Skessuhorn - 12.03.2003, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003
onC.d9UtlU^
Magniís Oililsson
S
Ur skuldabasli í tveggja milljarða eign
Ævintýraleg eignaaukning
Akraneskaupstaðar í orkujýrirtœkjum
Viðsnúningurinn hófst með stofnun Akranesveitu
Ofanritaðar fyrirsagnir
voru eftir mér hafðar í við-
tali, sem birtist í febrúar-
blaði Framtaks, blaði Sjálf-
stæðismanna á Akranesi. I
tilefni þess er mér send
kveðja 27. febrúar sl. í
Skessuhorni frá þremur fé-
lögum, sem nota stóra titla,
þ.e. bæjarstjórinn á Akra-
nesi, forseti bæjarstjórnar
Akraness og formaður bæj-
arráðs Akraness. M.a.
finnst þeim ég vera að eigna
mér að hafa kveðið „Lilju“
sem þeir séu hinir einu
réttu höfundar að ef ég skil
þá rétt eða eins og þeir orða
það, „sem þeir beri fulla á-
byrgð á“.
Ekki ætlaði ég mér að
fjalla um þetta mál frekar á
síðum Skessuhorns, en þar
sem þeir félagar gefa upp
boltann á þeim leikvangi vil
ég ekki skorast undan leik
þar. Eg mun svara þessu
með „Lilju“ seinna, en
vegna þess að margir les-
endur Skessuhorns hafa
ekki séð umrætt eintak af
Framtaki, sem einungis var
borið í hús á Akranesi, tel
ég rétt að gera nokkra grein
fyrir málinu.
Á árunum 1993-95 fór
fram mikil umræða um
málefni Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar. Árið
1994 nam hallinn á HAB 61
milljón króna og til viðbót-
ar var halli á Undirbúnings-
félagi Orkubús Borgarfjarð-
ar upp á nokkra tugi millj-
óna. Á þennan hátt hækk-
aði neikvæð eiginfjárstaða
fyrirtækjanna ár frá ári og
var orðin neikvæð um sam-
tals 1221 milljón króna í
árslokl995. Bæði þessi fyr-
irtæki voru í raun gjald-
þrota, en voru ekki gerð
upp sem slík, enda rekin á
ábyrgð þeirra sveitarfélaga,
sem að veitunni stóðu og
ríkisábyrgð á lánum. Jafn-
framt þessu var verðlag á
heita vatninu mjög hátt.
T.d. er í greinargerð frá
þessum tíma bent á að verð
á kWh hjá Hitaveitu
Reykjavíkur sé 0,94 kr en
2,53 kr hjá HAB. Verð
HAB á orku til upphitunar
var því 170% hærra en verð
í Reykjavík. I sömu grein-
argerð kom einnig fram að
miðað við óbreytt ástand
yrði ekki hægt að lækka
orkuverð næstu 25 árin.
Þessi mikli verðmismun-
ur var þrátt fyrir að ríkis-
sjóður hafði árið 1987 gert
alvarlega tilraun til að koma
HAB á viðunandi rekstrar-
legan grundvöll m.a. með
því að yfirtaka 220 milljón-
ir króna af skuldum veit-
unnar, enda féllust sveitar-
félögin á að yfirtaka lán að
upphæð 155 milljónir
króna. Skuldum sveitarfé-
laganna var ekki dreift á
sveitarfélögin, en þess í
stað stofnað Undirbúnings-
félag Orkubús Borgarfjarð-
ar (UOB) um þá skuld í von
um að félagið yrði síðar
þess umkomið að greiða
skuldina. Þessi tilraun
mistókst og árið 1995 voru
skuldir UOB komar í 455
milljónir króna, þrátt fyrir
að Rafveita Akraness hefði
greitt stærsta hlutann af
vaxtagreiðslum félagsins.
Engar eignir voru til á móti
skuldum UOB.
Vandinn var því tvíþætt-
ur. Stöðugur hallarekstur
og vaxandi neikvæð eigin-
fjárstaða ásamt mjög háu
orkuverði, sem engin von
var til að hægt yrði að lækka
næstu 25 árin.
Á árinu 1995 var ákveðið
að fara svokallaða bæjar-
veituleið. Akranesveita var
stofnuð og ríkið lagði fram
180 milljónir króna og
eignaðist hlut í HAB, sem
jafnframt var breytt í að-
veitufyrirtæki.
Við sameiningu Akranes-
veitu við Orkuveitu Reykja-
víkur tæpum sex árum síðar
lækkar gjaldskráin um 30%
að sögn meirihlutans, þegar
tekin var upp gjaldskrá OR.
Ástæða er til að skoða orku-
verðin úr fyrrnefndri grein-
argerð örlítið betur, 2,53
kr/kWh hjá HAB og 0,94
kr/kWh í Reykjavík. Til
þess að komast í Reykjavík-
urverð þarf að lækka verð
HAB um 1,59 kr/kWh.
Hve stór hluti af þessari
lækkun er fyrrnefnd 30%
lækkun? 30% lækkun til að
komast niður í Reykjavíkur-
verð nemur ekki nema 0,41
kr/kWh eða einum fjórða
hluta af mismuninum. I
hverju lágu þrír fjórðu hut-
ar lækkunarinnar? Hvar
liggur mismunurinn? Mis-
munurinn liggur í þeim
verðlækkunum, sem samið
var um þegar Akranesveita
var stofnuð, lækkunum
Akranesveitu ásamt því að
fyrir kom að verðhækkanir
hjá Akranesveitu voru
minni en í Reykjavík þegar
verð hækkaði þar. Þessi
mismunur nemur alls 1,18
kr og er allt að þrefaldur á
við sameiningarlækkunina.
Viðsnúningurinn hófst með
stofnun Akranesveitu. I
stað þess að gjaldskrá HAB
væri áfram 170% hærra en í
Reykjavík næstu 25 árin,
eins og sérfræðingar bentu
á, þá tókst með stofnun
Akranesveitu að ná fram
verulegum lækkunum á
fáum árum.
Þegar Akranesveita var
stofnuð voru sett fram á-
kveðin markmið bæði fyrir
HAB og Akranesveitu.
Þrátt fyrir að gjaldskráin
lækkaði mun meira en gert
var ráð fyrir í áætlunum
náðust öll þessi markmið og
vel það, eins og kom fram í
greinargerð er ég sendi
Akraneskaupstað og bar
heitið: „Markmiðin náðust
og vel það“. Bæði var að
skuldir voru greiddar hrað-
ar niður en áætlanir gerðu
ráð fyrir og eins var sjóðs-
staða bæði HAB og Akra-
nesveitu mun betri en áætl-
anir þar um. Sögulegur á-
fangi náðist á árinu 1998,
en þá var eiginfjárstaða
HAB jákvæð í fyrsta sinn.
Stjórn HAB hafði ákveðið
að stefna í verulega lækkun
á gjaldskránni á árinu 2002.
Samt sem áður héldu full-
trúar meirihlutans í bæjar-
stjórn Akraness því fram,
þegar Akranesveita var
sameinuð bæjarskrifstofu
Akraness, að fjárhagsstaða
Akranesveitu væri vonlaus.
Því var t.d. haldið blákalt
fram að Akranesveita gæti
ekki greitt skuldir niður
nema um 8 milljónir króna
á ári. (Skuldir Akranesveitu
og Andakílsárvirkjunar voru
greiddar niður um 74 millj-
ónir króna árið á undan).
Árið á undan hafði hagnað-
ur Akranesveitu numið 15
milljónum króna, hagnaður
Andakílsárvirkjunar 23
milljónum króna og hagn-
aður HAB 54 milljónum
króna. Hin vonlausa fjár-
hagsstaða var svo ástæða
þess að meirihlutinn sagði
mér upp störfum og sam-
einaði veituna bæjarskrif-
stofunni.
Nokkru síðar er Akranes-
veita sameinuð Orkuveitu
Reykjavíkur, sem er ágætt
fyrirtæki með miklar eignir.
Endurskoðendur mátu fyr-
irtækin miðað við skuldir.
Andakílsárvirkjun var metin
á 430-450 milljónir króna.
Akranesveita á 750-920
milljónir króna og HAB á
1190-1250 milljónir króna.
Ut frá þessum niðurstöðum
var eignarhluti Akranes-
kaupstaðar ákvarðaður
5,45% í Orkuveitu Reykja-
víkur. Með því móti á hver
Akurnesingur heldur meira
en hver Reykvíkingur í því
ágæta fyrirtæki. Garðbæ-
ingar eru um þessar mundir
að selja sinn 0,47% hlut í
Orkuveitu Reykjavíkur og
hefur náðst samkomulag
um verð að upphæð um 170
milljónir króna. Sé eignar-
hluti Akurnesinga metinn á
sama hátt er andvirði hans
um 2 milljarðar króna.
Niðurstaðan staðfestir að
málflutningur meirihlutans
í bæjarstjórn byggðist á
mikilli vanþekkingu svo
ekki sé meira sagt og betri
staðfestingu á efni greinar-
gerðar minnar „Markmiðin
náðust og vel það“ er ekki
hægt að fá.
Akranesi 9.3.2003.
Magmís Oddsson
Einu sinni var maður sem hét
Guðmundur. Hann var þeim
galla búinn að þegar vinnufélag-
arnir töluðu um einhvem þá
þóttist hann þekkja hann. Einn
daginn í vinnunni í kaffhléinu
vom menn að tala um Björk
Guðmundsdóttur.
Þá heyrðist í Guðmundi: „Já,
Björk, hún er mi góð stelpa. “
Vinnufélagi: „Guðmundur, þekkir
þú Björk?“
Guðmundur: „Já, hún er mjög
fin. “
Vinnufélagi: „Djöful... kjaftæði
Guðmundur, Við erum komnir með
nógafþessu. Þú þykist þekkja alla. I
guðanna bænum hættu þessu kjafi-
æði og haltu þessufyrir sjálfan þig. “
Nokkmm dögum síðar í vinn-
unni.
Vinnufélagi: „Strákar, Svtakon-
ungur er víst að koma til landsins á
morgun. “
Guðmundur: „Já Svíakonungir.;
það er nú góður karl. “
Vinnufélagi: „Þekkirþú líka Svta-
Guðmundur: „Já,já égþekki hann
mjög vel. “
Eins og áður sagði vom vinnufé-
lagamir búnir að fá sig full sadda
á þessu kjaftæði í Guðmundi og
létu þetta sem vind um eyru
þjóta.
Daginn eftir var Guðmundur
ekki í vinnunni og þótti mönnum
það mjög einkennilegt. Sama
kvöld í fféttum sást Guðmundur
ásamt ríkisstjóminni á Kefla-
víkurflugvelli í móttökunefhd að
taka á móti Svíakonungi. Vmnu-
félagirnir vom mjög hissa og
sumir meira að segja trúðu núna
þessum sögum Guðmundar.
Tveim dögum síðar tdlkynnti yf-
irmaðurinn að hann, ásamt konu
sinni, væri að fara til Italíu og
ætlaði að sjá páfann í Vatíkaninu.
Þá heyrðist í Guðmundi: „Páfinn,
Já, Það ernú góður maður. “
Yfirmaður: „Guðmundur, þekkir
þú núpáfann líka?“
Guðmundur: „Já, já auðvitað, ansi
finn karl en svolítið gamall. “
Yfirmaður: „Guðmundur.; nú geri
ég við þig samning. Þú kemur með
okkur til Italíu og kynnir migfyrir
páfanum.
Efþú þekkir hann skal ég splæsa á
þigferðinni, efhann þekkir þig ekki
splæsir þú. “
Guðmundur: „Samþykkt. “
Guðmundur og yfirmaðurinn
vom komnir í Vatíkanið í messu
og kirkjan var fullsetin.
Þegar messan var búinn gekk
Guðmundur í gegnum mann-
þröngina og upp að púltinu þar
sem páfinn var. Þeir heilsuðust
og töluðu í smá stund saman.
Síðan er Guðmundi litdð yfir
mannþröngina og sér
yfirmanninn þar sem hann liggur
á gólfinu með óráði og fólk
stumrandi yfir honum.
Guðmundur hleypur strax til yf-
irmanns síns og kemur að honum
þegar hann er að vakna aftur til
lífsins.
Guðmundur: „Hvað gerðist?
Varstu svona hissa á þvt' að ég þekkti
páfann?“
Yfirmaður „Nei, nei þegarþú
varst að tala við páfann þá bankaði
Robert DeNiro í öxlina á mér og
spurði mig:
Who is that guy standing beside
Guðmundur?“