Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2003, Qupperneq 8

Skessuhorn - 08.01.2003, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 8. JANUAR 2003 Skipulag vaxandi byggðar og samfélags á Akranesi Það dylst engum að samfé- lagið á Akranesi er í örum vexti, fjöldi nýbygginga er á- berandi og íbúum hefur fjölg- að jafnt og þétt síðustu ár. Það er augljóst hve mikilvægt gott skipulag er til þess að stuðla að því að byggingar og starf- semi samfélagsins myndi gott, fjölbreytt, fallegt og öruggt umhverfi fyrir íbúana og fyrir- tækin. Frá því að ný bæjarstjórn var kosin vorið 2002 hefur margt verið gert hjá Akraneskaupstað til að styrkja og efla starf vegna skipulagsmála, enda er góður skilningur á mikilvægi málaflokksins meðal embættis- manna og pólitískra fulltrúa. Sérstakur skipulagsfulltrúi var ráðinn til starfa vorið 2002 og í fjárhagsáætlun fyrir árið 2003 er veruleg aukning á framlög- um til inálaflokksins enda verkefnin aldrei fleiri en nú. Framundan á árinu 2003 eru mörg spennandi og mikilvæg skipulagsverkefni, en þar er stærst endurskoðun aðal- skipulags bæjarins þar sem mótuð er stefnan í þróun byggðar og samfélags næstu 20-30 árin. Einnig verður unnið við nokkur deiliskipu- lagsverkefni, svo sem skipulag hafnarsvæðis, golfvallar og Garðalundar, íþróttasvæðis að Jarðarsbökkum og Langasandi og Dalbrautarsvæðis. Unnið verður við endurskoðun á skipulagi kirkjugarðssvæðis og hafin vinna við nýtt deiliskipulag á einum bygging- arklasa til viðbótar í hinu nýja Flatahverfi. Auk þessa verður unnið að tillögum um skipulag lóða grunnskólanna þar sem markmiðið er öruggt og fjöl- breytt umhverfi þar sem verða m.a. gervigrasvellir. Auk fyrrnefndar skipulags- verkefna sem framundan eru árið 2003 er nú nokkuð óvænt komið í umræðuna uppbygg- ing á miðbæjarreit eða „Skaga- verstúni“ en þar hefur bygg- ingarverktaki lagt fram tillög- ur um byggingu á verslunar- miðstöð og fjölbýlishúsum. Tillögur verktakans krefjast breytinga á gildandi deiliskipulagi en málið er ekki komið til umfjöllunar í skipu- lags- og umhverfisnefnd. Ljóst er að uppbygging á mið- bæjarreit er rnjög mikilvægt skipulagsverkefni fyrir framtíð Akraness og niðurstaðan mun hafa mikil áhrif á ásýnd bæjar- ins og þróun mannlífs um langa framtíð. Skipulagsmál eru ekki leng- ur málaflokkur þar sem skipu- lagsfræðingar og sveitarstjórn- armenn taka allar ákvarðanir. Ibúar hafa í auknum mæli fengið aðgang að skipulags- ferlinu og hafa ýmsar leiðir til þess verið reyndar hér á landi að undanförnu. I undibúningi er að halda svokallað Skaga- þing á Akranesi þar sem þeim sem áhuga hafa er boðið að taka þátt í hugmyndavinnu vegna endurskoðunar aðal- skipulags Akraness. Þingið verður líklega tvískipt, annars vegar umræðuhópar um til- tekin viðfangsefni þar sem í- búum Akraneskaupstaðar gefst tækifæri til að setja skoðun sína á blað og hins vegar litlir vinnuhópar þar sem þátttakendur með aðstoð fagfólks teikna hugmyndir sínar inn á kort af Akranesi. Viðfangsefni og dagskrá Skagaþings verða mótuð með bæjaryfirvöldum, embættis- mönnum, formönnum nefnda og öðrum hagsmunaaðiluin en sá undirbúningur er mikil- vægur til að íbúaþingið takist vel. Skagaþing mun taka einn dag og mun afraksturinn von- andi verða gott innlegg í skipulagsvinnuna og vonandi kunna íbúar vel að meta nýja nálgun við skipulagsstarfið sem felur í sér aukna mögu- leika fýrir okkur öll að móta samfélag á Akranesi sem við viljum að verði til fyrirmynd- ar og í fremstu röð hér á landi. Akranesi 3.janúar 2003 Magnits Guðmundsson bæjarfulltrúi og formaður skiptilags- og umhverfisnefndar Vinalausa brúðkaupsveislan Sá merki arburður átti sér stað á jóladag síðast árs að Hrönn Hafliðadóttir og Har- aldur Valtýr Hinriksson gengu í heilagt hjónaband. Það skal skýrt tekið fram að eingöngu fjölskyldum þeirra hjóna var gefin kostur á að taka þátt í þessari gleði stund en EKKI VINUM þeirra. Þegar ég heyrði fréttirnar seinna um kvöldið setti mig hljóðan. Eins og mætur stjórnmálamaður sagði fyrir ekki mörgum árum: „Svona gerir maður ekki“. En þetta var niðurstaðan og ósjálfrátt fór maður að leita skýringa. Ekki hafði ég verið lengi í eigin þönkum þegar ég fann skýringuna eða í það minnsta þá sennileg- ustu. Hrönn var hrædd um að ég myndi standa upp í veislunni og segja frá því hvernig hún krækti í kostagripinn Harald. Og ef hún hélt í eina mínútu að það dygði að halda mér frá veislunni til að sú mynd verði dregin fram í dagsljósið þá kemst hún að öðru þegar hún les þessa grein. Þetta gerðist á Skugga- barnum. Við vorum staddir þarna fyrir algjöra tilviljun ég og Halli og vorum í glasi, líka fyrir algjöra tilviljun. Þá birtist Hrönn, hreinlega límdi sig á piltinn, með af- leiðingum sem hafa verið staðfestar af kirkjunnar manni þegar þetta er ritað. Þar sem að Haraldur er mér mjög kær vildi ég ræða við dömuna og kanna hvort hún væri kostur sem væri athug- andi fyrir drenginn. Það skal tekið fram að Haraldur var sveipaður dulúðlegum kyn- þokka í þokukenndri birtu Skuggabarsins þetta kvöld. Þegar ég hafði rætt við Hrönn drykklanga stund kom í ljós að hún hafði mik- inn áhuga á kveðskap og er sleipur hagyrðingur sjálf. Þarna á staðnum, rétt sí svona, kastaði hún fram vís- um sem sannfærðu mig um að þarna væri komin konan í lífi Halla. Að lokum vil ég leyfa ykkur að sjá vísurnar sem Hrönn samdi og sannfærðu mig um ágæti sitt og einlægan vilja til að fanga vin minn Harald í hjónaband. Þá er piltinn þann ég leit þegar sá ég kosti. Aftur varð ég ung og heit að mér sótti losti. Eg ætla mérþann mæta mann mun því ekki slóra. Og aðeins til að eignast hann ég æpi bít og klóra. Pétur Ottesen Nú Halla skal með lofi lýst um loftið heyrist kliður. Því afskaplega er hann víst íturvaxinn niður. Eg eflaust þarf aðfærafóm fi-áleitt er ég tapi. Afeinurð skal ég eiga stjórn á öllu mínu skapi. Viðfagrar meyjar Fróns og lands fegin vil ég keppa. Hann skal ekki úr hjónabands hrömmum mínum sleppa. Pétur Ottesen skrifar Geðlæknirinn var að sýna gesti nokkrum geðveikrahæli sitt. Þeir komu að klefa þar sem maður sat og starði út í loftið. „Hvað er að þessum manni?“ spurði gesturinn. „Kærastan hans stakk af með öðrum manni og skildi hann eftír við altarið. Þá trufl- aðist hann.“ Þeir héldu áfram og litu inn í næsta klefa. Þar stóð maður og bari höfðinu í vegginn í sí- fellu. „En hvað með þennan?“ spurði gesturinn. „Þennan?" sagði læknirinn, „þetta er sá sem hún giftíst." Ljóska var úti að labba þeg- ar hún kemur að á sér hún aðra ljósku hinu megin á bakkanum. Hún kallar á hana og segir: „Halló!! geturu nokkuð sagt mér hvernig ég kemst hinu megin við bakk- ann?“ Hin ljóskan lítur í kring um sig, undrandi á svip og segir loks: „Þú ert hinu megin!“ „Aumingja Baldvin missti helminginn af vinum sínum um leið og hann tapaði aleig- unni.“ „Nú hvað með hina?“ „Þeir vita ekki enn að hann tapaði aleigunni.“ Það var leigubílstjóri út að keyra með farþega. Þegar þeir koma að ljósum fer hann yfir þrátt fyrir að ljósin eru rauð. Farþeginn spyr: „Hvað ertu að gera maður, það var rautt!!“ Leigubílstjórinn svarar: „Iss, vertu alveg rólegur, hann bróðir minn gerir þetta oft og mörgu sinnum" Svo kemur hann að öðrum ljósum, og þau eru rauð. Eins og fyrr ekur hann beint yfir á rauðu, farþeginn spyr aftur, aðeins reiðari: „Ertu brjálaður, sásm ekki að það var rautt??“ Bílstjórinn svarar: „Iss slappaðu af, hann bróðir minn gerir þetta oft“ Svo koma þeir að þriðju ljósunum, enn og aftur eru þau rauð, en hann brunar yfir. Farþeginn ætlar alveg að tryll- ast og öskrar á hann: „Ertu al- veg kolvitlaus mannfjandi? Það er rautt ljós!“ Og bílstjórinn svarar: „Iss, verm ekki að æsa þig svona, hann bróðir minn gerir þetta alltaf' Svo heldur hann áfram, og aftur koma þeir að ljósum, nema hvað að núna lendir hann á grænum ljósum, bfl- stjórinn stoppar bífinn og far- þeginn alveg furðu lostinn spyr: „Bíddu... það er grænt, af hverju ferðu ekki yfir?“ Bílstjórinn svarar: ,Ja... sko, hann bróðir minn gæti verið úti að keyra.“

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.