Skessuhorn


Skessuhorn - 12.03.2003, Síða 4

Skessuhorn - 12.03.2003, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 Borgarnesi: Borgarbraut 23 Simi: 431 5040 Fax: 431 5041 Akranesi: Kirkjubraul 3 Sími: 431 4222 SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Ritstjóri og óbm: Blaðamaður: Auglýsingor: Umbrot: Próforkolestur: Prentun: Skessuhorn ehf 431 Gisli Einorsson 892 Hjörtur J. Hjortorson 864 Hjörtur J. Hjortorson 864 Guðrún Björk Friðriksdóttir Ingo Dóro Holldórsdóttir Prentmet ehf. 5040 skessuhorn@skessuhorn.is 4098 ritstjori@skessuhorn.is 3228 hjortur@skessuhorn.is 3228 hjortur@skessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is ingodoroh@simnet.is Skessuhorn kemur út allu miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum. Blaðið er gefið út i 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með greiðslukorti. Verð i lausasölu er 250 kr. 431 5040 Undir fonn eða feldi I æsku las ég með áfergju hetjusögur af smaladrengjum sem hrepptu illviðri á heiðum uppi er þeir voru að leita sauða húsbónda síns, grófu sjálfa sig og sauðina í fönn og björguðu sér við illan leik til bæja á endanum, ef heppnin var með þeim. Að sjálfsögðu dreymdi mig um það þá að drýgja viðlíka hetjudáðir. Þegar ég komst til vits og ára áttaði ég mig á því að það væri fullmikið erfiði fyrir minn smekk að standa í af- reksverkum. Enda kom það snemma í ljós að ég er eðlislat- ur að upplagi og mér lætur mun betur að liggja undir feldi en grafinn í fönn. Samt sem áður blundar ávallt í mér löng- un til að vera hampað sem hetju ef hægt væri að finna til þess leið sem útheimti lágmarkserfiði. Það hefur ekki tekist og má vera að það veki upp hjá mér lítilsháttar öfund í garð þeirra sem skilið hafa eftir sig slóð frægðarverka af öllum stærðum og gerðum. Sennilega er það af þeim hvötum sem ég hef í huganum borið saman fremdarverk smalanna í sög- unum sem ég nefndi og hetjudáðir karlmenna nútímans. I fyrsta lagi hef ég talið það smaladrengjunum til tekna í þeim samanburði að þeir áttu undantekningalítið erindi upp á hóla og heiðar. Þeir ruku yfirleitt ekki á fjöll um helgar til að drepa tímann eða til að geta sagt frá frægðarverkum sín- um á kaffistofunni á mándueginum. Smaladrengirnir urðu aukin heldur að treysta á eigin skynsemi og hyggjuvit, þrek sitt og þor. Þeir gátu ekki treyst því að þrjúhundruð björg- unarsveitarmenn kæmu æðandi á vélsleðum eða snjóbílum ef þeir væru ekki komnir heim í kvöldmat. Þeir gátu ekki einu sinni tekið skeytin af Netinu áður en þeir fóru af stað. Nú er hinsvegar öldin önnur. Þeir sem vilja gerast hetjur á skjótan og öruggan hátt þurfa ekki annað en að fylgjast með veðurspánni og bíða eftir góðri óveðursspá. Þá er ekk- ert annað að gera en að æða af stað, fynast og finnast. Því fyndari því meiri hetja, það er viðurkennd þumalputtaregla í þessu fagi. Það er hinsvegar ekki nema sanngjarnt að ítreka að þess- ar hugrenningar mínar eru fyrst og fremst sprottnar af öf- und. Ef ég hefði einhvern snefil af nanndóm í mér sjálfur þá myndi ég að sjálfsögðu æða upp á fjöll og fynast í bak og fyrir. Gísli Einarsson, graftnn í sæng Gísli Einarsson, ritstjóri. ^ntssunu,.. Samkór Mýramanna hélt sína árlegu miðsvetrartónleika í Borgameskirkju síðastliðið sunnudagskvöld. Það var engin önn- ttr en söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir sem var gestasöngvari íþetta sinn. Tónleikamir voru vel sóttir og þóttti afar vel heppnaðir. GE Guðmundur Dagur sigraði í Stóru upplestrarkeppninni Lokaathöfn Stóru upplestrar- keppninnar fór fram á mánudag- inn í Vinaminni á Akranesi. Alls tóku 12 nemendur úr 7. bekk grunnskólanna á Akranesi þátt í lokakeppninni, sex úr hvorum skóla. Oll fengu þau bókargjöf en fimm manna dómnefhd valdi síð- an þrjá upplesara sem skara þóttu ffamúr. Fyrstu verðlaun hlaut Guð- mundur Dagur Jóhannsson, önn- ur verðlaun fékk Stefanía Hall- grímsdóttir og í þriðja sæti hafn- aði Oddný Björg Hjálmarsdóttir. Sparisjóður Mýrasýslu veitti sig- urvegurunum peningaverðlaun, 5000 krónur fyrir þriðja sætið, 10.000 krónur fyrir annað sætið og 15.000 krónur fyrir fyrsta sæt- ið. Einnig voru veitt verðlaun Þáttakendumir í Stóru upplestrarkeppninni ásamt Helgu Brögu Jónsdóttur semflutti ávarp á hátíðinni. Þau sem hófnuðu í þremur efstu sætunum eru sitj- andifyrir framan hópinn,frá vinstri Oddný, Guðmundur og Stefanía vegna skreytinga boðskorts og áttu Asa Katrín Bjarnardóttir og Sunna Dís Jensdóttir ljóð og teikningu sem skreyttu boðskortið. HJH Arleg vígsla ylfinga og skáta Tvö ár í röð hefur Skátafélag Akraness haft vígslu á afmæli stofnanda skátahreyfingarinnar, Baden Powells. Vígslan á laugar- dag tóks mjög vel og voru yfir 100 manns viðstaddir þegar 17 börn. voru vígð eftir ákveðinni hefð. Að vígslu lokinni stjórnaði Guðbjartur Hannesson „kvöld- vöku“ með söng og skemmti- legheitum. Börn í skátafélaginu sýndu skemmtiatriði og að lok- inni „kvöldvöku“ var gestum boðið uppá kaffiveitingar. Svanna og Rekkasveit ásamt börnum buðu upp á sannkallað hnallþóruborð og fór engin svangur heim. Einnig má minnast á að 2. nóvember síðastliðinn voru 50 ár síðan skátastarf drengja og stúlkna var sameinað á Akranesi. Að því tilefni færði Guðbjartur Hannesson félaginu gjöf fyrir hönd Svanna og Rekkasveitar. í dag eru rúmlega 50 börn starfandi í skátafélaginu og fund- ar hver flokkur einu sinni í viku. Framundan er félagsútilega í Skátafelli í Skorradal, þar sem flokkarnir fara saman yfir eina helgi í mars mánuði og takast á við ýmis verkefni. Þeir sem hafa áhuga að vera með eða kynna sér starfið geta haft samband í síma 896-1728. Mozart, hver var það? Fimmtu tónleikar Tón- listarfélags Borgarfjarðar á þessu starfsári verða haldnir sunnudaginn 16. mars nk. í Logalandi. Þar munu þau Bergþór Pálsson óperu- söngvari, Auður Hafsteins- dóttir fiðluleikari og Nína Margrét Grímsdóttir píanó- leikari flytja dagskrána „Mozart, hver var það?“ . Með tali, tónum og leikræn- um tilburðum munu þau upplýsa tónleikagesti um tónskáldið og persónuna Wolfgang Amadeus Mozart. Eftir hlé verða flutt íslensk og erlend sönglög eftir ýmsa höfunda og verk fyrir fiðlu og píanó eftir m.a. Þórarin Jónsson og Fritz Kreisler.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.