Skessuhorn - 08.01.2003, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 8. JANUAR 2003
jntaðinw.-
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: Fax: 431 5040 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: líðindamenn ehf 431 5040 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 892 4098 ritstjori@skessuhorn.is
Blaðamaður: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.i$
Auglýsingar: Prófarkalestur: Hjörtur J. Hjartarson Inga Dóra Halldórsdóttir 864 3228 hjortur@skessuhorn.is
Umbrot: Prentun: Guðrún Björk Friðriksdóttir Prentmet ehf. gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ú
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa i lausasölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Fjölær
vandamál
Á nýju ári byrjar maður ferskur með
hreint borð, staðráðinn í að gera ekki
sömu mistökin og á síðasta ári. Sem getur
þó verið erfitt í ljósi þess að um leið ham-
ast maður við að gleyma þeim mistökum og þau rifjast ekki upp fyrr en
inaður detmr ofan í sömu holuna aítur.
Allt sem þjakaði mann á síðasta ári er samt að baki og heilt nýtt ár,
óspjallað, er framundan.
Vandinn er samt sem áður sá að sum vandamál flytjast á milli ára. Eg
á tildæmis ennþá eftir að gera upp sakirnar við þann sem gaf barnung-
um syni mínum syngjandi jólasvein í jólagjöf. Sveinn þessi gaular fjög-
ur mismunandi jólalög á engilsaxnesku með ekki ósvipuðum raddstyrk
og Ólafur Þórðarson ku beita í búningsklefa Skagamanna í hálfleik.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir af minni hálfu til að ráða þennan söng-
elska jólasvein af dögum á hátíð ljóss og friðar þá hefur ungsveininum,
syni mmum, fram til þessa tekist að gegna sínu vamarhlutverki. Jóla-
sveininum beitir hann síðan fyrir sig í sínum skæmhernaði gegn mér í
hvert sinn sem færi gefst.
Annað mál sem sem ég náði ekki að skilja eftir á gamla árinu var ó-
notaleg lífsreynsla sem ég varð fyrir á jóladag. Tengist hún góðvini
mínurn sem ég hef lengi þekkt og ekki nema að góðu einu. Piltur þessi
vann það sér meðal annars til frægðar hér áður fyrr á árunum að leika
og syngja með ijölmörgum pönkhljómsveitum sem vom hver annarri
ægilegri ásýndum. Ærði hann með því heilu meyjaskarana og öðlaðist
fyrir vikið ómælda aðdáun félaga sinna, mína þar á meðal. Síðan var
það núna á jóladag að ég óforvarendis rekst á þennan alræmda pönk-
ara í kirkju hvar hann stendur bísperrtur í miðjum kirkjukór og kirjar
jólasálma líkt og hann hafi aldrei gert annað, kominn úr leðurbrókun-
um og í Kórónaföt með gamla laginu. Þetta var óþægileg upplifun sem
kom mér til að finnast ég vera farinn að eldast langt fyrir aldur fram og
ónotatilfinningin fylgdi mér yfir á nýárið.
Þriðja dæmið sem vert er að tiltaka er þó sýnu verst en það er sá
hrikalegi skoðanakannanafaraldur sem blossaði upp rétt fyrir jólin þeg-
ar Ingibjörg Sólrún komst að því að hún nennti ekki lengur að vera
sveitarstjóri í Reykjavíkurhreppi. I kjölfarið hefur dunið á manni, langt
fram á þetta ár, hver skoðanakönnunin á fætur annarri sem á að leiða í
ljós gífurlegar sviptingar í íslenskri pólitík. Hverri slíkri skoðanakönn-
un fylgir flóðbylgj a af gáfulegum fféttskýringum í nánast hverjum ein-
asta viðtalsþætti í útvarpi og sjónvarpi og á annarri hverri síðu dagblað-
anna. Þar er hvur spekingurinn upp af öðrum látinn túlka niðurstöður
skoðanakannana þar sem tveir eða jafnvel fleiri eru spurðir að því hvað
þeir myndu kjósa í þessum eða hinum kosningunum ef þessi eða hinn
væri í framboði eða ekki. Meðal annars er búið að fá það á hreint með
skoðanakönnun hver úrslitin verða í borgarstjórnarkosningunum 2006
og þar með búið að eyðileggja fyrir manni alla spennu mörg ár ffarn í
tímann. Nú bíð ég bara spenntur efdr nýrri skoðanakönnun Frétta-
blaðsins um það hver nemenda í þriðja bekk Ártúnsskóla sé líklegastur
til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum árið
2030.
Gísli Einarsson í ársbyrjun.
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Fyglst meö flugeldasýningu á seleyrinni við Borgamesi íjólablíöunni síðastliðinn mánudag. Mynd: GE
Verðlaunaskreytingar
í Dölum
Frá verðlaunaafhendingunni.
I byrjun desember var blásið
til utandyra-jólaskreytingar
samkeppni í Dalabyggð,
annars vegar meðal einstak-
linga og hinsvegar meðal fyrir-
tækja. Elstu menn telja sig ekki
muna eftir jafn mörgum og
glæsilegum skreytingum í Döl-
unum eins og fyrir þessi jól. Svo
virðist sem hinir hæglátustu
menn og konur hafi umturnast
og fundið farveg fyrir listsköpun
sína í meðferð lita og ljósa.
Bjóst dómnefnd
ekki við öðrum eins
viðbrögðum og
var því úr vöndu að
ráða sérstaklega
hvað varðar ein-
staklingskeppnina.
Þeir aðilar sem
unnu einstaklings-
keppnina búa að
Miðbraut 1, Búðar-
dal.
Þeirra skreyting
þótti vera einföld, smekkleg,
falleg og stílhrein Það fyrir-
tæki sem til verðlaunanna vann
var: Blómabúðin Blómalind.
Þar þóttu skreytingar vera afar
vel útfærðar og hlýlegar.
Nefndarmenn sem og full-
trúi hreppsnefndar veittu
verðlaunin sem voru 10.000
króna gjafabréf í verzl. Dala-
kjör, til ofangreindra skreyt-
ingarmeistara.
Fjórir ættliðir og
íjórir nafiiar í Ólafsvík
Sunnudaginn
milli jóla og nýárs
fór fram skírn í
Olafsvíkurkirkju en
þá var skírður
drengur sem hlaut
nafnið Vigfús
Kristinn Vigfússon.
Það óvenjulega við
þessa skírn var að
þessi ungi drengur
er sá fjórði í beinan
karllegg sem er á lífi og ber
nafhið Vigfús í ættinni og voru
þeir allir viðstaddir þe. langafinn
Vigfus Kristinn Vigfússon sem
er 78 ára, afinn Vigfús Vigfússon
og faðirinn Vigfús Vigfússon.
Það er líka merkilegt við þessa
skírn að bæði feður og mæður
yngsta og elsta Vigfusar heita
sömu nöfnum þ.e. Vigfus og
Kristín. Kristín, móðir þess
yngra er Sigurðardóttir og fyrir
eiga unga parið dótturina
Súsönnu Sól sem er tæplega
þriggja ára og búa þau í Olafsvík
eins og bæði afinn og langafinn.
Lengra má telja sameiginlegt
hjá þessum nöfhum en allir eru
Vigfusarnir góðir trésmiðir og
ekki að efa að yngsti Vigfus
verði það líka.
Það var sr. Oskar H. Osk-
arssson sóknarprestur í Olafsvík
sem skírði hinn unga svein.
TS}.
Valdís við húsið sitt
Jensína við húsið sitt
Glæsileg
pipar-
kökuhús
Valdís Einarsdóttir sigraði
nýverið í Piparkökuhúsasam-
keppni Kötlu í fjórða sinn en
hún hefur tekið árlega þátt í
keppninni í ríflega áratug.
Barnabarn Valdísar, Jensína
Kristinsdóttir, hyggst greini-
lega feta í fótspor ömmu
sinnar því hún sigraði einnig
þeirri keppni sem ætluð er
börnum.
Valdís sagði í samtali við
Skessuhorn að um fimm vik-
ur hefðu farið í gerð hússins
sem er hreint ótrúlega glæsi-
legt. Valdís sagði að þó vissu-
lega lægi mikil vinna á bakvið
gerð svona húss þá væri hún
orðin vel rútíneruð í þessu
enda gert þetta í mörg ár.
Fyrir sigurinn í keppninni
hlaut Valdís vegleg verðlaun.
300 þúsund króna úttekt í
Epal og 100 þúsund króna
úttekt hjá Fiður og dún.
Ekki mun hús Jensínu
standa öllu lengur því hún
hyggst borða það með aðstoð
vina og vandamanna. Hús
Valdísar mun líklega standa
öllu lengur en hún á enn hús-
in frá keppninni í fýrra og ár-
inu þar á undan. HJH