Skessuhorn - 20.11.2002, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2002
JJm uppbyggingu Norðuráls á Grundartanga
Það er orðið mjög nauðsynlegt að
tryggja framhald þeirrar uppbygg-
ingar sem átt hefur sér stað hjá
Norðuráli á Grundartanga tmdan-
farin ár. Einnig er ástæða til að vekja
athygli á mikilvægum þætti stóriðju-
fyrirtækja í uppbyggingu þróttmikils
atvinnulífr, sem er undirstaða bættra
kjara launþega og áframhaldandi
uppbyggingar velferðarkerfisins.
Aukin hagvöxtur
meiri vinna
Hægt hefur mjög á eftiahagslífinu
síðasdiðið ár eftir 5 ára samfelldan
hagvöxt sem meðal annars leiddi til
bættra kjara launþega. Það má hverj-
um manni vera ljóst að hagvexti fylg-
ir ávinningur fyrir þjóðfélagið í
heild.
Það er ástæða fyrir því að hafa
verulegar áhyggjur af vaxandi at-
vinnuleysi og aukinni fátækt sem
hefur verið að skjóta upp kollinum.
Stjórnvöld geta með góðum vilja og
markvissum aðgerðum snúið þessari
óheillaþróun við.
Það er ástæða til að minna á að
þegar samið var um byggingu Norð-
uráls var gert mat á umhverfisáhrif-
um og gefið út starfsleyfi til 10 ára
fyrir 180.000 tonna álframleiðslu.
Að undan-
förnu hefur
maður varla
opnað svo fjöl-
miðil að ekki
væri þar rætt
um umhverfis-
mat á einn eða
annan hátt. Ég
hef stundum
velt því fyrir mér í einfeldni minni
hverskonar matur þessi umhverfis-
matur væri og helst komist að
þeirri niðurstöðu að hér væri um
að ræða mat úr umhverfinu og þá
líklega helst lambakjöt því eins og
allir skógræktarmenn vita nagar
sauðkindin jarðskorpuna og þess-
vegna eru neytendur lambakjöts að
nærast á umhverfi sínu. Einhverra
hluta vegna virðist umhverfismat-
ur og meðhöndlun hans vera
stöðugt deiluefni svo jafnvel lög-
reglan hefur séð ástæðu til að elta
uppi umhverfismat sem ekki hefur
verið meðhöndlaður á réttan hátt
jafnvel þó þeir ágætu laganna þjón-
ar hafi einmitt verið aldir upp á
slíkum heimaunnum umhverfis-
mat sem er þó talinn vera mjög
góður fyrir heilastarfsemina og
gáfnasviðið. Hvað sem annars líð-
ur hollustunni er það augljós stað-
reynd að þegar ævinni líkur leita
líkamsffumur allra lífvera aftur til
jarðarinnar hvort sem leiðin verð-
ur nú bein eða liggur í krókaleið-
um um meltingarvegi manna eða
dýra. Sigfús Jónsson orti að aflok-
inni hrossaslátrun:
Brúnka hefur fundið frið
ífaðmi þtnum drottinn.
Sálin hófst á hærra svið
en holdið fór ípottinn.
Fari nú svo að holdið velji sér
leið um meltingarveginn myndast
eitt millistigið enn áður en
hringrásin hefst að nýju en um
þessa eilífu hringrás orti Halla Eyj-
ólfsdóttir:
Aburður sem útifraus
aftur berst að munni,
efhabreyting endalaus
er í náttúrunni.
Fyrirtækið hefur nú 90.000 tonna
framleiðslugetu og hefur ítrekað lýst
áhuga á stækkun að gefnum ákveðn-
um forsendum. Þessi áhugi hefur
legið fyrir síðan 1997 og er það
furðulegt að nú meira en 5 árum
síðar liggur ekki enn fyrir áætlun um
hvemig mæta á orkuþörf fyrirtækis-
ins. Vinnubrögð stjómvalda em að
xmnu matd ámælisverð enda mætti
ætla að ef undirbúningsvinna hefði
verið með eðlilegum hætti væra
ffamkvæmdir þegar hafnar og at-
vinnuleysi minna. Það er ljóst að
hvorki Landsvirkjun né iðnaðarráð-
herra Framsóknarflokksins hafi unn-
ið sýna heimavinnu.
Sá pólitíski hráskilningsleikur
stjómmálamanna, að tala tungum
tveim, er með öllu óþolandi. Að lýsa
yfir vilja til að greiða fyrir stækkun
Norðuráls en gera síðan ekkert í því.
Það má líka minna á að árið 1999 til
2000 var mikill samdráttur í afla ís-
lenskra fiskisldpa. A sama tíma er
Norðurál að koma inn af fullum
þunga í útflutningi. Hefði Norður-
áls ekki notið við hefðu Islendingar
farið í gegnum djúpa efnahagslægð
með tilheyrandi atvinnuleysi.
Norðurál á Grundartanga hefur
ffá stofnun verið effirsóttur og fjöl-
mennur vinnustaðtu- og er einn af
Birgir Hartmannsson hafði eft-
irfarandi að segja um einn gæða-
grip sem honum þótti líklegri til að
fara vel í tunnu en til stóraffeka
undir hnakk.
Ætíð skaltu iðka streð,
eðlið kalt e'g nefni.
Þe'r er allt svo þvert um geð.
þú ert saltkjötsefni.
Fyrir nokkram áram heyrði ég
af rannsóknarniðurstöðum sem
bentu til þess að ónæmiskerfi lík-
amans næði ekki að þroskast eðli-
lega í þeim einstaklingum sem búa
við óhæfilega mikið hreinlæti í
æsku. Fyrir alllöngu var á fundi
Húsavíkurdeildar K.Þ. rætt um að
framvegis yrði öll mjólk geril-
sneydd og yrði þar af leiðandi
nokkra dýrari. Stóð þá upp aldrað-
ur maður að nafhi Þórður Markús-
son, hraustmenni mikið og taldi
hreinlætið of dýru verði keypt.
Sjálfur hefði hann unnið ýmis
óþrifastörf og látið margt ofan í sig
sem ekki væri sótthreinsað og ekki
orðið kvillasamt um dagana enda
væru ýmis lyf unnin úr skít og
myglu og milliliðir óþarfir. Egill
Jónasson var á fundinum og orti:
Læknamir bregðast lýðsins vonum,
lyftn brugga þeir einskis nýt,
í stað þess að segja sjúklingonum
að sitja heima og éta skít.
I hreinlætisátt þó heimur sæki
hefur hann litla sigurvon.
Enginn gerir svo grimmsterk tæki
að gerilsneiði Þórð Markússon.
Það þótti einu sinni góður siður
að ganga vel að mat sínum en ekki
endilega heppilegur þeim sem
urðu að gera sér að góðu leifaran-
ar. Þormóður Eiríksson ffá As-
geirsstöðum orti af gefnu tílefni:
Ospilltri ég engri næ
þó eltist ég við svanna,
aðeins bitin beininfie
af borðum kvennamanna
Systir hans Þórbjörg Eiríksdótt-
ir orti við einhvern sem hafði gert
þeim stærstu hér á landi utan höfuð-
borgarsvæðisins. Þar starfa rösklega
200 manns í dag. Gert er ráð fyrir að
þeim muni fjölga í 350 effir næstu
stækkun verksmiðjunnar í 180 þús-
tmd tonna ársframleiðslu og í 450
starfsmenn við stækkun í 240.000
tonn. Þar að auki kaupir fyrirtækið
þjónustu af fjölda verktaka og þjón-
ustuaðila og hefur lagt sig ffam um
að versla við innlenda aðila ef þess er
nokkur kostur. Þess má geta að
höfnin á Grundartanga er nú þegar
orðin næst stærsta inn og útflutn-
ingshöfn landsins.
Staðbundin áhrif á Vesturlandi
þar sem 85% starfsmanna álversins
búa eru mikil. Nýlega gáfu 8 sveit-
arstjómir á Vesturlandi ffá sér yfir-
lýsingu um að fyrirtækið gegni lykil-
hlutverki í þróun búsetu á svæðinu
enda er þetta eitt af fáum svæðum
utan höfuðborgarsvæðisins þar sem
fólki og störfum fjölgar verulega.
Sá háværi minnihluti, sem hefur
undir merkjum umhverfisverndar,
lagst í krossferð gegn virkjunum og
álbræðslu, talar gjarnan um störf í ál-
iðnaði í niðrandi tóni og flokkar þau
sem annars flokks störf. Störf í álver-
um eru sérhæfð og krefjast sértækrar
þjálfunar. Fjöldi starfsmanna býr
yfir iðn- og tæknimenntun en einnig
sér gott af kræsingunum:
Þökk og heiður þeim sem ber,
þannig hafafáir unnið.
I hjarta mínu ekkert er
eftir sem nú getur brunnið.
Og bróðir þeirra, Þorsteinn Ei-
ríksson svaraði svo stúlku sem
bauð honum borgun fyrir eitthvert
viðvik:
Aurakrossa ei vil sjá
úrþví hnossavali.-
Byðirðu kossa þína, þá
þæði í grossatali
Ríkharður Jónsson útskurðar-
meistari orti piparvísur og þar á
meðal þetta:
Piparsveinar hlaupa hratt,
hverfa lítt aðfreyjum.
Þeir ættu að borga extra skatt
aföllum piparmeyjum.
Það er synd og svívirða
að sjá þær þreyja og bíða.
Alla karlmenn ógifta
ætti að taka og hýða!
Eins dauði er annars brauð og
öfugt og þegar Knútur Þorsteins-
son heyrði trúlofunarffegn varð
honum að orði:
Ýmsa sviptir auðnusól
yl og Ijósi sínu:
Gefur Bimi guð í ból,
- gengur framhjá mtnu!
Einar Beinteinsson frá Grafardal
sá þó ekki ástæðu tíl að æðrast:
Ýms þó meinin hafi hrjáð,
hæftr varla að trega,
heldur reyna að drýgja dáð
og drepast karlmannlega.
Á líkan hátt sá Kristján Olason
að það var ekki ástæða til að óttast:
Aldrei vakið óttafá
illra veðra stundir,
þeim erfræin sofa sjá
svelli ogfónnum undir.
fer mikil starfsþjálfun fram á vinnu-
staðnum. Og væntanlega með tíl-
komu stóriðjuskóla mun minna
menntað starfsfólk stóriðjunnar, fa
tækifæri til að auka sína þekkingu og
hækka í launum. I gegnum tíðina
hefur stóriðjan greitt há meðallaun
miðað við flestar aðrar starfsgreinar.
Árið 2001 greiddi Norðurál samtals
um einn milljarð króna í laun og
launatengd gjöld og vora meðallaun
liðlega 300 þúsund krónur á mánuði
á hvern starfsmann.
Ef áætlanir um stækkun Norðuráls
ganga effir má gera ráð fyrir því að
árið 2009 hafi fyrirtækið fjárfest fyrir
um 80 milljarða króna á Grundar-
tanga, eða allt að 50 milljarða til við-
bótar við það sem þegar hefur verið
gert. Fjárfestíng af slíkri stærð-
argráðu ásamt tilheyrandi virkjana-
ffamkvæmdum hefði veruleg áhrif á
hagvöxt, atvinnuástand, kjör laun-
þega og möguleika ríkisins til að
hækka bætur til þeirra sem minna
mega sín.
Umhverfisvemd, virkjanir og stór-
iðja eiga samleið enda er skynsamleg
notkun auðlinda nauðsynleg fyrir
áffamhaldandi hagsæld á íslandi.
Þó er ekki endilega sársaukalaust
að fylgjast með eigin hrömun og
Kristján orti líka:
Þettafinn égþví erver,
það er sinni og skinni
þraut að kynnast sjálfum sér
sífellt minni og minni.
Eitthvað hefur legið illa á Krist-
jáni Schram þegar hann segir:
Einn ég vaki, einn ég græt,
yfir dánum vonum.
Einn ég síðast lífið læt
og leggst hjá minningonum
Ragnheiður Halldórsdóttir var
eitthvað farin að finna ellimörk á
skilningarvitunum:
Elliseyra sest er að
sjón ogfleira að buga.
Ei skal meira mógla um það
meðan eyrun duga.
Stundum ber það við að fólk
tengist dýram ótrúlega sterkum
tilfinningaböndum og breytir þá
litlu hvort um er að ræða
kjölturakka, heimilisketti, reið-
hesta eða fjárhunda. Eyjólfur Jón-
asson í Sólheimum var kominn á
effi ár þegar hann missti uppáhalds
htmd undir bíl og fann á sér að
ekki myndi hann koma sér upp
öðrum í staðinn:
Eg græt ei þó fákana felli
ogjjarlægist vinir um stund,
ég græt ekki af gigt eða elli.
Ég græt minn síðasta hund.
Botninn skal svo sleginn í þenn-
an þátt með vísu Einars Beinteins-
sonar:
Þó að lánið verði valt
veraldar í slarki,
við skulum glaðir gegnum allt
ganga að hinsta marki.
Með þökkfyrir lesturinn
Dagbjartur Dagbjartsson
Refsstöðum 320 Reykholt
S 435 1367
Prófkjör og kosningar hafa
verið mönnum ofarlega í huga á
Vesturlandi og víðar síðustu
daga. Bjarni Guðmundsson
hagyrðingur, prófessor ofl. Á
Hvanneyri taldi sig hafa heyrt
sagt sem svo á Skaga á dögun-
um.
Mitt er lán í veröld valt
og varla reglur skil -
en ég má kjósa út um allt
og eins oft og ég vil.
Missldln-
ingur
Ýmsar kenningar hafa komið
upp um meint svindl í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Norðvestur-
kjördæmi. Sagan segir að ekki
sé lengur rætt um hver hafi
svindlað heldur hver svindlaði
mest. Hinsvegar er sennilegasta
skýringin sú að enginn hafi
svindlað heldur hafi um verið að
ræða misskilning eins og marg-
ir hafi haldið ffam. Misskilning-
urinn hefur þá væntanlega falist
í því að það var raglað saman
reglum flokksins um prófkjör
og reglum flokksins um jóla-
kortasölu en í seinna tilfellinu
er heimilt að ganga í hús og á
vinnustaði.
Erlendar
fréttir
Guðmundur Þorsteinsson
hagyrðingur á Skálpastöðum í
Borgarfirði kvað undir erlend-
um fréttum.
Við haustak á heiðingjum kimnum
og heimsstríðin bæði við unnum.
Þar sem við erum stödd
eru vopn ekki kvödd.
Sagði Vilhjálmur Georgfrá
Runnum.
Slys
3 félagar deyja í bílslysi og sjá
að þeir standa næst við gullna
hliðið hjá Lykla-Pétri.
Þeir eru allir spurðir
spurningarinnar, "Þegar þú
liggur í líkkistunni þinni og
vinir og fjölskylda þín era að
syrgja þig, hvað viltu heyra þau
segja um þig?"
Fyrsti félaginn svarar: „Ég vil
heyra þau segja að ég hafi verið
frábær læknir og mikill
fjölskyldumaður. “
Annar félaginn svarar: „Ég vil
heyra þau segja hversu
yndislegur eiginmaður og
kennari ég hafi verið og hvemig
ég hafi átt þátt í að móta börn
framtíðarinnar."
Þriðji félaginn svarar svo:
„Ég vil heyra þau segja...
Sjáið hann hreyfist!!“
Sigurður H. Einarsson,
Formaður stóriðjudeildar,
Verkalýðsfélags Akraness.
'l/íuUsfo’tSlilj
Ospilltri é(f enori næ