja staðnum er pláss fyrir 60 manns. SÓK Dráttarvél valtvið Búðardal Okumaöur rif- beinsbrotnaði Óhapp varð á malarvegi rétt norðan við Búðardal um helgina þegar dráttarvél valt þar út af veginum. Samkvæmt upplýsing- um frá lögreglu er ekki ljóst hvað olli óhappinu en dráttarvélin skemmdist mikið. Ökumanni var ekið heim þar sem hann kenndi sér ekki meins. Síðar fór hann þó í skoðun og reyndist hann þá vera rifbeinsbrotinn. SÓK Ókinn í garð Lögreglunni á Akranesi barst tilkynning um að biffeið hefði verið ekið inn í garð við Vestur- götu laust fyrir klukkan fimm að morgni síðastliðins laugardags. Lögregla fór samstundis á vett- vang og hitti þar fyrir ökumann- inn sem hafði verið einn í bíln- um. Hann hafði verið á norður- leið eftir Vesmrgötu, misst stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðing- um að hún fór upp á gangstétt og endaði inni í garði við eitt hús- anna. Töluvert tjón hlaust af þessu en enginn slasaðist. A leið sinni inn í garðinn ók bílstjórinn yfir tréhlið, runna, ruslamnnu og handfang á garðslöngu svo eitt- hvað sé nefnt. Mildar skemmdir urðu einnig á húsinu; vamsrenn- ur og rúður brotnuðu og um- merki sáust á húsveggjum. Öku- maður fékk að fara til síns heima að lokinni yfirheyrslu en bifreið- in var mildð skemmd og óöku- fær. Var hún færð af vettvangi með kranabíl. Gmnur leikur á að uin ölvunaraksmr hafi verið að ræða. SÓK Tældfæri fyrirfaun- bærilega kokka Fyrr á sumardögum vakti Skessuhorn athygli á því þegar Erró átti leið um Stykkishólm með fjölda af fylgdarfólki. Snæddi fólkið og vígði um leið óformlega Sjávarréttapakkhúsið, veitingastað við höfnina, sem hefur sérhæft sig í súpugerð m.a. Nú hefur vertinn Bjami Daníels- son komið af stað ákveðinni á- skomnarkeppni sem felst í því að þeir aðilar sem telja sig matreiða betri súpur en Sjávaréttapakk- húsið skuli sanna mál sitt í elhúsi veitingastaðarins. Ásthildur Smrludóttir verður fyrst gesta til að spreyta sig og mun gera það í hádeginu næstkomandi laugar- dag en síðan verður eldhúsið opið til kl. 21. smh

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.