Skessuhorn


Skessuhorn - 19.02.2003, Page 2

Skessuhorn - 19.02.2003, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 2003 ^tklisainu^ Tilboð í Sparisjóð Sigluíjarðar Sparisjóður Mýrarsýslu, sem er stærsti stofnfjáreigand- inn í Sparisjóði Sigluíjarðar, hefur gert öðrum stofníjáreig- endum tilboð í þeirra hlut. Mikið tap var af rekstri Spari- sjóðs Sigluíjarðar árið 2001 , eða 259 milljónir króna en af- koma sjóðsins fýrir árið 2002 liggur ekki fyrir. Segir Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrasýslu að slæm staða Sparisjóðs Siglufjarðar sé ein ástæða þess að að SM komi þar inn. „Við áttum 40% hlut síðan í fýrra og erum að gera tilboð í restina. Það er okkar skoðun að rétt sé að vinna að sameiningu þessara sjóða og þessi kaup eru hugs- anlega fýrsta skrefið í því ferli.“ Gísli segir að samt sem áður liggi ekki fýrir nein frek- ari áform um sameiningu sparisjóða. Stofhfé í Sparisjóði Siglu- fjarðar er um 80 milljónir, þar af er núverandi hlutur SM um 30 milljónir. GE UKV flytur Ákveðið hefur verið að Upplýsinga og kynningarmið- stöð Vesmrlands flytji í nýtt húsnæði í Borgarnesi í vor. UKV hefur, frá því miðstöðin var stofnuð fýrir þremur áruin, verið til húsa í húsi Framköll- unarþjónustunnar við Brúar- torg. Upplýsingamiðstöðin flyst ekki langt, heldur aðeins yfir götuna í Hyrnuna og verður þar sem Sparisjóður Mýrasýslu hafði áður af- greiðslu. GE Samkomulag gert um rannsókn á áhrifum HvaHjarðarganganna Síðastliðinn föstudag var undir- ritað samkomulag um gerð skýrslu um áhrif Hvalfjarðar- ganga á búsetuþró- un og -skilyrði á Vesturlandi. Að verkefninu standa Samtök sveitarfé- laga á Vesturlandi, Samgönguráðu- neytið, Viðskipta- háskólinn á Bifröst, Vegagerð ríkisins, Spölur og Byggða- stofnun en stefht er að verklokum fýrir júnílok 2003. Verkið verður að mestu unnið af At- vinnuráðgjöf Vest- urlands og mur Olafur Sveinsson forstöðumaður Atvinnuráðgjaf- arinnar stýra framkvæmdinni en um fræðilega vinnslu sér Vífill Karlsson hagfræðingur. Það er Gísli Gíslason bæjar- stjóri á Akranesi sem á frum- kvæðið að því að ráðist er í verk- efhið og sagði hann í samtali við Skessuhorn að áhrif Hvalfjarðar- ganganna væru vissulega að mörgu leyti sýnileg en að menn vildu hinsvegar fá nánari upplýs- ingar um í hverju áhrifin væru fólgin. „Aður en ráðist var í þessa framkvæmd fengum við fræð- inga erlendis frá til að uppfræða okkur um áhrif vegtenginga af Frd undirritun samkomidagsins í safnaskálanum á Akranesi síSastliðinn fóstudag. Mynd: GE þessu tagi. Þau áhrif voru minni meiri í Borgarnesi og einnig en við höfum orðið vitni að hér mikil á Snæfellsnesi, jafnvel allt og við viljum rannsaka nánar hvað veldur. Meginatriðið er hinsvegar að kanna hvernig við getum nýtt þessar vegabætur betur en hing- að til hefur verið gert. Við erum með það á hreinu að Hvalfjarð- argöngin hafa verið búsetu hér á svæðinu lyftistöng þannig að þær niðurstöður er kannski hægt að gefa sér nokkuð fýrirfram. Aftur á móti er forvitnilegt að vita hversu vítt þau áhrif ná. Við vit- um að áhrifin hafa verið mikil hér á Akranesi og kannski enn norður í Húnavatnssýslur. Áhrif- in eru hinsvegar með sinnhvor- um hætti á hverjum stað og fróð- legt að bera það saman.“ Aðspurður segir Gísli að rann- sóknin snúist ekki um lækkun eða niðurfellingu vegtolla af göngunum sem sífellt verður há- værari. „Það má hinsvegar velta fýrir sér áhrifum af niðurfellingu í þessu sambandi en fýrst og fremst miðast rannsóknin við þær aðstæður sem eru í dag.“ GE Hagnaður Viðskipta- háskólans 6,4 milljónir Ársreikningur Viðskiptahá- skólans á Bifröst fýrir fjárhagsár- ið 1. ágúst 2001 - 31. júlí 2002 var lagður ffam og undirritaður á fundi stjórnar skólans 15. febr- úar sl. Tekjur skólans námu 213,5 milljónum króna og hækk- uðu um 74 milljónir króna á milli ára. Samningsgreiðslur frá ríki námu 101 milljón króna og nema ffamlög frá ríki nú í fýrsta sinn innan við helming af tekjum skólans. Rekstrargjöld skólans námu 204,4 milljónum króna að meðtöldum afskriftum. Gjalda- liðir hækkuðu um 67 milljónir króna milli ára, þar af laun og launatengd gjöld um 45 milljón- ir króna. Rekstrarhagnaður fýrir fjármagnsliði nam 9,1 milljón króna, nettó fjármagnsgjöld 2,7 milljónum króna og hagnaður ársins 6,4 milljónum króna. I árslok 2001 hófust fram- kvæmdir við nýbyggingu við skólann, auk tengdra fram- kvæmda vegna bílastæða og ann- ars frágangs. Fjárfestingar skól- ans vegna þessa námu 158 millj- ónum króna í ársreikningnum. Framkvæmdum var að mestu lokið í árslok 2002 og í heild nema fjárfestingar skólans tæp- um 300 milljónum króna, þar af 230 milljónir króna vegna ný- byggingarinnar. Samhliða ársreikningi Við- skiptaháskólans liggja fýrir árs- reikningar tveggja sjálfseignar- stofnana sem eiga og reka íbúð- arhúsnæði á Bifröst. Nemenda- garðar Viðskiptaháskólans eiga og reka húsnæði fýrir nemendur en Starfsmannagarðar Við- skiptaháskólans fýrir starfs- menn. Fjárfestingar Nemenda- garða í íbúðarhúsnæði á Bifröst á fjárhagsárinu 2001 - 2002 námu rúmlega 400 milljónum króna. Nýtt verslunarhús- næði á Akranesi Eigendur verslunarinnar Bjargs d Akranesi tóku í síðustu vikujyrstu skóflustunguna að nýju verslunarhúsnæði sem rísa skal á næstu mánuðum við Kalmansvelli. Um er að ræða húsgagnadeild verslunarinnar, en eins og kunn- ugt er reka eigendur Bjargs einnig tískuvöruverslun sem ber sama nafn. Hið njja húsnæði verður 410 fm á einni hæð og er reiknað með að verslunin verði opnuð á njjum stað í byrjunjúní í sumar. HJl Akranes Fíkniefrii fundust við húsleit Lögreglan á Akranesi fram- kvæmdi húsleit í þremur hús- um á Akranesi sl. föstudags- kvöld þar sein grunur lék á að íbúar og gestir hefðu fíkniefhi undir höndum. í aðgerðinni naut lögreglan á Akranesi að- stoðar frá lögreglunni í Reykjavík, Ríkislögreglu- stjóraembættinu og lögregl- unni á Snæfellsnesi. Að auki var lögreglan í Borgamesi við því búin að koma til aðstoðar ef á þyrfri að halda en til þess kom þó ekki. Lögreglan hafði fengið hús- leitarúrskurð frá Héraðsdómi Vesturlands og var leitín gerð samtímis í húsunum þremur. Einnig var leitað í þremur bíl- um en alls fúndust um 10 grömm af amfetamíni, eitt- hvað af hassi og talsvert af áhöldum til neyslu fíkiefna. Alls vom 9 manns handteknir í aðgerðunum en flestir þeirra munu um alllangt skeið hafa legið undir grun um með- höndlun og neyslu fíkniefna. Hinir handteknu vom yfir- heyrðir á föstudagskvöld og aðfararnótt laugardags og látnir lausir að yfirheyrslum loknum. Að sögn lögreglunn- ar á Akranesi telst málið upp- lýst. II] H Akraneskaup- staður tapar dómsmáli Héraðsdómur Vesturlands dæmdi nýverið í máli Hafdísar Fjólu Asgeirsdótmr, grann- skólakennara, sem hún höfð- aði á hendur Akraneskaupstað og Námsleyfasjóði gmnn- skólakennara. Féll dómurinn Hafdísi í vil sem taldi sig eiga rétt á hærri greiðslum úr sjóðnum en henni hafði verið útlrlutað. Kennarar, sem rétt hafa til, geta sótt um launagreiðslur frá Námsleyfasjóði þegar við á ,en stjórn sjóðsins ákveður síðan aftur hversu hátt hlutfall af launum viðkomandi er greitt út. Akraneskaupstaður kemur að málinu með þeim hætti að hann sér um greiðslu þessara launa en fær sömu upphæð síðan greidda frá Námsleyfasjóði. Eins og áður segir féllst Héraðsdómur á kröfu Hafdís- ar og hefur bæjarráð þegar samþykkt að efhi tíl áfrýjunar sé ekki til staðar og hefur sent Námsleyfasjóði bréf þar sem óskað er efrir að gengið verði ffá málinu. HJH

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.