Skessuhorn - 19.02.2003, Blaðsíða 1
Aðgerðir til
bjargar Kútter
Sigurfara
Stjórn Byggðasafns Akraness og
nærsveita samþykkti á fundi sínum ný-
verið að skipa nefnd sem koma skal
með tillögur um viðgerðir á Kútter
Sigurfara og hvernig varðveita megi
skipið til framtíðar.
Að sögn Jóns Allanssonar, forstöðu-
manns Byggðasafnsins, er skipið í
slæmu ásigkomulagi. „Þrátt fyrir að
skipinu sé sinnt að einhverju leyti á
hverju ári dugir það skammt gegn
veðri og vindum sem á því berja. Nú er
svo komið að gagngerar endurbætur
þurfa að fara fram. Nefndin mun fá
sérfræðinga, m.a. skipaverkfræðing og
forvörð, til að gefa sitt álit á hvernig
endurbótunum og varðveislu skuli
háttað. Það er eiginlega tvennt sem
kemur til greina. Ein leiðin er sú að
byggja hús utan um skipið þar sem
möstrin standa uppúr en það er tölu-
vert ódýrara en að byggja yfir þau líka.
Þá myndu endurbæturnar á skipinu
lika verða ódýrari þar sem ekki þyrfti
að vernda það fýrir vami og vind.
Onnur leið er að byggja skipið algjör-
lega upp og láta það standa þar sem
það er. Sú leið yrði einnig mjög kostn-
aðarsöm þar sem mun betri og dýrari
við yrði að notast. Persónulega líst
mér mun betur á þá leið að byggja hús
yfir skipið. Flest lönd í kringum okkar
varðveita sín skip þannig, s.s. Noregur
og Svíþjóð."
Nefndin hefur ffest til i.október til
að skila af sér tillögunum en Jón reikn-
ar með að skýrslan verði tilbúin eitt-
hvað fýrr. Leitast verður eftir því að
fjárlaganefnd ríkisins komi að kosm-
aðinum sem framkvæmdunum muni
fýlgja, enda þykir ljóst að Akranes-
kaupstaður hefur ekki bolmagn til að
standa að þeim einir. Að auki er Kútt-
er Sigurfari eina skipið sinnar tegund-
ar á Islandi, sem varðveist hefur og því
um mikil menningarverðmæti að ræða
fyrir þjóðina alla. HJH
Skessuhom fimm ára
í gær, þann 18. febrúar, voru
fimm ár liðin ffá því fyrsta
tölublöð Skessuhorns kom út.
Þótt fimm ár séu í sjálfu sér
ekki langur tími er þetta samt
sem áður nokkuð hár aldur í
blaðaútgáfu á íslandi.
Skessuhorni var dreiff frítt í
öll hús á Vesturlandi fýrsta
árið og útgáfan eingöngu fjár-
mögnuð með auglýsingatekj-
urn. Blaðið hefur síðan verið
selt í áskrift frá því í ársbyrjun
1999. Þrátt fyrir að útgáfa
héraðsfréttablaða hafi átt und-
ir högg að sækja var Skessu-
horni strax í upphafi vel tekið
af Vestlendingum og öðrum
sem áhuga hafa á málefnum
þessa svæðis. Blaðið á því les-
endum sínum sem og aug-
lýsendum að þakka að hafa
náð þessum áfanga.
Þrátt fyrir aukið framboð
fjölmiðla, s.s. fjölda útvarps-
rása og veffniðla, af ýmsu tagi,
þá virðist sem að þörfin fyrir
héraðsfféttablöð sé síst minni í
dag en hún var fyrir einhverj-
um áratugum. Það hefur frá
upphafi verið skoðun útgef-
enda Skessuhorns að einstök-
um landsvæðum sé nauðsyn-
legt að eiga sína eigin miðla
sem sinna miðlun upplýsinga
sem snerta viðkomandi
byggðarlag og eru um leið
vettvangur fýrir skoðanaskipti
um málefni viðkomandi
svæða. Vinsældir Skessuhorns
sýna svo ekki er um villst, að
þörfin er fýrir hendi því blaðið
hefur um allnokkurt skeið ver-
ið eitt af útbreiddustu héraðs-
fréttablöðum landsins.
Starfsfólk Skessuhorns
þakkar lesendum sínum sam-
fýlgdina og ánægjuleg sam-
skipti á síðustu fimm árum og
vonast eftir áframhaldandi
góðu samstarfi um ókomna
Fyrsta tölublað Skessuhoms sem
kom útfyrirfimm árum.
Hún Olína Elísdóttir slær ekki af við beitningar þegar róið er með línuna á línubátnum Fanney SH 248frá
Ölafsvík. Hún gerir bátinn ilt ásamt manni sínum Guðmundi Magnússyni A sjónum með Guðmundi er
Magniís sonurþeirra hjóna og í landi beitir einnig dónrr þeirra. Helga. Þama er þvi á ferðinni sannkölluð fjöl-
skylduútgerð.
PSJ.
Hart telást
á um spari-
sjóðinn
„Ef menn ætla hinsvegar að
fara að rífast um hvort eigi að
selja eða ekki að selja þurfa menn
að kynna sér málin fýrst. Því vil
ég meina að menn séu komnir
svolítið fram úr sér. Þetta er
greinilega viðkvæmt mál og því
er skynsamlegt að menn skoði
það á öðrum vettvangi en
fokvondir í fjölmiðlum," segir
Finnbogi Rögnvaldsson formað-
ur bæjarráðs Borgarbyggðar um
gagnrýni stjórnar Sparisjóðs
Mýrasýslu á hann vegna óform-
legra viðræðna við aðrar banka-
stofnanir um sölu stofnfjár í SM.
A bls 6 og 7 í blaðinu í dag er ýt-
arlega fjallað um hugmyndir um
sölu SM sem er orðið að miklu
hitamáli innan Borgarbyggðar.
Tilboð Verð áður:
Lambakjöt, 1/2 skrokkur .489 kg. 681 kg.
Lambalæri, 1/1 írosið. . 799 kg. 1.067 kg.
Svínakótilettur (úr kjötborði) . 699 kg. 998 kg.
Svínahnakkasneiðar (úr kjötborði) . 499 kg. 698 kg.
Hunangskr. úrb. grísahnakki . 798 kg. Nýtt
Kjúklingur, 1/1 íerskur .399kg. 788 kg.
r
Tilboðin hefjast fimmtudaginn 20. febrúar og gilda til 24. febrúar eða meðan birgðir endast
M
9- 19 virkadaga
10- 19 laugardaga
12-19 sunnudaga