Skessuhorn


Skessuhorn - 21.04.2004, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 21.04.2004, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 2004 saissunúBií Til minnis Blakmót öldunga á Akranesi frá fimmtudegi til laugardags í umsjón Blakfélagsins Bresa. Um sjöhundruð misaldraðir blakarar munu blaka öllu sem til er í íþróttahöllum Akraness um helgina. Hallar Akraneskaup- staður undir flatt? Nei stendur teinrétt og er alltaf í sókn. Sveinn Kristinsson er forseti bæjarstjórnar Akranes- kaupstaðar en í ársreikningi kauþstaðarins fýrir árið 2003 kemur fram nokkur hallarekst- ur eða uppá 74 mkr. Veðwrhorfivr Sumarið hér á Vesturlandi byrjar blautt, því á föstudag og laugardag mun rigna töluvert. Þá mun vind lægja og á sunnu- dag er taiið að það muni stytta upp. Hiti verður á bilinu 7-1 I stig. Spnrniruj viknnncir I síðustu viku var spurt: Hefurðu staðið við áramóta- heit þitt? Niðurstöður urðu eftirfar- andirjá, svo sannarlega sögðu 14,8%. Já, eða sko næstum því I 1,1%. Nei, reyndi samt 7,4%. Nei, féll strax I 1,1% og 55,6% sögðust ekki hafa strengt heit I þessari viku er spurt: Ætlarðu að ferðast innan- lands í sumarfríinu? Takið afstöðu á www. skessuhorn. is Vestlendinfjftr vikftnnetr Er Konráð Andrésson f o r s t j ó r i Loftorku Borgarnesi en fyrirtækið var útnefnt fyrirtæki árs- ins í Borgarbyggð í gær. Kon- ráð var annar tveggja stofn- enda Loftorku fyrir 42 árum og hefur starfað við fyrirtæk- ið síðan. Skólafélag LBH mótmælir því að nemendur fái ekki fulltrúa í háskólaráði nýs Landbúnaðarháskóla Svívirðileg móðgun og lögbrot Skólafélag Landbúnaðarhá- skólans á Hvanneyri hefur óskað eftir fundi með landbúnaðar- nefhd Alþingis til að ræða um frumvarp til laga um breytingu á lögum um búnaðarfræðslu nr. 57/1999. Frumvarpið fjallarm.a. um stofnun Landbúnaðarhá- skóla Islands sem komi í stað Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Rannsóknarstofn- unar landbúnaðarins. Nemendur eru mjög ósáttir við að ekki skuli vera rætt við þá varðandi fyrirhugaðar breyting- ar. Einkum er óánægja með breytta samsetningu háskólaráðs en samvkæmt þingsályktunartil- lögunni er ekki gert ráð fyrir fulltrúa frá nemendum í há- skólaráði Landbúnaðarháskóla Islands. A aðalfundi Skólafélags Land- búnaðarháskólans á Flvanneymi sem haldinn var í gærkvöldi var samþykkt áfyktun þar sem segir m.a. „Þessi ráðstöfun, að ætla nemendum ekki fulltrúa í há- skólaráð er svívirðileg móðgun við þá lýðræðishugsun sem hef- ur hingað til einkennt háskóla í landinu og jafnframt víðast hvar í heiminum. Sjá t.d. Bologna samþykktina frá 1999, þar sem menntamálaráðherrar Evrópu á- réttuðu mildlvægi sjálfstæðis og sjálfræðis meðal menntastofn- ana. Sú ætlan að skipa hvorki full- trúa nemenda né kennara í há- skólaráð mun birtast í því að ráðið getur ekki fjallað um mál- efhi sem snúa beint að innra starfi stofhunarinnar því þekk- ingu á því mun skorta. Eins er með þessari ráðstöfun stórlega skertir þeir möguleikar nem- enda að leita réttar síns ef þeir geta aldrei skotið málum sínum til háskólaráðs nema þá aðeins með því að leita á náðir annarra fulltrúa. Síðan má benda á að hér er vísvitandi verið að brjóta gegn lögum um háskóla nr. 136/1997. Sú spurning vaknar hvort hér sé um stefhubreytingu að ræða hjá ríkisvaldinu gagnvart nemenda- lýðræði í háskólum landsins og hvort þær kröfur sem gerðar eru til hins akademíska náms við Landbúnaðarháskóla Islands séu aðrar en hjá öðrum ríkisháskól- um. Ef þetta er raunverulegur vilji Landbúnaðarráðuneytisins og þingmanna þá er spurning hvort landbúnaðarfræðslu sé ekki betur borgið innan menntamálaráðuneytis þar sem menn hafa meiri skilning á starfsemi menntastofhana. Að lokum fmnst nemendum LBH það gróf móðgun að þing- menn skuli telja nemendur Há- skóla Islands sem sitja í háskóla- ráði síns skóla hæfari til að velja fulltrúa í háskólaráð Landbún- aðarháskóla Islands.“ Dalabyggð kaupir eyðijarðir Á síðasta fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar var samþykkt að neyta forkaupsréttar á eyðijörð- unum Stóra-Skógi og Skógskoti í Miðdölum en svissnesk hjón voru búin að gera samning við jarðaeigendur um að kaupa jarðirnar á tæpar 80 mkr. Haraldur Líndal sveitarstjóri Dalabyggðar sagði í samtali við Skessuhorn það væri vilji sveitarstjórnar að tryggja að jarðir væru notaðar undir landbúnaðarstarfsemi. Tveir aðilar hafa lýst yfir áhuga sínum til að nýta þessar jarðir undir slíka starfsemi og því hafi verið tekin sú ákvörðun um að neyta forkaupsréttar. Haraldur sagði of algengt að reynt væri að fara fram hjá forkaupsréttar- ákvæðinu við sölu jarða. Ný- lega féll dómur í héraðsdómi Vesturlands vegna sölu jarðar- innar Vogs á Fellsströnd en Dalabyggð fékk ekki tækifæri til að neyta forkaupsréttar þar. Héraðsdómur dæmdi Dala- byggð í vil og segir Haraldur að þar með sé jafnvel komið í veg fyrir að tvær jarðir á Fellsströnd fari úr ábúð, Vogur og Galtar- tunga. Haraldur segir það lyk- ilatriði að halda ábúð og búskap á jörðum í Dalabyggð og því sé rétt að sveitarfélagið grípi inn í og neyti forkaupsréttar ef hægt er að tryggja að þær séu nýttar til búskapar. Samkvæmt heimildum Skessuhorns eru öll útihús á Stóra-Skógi og Skógskoti ónýt og íbúðarhúsin nýtt sem sumar- hús og ólíklegt að búskapur standi undir jarðakaupunum og uppbyggingu útihúsa. Þeir sem hafa sýnt áhuga á að kaupa jarð- irnar eru heimamenn en Skessuhorn hefur ekki heimild- ir um hvernig þeir hyggjast nýta jarðirnar að svo stöddu. Norðurá boðin út og Grímsá hugsanlega einnig Veiðifélag Norðurár hefur tekið ákvörðun um að bjóða ána út frá og með sumrinu 2006 en núverandi leigusamn- ingur við Stangveiðifélag Reykjavíkur rennur út í vertíð- arlok árið 2005. Hugsanlega verður farin sama leið í Veiðifélagi Grímsár og Tunguár en aðalfundur fé- lagins verður haldinn n.k. laugardag. Þar verður rætt um hugsanlegt útboð en fé- lagið hefur sjálft selt veiðileyfi í árnar síð- ustu ár. Glanni í Norðurá. Gylfi ráð- inníKB banka Gylfi Árnason viðskipta- fræðingur hefur verið ráðinn útibússtjóri KB banka í Borgarnesi og mun hann hefja störf fljótlega. Um fjörutíu umsækjendur voru um stöðuna. Gylfi er búsetmr í Borgar- nesi en hann hefur undan- farin ár starfað sem aðalbók- ari Norðuráls á Grundar- tanga en þar áður var hann fjármálastjóri Kaupfélags Borgfirðinga. Afmælis- gjafir I tilefni af 15 ára afmæli Bónusverslananna, þann 20 apríl, veitti Bónus styrki til ýmissa góðgerðamála að upphæð 15 milljónir sam- tals. Tveir aðilar af Vestur- landi fengu styrki að þessu tilefni. Torfi Lárus Karlsson, sjö ára drengur í Borgarnesi fékk styrk að upphæð 500 þúsund en hann hefur frá fæðingu glírnt við sjaldgæfan sjúkdóm og þarf að gangast undir viðamikla aðgerð í Bandaríkjunum. Einnig hlaut félagið Þroskahjálp á Vesturlandi styrk að sömu upphæð. / Utafakstur Tvo umferðaróhöpp urðu í umdærni Borgarneslög- reglu síðastlinn mánudag ení báðum tilfellum var um útafakstur að ræða. Annars vegar fór bifreið út af vegin- um við Svignaskarð í Staf- holtstungum og stöðvaðist í vegarskurði en að sögn lög- reglu er talið að bifreiðin hafi lent í lausamöl með um- ræddum afleiðingum. Hitt óhappið varð við Forna- hvamm í Norðurárdal en talið er að bílstjórinn hafi dottað við stýrið. I báðum tilfellum voru ökumenn fluttir á sjúkrahús í Reykjavík en meiðsli þeirra reyndust ekki alvarleg.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.