Skessuhorn - 08.01.2003, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGURjyANUAR 2003
5
Myndarlegur styrkur firá
Sparisjóðnum
I árslok af-
henti Gísli
Kjartansson
sparisjóðs-
stjóri Spari-
sjóðs Mýra-
sýslu fulltrú-
um Reyk-
holtskirkju 3
m i 1 1 j ó n i r
króna sem eru
styrkur úr
menningar-
sjóði SM. Menningarsjóður
sparisjóðsins hefur í gegnum
árin styrkt hverskonar inenn
ingarstarfsemi í héraðinu.
Þakkir frá Höfða
Jóbannes Gunnarsson afbendir Asmundi Olafssyni, fi'amkv.stjóra Höfía gjafa-
bréf uppa' 6.8 milljónir króna. A milli þeirra er Tryggvi Bjamason, lögmaður
sem útbjó gjafabréfið.
Eins og fram kom í jólablaði
Skessuhorns þá gaf Jóhannes
Gunnarsson gjafasjóði Höfða
stóra peningagjöf kr. 6.8 millj-
ónir til kaupa á búnaði fýrir
heimilið.
Ýmsar aðrar gjafir bárust
heimilinu á árinu 2002, sem við
þökkum fyrir. Svöfusjóður
Kvenfélags Akraness afhenti kr.
151.706,- til kaupa á stólum
fýrir hjúkrunardeildina og að-
standendur Jónu Guðmunds-
dóttur, hjúkrunarkonu gáfu stól
á hjúkrunardeild. Fjölskylda
Vilhelmínu Elísdóttur starfs-
manns Höfða gáfu glerlistaverk
til minningar um hana, en Vil-
helmína lést þann 12. desember
2001. Sjúkravinir hafa gefið
gjafir, sem og margir aðrir vel-
unnarar heimilisins.
Heimsóknir
Nemendur ýmissa skóla
komu í heimsóknir og
skemmtu íbúum heintilisins;
m.a. úr Tónlistarskólanum,
Fjölbraut, Grundaskóla og
börn úr leikskólunum Garða-
seli og Vallarseli. Eldri borgar-
ar frá Aflagranda og Hraunbæ í
Reykjavík, eldri félagar Kvenfé-
lagsins í Grímsnesi, eldri borg-
arar frá Selfossi og nágrenni á-
samt öðrum ferðahópum heim-
sóttu okkur á árinu. Starfs-
menn frá Grensás, hjúkrunar-
fræðingar frá Droplaugarstöð-
uin og Sólvangi komu í kynnis-
ferðir. Biskup Islands vísiteraði
ásamt fylgdarliði í apríl.
Söngsystur voru með söng-
stund; sömuleiðis kvennakór-
inn Ymur. Irska þjóðlagasveit-
in Ask Plant ásamt dönsurum í
tengslum við Irska daga
skemmtu, einnig Grundar-
tangakórinn og Smári Vífils-
son. Leikhópurinn A senunni
buðu uppá góða skemmtun.
Menningarneftid FEBAN var
með sagnastundir og svo mætti
lengi telja. Okkar fólki var
boðið í hefðbundnar sumar-
ferðir, auk boða í reglubundið
Opið hús kirkjunnar í Vina-
ininni. Þá buðu eigendur Cafe
Mörk íbúum Höfða uppá veit-
ingar og Hótel Glymur í Hval-
firði bauð í skötu á Þorláks-
messu.
Aðrar uppákomur
Skátar afhentu friðarljós til
varðveislu. Frambjóðendur til
sveitarstjórna komu í heim-
sóknir í maí. Ýmsar verslanir
voru með opnar búðir á árinu.
Púttmót var haldið, kvöldvök-
ur, Höfðagleðin, rnessur, jóla-
ballið, spilakvöld sjúkravina,
bazarinn, opið hús 2svar í viku
ofl.
Dvalarheiinilið Höfði þakkar
öllum þeim sem stutt hafa
heimilið á einn eða annan hátt
og óskar velunnurum sínum árs
og friðar.
Asmundur Olafsson,
framkvætjidastjóri Dvh. Höfda
Nýir nemendagarðar á Hvanneyri
Nýir nemendagarðar á Hvanneyri.
Síðastliðinn Iaugardag voru
afhentir nýir nemendagarðar
landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri. Byggingin er tví-
skipt og var um helmingur
hennar tekinn í notkun nú en
síðari hlutinn verður afhentur í
vor. Húsið er í heild sinni um
1092 fermetrar með 12 smáí-
búðum og 7 stærri íbúðum.
Arkitekt hússins er Magnús H
Olafsson en verktaki er Pétur
Jónsson byggingameistari á
Hvanneyri. Þær tólf íbúðir sem
eru í fyrri áfanganum fara þeg-
ar í útleigu.
Pétur Jónsson verktaki í þeim hluta
hússins sem. tilbúinn verður í vor.
---------------------------------------j*-
Stefán og Unnar skrifa undir hjá IA
Stefán Þórðarson og Unnar
Orn Valgeirsson skrifuðu á
dögunum báðir undir tveggja
ára samning við IA. Unnar tók
sér ársfrí frá knattspyrnu eftir
tímabilið 2001 en lék þó nokkra
leiki með Bruna síðasta sumar.
Stefán hefur undanfarna
mánuði verið að ná sér af erf-
iðum veikindum sem hrjáð hafa
hann frá því sl. sumar og end-
uðu atvinnumannaferil hans hjá
Stoke í Englandi. Stefán lék
síðast með Skagamönnum 1999
og hefur alls leikið 97 leiki fýrir
IA í öllum keppnum og skorað í
þeim leikjum 43 mörk.
Þá bendir allt til að mark-
vörðurinn Þórður Þórðarson,
bróðir Stefáns, muni skrifa
undir samning við IA á allra
næstu dögum.
HJH
Nýtt ljósmyndasafn á
Akranesi fær góðar gjafir
Laugardaginn 28. desember
síðastliðinn var ljósmyn dasafn
Akraneskaupstaðar formlega
stofnað en safninu er komið á
fót í tilefni af 60 ára kaupstað-
arafmæli Akraneskaupstaðar.
Akranes fékk kaupstaðarrétt-
indi í upphafi árs 1942 og á ný-
liðnu ári var þess minnst með
ýmsum hætti.
Ljósmyndasafn Akraness
verður hluti af Héraðsskjala-
safni Akraness, en fyrsta fram-
lag til safhsins kemur frá feðg-
unum Helga Daníelssyni og
Friðþjófi Helgasyni en þeir eru
báðir landsþekktir ljósmyndar-
ar og Skagamenn í húð og hár.
Gísli Gíslason bæjarstjóri
Akraness sagði í viðtali við
Skessuhorn eftir athöfn í
Safnaskálanum á görðum að
söfn þeirra feðga væru merki-
leg og verðmæt fyrir sögu bæj-
arins.
Helgi sagði í samtali við
Skessuhorn, aðspurður um á-
stæðuna fyrir gjöf þeirra feðga
að sér hefði fundist sýnar
myndir best geymdar á Skagan-
um enda væri megnið af þeim
tekið þar. „Eg gerði mér grein
fyrir því fýrir nokkru að ég yrði
ekki eilífur og vildi að myndirn-
ar lentu á góðum stað og því
fannst mér tilvalið að koma
þeim fýrir á Skaganum þar sem
þær eiga heima. Friðþjófur á-
kvað síðan að gera það sama og
ég er mjög ánægður með það.“
Söfn feðganna innihalda
nokkur þúsund mynda en auk
þess ánöfnuðu þeir öllum
myndum sem þeir eiga eftir að
taka í framtíðinni. Við athöfn-
ina í Safnaskálanum tilkynnti
Haraldur Sturlaugsson fram-
kvæmdastjóri HB að ljós-
myndasafninu stæði til boða
fullur aðgangur að myndasafhi
fýrirtækisins sem spannar sögu
fýrirtækisins frá upphafi.
Helgi Daníelsson
Þá var í tengslum við stofnun
Ljósmyndasafns Akraness
kynntur ljósmyndavefur með
þeim myndum sem safnið á og
verður vefurinn aðgengilegur
alkmenningi og öðrum sem
nálgast vilja myndir í eigu
safhsins. Þetta er nýjung í
safnarekstri sveitarfélaga sem
án vafa á eftir að vekja verð-
skuldaða athygli.
GE