Skessuhorn - 17.01.2002, Blaðsíða 5
SS1SSIÍMÍ02KI
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2002
5
AfAuðnuspori
Ég var
að enda
við að lesa
Au ð n u-
spor, blað
meðferð-
arheimil-
isins á
H v í t á r -
bakka í
B o r g a r -
fírði, en
þar fer
fram sú starfsemi að taka við ung-
lingum sem einhverra hluta
vegna hafa lent úr takti gagnvart
lífinu og tilverunni, og þarna á
Hvítárbakka er reynt að stilla
unglingana aftur inná rétta rás.
Þeir sem að þessu blaði standa
eiga skilið rós í hnappagatið fyrir
útgáfúna. Þarna er á skilmerki-
legan hátt greint frá meðferðar-
úrræðum annarsvegar og hins-
vegar frásagnir unglinga sem lent
hafa í fíkniefnavanda, einnig frá-
sagnir foreldra unglinga sem
komnir hafa verið útá ystu brún.
Og manni verður bæði ljúft og
skylt að gleðjast yfir hverjum og
einum sem kemur til baka úr
þessari skuggaveröld sem eitur-
lyfjaheimurinn er. Undirritaður
hefur ekki ffekar en margir aðrir
skýringu á því hvers vegna á-
standið í þessum efnum er eins og
það er. Kannski er skýringanna að
leita á mörgum stöðum en ekki
einum.
Samfélagið hefur löngum skipt
heimilum í regluheimili og ó-
regluheimili. Nú veit undirritað-
ur að unglingar frá svokölluðum
óregluheimilum hafa orðið hinir
nýtustu þjóðfélagsþegnar, meðan
einstaka unglingar ffá regluheim-
ilum hafa farið að drekka brenni-
vín í óhófi og stolið úr sjoppum
langt umfram einkaþarfir. Þannig
að hér er ekkert lögmál í gildi án
þess þó að undirritaður geti vitn-
að beint í kannanir ffá Gallup eða
Præsvoterháskúper. Þjóðfélagið
sér svo líka um að unglingar hafi
sem minnst við að vera. EES
samningur sér um að unglingar
kynnist vinnu sem allra minnst,
og stjórnvöld hafa ekki undan við
að svíkja það sem þau lofa, það er
eins og mig minni að Framsókn-
arflokkurinn hafi lofað milljarði í
forvarnarstarf á kjörtímabilinu,
það er vonandi að þeir standi við
efiidir með öðrum hætti en að
fella gengið, svo raungildið rýrni.
Annars byrjar hugtakið hörð
neysla, kannski hjá foreldrum.
Hörð neysla á lífsgæðum, fólk
verður "unnendur hluta", eins og
Meistari Megas minnist einhvers-
staðar á í texta. Þess má geta
svona í ffamhjáhlaupi að við á
Vesturlandi eigum meira í Megasi
en margir aðrir, hann er nefhilega
Borgfirðingur í móðurætt, en
Snæfellingur í föðurætt. Þess-
vegna ætti fólk á þessu svæði sem
er í pörunarhugleiðingum, ekki
að fara út fyrir Vesturland í maka-
leit þ.e.a.s. ef það ætlar sér að geta
og fæða af sér snillinga. Læt ég
hér staðar numið í kynbótaffæði
og sný mér aftur að efninu.
Börn og unglingar eru kannski í
sumum tilfellum komin í þriðja
sæti í umönnunarröð, á eftir upp-
hækkuðum jeppa og ættbókar-
færðum hundi. Kunn er sagan af
manni einum búsettum í höfuð-
stað landsins, sem var daufúr í
dálkinn dögum saman og sinnti
hvorki golfpútti né getraunaseðl-
um, orðinn sinnulaus um veiði-
skap á fuglum og fiskum, og
nærðist eingöngu á frönskum
kartöflum og kóladrykkjum.
Vinnufélagar mannsins höfðu
ffegnað að kona þessa dálkdaufa
manns hefði haldið fram hjá hon-
um með verðbréfamiðlara úr
Grafarvogi, auk þess hafði konan
lent í árekstri, þar sem hún á
heimleið ffá fyrrgreindum elsk-
huga ók jeppabifreið þeirra hjóna
yfir gatnamót á rauðu Ijósi. En
bifreið þessa brúkuðu þau í skjóli
Glitnis eða Lýsingar. Vinnufé-
lagar þess dálkdaufa fóru nú að
púrra manninn upp hver með
sínum hætti og einn hafði meira
að segja þær fréttir að konan væri
hætt að halda við miðlarann.
Maðurinn horfði alvarlegum
augum á félaga sína og sagði, „Ég
læt nú alveg vera þetta með frarn-
hjáhaldið, en að hún skyldi
beygla jeppann, það get ég illa
fyrirgefið."
Væri nú ekki ráð þar sem um-
önnunarröðin er komin í kolvit-
lausan farveg að „unnendur
hluta" bóni bílinn sinn kannski
einni umferðinni færra og nýttu
tímann til að tala við afsprengi sín
í staðinn eða skilji hundinn oftar
effir heima en færu út að ganga
með krakkana sína og slá saman í
eitt, samveru og hreyfingu. Þetta
væri strax í áttina, það gæti jafnvel
flokkast undir ofurlítið auðnu-
spor.
Bjartmar Hannesson
Núna þarft þú ekki að fara lengra!
Ný þjónusta gleraugnaverslunarinnar Sjón
í Borgarfirði:
Gleraugnaverslunin Sjón veröur hjá fasteignasölunni
Eign.is, Egilsgötu 2, fimmtudag, 17. janúar og
föstudaginn 18. janúar frá kl. 10:00 - 18:00.
Hringdu í síma 511 6699 fyrir nánari upplýsingar.
Gleraugnaverslunin Sjón veitir öllum
viðskiptavinum núna 30% afslátt af nýjum
gleraugum. Verðum með yfir 500 umgjörðir á
staðnum, eingöngu það allra nýjasta. 2002
línan er komin! Spennandi úrval.
Lesgleraugu • göngugleraugu • margskipt gleraugu (Varilux gler) • linsur • sólgleraugu meö styrkleika
Sjón - alltaf betri þjónusta.
sími511 6699 fax511 6699 markus@sjon.is
Laugavegi 62
101 Reykjavík