Skessuhorn - 08.01.2003, Blaðsíða 7
aikt,S3Unu>.
MIDVIKUDAGUR 8. JANUAR 2003
7
Um úrbœtur í landbiínaði vegna umræðu
um útrímingu Gallovæ nautgripakinsins
Það hefur orðið nokkur um-
ræða varðandi það að útríma
Gallovæ nautgripakininu úr
landinu þar sem það sé sein-
vaxið og geðvont. Eitthvert
nautgripakin annað skal þá
flitja til landsins hentugra.
Hér skal ég benda á eitt sér-
lega hentugt nautgripakin.
Það heitir jakuxi og á heim-
kinni í Himalaja þöllum og út-
kjálkaríkjum Sovétríkjanna sál-
ugu austur þar.
Skal ég nú skíra frá hvernig
ég hafði spurnir af þessum
skepnum.
Þannig var að hér á Skarðs-
ströndinni voru síndar kvik-
mindir. Stóðu að þeim menn-
ingartengsl Islands og vest-
rænna ríkja með Bandaríkin á
toppnum.
Þetta var á þeim árum sem
félagi Krússjeff var upp á sitt
besta í Sovét. Þar sem ég hef
alltaf verið hlintur jafnvægi í
biggð landsins, fannst mér að
einnig skildi vera jafnvægi hér
á Skarðsstöndinni varðandi
heimspólitíkina, svo ég fékk
kvikmindir austan úr Sovét frá
félaga Krússjoff og Míra-
mönnum þar í landi. Meðal
annarra ágætra minda var ein
af þessum jakuxum og síndur
búskapur með þessar skepnur.
Það undraði mig stórlega
hvað skepna þessi var bratt-
geng.
Þar í landi eru þessir jakuxar
brúkaðir bæði til áburðar og
reiðar og svo til mjólkurnitja.
Voru síndir jakuxar í lest rorr-
andi undir drápsklifjum í
hrikalegum urðarskriðum ifir
hengiflugi, þar sem tæpar göt-
ur hlikkjuðust upp á efstu fjalla
brúnir og þaðan niður í næsta
dal, - sínu brattari hlíðar, varð
að brúka rófustag og brjóst-
gjörð svo hvorki færi reiðingur
fram eða aftur af skepnunni.
Virtist skepnan fara vel undir
böggum og reiðveri - aldrei
var merkjandi að snaraðist um
þverbak eða undir kvið.
Einnig var sínt hvar grið-
konur störfuðu að mjöltum á
þessum kúm undir berum
himni.
Kírnar stóðu grafkirrar ó-
bundnar og haftlausar jórtr-
andi. Aldrei settust þessar
griðkonur frákonumegin undir
kú. - Það atriði virtist vera al-
þjóðlegt. Kalt virtist vera þar á
staðnum. Harðfenniskaflar
allt í kring og beitiland rírðar-
legt. Mjaltakonur voru mjög
þungbyggðar og kúðaðar í
klæðum - lítt freistandi. Einnig
var sínd verkun og úrvinnsla
mjólkurinnar. Athiglisverðast
var jógúrtgerðin, því þessi
jógúrt er svo hollur að þeir
sem neita hans að jafnaði verða
140 ára gamlir. - Þá fara nú
karlanir firir alvöru að elta
stelpur -
Enn er ótalin mikill kostur
þessara nautgripa. Þeir gefa af
sér hár eða nokkurskonar ull
sem er spinnanlegt í garn.
Þetta hár er holt innan (pípa)
og þar af leiðandi sérlega hlítt í
fatnað, - gæti jafnvel keppt við
æðardún. Ekki þarf að efa að
þessar skepnur mindu þrífast
vel hér á landi. Skal ég færa
rök firir því.
Jakuxar voru lengi í díra-
garði í Köpenhán, - þrifust þar
vel og fjölguðu sér í óhófi.
Díragarðsráðsmaðurinn fékk
hjartahlíu til þessara díra og
vildi í engan máta aflífa þau.
Þau voru gefin Grænlenskum
bónda og flutt til hans á Græn-
land. Þar sá Ragnar nokkur
Ásgeirsson, sem var dírðar-
maður, - lengi hjá Búnaðarfé-
lagi Islands, þessar skepnur og
skrifaði um þær í Búnaðarritið
firir margt nokkuð, eins og sjá
Af öllu þessu uppteiknuðu
má ætla að skepna þessi hent-
aði einkar vel hér á Islandi.
Ferðamannaþjónusta bænda
ætti að taka til athugunar kosti
þessara skepna, - hvort ekki
mætti reiða ferðamenn og
túrista upp á jökla og
fjallatinda, í staðin firir að láta
þessa ferðamenn troða í biggð,
niður í drullusvað alla fegurstu
bletti landsins. Einnig ætti
trúarmálaráðherra og klerk-
dómurinn, - jaínvel Páfinn í
Róm að stuðla að, - eða jafnvel
heimta að ferðamenn og
túristar irðu reiddir á þessum
brattgengu skepnum upp á
brún Heklugígs, því eins og
kunnugt er, er þar fordiri Hel-
vítis. Gefur auga leið hvort
það mindi ekki stirkja menn í
trúnni ef þeir sægju með eigin
augum ofaní galopið Helvíti.
Mundi þá margur maðuinn
fara að huga að sínu ráði og
semja sig að iðrunarfullri
skikkan.
Prestar landsins gætu orðið
fararstjórar í þessurn píla-
grímsferðum og unnið loksins
firir kaupinu sínu.
Nú vill svo til að bændastétt-
in á sér einn virkilegan and-
skota, - ekki er það langur eða
strangur gangur að finna út
hver það er. Væri vel til fallið
að stitta eða líkneski af þessum
andskota irði staðsett í Búdda
stellingum niðri í þessu fordiri
Helvítis, - með áherslulát-
bragði; í firstalagi, - í öðrulagi,
- í þriðja lagi. Einnig með
upphleyptu letri á enni og
brjóst Líkneskjunnar: GATT
GATT - EB - ESS
Af öllu þessu sést að þetta
mál þolir enga bið. Bæði er
nokkur tími sem fer í að koma
upp stórum stofni af jakuxum,
en verkeini og not firir þessar
skepnur hrikalega stórt á þess-
um samdráttartímum í land-
búnaðinum. - hafa skal ráð þó
heimskur kenni -
Ef að grænt ljós fengist með
innflutning á jakuxanum gætu
samdráttarbændur birjað með
mikilli firirhiggju að smíða
reiðver sem hentuðu á jakux-
ana. - Ekki síst kvensöðla, -
því að hér áður firr gekk það
glæpi næst að kona riði í
hnakk, - karlvega var það kall-
að.
Ástæðan firir að kvennfólk
var skikkað til að ríða í söðli
var að firirbiggja siggmindun
sem orsakaði stríðlega erfið-
leika í hjónabandi. Undanfarin
ár hefur fengist læknisaðstða á
sjúkrahúsum við að tálga þessa
sigg- mindun af konum sem
riðið hafa í hnakk, en eins og
allir vita hefur slík þjónusta
verið lögð af í sparnaðarskini
hjá heilbrigðisráðuneitinu.
Það má einnig benda á þeg-
ar í stað ættu samdráttarbænd-
ur að hefja smíði kvennsöðla
sem passa á íslenska hesta, -
sökum þessa sparnaðarráðstöf-
unar ráðuneytisins.
Kauplagsnefnd og Hagstof-
an finna út verð á þessum hlut-
um. Skal nú beðið í ofnæmi
eftir viðbrögðum stjórnvalda
til þessara ábendinga.
Steinólfur Lárusson
Ytri - Fagradal.
(Ath: Stafsetning höfundar er
látin halda sér)
STliIM I
flMMHOIM
Sýnd sunnudaginn 12. janúar
kl. 15 og 20
í félagsmiðstöðinni Óðali
Miðaverð 800 kr
15 ára og yngri 600 kr.
LATTU
OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
Efnalaugin Múlakot ehf.
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 4371930
Búseti auglýsir:
Búseturéttur
til sölu
3ja herb.
Lerkigrund 7, Akranesi
80m2 íbúð 302
Leiguíb.lán Búseturéttur
kr. 1.165.664
Búsetugjald
kr. 42.119
Laus maí/júní
að ósk seljanda
4ra herb.
Lerkigrund 7, Akranesi
94m2 íbúð 301
Alm. lán
Búsetur. frá 1.339.664
til 3.881.946
Búsetugjald frá 62.117
til 77.153
Laus srax að ósk seljanda
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu
Búseta hsf. Opið virka daga frá 8:30 til 16:00.
Með umsóknum um íbúðir á leiguíbúðalánum
þarf að skila: síðustu skattskvrslu og
launaseðlum síðustu sex mánaða.
Úthlutun íbúðanna ferfram miðvikudaginn
15. janúar kl. 12:00 - 12:30
að Skeifunni 19. Umsækjendur verða að
mæta á tilskyldum tíma og staðfesta
úthlutun sína að öðrum kosti gætu þeir
misst réttindi sín og íbúðinni yrði úthlutað
til annars félagsmanns.
/