Skessuhorn - 19.02.2003, Side 15
ggESSUHOERI
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 2003
15
Hafþór Ingi tryggir Skallagrími tvö stig á dramatískum iokasekúndum.
Mynd: Svanur Steinarsson
Dramatík í
Borgarnesi
Skallagrímur- KR: 86-85
Það er óhætt að segja að
fagnaðarlátunum hafi aldrei
ætlað að linna í Borgarnesi á
föstudagskvöld þegar Skalla-
grímsmenn tryggðu tvö dýr-
mæt stig í fallslagnum er þeir
lögðu KR-inga að velli eftir
æsispennandi lokamínútur.
Heimamenn byrjuðu mun bet-
ur og skorti greinilega ekki
sjálfstraust þrátt fyrir misjafnt
gengi í vetur. Heimamenn
komust mest í níu stiga for-
ystu í fyrsta leikhluta, en að
honum loknum var staðan
27-24. KR-ingar komust síð-
an æ betur inn í leikinn eftir
því sem á leið og í leikhléi var
staðan jöfn 46 - 46. Eftir leik-
hlé komu heimamenn á ný
grimmir til leiks og náðu á-
gætri forystu á ný og eftir
þriðja leikhluta höfðu gestirnir
náð að minnka muninn aftur
og var staðan þá 70 - 68. Það
var því Ijóst að stefndi í
spennandi lokamínútur og
það stóð heima, dramatíkina
skorti ekki en þegar mínúta
var til leiksloka leiddu gestirn-
ir með einu
stigi. KR-ingar
skoruðu þá úr
þriggja stiga
skoti og virtust
vera búnir að
tryggja sér sig-
urinn. JoVann
Johnson svar-
aði hinsvegar
að bragði með
þriggja stiga
körfu. KR-ingar fengu þá aftur
tækifæri til að komast í, að því
er virtist, örugga forystu þeg-
ar þeir fengu tvö vítaskot og
aðeins tuttugu sekúndur eftir.
Þeir nýttu vítin og höfðu yfir
85-82 og enn ein vonbrigðin
virtust í uppsiglingu. Þá var
komið að Hafþórs þætti
Gunnarssonar en hann hafði
ekki haft sig mikið í frammi í
leiknum. Dyggilega studdur af
æstum stuðningsmönnum
Skallagríms sem óhætt er að
segja að hafi verið að „fara á
límingunum" setti Hafþór nið-
ur þriggja stiga körfu og jafn-
aði þar með leikinn. Hann
gerði reyndar gott betur en
það því brotið var á honum í
skotinu og fékk hann því víta-
skot sem hann afgreiddi af ör-
yggi og sigurinn var í höfn.
Þótt Hafþór hafi verið hetja
Borgnesinga að þessu sinni
var JoVann Johnsons þeirra
bestur, en einnig áttu þeir
Þálmi Sævarsson, Þétur Sig-
urðsson og Risticbræður
góðan leik.
Tölurnar - Skallagrímur
Nr Nafn Mín HF STO STIG
4 Finnur Jónsson 6 2 3 0
5 Hafþór 1. Gunnarsson 27 3 2 8
6 Ari Gunnarsson 12 2 0 1
7 Fálmi Þ. Sævarsson 15 9 0 3
9 JoVann Johnson 34 6 6 35
10 PéturM. Sigurðsson 22 5 2 14
11 Valur Ingimundarson 26 2 0 0
14 Darko Ristic 32 5 5 17
15 Milosh Ristic 26 3 3 8
3. flokkur
íslandsmeistari
3. flokkur karla í knattspyrnu
hjá ÍA varð um síðustu helgi ís-
landsmeistarar í innanhúsknatt-
spyrnu eftír sigur á BÍ í úrslita-
leik.
Innanhúsmótið hjá drengjun-
um er með þeim hætti að fyrst
er leikið í undanriðli með fimm
öðrum liðum. Síðan tekur við
milliriðill og þar á eftir undanúr-
slit og úrslitaleikur. Milliriðillinn
og úrslitaleikirnir voru spilaðir
um síðustu helgi en undanriðill-
inn var leikinn um miðjan janúar.
Skagastrákarnir komust í
undanúrslitin með því að ná
öðru sætinu í sínum milliriðli, þar
sem þeir mættu KR-ingum.
Leikurinn gegn KR var
æsispennandi og það var ekki
fyrr en í framlengingunni sem (A
náði að skora eina mark leiksins
og þar með sæti í úrslitaleikn-
um.
Slappur leikur
í Hólminum
Snæfell-Njarðvík: 60-63
Njarðvíkingar sigruðu
Snæfellinga naumlega í frem-
ur slökum leik í Hólminum
síðastliðinn fimmtudag. Leik-
urinn var í járnum nánast all-
an tímann þótt gestirnir
hefðu jafnan frumkvæðið. í
leikhléi var
staðan 43-45
og þessi litli
munur hélst út
leikinn.
Flestir leik-
manna Snæ-
fells hafa leikið
betur í vetur
og óvenjulegt
að Bush og
Hlynur fari
ekki yfir 20 stig samtals, en
yfirleitt hafa þeir verið nálægt
því hvor fyrir sig. Það var
Sigurbjörn Þórðarson sem
var bestur Hólmara en Hlynur
átti þokkalegan leik þótt
hann hafi oftast verið betri.
Tölurnar - Snæfell
Nr Nafn Mín HF STO STIG
4 Baldur Þorleifsson 3 0 0 0
5 Andrés M. Heiðarsson 9 2 0 2
6 Atli R. Sigurþórsson 20 3 2 0
7 Jón Ó. Ólafsson 23 3 1 8
8 Helgi R. Guðmundss. 27 2 6 7
9 Selwin Reid 4 3 2 0
10 Sigurbjörn Þórðarson 20 3 0 14
11 Clifton Bush 35 13 1 8
12 Lýður Vignisson 26 2 1 9
14 Hlynur E. Bæringsson 33 10 2 12
Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
Félag Leik U T Stig Nett Stig
1. UMFG 18 15 3 1657:1493 164 30
2. KR 18 14 4 1616:1456 160 28
3. Keflavfk 18 13 5 1793:1516 277 26
4. Haukar 18 12 6 1624:1532 92 24
5. Tindastóll 18 10 8 1626:1606 20 20
6. UMFN 18 10 8 1467:1492 -25 20
7. ÍR 18 9 9 1548:1587 -39 18
8. Snæfell 18 7 11 1437:1437 0 14
9. Breiðablik 18 7 11 1644:1677 -33 14
10. Hamar 18 5 13 1643:1814 -171 10
11. Skallagrímur 18 3 15 1459:1651 -192 6
12. Valur 18 3 15 1415:1668 -253 6
í úrslitaleiknum mætti ÍA BÍ
eins og áður segir. (A komst í 2-
0 áður en ísfirðingar minnkuðu
muninn í eitt mark, en Skaga-
menn áttu síðasta orðið í leikn-
um og tryggðu sér öruggan 3-1
sigur með marki rétt fyrir leiks-
lok.
Sannarlega glæsilegur árang-
ur hjá strákunum og vonandi
gefur þessi góði sigur einhver
fyrirheit um það sem koma skal
í sumar.
Á myndinni má sjá drengina,
að verðlaunaafhendingunni lok-
inni, með þjálfara sínum Þór
Hinrikssyni sem tók við sem yf-
irþjálfari á Akranesi í haust.
HJH
Molar
Mfl. ÍA mætti Aftureldingu í æf-
ingaleik í Fífunni í síðustu viku.
Skemmst er frá því að segja að
liðin gerðu markalaust jafntefli í
heldur bragðdaufum leik. Fyrr-
um leikmaður Skagamanna,
Jón Þór Hauksson, lék með
Mosfellingum gegn sínum
gömlu félögum en Jón gekk á
dögunum til liðs við Aftureld-
ingu.
Deildarbikarkeppni KSÍ hefst
um næstu helgi og leika
Skagamenn tvo leiki. Á föstu-
daginn mæta þeir KA á Akur-
eyri og daginn eftir leika þeir
gegn Þór. Báðir leikirnir fara
fram í nýja knattspyrnuhúsi
þeirra Norðlendinga.
Dregið hefur verið f fyrstu
tvær umferðirnar í bikarkeppni
karla í sumar. Tveir leikir í
fyrstu umferð fara fram á
Vesturlandi. I fyrri leiknum fær
Skallagrímur ÍH í heimsókn en
í hinum er Vesturlandsslagur
þar sem Víkingur Ólafsvík
mætir ungmennaliði ÍA í Ólafs-
vík. Ef Skallagrímur sigrar ÍH
mæta þeir annaðhvort ung-
mennaliði ÍR eða Deiglunni.
Sigurliðið úr leik Víking og ÍA
munu leika á útivelli gegn ung-
mennaliði KR eða liði sem ber
hið skemmtilega nafn Afríka.
HJH