Skessuhorn


Skessuhorn - 17.01.2002, Qupperneq 6

Skessuhorn - 17.01.2002, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2002 musuiiuk.: Jóhann Haukur Bjömsson er nýráðinn framkvæmdastjóri Unglingalandsmóts UMFI 2002 sem verður haldið um verslunarmanna- helgina í Stykkishólmi. Jóhann er sem stendur búsettur í Reykjavík en mun á vordögum flytj- ast til Stykkishólms. Jóhann segist vonast eftir stóru og veglegu Landsmóti og lofar einhverj- um óvæntum uppákomum. Jóhann leyfir les- endum Skessuhoms að kíkja inn um skráargat- ið hjá sér þessa vikuna. Jóhann Haukur Bjömsson Fæðingardagur og ár: 7. maí 1976 Starf: Nýráðinn framkvæmdastjóri 5. Unglingalandsmóts UMFI sem ffarn fer í Stykkishólmi um næstu verslunarmannahelgi. Fjölskylduhagir: Er í sambúð með Guðrúnu Valdísi Sigurðardóttur. Hvemigbíl áttu: Volvo 460, 1995 árgerð. Uppáhalds matur: Kjúklingur, matreiddur á ýmsa vegu, er í miklu uppá- haldi. Uppáhalds drykkur: Islenskt vatn. Uppáhalds sjónvarpseftii: Fréttir og Soprano's þættimir á RUV Uppáhalds sjónvarpsmaður: Olafúr Sigurðsson, fféttamaður á RUVj Uppáhalds leikari innlendur: Ingvar Sigurðsson. Uppáhalds leikari erlendur: Tom Hanks, Jim Carrey og Nicole Kidman. Besta bíómyndin: The Shawshank Redemption með Morgan Freeman og Tim Robbins. Uppáhalds íþróttamaður: Öm Amarsson er fyrirmyndaríþróttamaður. Uppáhalds íþróttafélag: Ungmennafélag Biskupstungna. Uppáhalds stjómmálamaður: Bill Clinton stóð sig vel í heimsmálunum. Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Bubbi Morthens Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: U2, Nick Cave og Rolling Stones. Uppáhalds rithöfundur: Halldór Laxness. Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjóminni: Frekar hlynntur en margt mætti þó betur fara. Hvað meturðu mest í fari annara: Reglusemi. Hvað fer mest í taugamar á þér í fári annara: Snobb og mikilmennsku- brjálæði. Hver þinn helsti kostur: Heiðarleiki vona ég. Hver er þinn helsti ókostur: Þrjóska og hversu skapstyggur ég verð þegar ég er svangur! Hvað má búast við mörgum á Unglingalandsmótið í sumar: Við stefn- um á stórt mót, en veður og utanaðkomandi aðstæður gera það ómögulegt að gera nákvæma spá. Verður mótið minna eða stærra í sniðum heldur en venjulega: Við vilj- um hafa það stærra í sniðum. Margar nýjungar, svo sem hæfileikakeppni, verða á mótinu. Mótið verður mjög fjölskylduvænt þannig að við vonumst eftir fleira fólki en venjulega. Má vænta einhverra óvænta uppákomna á mótinu: Já! Eitthvað að lokum: Til að mótið ged orðið sem glæsilegast verðum við öll að leggjast á eitt Ef við gerum það getur mótið orðið héraðinu til sóma og upplyfting fyrir mannlífið. Sjáumst á ULM 2002! Ysustróganoff í vestlenskum sveitum er fleira borið á borð en íslensk sauðkind. Á Hæl, í Flókadal í Borgarfirði, er fiskréttur nokkur í hávegum hafður og heitir hann Ysustróganoff. Hafa vinsældir þessa fiskréttar meðal heimafólksins verið slíkar að oftsinnis hefur hann verið tekinn fram yfir sunnudagslærið. Rétturinn er uppfinning bóndans þar á bæ, Jó- hanns Pjeturs Jónssonar, og var hann svo vinsamlegur að gefa starfs- fólki Skessuhoms sýnishorn af herlegheitunum. Hefur starfsfólkið staðfest að Ysustroganoff borgfirska bóndans fer í fyrsta flokk. Uppskriftin sem hér er að neðan er ætluð fyrir um sex manns. Hráefhi: 3 meðalstór ýsuflök 250 g rækjur 150 g sveppir 1 lítri rjómi 2 teskeið karrý 1/2 teskeið arómat , , ,,, i, . johann Pietur Jonsson 70 g tomatpurra (lml dos) Aðferð: Ysan er roðflett og skorin í strimla og velt upp úr hveiti. Þá er hún steikt á pönnu, krydduð með salti og pipar og síðan tekin af pönnunni. Næst era sveppir steiktir á pönnunni, síðan rækjum blandað saman við og tómatpúrra, karrý og arómati blandað saman við og látið krauma í 5 mínútur. Ysuflökin eru síðan sett saman við og látið krauma í 10 mínútur við vægan hita. Borið ffarn með soðnum hrís- grjónum, soyasósu og salati. Verði ykkur að góðu! Nýstárlegar hugmyndir um Egilsstofu í Borgamesi Hús sem sett yrði í klett Samblanda af ferðamannastað og samkomustað fyrir heimamenn Á eitthundraðasta fúndi bæjar- stjómar Borgamess sem haldinn var í mars á síðasta ári var álcveðið að láta fára fram hugmyndavinnu um hugsanlega stofhun sem helguð yrði minningu Egils Skalla- grímssonar. Þetta verkefiú hefur hlotið nafiiið Egilsstofa og síðustu mánuði hefúr sérstakur vinnuhóp- ur unnið að verkefiiinu undir for- ystu Axels Kristinssonar fbrstöðu- manns safnahúss Borgarbyggðar. Að sögn Axels hafði hópurinn ó- bundnar hendur bæði hvað varðaði hugmyndir að húsnæði undir stofn- tinina og einnig útferslur á starfsemi hennar. Vmnuhópurinn fékk til liðs við sig Guðmund Jónsson arkitekt sem er meðal annars hönnuður að Geysis- stofú í Haukadal. Hugmynd sú sem Guðmundur setti fram um hönnun Egilsstofú er vissulega ævintýraleg. Hann sér fyrir sér hús sem byggt sé inn í klett við hliðina á gamla malar- vellinum í Borgamesi og út úr hon- um líka. Húsið sem Guðmundur hef- ur teiknað nær um tuttugu metra inn í klettinn og stendur um þrettán metra út úr honum miðjum. Þá verð- ur hluti gólfeins gegnsær þannig að gestir Egilsstofu geta horft beint ofan í Borgarfjörðinn. Hönnuðurinn mun hafa séð fyrir sér að húsið liti út eins og risastór öxi sem slegið hafi verið inn í klettinn. Tákn fyrir Borgames "Við höfúm einblrnt á hugmynd Guðmundar en hann hefúr lagt á- herslu á að skoða í samhengi hönnun hússins og útferslu þeirrar starfsemi sem þama yrði. Sú tillaga sem hann setti fram að hönnun hússins er vissu- lega nýstárleg og í raun "útópísk" ef svo má segja en jafrtffamt verulega spennandi. Hugmyndin byggir á að það komi hús út úr kletti og gangi út í Borgarfjörðinn. Þama er verið að tala um hús sem er vægast sagt áber- andi og öðmvísi en flest annað sem menn þekkja hér á landi a.m.k. og staðsetningin er þannig að þegar fólk kemur akandi að sunnan yfir Borgar- fjarðarbrúna hefúr það nokkrar mín- útur til að virða fúrðuverldð fyrir sér í forundran og ákveða síðan að stoppa og skoða það nánar. Menn sjá fyrir sér að þetta hús gæti orðið að nokkurs konar tákni fýrir Borgar- nes," segir Axel. Egilsmjöður Axel segir að hugmyndin sem vinnuhópurinn lagði ffarn hafi það meðal annars að leiðarljósi að sam- eina þarfir ferðaþjónustu og heima- manna. "Það er ekki endanlega búið að móta þá starfsemi sem þama gæti orðið en við sjáum fyrir okkur stand- andi sýningu sem helguð yrði Agli og íslenskri sagnamenningu. Þá yrði þarna væntanlega einhverskonar veitingasala og meðal annars gæla menn við að þama yrði borinn ffam samskonar mjöður og Egill drakk af áfergju á sinni tíð. Þá sjá menn fyrir sér að úr Egilsstofu yrði hægt að beina fólki á sögustaði í héraðinu. Einnig hefúr verið fjallað um hug- myndir ffá Rögnvaldi Guðmunds- syni um sagnagarð og það er verið að bræða þessar hugmyndir saman. Það kæmi þá tdl greina að Egill yrði nokk- urskonar aðgöngumiði að sagna- menningunni. Síðast en ekki síst er verið að tala um að húsið nýtist heimamönnum og þá er meðal ann- ars horff á samkomusal af minni gerðinni," segir Axel. 200 milljónir? Að sögn Axels fól bæjarstjóm vinnuhópnum að vinna áffam að ffamkomnum hugmyndum og segir hann að næsm skref verði að þróa þessar tillögur enn ffekar og vinna viðskiptaáætlun fyrir þessa nýstárlegu hugmynd. Aðspurður um áætlaðan kosmað segir Axel að menn giski á að fyrirtækið gæti kostað um 200 millj- ónir en það sé hinsvegar án ábyrgðar. Hann segir að síðan eigi effir að koma í ljós hvort grundvöllur sé fyrir því að fjármagna ævintýrið og telur að það muni þá hugsanlega taka ein- hver ár að safna í sarpinn áður en ffamkvæmdir gætu hafist. GE

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.