Skessuhorn - 17.01.2002, Blaðsíða 4
4
FOSTUDAGUR 17. JANUAR 2002
aáiissunuw
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sínti: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
Skrifstofur blaðsins eru OPNAR KL. 9- 16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson 892 4098 ritstjori@skessuhorn.is
Blaðamenn: Sigrón Kristiónsd., Akrnnesi 862 1310 sigrun@skessuhorn.is
Sigurður Mór, Snæfellsn. 865 9589 smh@skessuhorn.is
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Prófarkalestur: Sigrún Ósk Kristjónsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir augl@skessuhorn.is
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur meö vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitl með greiðslukorti. Verð
í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Hér skömmu síðar, eða sírkabát tveimur blaðsíðum, er fjall-
að um yfirmáta fáránlegar hugmyndir um minnisvarða um
Egil heitinn Skallagrímsson sem frægur var á sinni tíð fyrir að
æla upp í mann og annan og höggva hausinn af flestum hinum
ef ég man rétt.
Ekki hirði ég um að rökstyðja frekar þá fullyrðingu að hug-
myndirnar séu út í hött og hálfa leið til baka og vísa í áður-
nefnda umfjöllun hér að aftan. Að öðru leyti hef ég lítið um
málið að segja nema stutt og laggott: Affþvíbara!
Það er viðurkenndur sannleikur að nýjungar eru afskaplega
vafasamt fyrirbrigði. Þær skal umgangast af varúð og forðast ef
mögulegt er. Þá skal ennfrekar gjalda sérstakan varhug við ein-
staklingum sem slá um sig með frumlegum hugmyndum. Slík-
ir einstaklingar hafa frá örófi alda verið úrskurðaðir bilaðir og
það að sjálfsögðu með réttu.
I raun er það áleitin spurning hvort ekki beri að fyrirbyggja
nýjungar með öllu og setja ákveðnar hömlur á hugmyndaflug
til að ekki sé verið að koma óþarfa róti á tilfinningalíf venju-
legs fólks að óþörfú.
Meðalmennskan er best. Hún er stikkffí. Ef ekki verður hjá
því komist að gera eitthvað er best að gera lítið. Það má held-
ur ekki vera áberandi og umfram allt eins venjulegt og ffekast
er kostur. Með því móti er helst hægt að sneiða hjá gagnrýni.
Mæta skal öllum frumleika af hóflegri hörku og mátulegu yf-
irlæti og beita hneykslan eftír þörfum allt þar til hinir biluðu
hafa sýnt ffam á að þeir höfðu þrátt fyrir allt lög að mæla. Þá
er rétt að vilja Lilju kveðið hafa í kútínn.
Það vill reyndar svo óheppilega til að heimurinn hrópar í sí-
fellu á ffamfarir. A nýjvmgar sem krefjast ffumlegra hugmynda.
Heimurinn þarf með öðrum orðum sárlega á biluðu fólki að
halda.
Það verður að segjast eins og er að Vestlendingar hafa aldrei
verið sérlega bilaðir þegar á heildina er litið. Það má vissulega
finna fáein dæmi ef vel er leitað. Það má nefha að Dalamenn
voru bilaðir þegar þeir létu sér detta í hug að vekja Eirík rauða
upp ffá dauðum. Snæfellingar voru bilaðir þegar þeir létu sér
detta í hug að breyta sinni urð, sínu grjóti og sínum ofvaxna
snjóskafli í þjóðgarð og ferðamannaparadís. Skagamenn voru
bilaðir fyrir ríflega hálffi öld þegar þeir létu sér detta í hug að
lítið krummaskuð gæti fóstrað alvöru fótboltalið. Kannski þarf
ekki einu sinni að fara svo langt affur í tímann til að finna bil-
aða Skagamenn en það sem upp úr stendur er að Vestlending-
ar eru ekki sérlega bilaðir í dag.
Egill var hinsvegar stórlega bilaður og í raun alveg fáránleg-
ur persónuleiki. Því má vissulega velta fyrir sér hvort ekki sé
við hæfi að minnast hans á fáránlegan hátt. Ég er að minnsta
kostí þeirrar skoðunar þegar öllu er á botninn hvolft.
Gtsli Einarsson, ekki nærri nógu bilaður.
Fjölmenni var viö formlega vígslu hesthússins á Hvanneyri
Hesthús á Hvanneyri vígt
Á þriðjudaginn sL var formlega
vígt nýtt hesthús á Hvanneyri. Húsið
er reyndar byggt 1942 og þá sem
hefðbundið básahús þess tíma, en
þann 10. nóvember sl. var ákveðið að
hefjast handa við endurbætur. Þann
10. janúar lauk svo þeirri vinnu ásamt
því sem gamalli hlöðu var breytt í
lida reiðhöll með þurrkunaraðstöðu
Harður árekstur varð á vegamót-
um Háholts og Kirkjubrautar á
Akranesi síðastliðinn mánudag.
Kona sem var í öðrum bílnum var
flutt á sjúkrahúsið á Akranesi til
rannsóknar en reyndist lítdð meidd.
fyrir m.a. kom, hálm og hvönn. Guð-
mundur Hallgrímsson, bústjóri á
Hvanneyri, segir að skeljasandtu- sé
settur á gólf hestastíanna en hann er
fenginn frá Akranesi. Auk þess er
skeljasandurinn af Skaganum notað-
ur til að kalka með tún. Á formlegri
vígslu sl. þriðjudag var fjölmenninu
sem skoðaði herlegheitin boðið upp á
Áreksturinn varð með þeim hætti
að bíll sem var að koma upp Há-
holtið ók í veg fyrir bíl sem var að
koma niður Kirkjubrautina.
GE
Mynd: HJH
rúgbrauð með kæfu og mysu til
drykkjar. smh
Kjördæmis-
ráð stofhað
Kjördæmisráð Vinstrihreyfmg-
arinnar - græns ffamboðs í hinu
nýja Norðvesturkjördæmi var
stofhað á Hólmavík laugardaginn
12. janúar sl. Hildur Traustadóttir,
Borgarfirði, var kjörin formaður
kjördæmisráðsins og með henni í
aðalstjóm þeir Gunnar Sigurðsson,
Bolungarvík, og Þórarinn Magnús-
son, Skagafirði. Til vara vom kjör-
in þau Gunnlaugur Haraldsson,
Akranesi, Eva Sigurbjömsdóttir,
Djúpuvík, og Ulfar Sveinsson,
Skagafirði. Þá vora Birkir Frið-
bertsson, Súgandafirði og Kjartan
Agústsson Isafirði kjömir skoðun-
armenn reikninga. Fram kom í al-
mennum umræðum að Vinstri-
Grænir í hinu nýja Norðvestur-
kjördæmi hafa fúllan hug á að láta
til sín-taka í kosningum til sveitar-
stjóma á vori komanda. Vinstri-
Grænir eiga nú einn þingmann í
hinu nýja Norðvesturkjördæmi,
Jón Bjamason, sem kjörinn var á
þing fyrir Norðurland vestra í síð-
ustu alþingiskosningum. GE
Báðir bílarpir eru nánast ónýtir eftir áreksturinn og þurfti aöflytja þá á hrott meö kranabíl.
Arekstur á Akranesi
Tuttugu og fimm ára leikskólastarf í Grundarfirði
Þann 4. janúar 2002 sl. vora 25 ár
síðan leikskólastarf hófst í Grundar-
firði. Það var 8. mars árið 1975 að
haldinn var fúndur í Rauðakrossdeild
Grundarfjarðar á heimili Halldórs
Finnssonar og Pálínu Gísladóttur við
Hrannarstíg. Fundinn sám Hildur
Sæmundsdóttir, formaður, Ragn-
heiður Þórarinsdóttir, ritari, og gjald-
kerinn, Olafúr A. Olafsson, lögreglu-
maður. Einnig sátu fundinn Ami
Emilsson, sveitarstjóri, og kona hans
Þórunn Sigurðardóttir, ásamt fulltrú-
um ffá Rauðakrossi Islands þeim Ás-
laugu Sigurbjömsdóttur sem sat í
stjóm RKI og Eggerti Ásgeirssyni
ffamkvæmdastjóra RKI. Pálmi Frí-
mannsson heilsugæslulæknir var
einnig viðstaddur.
Á fundinum kom fram sú hug-
mynd ffá Hildi og Ragnheiði að þar
sem helst vantaði leikskóla í Grund-
arfjörð væri ekki úr vegi að skoða
möguleika Rauðakrossins á að stofna
einn slíkan. Féll hugmyndin í góðan
jarðveg og hafði Eggert á orði við
það tækifæri að Rauði krossinn stæði
á nokkrum tímamótum þar sem
„kassarmr" væra famir að gefa svo
gríðarlega mikið af sér að RKI þyrfú
að fara að finna sér ný verkefni.
Hvatú Eggert úl að hugmyndinni
yrði hrint í fr amkvæmd og að Rauða-
krossinn myndi styðja vel við bakið á
henni.
Var síðan samþykkt í deildinni að
hefjast handa við undirbúning að
stofnun leikskóla. Húsnæði fékkst í
grannskólanum og stór hópur
kvenna tók sig saman um að búa úl
alls kyns leikföng. Bflar, lestar o. fl.
var smíðað undir handleiðslu Ingu
Sveins sem þá var smíðakennari við
skólann og í mörgum saumaklúbbum
var saumað og prjónað.
Kvenfélagið, Lions og fleiri félaga-
samtök og fyrirtæki styrkm verkefnið
af myndarskap ásamt sérverkefna-
sjóði RKI. Starfsemi leikskólans hófet
svo 4. janúar 1977 og var starfrækt í
grunnskólanum tvo vetur og rekin al-
fárið af Rauðakrossdeildinni.
Rauðakrossdeildin hafði svo for-
göngu um byggingu leikskólahúss og
fékk verulegar fjárhæðir úr sérverk-
efnasjóði RKL, en sveitarfélagið og
ríkið greiddu að sjálfsögðu bróður-
parúnn. Sjálfboðastarfið var þó enn
mikilvægt og var t.a.m. öll málning-
arvinna innanhúss unnin með þeim
hætú.
Leikskólinn Sólvellir var tekinn í
notkun 15. nóvember 1979 og þá af-
henú Rauðakrossdeild Grundarfjarð-
ar Eyrarsveit bygginguna og rekstur-
inn að fullu. smh