Skessuhorn


Skessuhorn - 12.03.2003, Side 11

Skessuhorn - 12.03.2003, Side 11
jntaaunu... MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 11 Deildin kvödd með tapi Skallagrímsmenn enduðu tíma- bilið á botninum eftir naumt tapt í botnslag liðanna tveggja sem voru þegar fallin í fyrstu deild. Skallagrímsmenn heimsóttu Vals- menn á Hlíðarenda í síðustu um- ferðinni á fimmtudag og var leikur liðanna býsna fjörugur. Skallarnir byrjuðu mun betur í leiknum og leiddu með fjórum stigum eftir fyrsta leikhluta. Þeir héldu undirtökunum áfram og á tímabili í öðrum leikhluta voru þeir einráðir á vellinum og komust m.a. í 17 stiga forystu 45 - 28. Þá tóku Valsmenn heldur þetur við sér og skoruðu tólf stig á móti þremur stigum Skall- anna og var staðan í leikhléi 40 - 48. Vals- menn héldu áfram að minnka muninn eftir leikhlé en þá tóku Skallarnir aftur við sér og sigu framúr. í síðasta leikhlutanum var allt í járnum og á síðustu mínút- unum skiptustu liðin á að hafa forystu og eins og oft áður í vetur varð lokamínútan örlagarík fyrir Borgnesinga. Lokatölur urðu 99- 94 Valsmönnum í vil. JoVann Johnson og Egill Egilsson voru bestu menn Skallanna í þessum síðasta leik þeirra í Úrvalsdeild að sinni. Tölurnar - Skallagrímur Nr Nafn Mín HF STO STIG 4 JoVann Johnson 28 4 4 29 5 Hafþór 1. Gunnarsson 31 1 3 10 6 Ari Gunnarsson 20 3 0 7 7 Pálmi Þ. Sævarsson 37 17 7 4 8 Egill Ö. Egilsson 28 6 1 25 10 Pétur M. Sigurðsson 29 0 2 9 13 Valur Ingimundarson 27 6 5 12 Deildabikar Öruggur sigur ÍA IA lék sinn fjórða leik í deildabikar KSÍ á sunnudags- kvöldið gegn íslandsmeistur- um KR. Skagamenn höfðu tapað tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum í keppninni áður en að þessum leik kom og þurftu því nauðsynlega á sigri að halda ætluðu þeir sér að komast áfram í keppninni. Skagamenn hófu leikinn af krafti og komust yfir strax á fimmtu mínútu. Unnar Val- geirsson tók aukaspyrnu frá hægri inn í teig KR-inga, þar sem Grétar Rafn Steinsson stökk manna hæst og hamraði boltann í netið. Mikil barátta einkenndi leik- inn þar sem Skagamenn voru mun grimmari og unnu flest návígi. KR-ingar áttu fá svör við ákveðnum leik Skaga- manna og komust lítt áleiðis. Fyrri hálfleikur var heldur tíð- indalítill ef frá er talið mark Grétars, þó sáust ágætis kaflar inn á milli hjá Skagamönnum. Síðari hálfleikur var vart haf- in þegar einum leikmanni KR var vikið af leikvelli fyrir kjaft- brúk við dómarann. Einum fleiri var aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi. Á 56. mínútu áttu Skagamenn glæsilega sókn sem endaði með því að Garðar Gunnlaugs- son sendi Guðjón Sveinsson einan í gegn með laglegri sendingu sem aftur afgreiddi boltann snyrtilega í mark KR- inga. Eftir mark Guðjóns drógu Skagamenn sig aftar á völlinn en létu KR-inga um að halda boltanum að mestu leyti. Um miðjan seinni hálfleikinn skor- uðu KR-ingar mark sem dæmt var af vegna rangstöðu við litla hrifningu þeirra röndóttu. Skyndisóknir Skagamanna voru engu að síður hættulegar og úr tveimur slíkum fengu þeir tvö dauðafæri. Nokkrum mín- útum fyrir leikslok komst Jón Pétur Pétursson einn í gegn en skot hans á markið misheppn- aðist og varði markvörður KR auðveldlega. Skömmu síðar flautaði dómarinn til leiksloka og öruggur 2-0 sigur í höfn. Flestir leikmenn Skagaliðs- ins voru að spila vel í leiknum en þó má segja að frammi- staða Grétars Rafns og Helga Péturs Magnússonar hafi stað- ið uppúr. Báðir vörðust mjög auk þess sem Grétar tók virk- an þátt í sóknarleik ÍA. Töluvert af sterkum leikmönnum vant- Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknattleik Félag Leik U T Stig Nett Stig 1. UMFG 22 17 5 2034:1858 176 34 2. Keflavík 22 17 5 2213:1843 370 34 3. Haukar 22 15 7 1972:1881 91 30 4. KR 22 15 7 1938:1801 137 30 5. UMFN 22 13 9 1822:1827 -5 26 6. Tindastóll 22 12 10 1957:1944 13 24 7. ÍR 22 11 11 1907:1969 -62 22 8. Hamar 22 8 14 1984:2122 -138 16 9. Snæfell 22 8 14 1772:1814 -42 16 10. Breiðablik 22 7 15 1964:2054 -90 14 11. Valur 22 5 17 1796:2044 -248 10 12. Skallagrímur 22 4 18 1821:2023 -202 8 Snæfellingar sitja eftir með sárt ennið Misstu af sæti í úrslita- kepnnini á lokasprettinum Snæfellingar misstu af tæki- færinu til að tryggja sér sæti í úr- slitakeppninni í Úrvalsdeildinni í körfuknattleik á lokasprettinum þegar þeir steinlágu fyrir Keflvík- ingum. Fyrir síðustu umferðina benti allt til að Hólmarar væru nokkuð öryggir í úrslitakeppnina, þar sem þeir voru með tveggja stiga forskot á Hamar og þótt ekki væru taldar miklar líkur á að Snæfell næði í tvö stig í Keflavík þá mátti telja enn ólíklegra að Hamarsmenn næðu að leggja Grindvíkinga sem þá þegar höfðu tryggt sér deildarmeist- aratitilinn. Sú varð hinsvegar raunin og Hamarsmenn sem voru í fallbaráttunni þar til í næst- síðustu umferðinni voru þar með komnir upp að hlið Snæ- fellinga en með hagstæðara stigahlutfall úr innbyrðisviður- eignum. Snæfellingar sitja því á KR aði í Skagaliðið í leiknum, t.a.m. voru þeir Gunnlaugur Jónsson, Kári Steinn Reynis- son, Hjálmur Dór Hjálmsson, Baldur Aðalsteinsson, Páll Gísli Jónsson og Ellert Jón Björnsson allir fjarverandi vegna meiðsla. eftir með sárt ennið. Þrátt fyrir ríflega tuttugu stiga mun í leikslok áttu Snæfellingar ekki afleitan leik. Munurinn á lið- unum fólst hinsvegar í breiddinni þar sem Keflvíkingar keyrðu á öllum sínum tíu mönnum en sex leikmenn Hólmara báru hitann og þungann af þeirra leik. Hólmararnir voru vel inni í leiknum í fyrri hálfleik og Keflvíkingar yfir- leitt ekki nema í fimm stiga fjar- lægð eða svo. Staðan í hálfleik var 55 - 49. I seinni hálfleiknum juku heimamenn hinsvegar for- ystuna jafnt og þétt og unnu að lokum sannfærandi, 108 - 83. Helgi R. Guðmundsson og Lýður Vignisson voru bestu menn Snæfellinga í leiknum. Tölurnar - Snæfell Nr Nafn Mín HF STO STIG 5 Andrés M. Heiðarsson 28 1 2 0 7 Jón Ó. Ólafsson 9 0 0 5 8 Helgi R. Guðmundss. 32 4 6 14 10 Sigurbjörn Þórðarson 28 4 1 9 11 Clifton Bush 40 11 2 27 12 Lýður Vignisson 29 2 3 15 14 Hlynur E. Bæringsson 34 9 3 13 Skriðsundsnámskeið Þar sem vel tókst til í haust er fyrirhugað að halda skriðsundsnámskeið 18. mars -10. apríl nk. Leiðbeinandi verður Ingimundur Ingimundarson. Kennt verður í 8 skiptifrá kl. 18-19. Takmarkaður fjöldi. Skráning í Iþróttamiðstöðinni í Borgamesi sími 437 1444. Verð kr. 3.800,- Látið ekki þetta tækifæri ykkur úr greipum ganga. Sunddeild Skallagríms Sjávarréttakvöld mfl. ÍA verður haldið föstudaginn 4. apríl nk. í félagsheimili Vals að Hlíðarenda. Húsið opnar kl. 19.00. Miðaverð óbreytt frá síðasta ári kr. 2.900. Séu keyptir fjórir miðar fæst sá fimmti ókeypis. Kvöldið er haldið til styrktar leikmönnum mfl. ÍA sem halda utan í æfingaferð í apríl og leggja drögin að því að bæta áhangendum liðsins upp síðasta sumar með frekari afrekum á knattspyrnuvellinum. Sérstaklega glæsileg dagskrá í boði: -Stórglæsilegt sjávarréttahlaðborð verður framreitt af Fortuna veislueldhúsi undir stjórn matreiðslumannanna Hijmars Ólafssonar og Ægis Ólafssonar. Leikmenn mfl. ÍA þjóna til borðs. -Veislustjóri: Gísli Einarsson ritstjóri Skessuhorns. -Ræðumaður kvöldsins er Logi Bergmann Eiðsson. -Stefán Hilmarsson og Jón Ólafs leika og syngja. -Herradeild PÓ laðar fram Ijúfa tóna. -Halli Mello kemur og leikur nokkur lög. -Ólafur Þórðarson þjálfari ÍA stígur ípontu og segir nokkur vel valin orð. -Uppboð á fótboltatreyjum, m.a. treyjum Skagamannanna, Þórðar Guðjónssonar leikmanns Bochum og Jóhannesar Karls Guðjónssonar leikmanns Aston Villa og innrömmuð ÍA-treyja árituð af leikmönnum. -Happadrætti þarsem fjöldi veglegra vinninga eru íþoði. Kæru stuðningsmenn, sameinum frábæra skemmtun og stuðning íverki til handa strákunum og mætum öll. í fyrra var fullt út úr dyrum og komust færri að en vildu. Takmarkaður sætafjöldi. - Pantið miða í tíma. Fríar rútuferðir frá Akranesi (auglýst síðar). Miðasala: Gunnlaugur Jónsson 869-6479 og gunnlaugurjonsson@hotmail.com Hjörtur Hjartarson 864-3228 og hjortur@skessuhorn.is Kári Steinn Reynisson 865-7567 og karisteinn@hotmail.com

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.