Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2004, Side 4

Skessuhorn - 19.05.2004, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 19. MAI 2004 Vanhæfi- leikar Hinn I]ölhæfi forsætisráðherra íslenska lýðveldisins fann það út fyrir skömmu að forseti sama lýð- veldis væri vanhæfur til að beita meintu málskots - eða kannski öllu heldur útskotsákvæði í stjórnarskrá áðurnefnds lýðveldis og neita að undirrita lög um fjölmiðla. Forsetinn þekkir nefnilega fullt af fólki sem þekkir annað fólk sem kannast við ýmsa sem eru ekki með öllu ókunnugir fáeinum öðr- um sem jafnvel eru nokkuð tengdir aðilum sem láta sig fjölmiðlafrumvarpið einhverju varða. Ef rétt reynist þá hefur forsetinn setið af sér heilt brúðkaup til einskis. Tár danska prinsins til einskis í tómið runnið eins og Ríó tríó- ið söng um á sínum tíma. Nú er það svo að, þar sem ég hef loksins aldur til að gegna embætti forseta, þá hefi ég eins og flestir Islending- ar, 35 ára og eldri, íhugað það alvarlega að fara í forseta- framboð. Tel ég að það hefði verið býsna góður kostur fyrir íslensku þjóðina og ekki síst fyrir ríkisstjórnir næstu ára. Ég hefði nefnilega verið tilbúinn að sverja þess fok- dýran eið að ég myndi aldrei nokkurntíma standa fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu hvað sem í boði væri þar sem ég er í eðli mínu andsnúinn lýðræði og þarf ekki að fjölyrða meira um það. Að vísu er sá hængur á að ég bý ekki svo vel að eiga út- lenska eiginkonu og myndi það vissulega gera samkeppn- isstöðu mína nokkuð lakari. Að vísu er konan mín úr Skagafirðinum þannig að það er kannski á mörkunum að hægt sé að segja að hún sé íslensk en ég er samt smeikur um að það verði ekki tekið fullkomlega gilt. Stærsta vandamálið er hinsvegar það að ég á urmul af ættingum sem flestir hverjir eru að vinna einhversstaðar eða þá að þeir þekkja einhvern sem vinnur einhversstaðar eða ein- hvern sem þekkir einhvern sem vann einhversstaðar. Eg á því á hættu að vera sakaður um að vera vanhæfur hvar sem ég drep niður fæti. Eg hef því ákveðið að hætta við fýrirhugað forsetafram- boð mitt en legg þess í stað til að þessir fáu tímar sem eru til stefnu til að tefla fram nýjum frambjóðanda verði nýtt- ir til að finna kandídat sem er eins ættlaus og kostur er. Best væri þó að hann væri eingetinn eða jafnvel með öllu ógetinn til að minnka hættuna á ættartengslum. Gtsli Einarsson, algjörlega vanhæfur. Jörvi hf með lægsta boð í Hálsasveitarveg Fyrr í mánuðinum voru opn- uð tilboð hjá Vegagerð ríksins í endurbyggingu Hálsasveitar- vegar á 8 km. löngum kafla frá Stóra - Asi að Húsafelli en þeg- ar þeirri framkvæmd lýkur verður komið bundið slitlag á alla leiðina frá Reykjavík að Húsafelli. Aætlaður verktakakostnaður var 118,8 milljónir en lægsta boð var ffá Jörfa hf á Hvann- eyri, 88,9 milljónir króna eða 74,9% af kostnaðaráætlun. Alls bárust tólf tilboð í verkið og hljóðaði það hæsta upp á 136,3 milljónir króna. GE Framkvæmdir standa nú yfir viö sjóvarnir við hús Bátahatiarinnar á Hellissandi. Það er Stafnafell sem sér um verkið en þeir Stafnafells- menn þykja með eindæmum hagir á stórgrýti. www.buvest.is „Aðalfundur BV var haldinn að Breiðabliki fyrir skömmu. A dagskrá var auk venjulegra að- alfundarstarfa að hefja endur- skoðun samþykkta Búnaðar- samtakanna. Að venju voru all- margar tillögur samþykktar. Rekstrarniðurstaða Búnaðar- samtakanna fýrir árið 2003 var góð og töluverð aukning á um- fangi starfseminnar. Stöðug aukning var á eftirspurn eftir ráðgjafaþjónustu og starfsfólki BV fjölgaði á árinu. Fastráðnir starfsmenn voru 12 á árinu 2003 auk þess sem margir starfsmenn koma tímabundið til starfa á álagstímum. Haraldur Benediktsson var endurkjörinn formaður og stjórnarmenn voru endurkjörnir þau Sigurður B. Hansson, Guð- ný H. Jakobsdóttir, Jón Gíslason og Sigurgeir Sindri Sigurgeirs- son. Varamenn í stjórn eru Guðrún Sigurjónsdóttir, Árni B. Bragason, Þröstur Aðalbjarnar- son og María Líndal. Varamað- ur formanns er Jón Björnsson. A aðalfundinum var opnuð ný og glæsileg heimasíða Búnaðar- samtakanna og kynnt nýtt net- fang. Slóð heimasíðunnar er www.buvest.is og netfangið bv@bondi.is“ Stjórn KJALAR f.v. Anna Ólafsdóttir varaformaður, Guðbjörg Antons- dóttir ritari, Bára Garðarsdóttir, meðstjórnandi, Hörður Hjálmarsson, gjaidkeri, Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður og Guðmundur Þór Brynjúlfsson varamaður. Á myndina vantar Jón Hansen varamann. Kjölur stofiiaður Laugardaginn 15. maí sl. var haldinn sameiningarfundur fimm stéttarfélaga. Þar samein- uðust Starfsmannafélag Borg- arbyggðar, Starfsmannafélag Akureyrar, Félag opinberra starfsmanna í Húnavatnssýsl- um, Starfsmannafélag Dalvík- urbyggðar og Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar. Hið nýja sameinaða félag heitir KJÖLUR stéttarfélag. I hátíða- skapi Undirbúningur er hafinn vegna bæjarhátíða sem haldnar verða á flestuin þéttbýlisstöðum á Vestur- landi. Sú fýrsta verður vænt- anlega Borgfirðingahátíð en hún er að þessu sinni dagana 10 - 13. júní. Hera Hallbera Björnsdóttir hefur verið ráð- in starfsmaður hátíðarinnar sem haldin er af sveitarfé- lögunum í Borgarfirði norð- an Skarðsheiðar. Þá hefur Félag atvinnulífsins í Grundarfirði einnig ráðið starfsmann til að annast undirbúning hátíðarinnar A góðri stundu sem verður haldin síðusm helgina í júlí. Hrafnhildur Jóna Jónasdótt- ir var ráðin til starfans en hún fær einnig það verkefhi að undrbúa gerðs nýs kynn- ingarbæklings um Grundar- fjörð. Einkasýn- ing Erlu Fimmtudaginn 20. maí 2004 opnar Erla B. Axels- dóttir sína 16. einkasýningu í Kirkjuhvoli á Akranesi. A sýningunni eru um fimmtíu verk sem öll eru unnin á s.l. tveim til þremur árum. A efri hæð hússins gefur að líta pastelnryndir stórar og smáar. Pastelnryndirnar vinnur Erla oftast úti við og fangar mótívið á staðnunr. A neðri hæðinni era olíu- verk. I olíuverkunum brýmr Erla mótívið meira upp og leyfir því sem hefur áhrif á hana í nánasta umhverfi að koma til sín og fléttast inn í verkin. Og hið óvænta fær að gerast. „Með þessu finn ég frelsi og kemst nær sjálfri mér“. I gilinu er umhverfið endalaus brunnur hug- mynda, nálægðin við það sem hún þekkir svo vel. Erla stofnaði ásamt fjór- um öðrum listakonum Art- Hún gallerí og vinnustofur í Reykjavík. Art-Hún var rekið í 12 ár. Nú hefur Erla sína eigin vinnustofu í Bol- holti 6, í Rvík. Erla hefur tvívegis fengið vinnustofu í Cité International des Arts í París og verður næsta sýning hennar þar í október á þessu ári. Erla er meðlimur í SIM og FÍM. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 15:00 til 18:00 og stendur til sunnudagsins 6. júní 2004. (fréttatilkynning)

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.