Skessuhorn - 03.03.2004, Blaðsíða 15
t>n£saunu»~.
MIÐVIKUDAGUR 3.MARS 2004
15
Snæfellingar Deildar-
meistarar í Úrvalsdeild
Snæfell tryggði sér Deildar-
meistaratitilinn í Úrvalsdeild
karla í körfuknattleik síðastliðinn
sunnudag en þetta er fyrsti stóri
titillinn í sögu félagsins. Fram til
þessa hafa suðurnesjafélögin
setið nánast ein að þessum titli
en flestum að óvörum er það lið
Snæfells sem slær þeim við að
þessu sinni.
Að launum fengu Snæfellingar
bikar í leikslok á sunnudag eftir
að þeir höfðu lagt Hauka að velli
í spennandi og skemmtilegum
leik. Deildarmeistaratitlinum fylg-
ir einnig heimaleikjarétturinn í
komandi úrslitakeppni en þar
mæta Snæfellingar Hamri frá
Hveragerði.
Leikurinn á sunnudag var tólfti
sigurleikur Snæfellinga í röð í
deildinni í vetur.
Það fór ekki á milli mála að
það var mikið í húfi því Hólmarar
og aðrir stuðningsmenn Snæ-
fellinga, af öllu nesinu, úr Borg-
arfirði og víðar, fjölmenntu á leik-
inn og voru greinilega staðráðnir
í að fylgjast með sínum mönnum
landa titli. Snæfellingar voru
sterkari framan af en Haukarnir
stóðu vel í þeim og um miðbik
leiksins virtust heimamenn
missa einbeitinguna en þá
komust Haukarnir yfir um tíma
og má leiða að því getum að
leikmenn Snæfelis hafi verið
farnir að gjóa augunum óþarf-
lega mikið í átt að bikarnum sem
stóð við hliðarlínuna. Snæfelling-
ar voru hinsvegar mun sterkari á
endasprettinum og fór þar
fremstur í flokki Edmund Dotson
sem sýndi frábær tilþrif á köflum.
Lokatölur urðu 79 - 69 Snæfell-
ingum í vil og í leikslok brutust út
gríðarleg fagnaðarlæti enda titill
í höfn.
Lýður Vígnisson átti mjög
góðan leik, einn sinn besta í vet-
ur án efa, Hlynur Bæringsson var
fyrnasterkur eins og ávallt og
Hafþór Ingi Gunnarsson átti
góða spretti.
Framar vonum
Bárður Eyþórsson þjálfari
Snæfells var að vonum ánægður
með sína menn í leikslok en tók
samt fram að ekki væri nema
einn áfangi í höfn en framundan
er úrslitakeppnin þar sem barist
er um sjálfan íslandsmeistaratit-
ilinn. „Þetta er mjög sætur sigur
Góðurskriðurá
Skagamönnum
Það er góður skriður á Skaga-
mönnum en þeir lögðu FH-inga
nokkuð sannfærandi í deildar-
bikarkeppninni í knattsp.,
skoruðu fjögur mörk en fengu á
sig eitt. Varnarjaxlinn Reynir
Leósson skoraði en auk hans
voru það Kári Steinn Reynisson
og Julian Jonsson sem skoruðu
sitt hvort markið, FH-ingar
lögðu þeim svo lið með að setja
boltann sjálfir í eigið net. -háp
og gaman að ná fyrsta alvöru
titlinum hér í hús enda hafa bæði
leikmenn og áhorfendur unnið
fyrir honum í vetur,“ segir Bárð-
ur sem þakkar þennan árangur
fyrst og fremst sterkri liðsheild
og góðri stemmingu í leik-
mannahópnum utan vallar sem
innan. „Við erum með geysi-
sterkan hóp þótt hann sé
kannski ekki fjölmennur en þetta
hefur skilað okkur hingað, að-
eins lengra en við stefndum að í
upphafi. Við ætluðum að berjast
um fjórða sætið þannig að þetta
kom okkur nokkuð á óvart.“
Bárður segir að sínir menn séu
ekki saddir efitr þennan áfanga
og er fullviss um að þeir verði
ekki í vandræðum með að ein-
beita sér að næsta verkefni sem
Síðastliðinn mánudag var að
nýju tekið til við aðalsveita-
keppni Briddsfélags Borgar-
fjarðar og spilaðar tvær umferð-
ir. Nokkur spenna var í lofti því
efstu sveitirnar áttust allar við
innbyrðis. Sveit Bifrestinga lék
við sveit Kristjáns í Bakkakoti og
mátti játa sig sigraða með 12
stigum gegn 18 og með því
mjakast Kristján nær Bifresting-
um á toppnum. Sveit Svanhild-
ar sýndi sveit Þorsteins á Hömr-
um enga miskunn en þessar
sveitir voru í þriðja og fjórða
sæti. Leikurinn endaði 24-6 fyr-
ir Svanhildi. Þessar ófarir Þor-
steins nýtti sveit Halldóru í
Reykholti til að máta fjórða sæt-
ið með því að vinna sveit Egils í
er úrslitakeppnin og þar ætli
þeir sér að sjálfsögðu sem
lengst. Þess má samt geta að í
millitíðinni er síðasti leikurinn í
deildinni, gegn KFÍ á ísafirði
annað kvöld.
Snæfellingum sérstaklega fyrir
þann þátt þegar hann afhenti
bikarinn í leikslok. Heimamenn
sýndu stuðning sinn enn frekar í
verki þegar titillinn var í höfn og
afhenti Lionsklúbbur Stykkis-
hólms Körfuknattleiksdeild
Snæfells 100 þúsund króna
styrk og Stykkishólmsbær færði
deildinni 500 þúsund krónur fyrir
góða frammistöðu í vetur.
Örnólfsdal 23-7. í seinni umferð
kvöldsins áttust m.a. annars við
sveitir Halldóru og sveit Bifrest-
inga. Sveit Halldóru hafði unnið
fimm leiki í röð og stefndi rak-
leiðis í verðlaunasæti. En sveit
Halldóru reyndist lítil hindrun fyr-
ir Bifrestinga og fór leikurinn 25-
4 fyrir þá.
Sveit Kristjáns sigraði seinni
leikinn stórt og virðist nú eina
sveitin sem einhverja möguleika
á til að velta Bifrestingum úr
sessi, þó möguleikinn sé ekki
stór. Staðan að loknum 12 um-
ferðum er þessi:
Sveit Bifrestinga 241
Sveit Kristjáns 223
Sveit Svanhildar 212
Sveit Þorsteins 196
Sveit Halldóru 188 MM.
Styrkir
Sem fyrr segir
Tölurnar - Snæfell voru áhorfendur
Nr Nafn Mín HF STOSTIG vel með á nótun-
4 Hlynur E Bæringsson 30 12 2 8 um í Hólminum á
5 Andrés M Heiðarsson 14 3 0 0 sunnudag líkt og í
6 Corey Dickerson 26 2 7 12 allan vetur en öll
8 Lýður Vignisson 12 0 0 11 umgjörð í Stykkis-
9 Hafþór 1 Gunnarsson 20 2 6 5 hólmi hefur vakið
11 Sigurður Á Þorvaldss 24 4 1 0 verðskuldaða at-
14 Edmund Dotson 34 7 0 20 hygli og hældi Ó-
15 Dondrell Whitmore 40 9 4 23 lafur Rafnsson
Sveitakeppni
í Borgarfirði
/ \
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
FASTEIGNIR í BORGARNESI
ARNARKLETTUR 14, Borgarnesi
Raðhús 112,4 ferm.
Forstofa flísalögð. Hol,
gangur og stofa
parketlagt. Þrjú herb.
dúklögð. Eldhús
dúklagt, ljós innrétting.
Baðherb. allt flísalagt,
ljós innr. Þvottahús og búr. Eign í góðu ástandi.
Verð: 12.500.000.
BÖÐVARSGATA 2, Borgarnesi
íbúð á neðri hæð í
tvíbýlishúsi og brlskúr,
íbúð 113 ferm. og
bílskúr 36 ferm.
Forstofa flísalögð.
Stofa, borðstofa og
gangur teppalagt.
Eldhús með korkflísum á gólfi, nýleg viðarinnrétting.
Baðherb. allt flísalagt, ljós viðarinnr. Þrjú herbergi,
tvö parketlögð og eitt dúklagt. Þvottahús og geymsla.
Góð staðsetning.
Verð: 12.900.000.
HRAFNAKLETTUR 6, Borgarnesi
íbúð á 3. hæð í
fjölbýlishúsi, 96 ferm.
Hol og stofa flísalagt.
Eldhús dúklagt,
viðarinnr. Baðherb.
dúklagt. Þrjú herbergi,
tvö með korkflísum en
eitt dúklagt. Sérgeymsla og sameiginl. geymsla og
þvottahús í kjallara.
Verð: 9.500.000
Allar núnari upplýsingar á skrifstofu.
Ingi Tryggvason hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61, 310 Borgarnes,
s. 437 1700, 860 2181, fax 437 1017,
netfang: lit@isholf.is vejfang: simnet.is/lit
QO .
li
Laugardaginn 13. mars kl. 19:30
íþróttamiðstöðinni Jaðarshökkum
Boðið verður upp á sjávarréttahlaðborð
Veislustjóri: Ingibjörg Pálmadóttir
Rœðumaður: Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Dagskrá: ArdísÓlöfVíkingsdóttir,„ldoi" A
I \ Smári Vífilsson, tenór mvJpk.
Helga l. Guðjónsdóttir
Þorsteinn Gíslason
Fjöldasöngur
Övœnt skemmtiatriði
Tískusýning frá Nínu og Bjargi
Uppboð á listaverkum
Happdraetti
Þema kvöldsins er: Eitthvað bleikt
Miðaverð: 3.000 kr.
Forsala er í
Fasteignamifolim Vesturlands sími 41
Kvennanefnd Knattspymufélags IA