Skessuhorn


Skessuhorn - 19.02.2003, Page 10

Skessuhorn - 19.02.2003, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 2003 _H l Menningarhús til íþróttaiðkunar! Fótbolti, hross, fijálsar o.fl. Fyrir nokkrum misserum var umræða um að hver landshluti ætti að fá fjármagn til að reisa menningarhús. I mínum huga voru þetta áform um að byggja enn eitt félagsheimilið, en eins og við vitum þá er þó nokkuð til af þeim fyrir hér á Vestur- landi. Hinsvegar er til annars kon- ar menning sem þarfnast auk- ins húsnæðis og það skjótt, en það er „íþróttamenningin“. Okkur íbúum á Vesturlandi vantar nefnilega fjölnota í- þróttahús (knattspyrnuhöll) eins og þau sem spretta upp eins og gorkúlur hérlendis og nú síðast á Akureyri. Líklega er það fjarlægur draumur að slíkt hús verði reist hér um slóðir og því miður eru þá miklar líkur á að við sitjum eft- ir innan fárra ára í fótboltanum og er ég þá að tala um Vestur- land alveg niður að rörinu und- ir Hvalfjörð! En það eru aðrar leiðir færar í stöðunni sem geta gagnast mikið. Þannig er að undanfarin misseri hefur verið nokkur umræða um byggingu reiðhallar í nágrenni Borgar- ness og held ég að tími fram- kvæmda þurfi að fara að renna upp! Þarna er á ferðinni ákaf- lega vænlegur kostur til efling- ar á íþróttastarfi í héraðinu. Slík höll, t.d. 30 x 50m, með tilheyrandi áhorfendasvæði yrði mikil lyftistöng fyrir hesta- mennsku, knattspyrnu og frjálsar íþróttir á svæðinu. Mikil gróska er í þessum grein- um í héraðinu og er t.d. mikil aukning í þátttöku barna og unglinga á knattspyrnuæfing- um hjá Skallagrími. Mikil þörf er á auknum æfingatíma fyrir fótboltann og myndi reiðhöll leysa það mál. Flestar fótbolta- æfingar færu yfir í slíka höll og þannig myndi skapast rými fyr- ir aðrar íþróttagreinar og trimmhópa í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Líklega yrði upp- bygging og rekstur fjölnota reiðhallar léttari, en ef húsnæð- ið væri einungis smíðað utan- um hestamennskuna! Við eigum öflug fyrirtæki í héraðinu, sem tengjast vörslu peninga, steypu og utanhúss- klæðningum, sem myndu ef- laust vilja styðja dyggilega við þessa framkvæmd. Þá geta fé- Sverrir Heiðar Júlíusson lagasamtök á svæðinu sem tengjast hestamennsku og öðru íþróttastarfi lyft grettistaki við slíka framkvæmd, eins og oft hefur verið sýnt fram á í gegn- um tíðina, jafnvel þó sífellt verði dýpra á ungmennafélags- andanum hjá þorra almenn- ings. Ekki væri svo verra ef við gætum notað eitthvað af „fyrir- heitnu menningarhúsapening- unum“ í þessa framkvæmd! Einnig eru fordæmi fyrir veg- legum opinberum stuðningi við samskonar byggingu t.d. í Skagafirði, þannig að þetta get- ur líka orðið spurning um dá- lítinn „lobbýisma“ á kosninga- ári! Eitt af því sem gerir byggð sterka og líklega til vaxtar, er sú aðstaða sem fyrir hendi er til atvinnu, menntunar og afþrey- ingar. Mín skoðun er að við þurfum að skapa betri aðstöðu til íþróttaiðkunar yfir vetrar- mánuðina og snemma á vorin, því hvað er betra en heilbrigð sál í hraustum líkama. Gleym- um ekki þætti íþróttaiðkunar í forvörnum og uppeldislegu til- liti. Með þessum lokaorðum sendi ég boltann og vona að honum verði áfram haldið á lofti!....og að þessi draumur knattspyrnuþjálfarans og margra annarra, geti orðið að veruleika fyrr en síðar! Grenitúni, Hvanneyri 13. febrúar 2003 Með íþróttakveðju, Sverrir Heiðar l/litióht’aúd Skal nú meðan skapa nýt Afmæli eru alltaf taldir svolitlir á- fangar á lífsbraut- inni og þó hálfur áratugur sé ekki langur tími í sjálfu sér er það þó J| meira en mörgum I héraðsfréttablöð- I um hefur tekist að tóra. Þegar Rit- stjórinn fór að minna mig á að blaðið væri að verða fimm ára rifjaðist upp fyrir mér sagan af stráknum sem var spurður hvað hann væri gamall og svaraði: „Eg er fimm ára, en mamma segir að ég gæti verið orðinn sex ára ef pabbi hefði ekki verið svona feiminn“. Það veldur miklu um framtíðina hvernig til tekst með fyrstu eintökin og alla vega virðist þetta hafa verið skýrleikspiltur svo kannske hefúr borgað sig fyrir foreldrana að bíða eftir allt saman. Eg fór að rifja upp hvernig ég hefði byrjað andlega fóðrun lesenda minna og kemur hér kafli úr upphafi fyrsta þáttar- ins: „Einhvern tíma barst eintak af blaðinu íslendingi í hendur Bjarna frá Gröf, úr- smiðs á Akureyri og var það óprentað að innanverðu. Bjarni velti blaðinu fyrir sér og kvað svo: Islending ég áðan sá, óðar fletti honum, hann var eins og hausinn á heiðruðu ritstjóronum. Svipað slys vildi til á Alþýðublaðinu nema hvað það eintak barst til Páls H. Jónssonar á Laugum og varð það tilefni Þ' essarar visu: Alþýðublaðið á sér tíðum úrrœði sem mér líkar við, þeir skjóta inn í það auðum síðum til uppfyllingar á lesmálið. A síðustu stundum Vesturlandspóstsins sáluga sá Jón Þ. Björnsson um vísu vik- unnar og var víst ekki frítt við að ein- hverjum þætti broddur falinn: Þegar hund í hamsi ber ég hressir lundu fjörlegt blað, um þessar mundir oftast er ég enga stund að lesa það.“ Á afmælishátíðum eru stundum haldn- ar langar og leiðinlegar ræður og tæplega hefur það verið sérlega skemmtilegur ræðumaður sem ísleifur Gíslason orti um enda líklega ekki einu sinni í afmælis- veislu: Gífuryrðum um sig sló, útsýn firðum glapti, svifastirður sýndist þó í samábyrgðarhafti. Hinsvegar fá afmælisbörn stundum vísur í tilefni tímamótanna þó oftast séu þær tóm lofgerðarrolla sem allir gleyma jafnharðan. Stefán Jónsson fréttamaður var bæði frábær hagyrðingur og mikill húmoristi og orti mikið í orðastað Jóns á Akri og eftir að Jón var farinn að eldast vissi hann ekki alltaf fyrir víst hvor þeirra hafði ort hvað. A stórafmæli Páls ísólfs- sonar meðan Morgunblaðið laut traustri pólitískri stjórn Sjálfstæðisflokksins hringdi Stefán niður á Morgunblað með rödd Jóns og lét birta eftirfarandi afmæl- isvísu undir nafhi Jóns: Ó- það lœt ég ekki -gert. af - ég -mœli syng um og tónakálfinn töluvert teitur dansa kringum. Engum sögum fer hins vegar af hrifh- ingu skráðs höfundar yfir kveðskapnum. Reynir Jónasson harmonikuleikari og organisti fékk á fimmtugsafmæli sínu svohljóðandi vísu ffá vini sínum: Ellimörkin eru að byrja, alltaf nálgast Gullna Hliðið. Þá er kannske klúrt að spyrja hvort þú getir ennþá - sinnt þínum helstu áhugamálum. Vissulega nálgumst við stöðugt Gullna Hliðið um einn dag í einu og þó það sé vafalaust æskileg endastöð er kannske allt í lagi að athuga sinn gang á leiðinni þang- að. Þegar Karl Isfeld var að alast upp þótti hann nokkur orðhákur og blótsam- ur í betra lagi. Þá orti kunningi hans: Karl er til himna kominn að kanna hin heilögu vé. ,,Hér er margt helvíti skrítið, en hvar cetli andskotinn sé“ Einhver svarvísa átti að vera til við þessu en hún er nú fallin mér úr minni enda langt síðan ég lærði þessi fræði. Þó okkur breyskum mönnum verði það stundum á að nefna myrkrahöfðingjann á nafn verður flestum það frekar fyrir að snúa sér í hina áttina þegar verulega harðnar á dalnum nema menn hafi sömu tök og Sæmundur fróði á neðri bóndan- um eða selji sig á svipaðan hátt og Faust. Orn á Steðja orti um ágjarnan mann: Hér má líta hygginn mann heims í vilkynningu, fyrir silfur seldi hann sómatilfinningu. Venjulegir meðaljónar eins og ég sem lenda stundum í þeirri aðstöðu að þurfa að skipta fimmtíu krónum milli tíu manna þannig að hver fái hundrað krón- ur þekkja mætavel afstöðu Þórleifs Jóns- Skal nú meðan skapa nýt, skuldafylla sekki. Hérna megin hefég krít -hinumegin ekkil Stefán Jónsson þurfti einhvern tíma á peningum að halda meðan Kári sonur hans hafði ekki enn stofnað íslenska erfðagreiningu og sneri sér þá til Péturs Benediktssonar bankastjóra, en til að er- indið fengi betri afgreiðslu lét hann eftir- farandi fylgja: Fá- ég opna -tœktar trant sem trauðla hjalað getur. Pen- nú -inga er mér vant, yður að segja Pétur. Lánið fékk hann orðalaust. Það eru samt ekki allir svo heppnir að geta ort sér út lán þegar vantar í sjóðinn og hafa marg- ir lent í bæði andlegum og líkamlegum þjáningum þess vegna. Gísli Helgason ffá Hlíðarhúsum orti: Ellin kynnist kífsins byl, kólnar sinnislundum, - œskan finnur einnig til -ekki minna stundum. Fleira getur gengið mótdrægt en pen- ingaleysi en Steinn K. Steindórsson velti fyrir sér hver gæti orðið sigurvegari: Hver mun ganga gœfuspor, greiðar framabrautir? -Sá sem einn á afl og þor allar sigrar þrautir. Ekki veit ég hvort þetta er nú algilt en ekki skaðar það að minnsta kosti. Það er heldur ekki sérlega skynsamlegt að reyna alltaf að kenna öðrum um allt það sem á móti hefur blásið þó þeir eigi vafalaust sinn þátt í módætinu. Hjálmar Þorsteins- son á Hofi ortí: Enginn skyldi beita á bök brýndum slaðursorðum, eða gefa Evu að sök eplatöku forðum. Lítið gaman væri nú að þessu lífsbasli án Evu og dætra hennar fjölmargra og er rétt að enda þennan þátt á ágætri vísu Jóns M. Péturssonar frá Hafhardal: Ástin þýðir hugans hjam, hjartað eyðir sorgum, ég hef ennþá eins og bam yndi af spilaborgum. Með þökkfyrir lesturinn. Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S: 435 1367 - dd@binet.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.