Skessuhorn - 19.02.2003, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 2003
9
Runólfur Agústsson
Afhvetju á ekki að selja
Grein mín sem birtist hér í
blaðinu í síðustu viku hefur
vakið mikla athygli og umtal
sem eðlilegt er. Sú umræða er
þörf, enda mikilvægi Spari-
sjóðs Mýrasýslu fýrir Borgar-
fjörð vanmetið af mörgum,
þar á meðal sumum forystu-
mönnum sveitarfélagsins.
Borgfirðingar allir eiga rétt á
að svo mikilvægt mál sem sala
þessa sameiginlega fyrirtækis
okkar sé rædd fyrir opnum
tjöldum og að almenningur
innan héraðs fái að segja sína
skoðun á málinu. Eg vil þakka
þeim fjölmögru sem hafa haft
samband við mig síðustu vik-
una og lýst yfir smðningi við
þessi sjónarmið.
Mig langar hins vegar að
reifa helstu rök sem valda því
að ég er andvígur sölu sjóðsins
en þau eru eftirfarandi:
* Einn helsti styrkleiki þessa
héraðs er að hafa trausta og
öfluga fjármálastofnun
undir stjórn heimamanna.
Svæðið má ekki við því að
missa þá sérstöðu. Um allt
land leitast sveitarfélög við
að styrkja fjárfestingu í
uppbyggingu atvinnulífs á
sínu svæði og hafa víða
reynt stofnun sérstakra ný-
sköpunarsjóða í þeim til-
gangi. Sparisjóðurinn er
slíkur sjóður okkar Borg-
firðinga og ómetanlegur
sem slíkur.
* Sjóðurinn hefur stutt við
bakið á atvinnufyrirtækjum
héraðsins á erfiðum tím-
um. Með virkri aðkomu
að fjárhagslegri endur-
skipulagningu á fyrirtækj-
um sem og lánveitingum
til arðsemiskapandi starf-
semi, hefur tekist að forða
fjöldaatvinnuleysi í Borg-
arbyggð. Ég þori að full-
yrða að engin önnur fjár-
málastofhun hefði gengið
jafn langt í slíkum stuðn-
ingi og Sparisjóður Mýra-
sýslu hefur gert enda
skynja menn þar hagsmuni
og líf heimafólks.
* Borgfirðingar njóta góðra
kjara hjá sparisjóðnum. I
þeim efhum hvet ég fólk til
að bera saman þjónustu-
gjöld í SM og hjá öðrum
lánastofhunum.
* Við sjóðinn starfa nú 25
starfsmenn. Það er dag-
ljóst að 10-15 þeirra yrði
sagt upp ef til sameiningar
við stóran banka kæmi þar
sem eðlisbreyting myndi
verða á starfseminni.
Sparisjóðurinn er sjálfstæð
bankastofhun en yrði úti-
bú. Oll stjórnun, bak-
vinnsla og sérfræðiþjón-
usta myndi hverfa við slíka
breytingu.
* Undanfarið hafa stjórn og
starfsfólk sjóðsins unnið að
stefnumörkun hans til
næstu ára. Sjóðurinn er
öflugasti landsbyggðar-
sparisjóðurinn og getur
sem slíkur tekið forystu í
fyrirséðu sameiningarferli
sparisjóða á landsbyggð-
inni. Sjóðurinn hefur í
raun þegar sýnt vilja til
slíkra hluta með kauptil-
boði í Sparisjóð Siglufjarð-
ar nú nýlega. Þessi fram-
tíðarsýn mun, fái sjóðurinn
til þess frið, skapa ný störf
innan hans en á nýjum
störfum þurfum við sárlega
að halda hér um slóðir.
Sjóðurinn getur þannig
orðið vaxtarbroddur há-
tekjustarfa í Borgarnesi og
er það vel.
* Árlega styður sjóðurinn
myndarlega við æskulýðs-,
íþrótta og menningarstarf-
semi í Borgarfirði með því
að láta hluta af hagnaði
sínum renna til slíkrar
starfsemi. Þannig njóta
Borgfirðingar afrakstursins
af starfsemi sjóðsins með
beinum hætti. Þetta vita
allir þeir sem standa á ó-
eigingjarnan hátt að því
menningar og félagsstarfi
sem frarn fer á starfssvæði
sjóðsins og er ég þess full-
viss að það góða fólk kann
að meta starfsemi Spari-
sjóðs Mýrasýslu að verð-
leikum.
* Þá er ótalið það sjónarmið
að sparisjóðurinn er sjálfs-
eignarstofnun þar sem
stofnfjáreigendur geta í
raun aðeins selt sitt stofhfé.
Stofnfé Borgarbyggðar í
sjóðnum nemur uppfært á
fjórðu milljón króna. Það
eru þeir fjármunir sem
sveitarfélagið hefur lagt til
sjóðsins. Sveitarfélögin
eiga ekki sjóðinn sem slík-
an heldur er hann í raun
sameign allra viðskipta-
manna hans, bæði þeirra
sem búa í Borgarbyggð og
Hvítársíðu sem og allra
annarra. Því má spyrja
hvort það sé siðferðislega
rétt að andvirði sjóðsins
rynni eingöngu til hluta
Borgfirðinga við sölu en
ekki allra viðskiptamanna.
Nýleg lög um fjármála-
stofiianir eiga og að girða
fýrir sölu með þeim hætti
sem rætt hefur verið um.
Fyrir sölu sjóðsins eru í
raun fá efnisleg rök. Eg hef
ekki heyrt því haldið fram að
það að sala muni styrkja at-
vinnulífið í héraði umfram
það að eiga sparisjóðinn eða
að annar banki sé sérstaklega
líklegur til að flytja ný há-
tekjustörf hingað og fjölga
störfum yfirleitt. Þá er ólík-
legt að slíkur aðili ráðstafi ár-
lega 10-15 milljónum til
menningar-, íþrótta- og æsku-
lýðsmála í Borgarfirði.
Einu raunverulegu rökin
sem færð eru fýrir sölu eru
peningaleg staða bæjarsjóðs.
Skuldastaða þess er þó ekki
verri en gengur og gerist á
meðal sveitarfélaga af sömu
stærð. Hins vegar á sveitarfé-
lagið við rekstrarvanda að
stríða. Hann leysa menn ekki
með sölu eigna heldur með
því að skera niður útgjöld eða
hækka tekjur. Með sölu eigna
til að fjármagna rekstrarvanda
étur fólk ofan af sér. Svo ein-
falt er það!
Kjarni þessa máls er hvert
framtíðarhagnaður af starf-
semi sjóðsins á að renna. Á
hann að renna til hluthafa
utan héraðs eða eigum við á-
fram að halda honum hér
heima og nýta til góðra verka?
Svari hver fýrir sig.
Runólfur Agústsson
er stjómar- ogfulltniaráðs-
maður í Sparisjóði Mýrasýslu
www.skessuhom.is
Góugleði
í B r ú a r á $ i
^ mars
Mikil gleði
mikið grín
mikið gaman!
nefndin
Fundur um hrossaræktarmá
Ágúst Sigurðsson landsráðunautur í
hrossarækt og Kristinn Guðnason
formaður félags hrossabænda verða
á ferð um landið á næstu vikum að
1 Boðað er til fundar á Hvanneyri
i (matsalur) mánudaainn 24. febrúar,
kl 20:30
Allt áhugafólk um málefni
hrossaræktarinnar er hvatt til að mæta
Auglýsing
Um deiliskipulag í Kolbeinsstaðarhreppi
Snœfellsnessýslu.
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi fyrir 31
frístundahús í landi Hraunholts Kolbeinsstaðarhreppi,
austan Heydalsvegar og sunnan við veg að
Hallkellsstaðarhlíð.
Tillagan ásamt byggingar og skipulagsskilmálum
liggur frammi hjá oddvita Kolbeinsstaðarhrepps að
1 Ásbrún frá 21. febrúar til 21. mars 2003 á venjulegum
s skrifstofutíma.
s
? Athugasemdum skal skila fyrir 04.apríl 2003 og
skulu þœr vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilskilins frests
teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi.