Skessuhorn - 19.02.2003, Side 7
SSESSUHÖEIí;
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 2003
7
Sparisjóði Mýrasýslu orðnar að miklu hitamáli
borði bæjarstjómar
Borgarbyggðar - Stjórn SM kallar á skýr svör
menn ræði málin er ekki þar
með sagt að þeir rjúki til og
selji. Ef menn ætla hinsvegar
að fara að rífast um hvort eigi
að selja eða ekki að selja þurfa
menn að kynna sér málin fyrst.
Því vil ég meina að menn séu
komnir svolítið fram úr sér.
Þetta er greinilega viðkvæmt
mál og því er skynsamlegt að
menn skoði það á öðrum vett-
vangi en fokvondir í fjölmiðl-
um. Eg treysti hinsvegar okkur
sem sitjum í bæjarstjórn og
þeim sem sitja í fulltrúaráði
sparisjóðsins fullkomlega til að
leiða þetta mál til lykta farsæl-
lega fyrir íbúa sveitarfélags-
ins,“ segir Finnbogi.
Helga Halldórsdóttir
s
I fíillum rétti
„Okkar skoðun var sú að við
ættum að vita hvaða spil við
hefðum á hendi og stilla upp
þeim möguleikum sem væru í
stöðunni,“ segir Helga
Halldórsdóttir forseti bæjar-
stjórnar Borgarbyggðar. „Við
fengum lögfræðinga til að fara
yfir nýju sparisjóðalögin og
vildum vita hvernig sveitarfé-
lagið stæði gagnvart sjóðnum
sem stofnfjáreigandi.
Afstaða Sjálfstæðismanna í
þessu máli er skýr. Við setjum
það sem skilyrði að engar
breytingar verði gerðar nema
þær komi augljóslega til með
að efla sjóðinn. Vð útilokum
enga möguleika svo fremi að
þetta sé haft að leiðarljósi.
Okkar könnun er lokið og við
höfum fengið þær upplýsingar
sem við sóttumst eftir. Málið er
því í höndum stjórnar og full-
trúaráðs sparisjóðsins. Eg tek
það hinsvegar fram að við
erum í fullum rétti að fjalla um
málefni Sparisjóðs Mýrasýslu
sem stofnfjáreigendur og ég
held að ákveðnir stjórnarmenn
hafi farið offari í þessu máli.
Okkar fulltrúar vissu að við
vorum að skoða þessi mál og
bökkuðu okkur upp í því á sín-
um tíma. Viðbrögð einstakra
manna bera vott um óþarfa
hræðslu," segir Helga.
Þorvaldur Jónsson
Ekki stemning
fýrir sölu
„Vð viljum nálgast málefni
sparisjóðsins með ábyrgum
hætti eins og öll önnur mál,“
segir Þorvaldur Tómas Jóns-
son oddviti minnihlutans í
bæjarstjórn Borgarbyggðar.
„Við Framsóknarmenn mun-
um ræða þessi mál og fara vel
yfir þau á næstu dögum. Eg
heyri ekki á mínu fólki að það
sé nein stemning fyrir því að
ganga til sölu á sjóðnum.
Sparisjóðurinn er hinsvegar
alls ekki yfir það hafinn að
menn skoði framtíð hans og
stefnu," segir Þorvaldur.
Heldur til skaða
Eins og fram kom í síðasta
tölublaði Skessuhorns á Borg-
arbyggð 97% stofnfjár í Spari-
sjóði Mýrasýslu en þrjú pró-
sent eru í eigu Hvítársíðu-
hrepps. Olafur Guðmundsson
oddviti Hvítársíðuhrepps segir
að þar hafi málið ekki komið til
umræðu enn. „Ég segi hinsveg-
ar fyrir mig að í fljótu bragði
líst mér ekki á að selja spari-
sjóðinn og hef engan áhuga á
að vinna að því. Ég tel að það
Ólafur Gúðmundsson
væri heldur til skaða fyrir hér-
aðið og okkar sveitarfélag hef-
ur verið sæmilega statt þannig
að við þurfum ekki á sölu að
halda í því augnarmiði. Ég hef
hinsvegar lítið kynnt mér þetta
mál og það hefur ekkert erindi
komið inn á okkar borð. Ef það
verður munum við að sjálf-
sögðu ræða um það en ég sé
ekki að það sé vilji fyrir sölu
hér,“ segir Olafur.
Runólfur Agústsson
Málið er dautt
„Umræðan hefur verið
dregin fram í dagsljósið út á
meðal almennings og þar hef-
ur myndast breið samstaða
um sjóðinn. Því ber að fagna,“
segir Runólfur Agústsson
stjórnamaður í Sparisjóði
Mýrasýslu sem hefur lýst mik-
illi andstöðu við sölu sjóðsins.
„Við mig hefur haft samband
fjöldi manns og lýst yfir
stuðningi við áframhaldandi
starfsemi sjóðsins og Ijóst er
að allur þorri almennings hér
í héraði vill efla sjóðinn en
ekki selja.“
Runólfur hafnar því að
hann eða aðrir stjórnarmenn
hafi farið offari í sínum við-
brögðum við umræðu um
hugsanlega sölu sjóðsins.
„Vmnubrögð formanns bæj-
arráðs kölluðu á hörð við-
brögð sem allir stjórnarmenn
í sparisjóðnum voru sammála
um enda var ályktun stjórnar
um málið samþykkt einróma.
Málið er hins vegar eftir þessa
umræðu dautt þar sem enginn
stuðningur er við sölu. Það er
hin efnislega niðurstaða
málsins og sem slík er hún
fagnaðarefni fyrir okkur öll.
Sparisjóðurinn þarf hins vegar
áfram að dafna, þroskast og
taka þeim breytingum sem
nauðsynlegar eru til að takast
á við framtíðina. Þar eiga
menn að ganga fram ódeigir
og einarðir til að efla þennan
sameiginlega sjóð okkar enn
frekar.“
Aðalfundur Sparisjóðs
Mýrasýslu verður haldinn
föstudaginn 28. febrúar næst-
komandi. Samkvæmt heimild-
um Skessuhorns er ekki búist
við miklum átökum um sölu-
málin á fundinum. Hinsvegar
er ljóst að einhverjar breyt-
ingar verða á stjórn sjóðsins.
Magnús Sigurðsson á Gils-
bakka í Hvítársíðu, stjórnar-
formaður sjóðsins undanfarin
ár, tilkynnti á síðasta aðal-
fundi að hann hygðist ekki
gefa kost á sér sem stjórnar-
maður. Enn fremur liggur fyr-
ir, í kjölfar sveitarstjórnar-
kosninganna í Borgarbyggð,
að annað stjórnarsæti Borgar-
byggðarlista færist yfir til
Framsóknar.
GE