Skessuhorn - 14.04.2004, Blaðsíða 11
ú&E,S3UI1u>..
MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 2004
11
Erlendur leikmaður
hjá Skagamönnum
Skagamenn hafa fengið
liðsauka frá Kanada, en í
dag kom leikmaðurinn Alen
Marcina. Alen þessi er 25
ára gamall sóknarleikmaður
sem spilað hefur með
kanadíska liðinu Ottawa
Wizards en spilaði áður
með belgíska liðinu Genk á
sama tíma og Þórður Guð-
jónsson, sem ber honum
góða söguna. Alen hefur
nýverið gert þriggja ára
samning við gríska liðið
POAK, en vill komast í gott
leikform og spila í sumar. Ef
Alen fellur vel í Skagaliðið
og samningar nást mun
hann spila með Skaga-
mönnum framan að tímabil-
inu eða fram til ágúst.
Öldungamót
í blaki
Það má búast við fjöl-
menni á Akranesi þegar 29.
öldungamót blaksambands
íslands verður haldið dagana
22. - 24. apríl. Þá munu 650
blakarar keppa og dvelja í
bænum á meðan mótið
stendur yfir. Áttatíu lið eru
skráð til leiks og verður spil-
að í 7 kvenna deildum, 4
karla deildum auk öðlinga-
deild kvenna og Ijúflinga-
deild karla. Spilað verður í
báðum íþróttahúsunum frá
morgni til kvölds.
Margir keppendur gista á
Akranesi og er nokkuð um
að liðin taki heilu íbúðarhús-
in á leigu meðan á keppni
stendur. Mótinu lýkur svo
með lokahófi sem haldið
verður á Jaðarsbökkum á
laugardagskvöldið.
Skagamenn
komnir í
8 liða
Skagamenn sigruðu Vals-
menn 2-0 þegar liðin mætt-
ust á Leiknisvellinum í rign-
ingu og kalsa veðri s.l. mið-
vikudag. Leikurinn var frekar
tilþrifalítill framan af þar til
vinstri fótar leikmaðurinn
knái Guðjón H. Sveinsson
skoraði með hægri af 40
metra færi. Valsmenn komu
sterkir inn í seinni hálfleik og
jöfnuðu fljótlega leikinn. í
kjölfar jöfnunarmarksins
urslit
gerðu Valsarar harða hríð að
marki Skagamanna. Skaga-
menn sneru hins vegar leikn-
um sér í hag með marki Stef-
áns Þórðarsonar sem skor-
aði beint úr aukaspyrnu um
miðjan síðari hálfleik. Eftir
það var sigur Skagamanna
aldrei í hættu.
Skagamenn leiða nú B rið-
il, eru með 15 stig eftir 6 leiki
og eru tryggir í 8 liða úrslit
fyrstir liða. -háp
Stórtap
Skallagríms
Skallagrímur fékk heldur
slæma útreið gegn Huginn frá
Seyðisfirði í neðri deild deild-
arbikarkeppninnar í knatt-
spyrnu síðastliðinn miðviku-
dag en Seyðfirðingar skoruðu
tíu mörk en Borgnesingar
ekki eitt einasta. Seyðfirðing-
ar hafa eytt mest öllu sínu
púðri á Skallana því þeir voru
auðveld bráð fyrir Víking
Ólafsvík sem sigraði þá dag-
inn eftir með sex mörkum
gegn tveimur.
Víkingur er í 2. sæti riðilsins
með 7 stig eftir 3 leiki en
Skallagrímur er í 3. sæti með
4 stig eftir 4 leiki.
Snæfell. Deildarmeistarar og silfurverðlaunahafar.
Snæfellingar náðu ekki að sigrast á stórveldi Keflvíkinga
Annað sætið niðurstaðan
eftir glæsilega frammistöðu
Ágætlega sáttir segir Bárður Eyþórsson þjálfari
Keflvíkingar urðu íslands-
meistarar í körfuknattleik
karla eftir sigur á Snæfelling-
um í fjórða leik liðanna í úr-
slitaviðureign íslandsmótsins
síðastliðinn laugardag. Snæ-
fell sigraði í fyrsta leiknum 80
- 76 en Keflvíkingar jöfnuðu á
heimavelli sínum 104 - 98. í
þriðja leiknum komust Kefl-
víkingar yfir með sigri í Hólm-
inum, 79 - 65 og það var því
Ijóst að Snæfellinga beið erfitt
verkefni á laugardag. Keflvík-
ingar eru með landsliðsmenn
í öllum stöðum og mun
reynslumeira lið en Snæfell-
ingar og til að bæta gráu ofan
á svart var Corey Dickerson í
leikbanni, en hann var búinn
að eiga býsna góða spretti í
úrslitakeppninni. Snæfellingar
hafa hins vegar sýnt það í vet-
ur og þá sérstaklega í vor að
þeim er ekki alls varnað. Þeir
komust hins vegar ekki mikið
áleiðis gegn hungruðum Kefl-
víkingum sem sigruðu örugg-
lega 87 - 67 og hömpuðu þar
með íslandsmeistaratitlinum
sem fyrr segir.
Þrátt fyrir að stuðnings-
menn Snæfells hefðu gjarna
viljað sjá sína menn með gull-
medalíu um hálsinn þá breytir
það því ekki að 2. sætið er
sannarlega glæsilegur árang-
ur hjá Snæfellingum sem
komu upp úr 1. deildinni fyrir
síðasta keppnistímabil. Ár-
angur Snæfells hefur vakið
verðskuldaða athygli enda
hefur það sýnt sig á loka-
sprettinum að stuðningur við
liðið nær langt út fyrir bæjar-
mörk Stykkishólms. Þá hafa
stuðningsmenn liðsins einnig
sett skemmtilegan svip á ís-
landsmótið í vetur og
umgjörðin á heimaleikjum
Snæfells hefur verið til mikill-
ar fyrirmyndar.
Það var Corey Dickerson
sem var stigahæstur Snæfells
í úrslitakeppninni þrátt fyrir að
hann missti af síðasta leikn-
um en hann skoraði 163 stig.
Edmund Dotson skoraði 146
stig og Dondrell Whitmore
141. Hlynur Bæringsson skor-
aði 126 stig en hann tók
hvorki fleiri né færri en 152
fráköst í þeim níu leikjum sem
liðið lék í úrslitakeppninni.
Spútniklið vetrarins
„Við erum ágætlega sáttir
þótt við hefðum náttúrulega
gjarnan viljað krækja í gullið
fyrst það var svona nálægt
okkur,“ segir Bárður Eyþórs-
son þjálfari Snæfells. Hann
hafnar því hins vegar að hans
menn hafi verið orðnir „sadd-
ir“ eftir deildarmeistaratit-
ililinn og sex sigurleiki í röð í
úrslitakeppninni. „Við ientum
í erfiðleikum sóknarlega á
móti Keflvíkingum, sérstak-
lega í síðustu tveimur leikj-
unum. Síðan munaði vissu-
lega um Dickerson í loka-
leiknum en við hefðum átt
að geta leyst það betur.
Það má vera að spennan
hafi haft sitt að segja enda
höfum við ekki verið í þess-
ari stöðu en menn voru alls
ekki saddir og lögðu sig
fram af fullum krafti allt til
enda. Við gerðum okkur
grein fyrir hvað við var að
fást og ég held að deildar-
meistaratitill og 2. sætið á
mótinu sé ágætlega viðun-
andi. Það er allavega á
hreinu að við erum
spútniklið vetrarins."
Allir leikmenn áfram
Bárður segir það komið á
hreint nú þegar að allir ís-
lensku leikmennirnir verði á-
fram hjá félaginu og þegar
sé farið að vinna í að bæta
við mannskap. Hann segir
að hins vegar sé enn óráðið
með þjálfarann. „Það á eftir
að koma í Ijós en það gæti
alveg farið svo að ég hætti,“
segir Bárður og neitar því að
önnur lið séu hugsanlega á
höttunum á eftir honum.“
Hann segir heldur ekki liggja
fyrir hvort erlendu leik-
mennirnir verði áfram. „Það
kemur allavega ekki í Ijós
fyrr en eftir KKÍ þingið sem
verður í byrjun maí. Það er
ekki ólíklegt að reglunum
um fjölda erlendra leik-
manna verði breytt. Ég er
sjálfur þeirrar skoðunar að
það eigi að leyfa tvo erlenda
leikmenn í hverju liði en það
á ekki að fara neðar. Menn
geta lært mikið af erlendu
leikmönnunum og þeir gera
deildina skemmtilega en þrír
útlendingar er of mikið.
Mörg lið hafa það mikla
breidd að þeir hafa ekkert
við þrjá útlendinga að gera.
Það horfir hinsvegar öðru-
vísi við litlu liðum eins og
okkur sem erum að reyna að
stækka æfingahópinn með
erlendum leikmönnum."
Að lokum segir Bárður að
Snæfellingar ætli sér að vera
áfram í baráttunni um titilinn
á næsta keppnistímabili
fyrst þeir hafi fundið lyktina
af gullinu í vetur.
GE