Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2004, Page 5

Skessuhorn - 19.05.2004, Page 5
joI,S9Unu^ MIÐVIKUDAGUR 19. MAI 2004 5 Fjölnotahús og ný sundlaug á Jaðarsbökkum Nefnd sem skipuð var af bæj- arstjórn Akraness seint á síðasta ári og ætlað var að skoða fram- kvæmdir í íþróttamálum á Akranesi, skilaði af sér skýrslu í síðustu viku. Nefndina skipuðu íjórir aðilar frá bæjaryfirvöldum auk Sturlaugs Sturlaugssonar, formanns Iþróttabandalags IA. Fram kemur í skýrslunni að nefndinni var ætlað að skoða frá öllum hliðum fjölnota æfmga- hús, stækkun áhorfendastúku á Jaðarsbökkum, málefni sund- laugar og golfvallar og eru megintillögur nefhdarinnar eft- irfarandi. Stefna beri að bygg- ingu fjölnota íþróttahúss, sem verði að flatarmáli 110 m x75 m. Leita skal eftir tilboði í ein- angrað og upphitað hús annars- vegar og hinsvegar í óeinangrað og óupphitað hús. Gert er ráð fyrir að gervigrasið verði af bestu gerð og umhverfis það verði hlaupabraut með tartanefhi. Varðandi sundlaugarmálin telur nefndin að athuguðu máli það heppilegast að ef byggð verði ný sundlaug skuli hún rísa á Jaðarsbökkum og vera í tengslum við núverandi laugar- mannvirki. Nefndin telur það einnig góðan kost að byggja yfir núverandi sundlaug og byggja þar einnig útisundlaug. Þá leggur nefhdin til að nú þegar verði hafinn undirbún- ingur að stækkun áhorfenda- stúku á Jaðarsbakkavelli sé mið- að við að stúkan taki í heild allt að 1200 manns. Ekki allir sáttir Tillaga nefndarinnar sem snýr að golfklúbbnum er nokk- uð almennt orðuð þó nokkur á- kveðin atriði séu talin upp. Lagt er til að í nýjum framkvæmda- samningi milli GL og bæjarins verði framgangi ákveðinna at- riða fastmótaðri. Að sögn Gísla Gíslasonar bæjarstjóra og eins af meðlim- um nefndarinnar er ekki full- ljóst hvenær ráðist verður í framkvæmdir á ofangreindum tillögum en búast má við að á- kvörðun um framhaldið liggi fyrir fljótlega. Búið er að senda skýrsluna til Iþróttabandalags- ins og tómstunda- og forvarna- nefndar til umsagnar. Að því loknu mun bæjarráð fjalla um málið. Ekki eru allir á eitt sáttir með störf bæjaryfirvalda í þessu rnáli og hefur Jón Orn Arnarson vakið á því athygli. Jón sagði í samtali við Skessuhorn að vinnubrögðin í þessu máli gangi þvert á samstarfssamning meirihlutans þar sem fram er tekið að bæjarbúar skuli hafðir með í ráðum þegar svona stórar framkvæmdir eru á teikniborð- inu. Það hafi hinsvegar ekki verið gert og við það er hann ó- sáttur. „Um allt land er oft á tíðum haldnar hugmyndasam- keppnir þar sem allir geta lagt inn tillögur en í þessu tilfelli eru hlutirnir matreiddir ofan í fólk sem á svo að gera athuga- semdir. Eg hlakka til að sjá hvernig þeir ætla að kynna þetta fyrir fólki,“ sagði Jón, en hann sendi á sínurn tíma sjálfur inn tillögur um hvernig fjöl- notahúsið skyldi líta út. Fram kemur í skýrslunni að nefndin fjallaði efnislega uin þessar til- lögur Jóns og ræddi einn með- limur nefndarinnar við hann. Komst nefndin að þeirri niður- stöðu að hugmynd Jóns sé bæði dýr í framkvæmd og rekstri. Aðspurður um ummæli Jóns varðandi skort á íbúalýðræði á Akranesi sagði Gísli að skýrslan væri bara einn þáttur í umræð- una og um málið ætti eftir að fjalla á ýmsum stöðum áður en endanleg ákvörðun verður tek- in. HJH Katanes í Hvalfjarðarstrandarhreppi HRV ENBINEERMG Mat á umhverfisáhrifum Drög að matsskýrslu Áformuð er kynning á drögum að matsskýrslu rafskautaverksmiðju á Katanesi fyrir Kapla hf. Kynningin stendur yfir frá laugardeginum 22. maí til þriðjudagsins 2. júní 2004. Drögin má nálgast á vefsíðu HRV (www.hrv.is). Eintök af drögunum verða einnig aðgengileg á skrifstofum Hvalfjarðarstrandarhrepps og Skilmannahrepps, í veitingaskálanum Ferstiklu, að Hlöðum og f Heiðarskóla í Leirársveit. Óskað er eftir athugasemdum og ábendingum við drögin og berist þau til Axels Vals Birgissonar, Hönnun hf. Grensásvegi 1, 108 Reykjavík eða á axel@hrv.is. Auglýsi ngasínm' n n er 433 5500 /WAoz/tf/t d /lýya/i og^ yftV'SÍfeya/t uef*oA/uw a/tt ^feutfafyó/ta^/a d /W/af/a/aíf WWW»WEST«IS 006 West.is - Afþreying - Mozilla CD Afþreying á Vesturiandi Skö # Q N http://wmv.west.ís/default.asp?sid_id = 7236&tre_rod = 001I001i&tid-15 [ Search ■£ Home tDBookmarks vmozilla.org Latest Builds m Afþreying í Fjórhjólaferðir j Golf j Gönguferðír í Hellaskoðun Hestaleigur | Hvalaskoðun Kajak leigur Reiðhjólaleigur j Siglingar j Söfn og sýningar j Sundlaugar j Veiðar ; Ahugaverðir staðir V* Gagnvirkt kort Gisting (CO------------------J-- -,a..gt..%r □ Á Vesturlandi er fjölbreytt afþreying í boöi fyrir heimamenn og gesti- hvort heldur sem menn kjósa að njóta útiveru í fallegri néttúru, eða heimsækja staði sem miðla sögunni og menningararfinum. Hér er að finna fjölmargar sundlaugar, golfvelli og hestaleigur, hér eru fjölmargar gönguleiðir í fjölbreyttu landslagi, hér er fjórhjólaleiga, hvalaskoðun,bátsferðir og boðið upp á fjölmargar skoðunarferðir. Sagan og menningin fylgir gestum svæðisins hvert fótmél, og víða má sjá minnismerki um merka staði eða hetjur sem riðu hér um héruð og settu mark sitt á svæðið. Fjöldi safna er á Vesturlandi, og mörg þeirra einstök í sínni röð. Má þar nefna Safnasvæðið að Görðum á Akranesi, Búvélasafnið á Hvanneyri, Sjómannagarð á Hellissandi, Heimskringlu/Snorrastofu í Reykholti auk þess sem sérstakar sýningar hafa verið settar upp víða, eins og Skógasýning Safnahúss Borgarfjarðar og Sögumíðstöð Eyrbyggja í Grundarfirði. Afþreying sem í boói er á Vesturlandi er að finna skipt eftir flokkum undir linkunum til vinstri.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.