Skessuhorn - 19.05.2004, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 19. MAI 2004
L>nlð9Unu>^
Til minnU
Við minnum á fótboltamessu
kl 19:30 á sunnudag í Ólafs-
víkurkirkju.
Fótboltatímabilið í sumar
hefst formlega með fótbolta-
messu í kirkjunni. Knatt-
spyrnumenn lesa lestra og
bænir. Létt tónlist við allra
hæfi. Ólafsvíkurkirkja og
knattspyrnudeild Víkings
bjóða til grillveislu að messu
lokinni.
d)®@
Koma ungu brúb-
hjónin á danska daga
í sumar Þórhildur?
Ja, det tror jeg godt!
Þórhildi Pálsdóttur, starfs-
manni Stykkishólmsbœjar er líkt
og öörum Hólmurum mjög um-
hugaö um aö viöhalda tengsl-
um milli Stykkishólms sem má
segja aö sé „Cammeldansk"og
Danmerkur og meöal annars
tóku Hólmarar virkan þátt í há-
tíöarhöldum vegna brúökaups
Friöriks og Maríu á föstudag.
Vectyrhorfw'
Nú fer sumarið alveg ab koma.
Þab mun rigna á fimmtudag
og fram á laugardag en á
sunnudag á sóiin vonandi eftir
ab skína skært. Hitinn um 6-7
stig þó kaldast abfararnótt
fimmtudags um 2 grábur.
Spnrntruj viKijnnar
í síbustu viku var spurt:
Hvernig ket kanntu best að
meta?
Og þab stób ekki á svari:
Lambaket 67,9%, Nautaket,
10,3%, Svínaket, 6,4%, Fugla-
ket 11,5%, Hvalket 2,6%,
Kann ekki ab meta ket
1,3%.
/ þessarri viku er spurt:
Fylgdistu meö brúökaupi
Friöriks krónprins og
Maríu krónprinsessu?
Takib afstöbu á
www.skessuhorn.is
VestlendiníjWr
vikunrietr
Sigrún Ósk
Kristjánsdóttir,
fy rrve ra n d i
blabamabur
Skessuhorns,
sjónvarps-
stjarna og nú-
verandi markabs og atvinnu-
fulltrúi Akraness. Sigrún kynnti
stigagjöf íslands í Evróvision
fyrir alheiminum á laugardags-
kvöld og gerbi þab ab sjálf-
sögbu meb glæsibrag.
Húsnæði HB - Mynd: Friðþjófur Helgason.
HB-Grandi á Akranesi:
Ný vinnslulína ljölgar störfum
Vinna við uppsetningu og
prófanir á nýrri flæðilínu stend-
ur nú yfir í vinnslusal HB
Granda hf. á Akranesi. Um er
að ræða nýja og fullkomna
vinnslulínu frá Skaganum hf. á
Akranesi sem auka mun gæði
afurða og í raun valda straum-
hvörfiim í vinnslunni, að sögn
Guðmundar Páls Jónssonar,
starfsmannastjóra. Samhliða
innleiðingu nýrrar vinnslulína
er stefnt að vaktafýrirkomulagi
í vinnslunni þannig að unnið
verði frá klukkan 7 til 15 á
morgunvöktum en 15 til 19 á
seinni vöktum. „Það liggur fyr-
ir samkomulag um fyrirkomu-
lag vinnutíma við Verkalýðsfé-
lagið en á fundi á morgun [í
dag, miðvikudagj, munu starfs-
menn greiða atkvæði um þessi
samningsdrög,“ sagði Guð-
rnundur Páll. Hann segir að ef
starfsmenn samþykki nýjan
vinnutíma verði um fjölgun
starfa að ræða hjá fýrirtækinu,
eða allt að 30-40 ný störf. „Með
vaktkerfi náum við að halda ó-
brotnu vinnsluferli frá 7-19,
fjölgum verkefnum, aukum af-
köst til muna og fjölgum
þannig störfum hjá fýrirtækinu
um leið,“ sagði Guðmundur
Páll að lokum.
MM
s
Minningarreitur í Olafsvík vígður á sjómannadaginn:
Minning um ástvini í fjarlægð
Miklar framkvæmdir standa
nú yfir í Olafsvík við gerð nýs
minningarreits við kirkjugarð-
inn. Reiturinn er tileinkaður
minningu látinna sjómanna og
verður hann vígður nú á sjó-
mannadaginn 6. júní nk. Að
sögn sóknarprests staðarins, sr.
Oskars Hafsteins Oskarssonar,
varð kveikjan að framkvæmd
þessari til í kjölfar sjóslyssins
þegar Svanborgin SH fórst
síðla árs 2001. „Þá fundum við
fyrir því að slíkan minningarreit
vantaði og hófst þá undirbún-
ingur að verkinu. Við duttum
síðan niður á listaverk, eða
minnisvarða, sem Sigurður
Guðmundsson, listamaður átti
til á lager, en verkið hentar að-
stæðum hér afar vel,“ sagði
Oskar. Hann segir verkið vera
hátt og tignarlegt og njóta sín
vel á þessum stað fýrir opnum
Breiðafirðinum.
Minning um ástvini í fjarlægð
er heiti verksins og er verkið
táknrænt fyrir þær sakir að þeg-
ar horft er í gegnum gat sem á
því er opnast breytt sýn, einmitt
hliðstætt því sem gerist þegar
fólk missir ástvini sína; þá lítur
tilveran skyndilega öðruvísi út,
allt breytist og fólk sem í því
lendir þarf að aðlagast nýjum
aðstæðum.
„Minnisvarðinn stendur einn
og sér en umhverfis hann verða
minningarsteinar þar sem hægt
verður að letra nöfh þeirra sjó-
farenda sem hafa farist og ekki
fundist,“ sagði Óskar. Auk
minningarreitsins verður sam-
hliða þessum framkvæmdum,
bætt aðkoman að kirkjugarðin-
um auk þess sem komið verður
fyrir söguskilti á grunni gömlu
kirkjunnar sem eitt sinn þjónaði
söfhuðinum í Olafsvík. Oskar
Hafsteinn sagði að lokum að
gert væri ráð fýrir að fram-
kvæmdirnar í heild sinni myndu
kosta 8-10 milljónir króna.
MM
Eurovisjon pústrar og ölvun
Steinar Snorrason, varðstjóri
hjá lögreglunni í Borgarnesi,
segir helgina hafi verið erilsama
hjá þeim. „Töluverð ölvun var í
héraðinu, nokkrir pústrar sam-
hliða dansleik á Búðarkletti, 2
voru teknir grunaðir um ölvun
við akstur og í mörg horn var að
líta hjá okkur. Svo virðist sem
19. sætið í Eurovisjon hafi farið
illa í menn,“ sagði Steinar. A
sunnudeginum voru síðan 8
ökumenn stöðvaðir fyrir of
hraðan akstur í umdæmi Borg-
arneslögreglu.
Að sögn varðstjóra hjá lög-
reglunni á Akranesi fór helgin
friðsamlega fram þar á bæ og
vel látið af bæði umferð og
skemmtanahaldi.
MM
Þrettán skemmtiferðaskip
Þrettán skemmtiferðaskip
hafa bókað komur sínar til
Grundarfjarðar í sumar en í
fyrra komu þangað átta slíkar
fleytur. A síðasta fundi Hafnar-
stjórnar Grundarfjarðarbæjar
var bókað að Hafharstjórn teldi
aukninguna ánægjulega og að á-
ffarn eigi að halda á sömu braut
við þjónustu og móttöku gesta.
Þar kom einnig fram að leggja
þurfi í nokkurn kostnað vegna
þátttöku hafharinnar í hafnar-
vemd sem ekki hvað síst sé til-
kominn vegna mótttöku
skemmtiferðaskipa en ýmsar ör-
yggisráðstafanir þarf að gera af
hálfu hafnarinnar. GE
ByggÞ
meira
Grandarljarðarbær hyggst
láta gera könnun nú í vikunni
ineðal eldri borgara í sveitar-
félaginu varðandi húsnæðis-
þörf og óskir um staðsem-
ingu íbúða fyrir aldraða.
Verið er að taka í notkun
nýtt hús með sjö íbúðum fýr-
ir eldri borgara við Hrannar-
stíg en þar er fýrir annað fjöl-
býlishús ineð 8 íbúðum.
Að sögn Bjargar Ágústs-
dótmr sveitarstjóra er mikill
hugur í fólki að byggja meira
en skoðanakönnunin er liður
í því að ákveða staðsemingu
næsm bygginga. GE
200
miiljóna lán
A síðasta fundi bæjar-
stjórnar Stykkishólms var
ákveðið að taka 200 milljóna
króna lán hjá Verðbréfastofu
Islands. Ólijón Gunnarsson
segir að lántakan sé í fram-
haldi af skuldabréfaútboði
bæjarins frá því í fýrra. Nýja
lánið verður notað til að
lækka erlend lán vegna hita-
veim Stykkishólms og draga
þannig úr gengisáhætm. GE
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Friðbjörg Matthíasdóttir
viðskiptafræðingur hóf störf
þann 1. inaí sl. sem ffarn-
kvæmdastjóri heilsugæslu-
stöðvar Grundarfjarðar í
50% starfi.
Hún er skipuð í starfið af
heilbrigðisráðherra, enda
heyrir starfið nú undir heil-
brigðisráðuneyti eftir að
stjórnir heilsugæslustöðva
voru lagðar niður 2003. GE
17 ára í
Vmnuskólann
Eins og fram hefur komið
í Skessuhorni býðst nú 17
ára unglingum á Akranesi
vinna við Vinnuskóla Akra-
ness, en það era ári eldri
einstaklingar en fram að
þessu hafa fengið sumar-
vinnu á þeim vettvangi. Skil-
yrði fýrir ráðningu er að við-
komandi hafi lögheimili á
Akranesi. Þessi vinna hefst
26. maí n.k. og verður unnið
í 3 5 klst. á viku. Stefnt er að
vinnu a.m.k. í 4 vikur en
gæti orðið lengri tími, eða
allt að 8 vikur, en það skýrist
eftir að fjöldi umsókna ligg-
ur lýrir.
MM