Skessuhorn - 14.04.2004, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 2004
únC.9dUtU/^
Kaffihúsa-konsert í Tónlistarskólamnn
Laugardaginn 17. apríl nk
stendur Tónlistarskóli Borgar-
fjarðar fyrir Kaffihúsa-konsert
frá kl. 15:30 -18:00 í Tónlistar-
skólanum að Borgarbraut 23.
Þar munu nemendur flytja fjöl-
breytta tónlistardagskrá, verður
meðal annars leikið á hin ýmsu
hljóðfæri og flutt lög úr söng-
leikjum. A meðan gestir njóta
tónlistarinnar geta þeir keypt
sér kaffi og meðlæti.
(Tréttatilkynning)
Þórunn Reykdal, Anna Heiða Baldursdóttir, Margrét Lilja Gunarsdóttir
og Lára Kristín Gísladóttir.
Dráttarvéladagnr á Hvanneyri
Næstkomandi laugardag,
þann 17. apríl, verður haldin há-
tíð á Hvanneyri helguð hinu
merka tæki, sjálfri dráttarvélinni.
Boðið verður upp á fjölbreytta
dagskrá þar sem gestum og
gangandi gefst m.a. kostur á að
berja augum dráttarvélar af öll-
um stærðum og gerðum og á
ýmsum aldri, allt frá forngripum
búvélasafnsins að nýjustu ár-
gerðunum ffá vélaumboðunum.
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar stendur fýrir keppni í
akstursleikni á dráttarvélum o
Skólafélag Landbúnaðarháskól-
ans á Hvanneyri stendur fyrir
dráttarkeppni þar sem bændur
reyna með sér í drætti á sínum
vélum.
Hátíðin hefst klukkan 13.00
og líkur með pylsuveislu og
verðlaunaafhendingu kl. 17.00.
Þeir sem hafa hug á að taka
þátt í akstur- eða dráttarkeppni
þurfa að tilkynna þátttöku til:
Lárusar 869-4275
larpet@aknet.is
og Hjalta868-0083
nem.hjaltis@hvanneyri.is
Sameining nauðsynleg
Svæðisfélag Vinstrihreyf-
ingarinnar græns framboðs
(VG) á Akranesi og nágrenni
hélt nýlega opinn fund um
framtíðaruppbyggingu á
Grundartangasvæðinu í ljósi
nýgerðs samnings um samein-
ingu hafna við Faxaflóann.
Frummælendur voru Gísli
Gíslason bæjarstjóri Akranes-
kaupstaðar, Arni Þór Sigurðs-
son forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur, Jón Haukur
Hauksson hreppsnefndarmað-
ur í Hvalfjarðarstrandahreppi
og Brynjólfur Þorvarðarson
kennari í Heiðarskóla. Auk
þess flutti Jón Bjarnason þing-
maður VG í Norðvesturkjör-
dærni stutt ávarp í lok fundar-
ins.
Frummælendur voru sam-
mála um að miklir möguleikar
væru til uppbyggingar á
Grundartangasvæðinu og að
áhrif hennar á mannlíf og at-
vinnustarfsemi á Vesturlandi
yrði jákvæð. Einnig kom fram
í máli þeirra að núverandi fyr-
irkomulag skipulags- og sveit-
arstjórnarmála á svæðinu væri
þröskuldur í vegi þeirra fram-
fara sem fyrirsjáanlegar eru.
Fjörugar umræður urðu að
loknum framsöguerindum og
komu þá meðal annars fram á-
hyggjur vegna umhverfisáhrifa
vegna aukinna umsvifa á svæð-
inu, bæði af völdum stóriðju-
vera en einnig vegna ýmis
konar hafnsækinnar starfsemi.
I máli Jóns Bjarnasonar í lok
fundar kom fram að samfélag-
ið og umhverfið væru rétt að
byrja að búa sig undir þær
breytingar sem í vændum
væru. Hann benti á að núver-
andi fyrirkomulag skipulags-
mála, þar sem nánast væri sér
skipulag fyrir hvern fermetra,
væri óásættanlegt fyrir samfé-
lagið.
Niðurstaða fundarins má
segja að hafi verið sú að
framundan væru spennandi
tímar uppbyggingar og breyt-
Jón Bjarnason þingmaður VG í
Norðvesturkjördæmi
inga. Nauðsynlegt væri að
umræða um þessar breytingar
færi fram svo sem flestir geti
áttað sig á því sem framundan
er og tekið þátt í fyrirhugaðri
uppbyggingu. Loks væri frek-
ari sameining sveitarfélaga
skilyrði fyrir því að mannlíf,
atvinnuþróun og umhverfis-
mál þróist með þeim hætti
sem best væri á kosið.
Karlakór Rangæinga á ferð
Karlakór Rangæinga ásamt
Signýu Sæmundsdóttur halda
tónleika að Lyngbrekku föstu-
daginn 23. apríl kl. 20.30.
stjórnandi kórsins er Guðjón
Halldór Oskarsson, undirleik-
arar eru þeir Bjarni Þór Jón-
atansson og Grétar Geirsson.
Tónleikarnir verða endur-
teknir í Olafsvíkurkirkju laug-
ardaginn 24.apríl kl. 14.00 og í
Grundarfjarðarkirkju sama
dag kl.17.00. Efnisskrá er fjöl-
breytt ma. lög eftir Björgvin Þ.
Valdimarsson og úr Kátu ekkj-
unni.
(fréttatilkynning)
Miirningatónleikar í sumar
Hópur manna á utanverðu
Snæfellsnesi hyggst standa fyr-
ir minningartónleikum í sumar
um Kristinn Kristjánsson eða
Didda í Bárðarbúð en hann
lést nú í vetur. Fyrirhugað er
að tónleikarnir verði á íþrótta-
vellinum á Hellissandi á Sand-
aragleði sem verður 16 - 18
júlí nk.
Menning á Reykhólum
sumardaginn fyrsta
Reykhólahreppur stendur
fyrir menningardagskrá á
Reykhólum í Austur-Barða-
strandarsýslu sumardaginn
fyrsta 22. apríl.
Dagskráin hefst með opnun
myndlistarsýningar kl. 13:00 í
Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Barmahlíð(efri hæð) þar sem
Guðmundur Björgvinsson
myndlistarmaður mun sýna
verk sín. Kl. 14:00 hefst síðan
dagskrá í íþróttasal Reykhóla-
skóla þar sem Eivör Pálsdóttir
söngkona frá Færeyjum og
Þórunn Valdimarsdóttir sagn-
fræðingur og rithöfundur koma
fram. Eivör syngur eigin lög
og annarra og Þórunn mun lesa
úr verki sem hún er með í
smíðum um Matthías Jochums-
son, en hann fæddist einmitt í
Reykhólasveit á 19. öld. Að-
gangur er ókeypis.
í Hjúkrunar- og dvalarheim-
ilinu Barmahlíð hefst kl. 15:00
sama dag árlegur Barmahlíðar-
dagur þar sem seldar verða
kaffiveitingar og sýndar ýmsar
hannyrðir sem íbúar heimilisins
hafa unnið.
Þetta er í annað sinn sem
Reykhólahreppur stendur fyrir
menningaruppákomu á sumar-
daginn fyrsta, en sama dag í
fyrra lásu tveir rithöfundar úr
verkum sínum og tveir tónlist-
armenn léku á hljóðfæri.
Enda þótt Reykhólahreppur
tilheyri Vestfjarðakjálkanum
eru Reykhólar einungis í 230
km fjarlægð (tæpa 3 tíma) frá
höfuðborgarsvæðinu. Bundið
slitlag er 95% leiðarinnar.
Fólk er því boðið velkomið
til Reykhóla á sumardaginn
fyrsta!
(Fréttatilkynning)
Askorun til stjómar
V.L.F.A.
Ég, undirritaður, skora á
stjórn Verkalýðsfélags Akra-
ness að fara að lögum félags-
ins og leggja fram ársreikn-
inga fyrir árið 2002 og halda
aðalfund fyrir árið 2003.
Enn fremur skora ég á stjórn
Verkalýðsfélags Akraness að
standa við kosningaloforðin
sem voru m.a. „ að viðhafa
lýðræðisleg vinnubrögð í
Verkalýðafélagi Akraness“
og að halda trúnaðarráðs-
fundi reglulega.
Enn fremur má minna á
að eitt af stefnumálum A -
listans í kosningunum var að
efla lýðræðislega kjörnar
stjórnir og nefndir innan fé-
lagsins. Því miður virðist
þróunin hafa verið þveröfug
og vald og ákvarðanatökur
hafa færst á æ færri hendur.
Undirritaður skorar á
stjórnina að breyta þessu.
Það þýðir ekki að dæma aðra
og fara í sama farið sjálfur.
Georg Þorvaldsson félagi í
Verkalýðsfélagi Akraness