Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2003, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 08.01.2003, Blaðsíða 12
Filma og yfirlitsmynd fylgja framköllun FRAMKÖLLUNARÞJÓNUSTAN EHF. BRÚARTORGI, 310 BORGARNESI - S. 437-1055 PÓSTURINN Þú pantar. Pósturinn afhendir. BORGARNESS APÓTEK Leidandi í lágu lyfiaverði á Vesturlanái Borgarbraut 58-60 - Borgarnesi - Sími 437 1168 - Bakvakt - 437 1180- www.borgarlyf.is Mikil fjölgun mála hjá Héraðsdómi Vesturlands Á árinu 2002 varð mikil íjölgun mála hjá Héraðsdómi Vesturlands samkvæmt frétta- tilkynningu frá dómnum. Dómstóllinn tók til meðferðar 1270 ný mál, en árið 2001 voru þau 959 og hafði þá fjölgað mikið frá árinu 2000. Fjölgun mála ffá 2001 til 2002 er um þriðjung eða ríflega 32%. Einkamál urðu á árinu 2002 samtals 561, en voru 374 árið áður. Fjölgunin liggur öll í svokölluðum útivistarmálum, þ.e. málum þar sem stefndi tek- ur ekki til varna. Þau urðu 500, á árinu 2002 en voru 328 árið 2001. Dómar í munnlega flutt- um einkamálum urðu 12 (20 2001), en dómar í útivistarmál- um 39 (31), 64 mál voru felld niður (34), 11 lauk með sátt (18), einu máli með úrskurði, en 37 málum var ólokið um áramót (1). Þá fjölgaði opinberum mál- um (sakamálum) mjög mikið, og kemur fjölgunin öll fram í á- rituðum sektarboðum lög- reglustjóra. Slík mál urðu sam- tals 435 á sl. ári, en voru 332 árið áður. Dómar í opinberum málum voru 77 árið 2002 en 96 2001. Opinber mál urðu sam- tals 584 (504). 30 inálum var ó- lokið um áramót. 1 ýmsum öðrum málaflokk- um varð einnig fjölgun. Gjald- þrotainál urðu 68 (52 2001), aðfararmál 18 (6), matsmál 13 (4), rannsóknarúrskurðir 12 (9). Við Héraðsdóm Vesturlands starfa tveir héraðsdómarar og einn dómritari. Giiiíjón Elísson og Gísli Karel Framfaraverðlaun Eyrbyggja Eyrbyggjar ,hollvinasamtök Grundarfjarðar hafa undanfar- in þrjú ár veitt svokölluð Framfaraverðlaun til aðila í Grundarfirði sem að þeirra mati hafa staðið sig vel við efl- ingu atvinnulífs eða menning- ar í Grundarflrði. Verðlaunin voru nú veitt í fjórða sinn við athöfn í veitingahúsinu Krákunni í Grundarfirði. Að þessu sinni voru það þrír ein- staklingar sem hlutu framfara- verðlaun Eyrbyggja. Það voru þeir Guðjón Elísson og Sveinn Arnórsson sem hlutu viður- kenningu fyrir mikið og gott starf við skönnun varðveislu og framsetningu gamalla mynda úr Grundarfirði og Ingi Hans Jónsson fyrir starf sitt við að gera sögu Eyrarsveitar lifandi og áhugaverða og færa hana nær fólki nútímans með upp- setningu sýninga á hátíðinni „ Á góðri stund í Grundarfirði“ í sumar og sumarið þar á undan. Ingi Hans vinnur nú að undir- búningi og framkvæmd hug- myndar sinnar um Sögumið- stöð í Grundarfirði. Það var formaður Eyrbyggja Gísli Karel Halldórsson sem afhenti verðlaunin en það voru skraut- rituð viðurkenningarskjöl hönnuð af Freyju Bergsveins- dóttur grafískum hönnuði. Eyrbyggjar hafa í samvinnu við sögunefnd Eyrarsveitar staðið saman að útgáfu rita undir heitinu Fólkið, fjöllin, fjörðurinn sem er nokkurs konar safn til sögu Eyrarsveit- ar og kom þriðja bindið út sl. sumar. Með þeirri bók fylgdi Ornefnakort frá Grundarfirði sem unnið var af Guðjóni Elís- syni. ✓ Jón Oddur Iþróttamaður ársins Jón Oddur Halldórsson frjálsíþróttamaður í Reyni á Hellissandi var valinn íþrótta- maður HSH fyrir árið 2002. Jón Oddur sem keppir í flokki fatlaðra íþróttamanna náði frá- bærum árangri á HM fatlaðra á síðasta ári. Hann hafnaði í 5. sæti í kúluvarpi og 2. sæti í 100 og 200 m. spretthlaupi. Arangur Jóns Odds í þessum greinum er bæði Islands- og norðurlandamet í hans fötlun- arflokki. Jón Oddur undirbýr sig nú af kappi fyrir næsta stórverkefni sem er þátttaka í EM í frjálsum íþróttum sem fram fer í Assen í Hollandi í júlí 2003 en það mót er eins og önnur liður í lang- tímaundirbúning vegna þátt- töku í Olympíumóti fatlaðra í Aþenu 2004. Þá hefur hann með góðum árangri sínum þegar tryggt sér þátttöku rétt á ÓL 2004. I umsögn um Jón Odd vegna vals á I- þróttamanni HSH segir m.a. : ,Jón Oddur hefur sýnt það að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi, með miklum oe þrotlausum Fráafljendingu verðlaunanna íkjöri íþróttamanns HSH æfingum hef- ur hann komist þetta langt. Jón Oddur hefur æft við erf- iðar aðstæður þar sem hann hefur fengið sent æfinga- prógram frá þjálfara sínum og æft sig að mestu leyti sjálfur heima á Hellissandi." Aðrir sem tilnefndir voru í kjöri íþróttamanns ársins, hver í sinni grein, eru: Hestaíþróttir; - Lárus Astmar Hannesson, körfubolti;- Helgi Rejmir Guð- mundsson, frjálsar;- Jón Oddur Halldórsson, knattspyrna;- Berglind Magnúsdóttir, sund;- Anna Jóna Kjartansdóttir, golf;- Rögnvaldur Olafsson, GE Hann kvaddi jólin í viðeigandi klœðnaði, hann Valentmus Hauksson á Akranesi þegar þrettándanum varfagnað með ár- legri brennu á Jaðarsbökkmn á mánudag. Mynd: HJH

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.