Skessuhorn - 12.03.2003, Page 5
^&iisautiu^
MIÐVTKUDAGUR 12. MARS 2003
5
Hvemig alþingis-
mann viltþú?
Kjósandi
Vilt þú alþingismenn úr
stjórnmálaflokki þar sem leynd
er viðhaldið um fjárframlög í
sjóði flokksins? Vilt þú þing-
mann sem leynir þjóð sína
upplýsingum um starfsloka-
samning við fyrrverandi for-
stjóra Landsímans, fyrirtækis
sem er í eigu almennings? Vilt
þú þingmann sem ráðstafar
ríkisfyrirtækjum og ríldsbönk-
um til einkavina en gleymir á-
formum um dreifða eignarað-
ild? Vilt þú þingmann sem
vaknar aðeins til samvisku
sinnar 10 vikum fyrir kosning-
ar og vill þá breyta stjórnar-
skránni og setja inn ákvæði á
þá leið að fiskistofnarnir séu
sameiginleg auðlind þjóðar-
innar? Vel að merkja sami
þingmaður, formaður Fram-
sóknarflokksins, hafði lýst yfír
nauðsyn þess að breyta stjórn-
arskránni til þess að koma í veg
fyrir að allir íslendingar ættu
rétt á að sækja um leyfi til að
stunda fiskveiðar í atvinnu-
skyni, þegar hann var inntur
eftir viðbrögðum við dómi
Hæstaréttar í máli Valdimars
Jóhannessonar.
Eg veit ekki hvort þú kjós-
andi vilt framangreinda þing-
menn, en í það minnsta kæri ég
mig ekkert um að sjá þá á lög-
gjafarsamkomu íslendinga.
Fjármál
stjómmálaflokka
Frjálslyndi flokkurinn var
fyrstur íslenskra stjórnmála-
flokka að opinbera fjármál sín
og er annar tveggja stjórnmála-
flokka landsins sem gerir það
nú. Hvað er það sem veldur því
að fjármál kvótaflokkanna og
Samfylkingar þola ekki dags-
ljósið? Lýðræðinu er brýn
nauðsyn á að fjármál þeirra
stjórnmálaflokka, sem bjóða
fram fulltrúa almennings til
setu á löggjafarsamkomu þjóð-
arinnar verði gerð opinber. I
skoðanakönnunum hefur kom-
ið fram að stór meirihluti þjóð-
arinnar er sammála Frjálslynda
flokknum um opin fjármál
stjórnmálaflokka enda fyrir-
komulagið sem er viðhaft hér á
landi undantekning á byggðu
bóli.
Davíð Oddsson formaður
annars kvótaflokksins kallar
mig og skoðanabræður mína
pólitíska loddara sem telja að
laumuspil með fjármál stórn-
málaflokka sé tortryggilegt, en
helstu rök hans eru að við sem
viljum afhjúpa leyndinni getum
ekki nefnt dæmi máli okkar til
stuðnings um alvarlega mis-
notkun. Það getur auðvitað
hver heiivita maður séð að
erfitt er að tiltaka dæmi úr
leynilegu bókhaldi kvótaflokk-
anna.
Leynisamningar
og ráðstöfun eigna
almennings
Hver eru rök Sjálfstæðis-
flokksins, fyrir leynd á starfs-
lokasamningi forstjóra Lands-
símans. Jú,fyrirtækið er hluta-
félag á almennum markaði.
Þessi rök eru léttvæg enda er
fyrirtækið í eigu almennings og
óskiljanlegt að leyna þjóðina
upplýsingum um rekstur þess,
sérstaklega í ljósi þess að vand-
séð er að leyndin hafi þjónað
hagsmunum Landssímans og
það má færa rök fyrir því að
feluleikurinn sé enn að skaða
þetta ágæta fyrirtæki. Líldegast
er að leyndin hafi þjónað mjög
þröngum hagsmunum Sjálf-
stæðisflokksins. Þess ber að
geta að á meðan feluleikurinn
stóð sem hæst var verið að setja
reglur í Kauphöll Islands um
upplýsingar um kaup og kjör
stjórnenda skráðra hlutafélaga
sem taka gildi 1. júlí n.k..
Kauphöllin setti reglurnar, í
samræmi við reglur annars
staðar á Vesturlöndum með hag
almennings og fjárfesta í huga,
til þess að koma í veg fyrir að
almenningur verði fyrir barð-
inu á hneykslismálum.
Frjálslyndi flokkurinn var
fylgjandi sölu ríkisbankanna, ef
þeir hefðu verið seldir í mjög
dreifðri eignaraðild, en algjör-
lega andvígur ráðstöfun þeirra
til vina og velunnara kvóta-
flokkana.
Lýðskrum
ffamsóknarmanna
Allt tal um að breyta eigi
stjórnarskránni rétt fyrir kosn-
ingar er ómerkilegt og mein-
ingarlaust lýðskrum, í ljósi að-
gerða ríkisstjórnar kvótaflokk-
anna s.l. 8 ár. Kvótaflokkarnir
hafa verið algjörlega samstíga í
að festa í sessi kerfi þar sem í-
búar sjávarbyggða eiga stöðugt
yfir höfði sér hættu á að kvót-
inn verði fluttur úr byggðalag-
inu. Við í Frjálslynda flokknum
ætlum að rétta hlut sjávar-
byggða með því að koma á rétt-
látu fiskveiðistjórnunarkerfi,
sem byggir á sóknarstýringu.
Kjósum breytingar, kjósum
Frjálslynda flokkinn.
Sigurjón Þórðarson,
líffræðingur
í 2. sæti á lista Frjálslynds-
flokksins í Norðvestur
kjördæminu
7>t
\
e/t/u/i/t^Ts
Bjarni Guðmundsson
Goður góusöngur í
Borgarneskirkju
Samkór Mýramanna bauð til
árlegra miðsvetrartónleika
sinna í Borgarneskirkju sl.
sunnudagskvöld. Söngskráin
var fjölbreytt: blanda vel
þekktra alþýðulaga og þátta úr
söngleikjum og óperum. Kór-
inn naut sín prýðilega undir
traustri stjórn Jónínu Ernu
Arnardóttur við stórgóðan
undirleik Súsönnu Budai. Við-
bót Steinunnar Pálsdóttur með
harmonikuundirleik í tveimur
fyrstu lögunum skapaði viðeig-
andi stemningu.
Svo hafði Samkórinn fengið
hana Diddú, Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur, til liðs. ITún
söng með kórnum en einnig
ein og sér í nokkrum lögum. Að
venju hreif hún alla viðstadda
með söng sínum - og leik, sem
hún brá á með eigin hætti þar
sem við átti. Vögguvísuna
Hvert örstutt spor söng Diddú
án undirleiks sem lokalag þess-
ara ágætu tónleika þannig að
hápunktur varð. I hléinu höfð-
um við Oli á Hundastapa m.a.
rætt árangurstengd laun.
Viðtökur hrifinna tónleika-
gesta voru sannarlega árang-
urstengdar söng hins ástsæla
listamanns.
Samkór Mýramanna og Jón-
ínu söngstjóra er óskað til ham-
ingju með árangur vetrarstarfs-
ins til þessa og þakkað fyrir afar
ánægjulega söngstund í Borg-
arnesskirkju.
Bjami Guðmundssm.
Leikdeild umf. Skallagríms sýnir:
7. sýning fimmtudaginn 13. mars kl: 21:00
Aukasýning laugardaginn 15. mars kh 20:00
Miöapantanir í síma 865-7117'
Lf U
ATH Allra síðustu sýningar.
✓ CHtC 1 1
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
NÝTTÁ SÖLUSKRÁ
MÁVAKLETTUR 3, BORGARNESI
Einbýlishús 138,5 ferm., byggt úr timbri 1982, ásamt
steyptri plötu undir 38,3 ferm. bflskúr. Forstofa
1 flísalögð. Stofa og gangur parketlagt. Fimm herb.
1 dúklögð, skápar í þremur. Baðherb. flísalagt,
sturta/kerlaug. Eldhús parketlagt, viðarinnr. Geymsla
og þvottahús. Heitur pottur.
Verð: 11.900.000.
II /
-ÖKUSKÓLI VESTURLANDS-
MEIRAPROF
AKRANES/BORGARNES
ÁÐUR AUGLÝST
MEIRAPRÓFSNÁMSKEIÐ, HEFST
MÁNUDAGINN 17 MARS
*
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
VILHJÁLMUR GÍSLASON,
ÖKUKENNARI
SÍMI: 862-1308