Skessuhorn - 20.11.2002, Blaðsíða 6
I
6
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002
+
Valur Ingimundarson þjálfari
Skallagríms í Úrvalsdeildinni í
körfuknattleik hefur verið í sviðsljósinu
að undanfömu en liðið virðist vera að
fóta sig á meðal þeirra bestu þrátt fyrir að
allt undirbúningstímabilið hafi miðast
við að leika í fyrstu deild. Liðið lagði
efsta lið deildariimar, Grindavík, að velli
fyrir skömmu og landaði þar sínum
fyrstu stigum í vetur. Valur lét sér ekki
nægja að stjórna sínum mönnum af
hliðarlínunni í það skiptið heldur skellti
sér í treyjuna að nýju og tók þátt í
leiknum. Valur er reynslumesti
leikmaður íslands og jafnframt sá
stigahæsti ffá upphafi. Hann er gestur skráargatsins að þessu sinni.
Vdlur lngimundarson
Nafh: Vdlur Snjólfur Ingimundur
Fæðingardagur og ár: 20.02.62
Statf. Málari, fjálfari
Fjölskyldubagir: Eiginkona, Guóný Friðriksdóttir og á ég tvö böm Steinunni
Osk 10 ára og Val Orra 8 ára
Hvemig bíl áttu: Hyundai Sonata ‘97 og Mazda 323 ‘93
Uppáhalds matur: Flestur grillmatur
Uppáhalds drykkur: Vatn og kók
Uppáhalds sjónvarpsefni: Allir gamanþættir
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Bjami Fel
Uppáhalds leikari innlendur: Helga Braga
Uppáhalds leikari erlendur: Margir góðir
Uppáhalds iþróttamaður: Jordan
Uppáhalds íþráttafélag: Þau eru nokkur
Uppáhalds stjómmálamaður: Enginn
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Bubbi ogMegas
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Led Zeppelin er hljómsveitin mín
Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjóminni? Bæði og
Hvað meturðu mest ífari annarra? Aðfólk komi til dyranna eins og það er
klætt og komifram við aðra eins ogþað vill að aðrir komifram viðþað sjálft.
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra? Hroki og mont
Hverþinn helsti kostur? Annara að dæma
Hver er þinn helsti ókostur? Morgnamir eru erfiðir, ég er svokallaður b-?naður.
Hvað varð til þess að þú ákvaðst að taka skónafram að nýju? Hef í raun
aldrei lagt þeim. En þegar að staðan var eins og hún var þá vantaði kannski
reynslubolta til að aðstoða yngri leikmenn.
Hvert er markmið liðsins í vetur? Persónulega hefég mikið álit á þessu liði. Það
var mikil áskorun að taka sæti í deildinni og útfrá því verðum við að vinna.
Markmiðið í sjálfu sér er að gera þetta að skemmtilegum vetri og gera allt sem í
okkar valdi stendur til að halda okkur í deildinni.
Hvað áttu von á að spila lengi í viðbót? Hugsanlega spila ég einhverja leiki í
viðbót, engin þrá að spila en ef maður getur hjálpað til þá spilar maður.
Tælenskur
kjúklingaréttur
jyrirjfjóra
Kári Steinn Reynisson
knattspyrmimaður á Akranesi er
kokkur vikunnar að þessu sinni.
Tælenskur
kjúklingaréttur
fyrir fjóra
4 stk. beinlausar kjúklingabringur
1 brokkolí
1 laukur
2 hvítlauksrif
1/2 sellerýrót
3 stórar gulrætur
4 sveppir
1 peli rjómi
1 krukka Satay sósa
1 tsk. Mango Chutney
(bragðmikil, bæta við eftir smekk)
Rjúklingurinn er skorinn í
strimla og pönnusteiktur með
salti og pipar.
Grænmetið er steikt sér í olíu
og örlitlu salti og pipar og svo
bætt út í kjúklinginn. Hægt er að
nota hvaða grænmeti sem er en
mælt er með ofanrituðu.
Rjómanum hellt útí, Satay
sósunni og Mangoinu blandað
við.
Kári Steinn Reynisson
Allt látið malla í nokkrar
mínútur. Gott að nota Wok
pönnu.
Mjög gott að hafa hrísgrjón og
salat með þessu og Baguette
snittubrauð.
í salatið er mælt með að fari
fetaostur, sólþurrkaðir tómatar í
olíu, marineraður hvítlaukur, kál,
rauðlaukur og tómatar.
Mjög lítil fyrirhöfn en alveg
dilissíus.
Verðiykkur að góðu.
SjAjÍSS'UhtMFi
Uppkosningar í Borgarbyggð 7. desember
Hæstiréttur úrskurðaði þann 14.
nóvember síðastliðinn að sveitar-
stjómarkosningar í Borgarbyggð
er fram fóm þann 25. maí væm
ógildar og uppkosningar skildu
fara fram.
Æda ég í grein þessari að fara
yfir hvernig kjósandi skal haga
kosningu sinni svo hún geti talist
lögleg. Fyrir þá sem vilja kynna sér
betur lög og reglur sem gilda við
kosningar er rétt að benda á kosn-
ingavef Félagsmálaráðuneytisins
en slóðin er:
http://www.kosningar2 002 .is
Bæjarstjórn Borgarbyggðar og
yfirkjörstjóm vora sammála um að
uppkosning skyldi fara ffam þann
7. desember næstkomandi. I þess-
um kosningum er ný kjörskrá í
gildi og miðast hún við þá íbúa
sem búsettir vom í Borgarbyggð
þann 16. nóvember þ.e. þremur
vikum fyrir kjördag. Eg hvet fólk
til að kynna sér kjörskrána en hún
liggur ffammi á skrifstofu sveitar-
félagsins að Borgarbraut 11 ffá og
með 27. nóvember n.k.
I 58. grein laga ffá 1998 um
sveitarstjómarkosningar er kveðið
á um hvernig kjósandi skuli greiða
atkvæði, þar stendur:
Kjósandi greiðir atkvæði við
bundnar hlutfallskosningar á þann
hátt að hann markar með ritblýi
kross á kjörseðilinn fyrir framan
þann Hsta sem hann vill kjósa af
þeim sem í kjöri era.
Vilji kjósandi breyta nafharöð á
lista þeim er hann kýs setur hann
tölustafinn 1 fyrir framan það nafn
er hann vill hafa efst, töluna 2 fyr-
ir ffaman það nafn sem hann vill
hafa annað í röðinni, töluna 3 fyr-
ir framan það nafn sem hann vill
hafa það þriðja o.s.frv., að svo
miklu leyti sem hann vill.
Ef kjósandi vill hafna frambjóð-
anda á þeim lista sem hann kýs
strikar hann yfir nafh hans.
I 78. grein sömu laga er fjallað
um hvaða atkvæði skuli meta
ógild, en það er:
a) ef kjörseðill er auður,
b) ef ekki verður séð við hvern
lista er merkt eða ef ekki
verður séð með vissu hvort
það sem stendur á utankjör-
fundarseðli getur átt við
nokkurn af listum sem í kjöri
em,
c) ef merkt er við fleiri lista-
bókastafi en einn eða tölu-
merkt nöfn á fleiri listum en
einum eða skrifaður fleiri en
einn listabókastafur á utan-
kjörfundarseðil,
d) ef áletrun er á kjörseðli fram
yfir það sem fyrir er mælt eða
annarlegt merki sem ætla má
að sett sé af ásettu ráði til að
gera seðilinn auðkennilegan,
e) ef kjörseðill er annar en kjör-
stjórn eða kjörstjóri hefur
löglega afhent,
f) ef í umslagi með utankjör-
fundarseðli er annað eða
meira en einn kjörseðill.“
Um utankjörfundaratkvæða-
greiðslu gilda hins vegar lög um
kosningar til Alþingis nr. 24/2000.
I 62. og 63. grein þeirra laga segir
62. gr. Kosning utan kjörfundar
er því aðeins gild að notuð séu
hin fyrirskipuðu kjörgögn.
Kosningin fer svo fram að
kjósandi stimplar eða ritar á
kjörseðilinn bókstaf þess lista
sem hann vill kjósa og má
hann geta þess hvernig hann
vill hafa röðina á listanum
63. gr. Kjósandi, sem greiða vill
atkvæði utan kjörfundar, skal
gera kjörstjóra grein fyrir sér,
svo sem með því að ffamvísa
kennivottorði eða nafhskír-
teini, eða á annan fullnægj-
andi hátt að mati kjörstjóra.
Kjörstjóri skal halda sérstaka
skrá yfir þá sem greiða at-
kvæði hjá honum, sbr. 1. mgr.
66. gr.
Að þessu loknu fær kjósandi af-
hent kjörgögn. Skal hann síðan
aðstoðarlaust og án þess að nokkur
annar sjái rita atkvæði sitt á kjör-
seðilinn á þann hátt er segir í 2.
mgr. 62. gr. og setja atkvæðið í
kjörseðilsumslagið. Því næst áritar
og undirritar kjósandi fylgibréfið í
viðurvist kjörstjóra sem vottar at-
kvæðagreiðsluna.
... Að lokum skal kjörseðilsum-
slagið ásamt fylgibréfinu lagt í
sendiumslagið og því lokað vand-
lega. Umslagið skal síðan áritað til
hreppstjórans, sýslumannsins eða
kjörstjórnarinnar í því umdæmi
þar sem kjósandinn telur sig
standa á kjörskrá. A sendiumslagið
skal og rita nafii kjósanda, kenni-
tölu og lögheimili.
Að lokum er rétt að benda á að
ef eitthvað kann að vera óljóst þá
er hægt að snúa sér til yfirkjör-
stjórnar eða kjömefhdafólks og fá
nánari upplýsingar um fram-
kvæmd kosninga.
Hilmar Már Arason
formaður yfirkjórstjómar
Borgarbyggðar
Prentverkið 60 ára
Síðastliðinn föstudag hélt Prentverk Akraness upp á 60 ára afrnæli sitt i htísakynnum
prentsmiðjunnar. Boðið var upp á glæsilega dagskrá þar sem Bragi Þórðarson stiklaði á
stóru í sögu jyrirtækisins, Gospellkórinn söng nokkur lög og Ari Jónsson söngvari og
prentari skemmti gestum.
Starfsfólk dvalarheimilisins
Höfða lýsir yfir stuðningi við
starfsfólk heimilisins sem á í
kjarabaráttu og skorar á bæjar-
yfirvöld að finna farsæla lausn á
deilunni sem fyrst.
Fyrir hönd starfsfólks
Dvalarheimilisins Höfða.
Ólöf Böðvarsdóttir,
trúnaðarmaður
+