Skessuhorn - 08.01.2003, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 8. TANUAR 2003
Haraldur
og Sturla á
faraldsfæti
Haraldur Hinriksson,
fyrrum leikmaður IA, spilaði
á dögunum æfingaleik með
HK úr Kópavogi. Sam-
kvæmt heimildum Skessu-
horns mun Haraldur vera að
íhuga það að taka fram
skóna á nýjan leik en hann
hætti eftir tímabilið 2001.
Þá mun Sturla Guðlaugs-
son að öllum líkindum vera á
leið í raðir Aftureldingar.
Sturla fékk fá tækifæri með
IA síðasta sumar og kom
einungis við sögu í átta leikj-
um.
Fækkun
fæðinga
áSHA
Umtalsverð fækkun varð á
fæðingum á Sjúkrahúsi
Akraness á síðasta ári miðað
við 2001. Alls fæddust 158
börn á sjúkrahúsinu miðað
við 196 börn árið áður. Af
þessum 158 börnum voru 94
strákar og 64 stelpur. Skipt-
ingin var mun jafhari árið
2001 eða 99 strákar á móti
97 stelpum. Athygli vekur
einnig að engir tvíburar
fæddust á Akranesi í fyrra.
HJH
Metafli
ogafla-
verðmæti
árið 2002
Aldrei fyrr hafa skip Har-
aldar Böðvarssonar aflað
jafn mikið og á árinu sem nú
er að líða. Heildarafli skip-
anna var 166.540 tonn en
magnlega séð vegur loðnan
þyngst, um 102 þúsund tonn
veiddust af loðnu á árinu, af
kolmunna veiddust rúmlega
27 þúsund tonn. Heildarafli
í uppsjávarfiski var um 144
þús. tonn en botnfiskafli
skipanna var rúmlega 22
þús. tonn. Heildaraflaverð-
mætið er rúmlega 3,6 millj-
arðar króna sem er um 850
milljóna króna aukning frá
árinu á undan, en þá voru
sjómenn í verkfalli í u.þ.b.
sex vikur.
(Af vefnurn hb.is)
jAtasutiui..
Menn ársins á Vesturlandi
Hvatningarverðlaun Skessuhorns veitt í fimmta sinn
Val á manni ársins á Vestur-
landi, eða Vestlendingi ársins
2002, var kynnt við stutta athöfh
í Maríukaffi á Safnasvæðinu á
Akranesi síðastliðinn mánudag.
Það er Skessuhorn sem stendur
að valinu líkt og undanfarin ár
en þetta er í fiminta sinn sem
blaðið útnefnir Vestlending árs-
ins. Tilgangur verðlaunaafhend-
ingarinnar hefur frá upphafi ver-
ið að vekja athygli á því sem vel
er gert og veita örlítið klapp á
bakið, þeim sem það eiga skilið
að mati blaðsins.
Við verðlaunaafhendinguna á
Akranesi kom fram að þegar um
er að ræða útnefningar af þessu
tagi sé ekki hægt að reikna sam-
an stig eða telja mörk líkt og í í-
þróttakappleikjum heldur verði
fyrst og ffemst um huglægt mat
að ræða. Líkt og oftast áður var
farin sú leið að skipa dómnefnd
nokkurra einstaklinga sem eru í
aðstöðu til að hafa þokkalega yf-
irsýn yfir það sem er að gerast á
Vesturlandi. Auk þess var leitað
eftir tilnefiiingum og huginynd-
um víða að. Það var því inat
dómnefndar að þeir sem til-
nefndir voru til verðlaunanna
væru þeir sem helst hefðu skarað
ffamúr á síðasta ári.
Lítilsháttar íjölgnn
íbúa á Vesturlandi
Samkvæmt bráðabrigðatöl-
um Hagstofunnar yfir mann-
fjölda á Islandi 1. desember
2002 er lítilsháttar fjölgun á
Vesturlandi á inilli ára. Ibúum
fjölgar um 38 eða um 0,3%.
Mest er fjölgunin á Akranesi en
þar fjölgar íbúum um 58 en
hlutfallslega er fjölgunin mest í
Skorradal eða um 14%. Skorra-
dalur er þar með ekki lengur
minnsta sveitarfélag Vestur-
lands því hann skýst upp fyrir
Helgafellssveit sem hefur 56
íbúa nú en Skorradalshreppur
er kominn með 65 íbúa. Ibúum
fækkar mest í Snæfellsbæ eða
um 19 en hlutfallslega er fækk-
unin mest í Innri Akranes-
hreppi eða 8.8%.
Ibúafjöldi á Vesturlandi mið-
að við bráðabrigðatölur Hag-
stofunnar 1. des 2002 saman-
borið við endanlegar tölur árið
2001.
2002 2001 Mism.
Alls Karlar Konur
Vesturland 14.495. .7.472. .7.023 14.457...38.0,3%
Hvalfjarðarstrandarhreppur. ..169.. 92. 77 157...12..7,6%
Skilmannahreppur ...144.. 69. 75 146....-2-1,3%
Innri-Akraneshreppur ...114.. 67. 47 125..-11 -8.8%
Akranes 5.578.. ..2.858. ..2.720 ...5.520...58 7%
Leirár- og Melahreppur ...120.. 68. 52 127....-7..5,5%
Borgarjjarðarsveit ...693.. 355. 338 689 4..0,6%
Skorradalshreppur 65.. 35. 30 57 8...14%
Hvítársíðuhreppur 84.. 48. 36 83 l..l,2%
Borgarbyggð 2.520.. ..1.306. ..1.214 ...2.522....-2
Kolbeinsstaðahreppur ...109.. 52. 57 113....-4 -3,5%
Eyja- og Miklaboltshreppur ...116.. 64. 52 1/9....-3 -2,5%
Snœfellsbœr 1.780.. 910. 870 ... 1.799.,-19 ...-1%
Grundarfjarðarbar ...964. 494 470 956 8..0,8%
Helgafellssveit 56. 29. 27 58....-2 -3,4%
Stykkishólmur 1.228. 632. 596 ...1.239..-11 -0,8%
Dalabyggð ...662. 343. 319 657 5..0,7%
Saurbæjarhreppur 93. 50. 43 90 3..3,3%
Vesturland 7.439. ..7.018
Hvítársíðuhreppur 46. 37
Borgarbyggð 1.305. ..1.217
Kolbemsstaðahreppur 54. 59
Eyja- og Miklaholtshreppur 67. 52
Stiafellsbær ...911. 888
Eyrarsveit ...495. 461
Helgafellssveit 31. 27
Stykkishólmur ...635. 604
Dalabyggð ...332. 325
Saurbæjarhreppur 51. 39
„Topp tíu“
Tíu aðilar voru tilnefndir að
þessu sinni og eru þeir í stafrófs-
röð:
Hanna Laufey Jónasdóttir,
tíu ára gömul stúlka á Jörva í
Kolbeinsstaðahreppi sem með
snarræði og réttum viðbrögðum
kom í veg fyrir stórbruna á
heimili sínu skömmu fyrir jól.
Ingi Hans Jónsson, þúsund
þjalasmiður í Grundarfirði sem
meðal annars stendur að upp-
byggingu sagnagarðs í sinni
heimasveit.
Ingólfur Amason, uppfinn-
ingamaður og einn eigenda
Skagans sf. Fyrirtækið kynnti á
síðasta ári nýjunga Sjávarútvegi
sem margir vilja meina að geri
landvinnslu hagkvæma á nýjan
leik.
ísólfur Haraldsson og Ami
Gíslason forstöðumenn Bíó-
hallarinnar á Akranesi fyrir að
standa fyrir endurreisn bíóhall-
arinnar sem menningarhúss á
Skaganum.
Jósef Om Blöndal, yfirlækn-
ir á Sanfriskusspítalanum í
Stykkishólmi fyrir að gera spít-
alann í Sth að háskólasjúkrahúsi.
Róbert A. Stefánsson, for-
stöðumaður Náttúrustofu Vest-
urlands fyrir gagnmerkar rann-
sóknar.
Runólfur Agústsson rektor
viðskiptaháskólans á Bifföst fyrir
gríðarlega uppbyggingu í hraun-
inu undir Grábrók.
Svanur Tómasson í Olafsvík
fyrir fhækilegt björgunarafrek á
haustdögum þegar hann lagði
sig í bráða lífshættu við að bjarga
föður sínum sem hafði hrapað í
sjó fram á vélskóflu.
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra fyrir góða vinnu
að samgöngumálum og öðrum
framfaramálum í kjördæminu.
Þorsteinn Þorleifsson fyrir
uppbyggingu steinaríkisins sem
er einn af burðarásum í glæsi-
legu safanavæði á Skaganum.
Hinir útvöldu
Af þessum tíu tilnefndu vora
síðan þrír útvaldir og fengu þeir
sérstakar viðurkenningar.
Vestlendingur ársins 2002 var
valinn Runólfur Agústsson rekt-
or Viðskiptaháskólans á Bifröst.
Við athöfhina á Maríukaffi kom
ffam að hann hefði stjórnað gíf-
urlegri uppbyggingu háskóla-
þorpsins á Bifföst síðustu ár sem
náði hámarki á síðasta ári með
vígslu nýs skólahúss.
1 öðru sæti varð Þorsteinn
Þorleifsson sem hefur drjúgan
þátt í að margfalda aðsóknina að
safhasvæðinu að Görðum með
uppbyggingu hins sérstaka og
gríðarlega vinsæla steinasafhs,
Steinaríkis Islands.
I þriðja sæti urðu síðan þeir
Isólfur Haraldsson og Arni
Gíslason forstöðumenn bíóhall-
arinnar á Akranesi sem nýtur ört
vaxandi vinsælda á nýjan leik
sem bíóhús og tónleikahús.
Skessuhorn óskar verðlauna-
höfunum og öðrum sem til-
nefndir voru að þessu sinni til
hamingju með góðan árangur á
síðasta ári. GE
Sinubruni í Borgamesi
Slokkviliðiö í Borgarnesi að störfum við Englendingavíkina síðastliðinn
mánudag. Mynd: GE
Þótt það sé því miður nokk-
uð alengt að slökkvilið séu
kölluð út vegna sinubruna þá
er harla fátítt að slíkt gerist í
janúar. Sú var hinsvegar raunin
síðasliðin mánudag en þá var
slökkviliðið í Borgarnesi kallað
út þegar kviknaði í sinu við
Skúlagötu rétt við Englend-
ingavíkina. Illa hefði getað far-
ið ef ekki hefði verið bragðist
skjótt við því eldurinn kom
upp rétt við gömlu pakkhúsin í
Englendingavík en þar og
einnig í gamla kaupfélagshús-
inu við hliðina er nægur elds-
matur. Að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi er talið að kviknað
hafi í útffá flugeldum.
GE