Skessuhorn - 19.05.2004, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 19. MAI 2004
ani^aunui.
Héraðssýning
kynbótahrossa á
Vesturlandi
Héraðssýning kynbótahrossa
á Vesturlandi, í Borgarnesi,
hefst þriðjudaginn 1. júní og lýk-
ur 3. júni (með fyrirvara um
fjölda skráninga). Tekið verður
við skráningum á skrifstofú Bún-
aðarsamtaka Vesturlands (BV) í
síma 437-1215, fax 437-2015 og
bv@bondi.is til lok dags fimmm-
dagsins 27. maí. Sýningargjald
verður 6.500,- kr. og þarf að
greiðast fyrir lok dags 27. maí.
Aðeins þau hross sem greitt hef-
ur verið fyrir verða skráð til sýn-
ingar. Sýningargjöld er hægt að
greiða á skrifstofu BV eða inn á
reikning nr. 1103-26-104, kt:
461288-1119 (taka fram fyrir
hvaða hross er verið að greiða,
nr. skv. WF). Ef greitt er í banka
er mikilvægt að biðja bankann
um að faxa strax greiðslukvittun
tíl BV. Sé greitt í heimabanka
vinsamlega sendið greiðslukvitt-
un á bv@bondi.is . Ekki verður
hægt að greiða fyrir hross á sýn-
ingarstað! Sýningargjöld eru
endurgreidd að hálfu ef látið er
vita um forföll áður en dómar
hefjast.
Röðun knapa í hverju holli
verður birt á heimasíðu BV
www.buvest.is.
Rétt er að benda á að þegar
hross eru skráð til sýningar þarf
viðkomandi að hafa á takteinum
fæðingamúmer hrossins, kenni-
tölu eiganda og sýnanda. Einnig
er mikilvægt að þeir sem greiða í
banka muni að taka ffam fyrir
hvaða hross er verið að greiða,
bæði fæðingamúmer og nafh á
hrossinu þarf að koma fram. O-
frávíkjanleg regla er að búið sé
að taka blóðpmfu úr öllum stóð-
hestum, jafnt ungfolum sem
eldri hestum, sem koma til
dóms. Ungfolar sem aðeins er
komið með tíl að fá umsögn en
ekki formlegan dóm þurfa þó
ekki að uppfylla þessi skilyrði.
Rétt er að minna á að öll hross
sem koma tíl dóms skulu ein-
staklingsmerkt þ.e. ffost-eða ör-
merkt. Skal þeirri merkingu vera
lokið þegar hrossin era skráð tíl
leiks. Annað sem rétt er að
minna á er að eigendaskiptí á
hrossum verða að berast skrif-
lega og tímanlega svo tryggt sé
að búið sé að ganga ffá eigenda-
skiptunum áður en sýningar
hefjast.
Eigendum hrossa sem ekki
eru grannskráð er einnig bent á
að drífa í að grannskrá þau sem
allra fyrst og láta einstaklings-
merkja þau. Rétt er að taka fram
við þann sem einstaklingsmerkir
að vottorðið þurfi að berast
Bændasamtökum Islands/Bún-
aðarsamtökum Vesturlands sem
allra fyrst svo búið sé að skrá ein-
staklingsnúmerið áður en hross-
ið mætír til sýningar.
Líkt og á síðastliðnu ári verða
nú framkvæmdar eismamæling-
ar á stóðhestum tíl viðbótar hin-
um hefðbundnu inælingum.
Það eru vinsamleg tílmæli tíl
eigenda/umráðamanna stóð-
hesta að undirbúa hesta sína með
þeim hættí að mælingar þessar
vinnist auðveldlega.
Allar reglur er lúta að kyn-
bótasýningum má m.a. nálgast á
vef Bændasamtaka Islands
(www.bondi.is). Þar má finna
nýjustu reglur þar að lútandi.
{'fréttatilkynning)
Ferðatorg
2004
Markaðstorg innlendrar terða-
þjónustu, Ferðatorg 2004, var
haldið 7.-9. maí I Smáralind í
Kópavogi. Þar kynntu lands-
hlutamiðstöðvar og fleiri aðiiar
framboð í ferðaþjónustu hér á
landi en að þessu sinni var sér-
stök áhersla lögð á gönguferðir
og golf. Mikil ásókn var í bás
Vesturlands þegar blaðamaður
Skessuhorns var á ferðinni á
sunnudeginum. Þá stundina
kynntu Vesturland þau Hrafn-
hildur Tryggvadóttir forstöðu-
kona UKV, Símon Aðalsteinsson
frá Golfklúbbi Borgarness, Þor-
kell Símonarson frá Garðavelli
undir jökli og Ftakel Óskarsdóttir
og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, en
þær siðastnefndu eru báðar
markaðsfulltrúar hjá Akranes-
kaupstað. MM
Orugg
börn
Að undanförnu hafa Kiwan-
ismenn fært öllum sex ára börn-
um (fæddum 1997) á landinu
reiðhjólahjálma. Um er að ræða
átak til að stuðla að auknu ör-
yggi barna á reiðhjólum. 4200
sex ára börn fengu hjálmana að
gjöf og þrautabók sem inni-
heldur fróðleik um öryggi á
reiðhjóli og þrautír.
Þetta er í fyrsta sinn sem öll
sex ára börn á landinu fá hjálm
að gjöf og að baki liggur samn-
ingur þriggja aðila, Kiwanis,
Eimskips og Flytjanda. Eimskip
flytur hjálmana til landsins,
Flytjandi sér um dreifinguna,
og Kiwanismenn afhenda
hjálmana í skólurn landsins.
GE
yeiátinf/ ('(fvNtnar
Umsjón: Iris Arthúrsdóttir.
Þeir sem hafa áhuga á að láta birta uppáhalds uppskriftina
sína geta sent hana inn ásamt ljósmynd af sjálfum sér eða rcttinum (500 kb eða
Magnaður Mangó-pottréttur
Þetta er góður og auðveldur
lambakjöts pottréttur. Mangóið
gefur honum sérstakt bragð og
svo má skella út í því grænmeti
sem fólki finnst gott.
1 stykki úrbeinað lambalæri
(eða samsvarandi magn af
lambakjöti)
1 msk Paprikukrydd
1 msk Karrý
1 krukka Mangó Chutney
1 laukur
1 paprika
slatti af sveppum
1 poki baby gulrœtur
1/21. rjómi
Skerið kjötið í hæfilega bita og
brúnið á pönnu. Brytjið lauk,
papriku, gulrætur og sveppi. Setja
allt í pott ásamt smá vatni,
mangóinu og kryddi. Látíð malla
í 30 mínúmr, bætíð rjómanum út
í síðast. Svo má salta og pipra að
vild.
Borið firam með hrísgrjónum,
fersku salati og hvídauksbrauði.
HUSRAÐ
Við sólbruna er gott að bera
hreinajógún eða Aloe Vera gel á
brennda svteðið.
stærri), fullu nafinii, heimilisfangi og síma á netfangið iris@skessuhorn.is
Vesturland
Kiwanismenn í Borgarnesi voru f lögreglufylgd þegar þeir afhentu
börnum f Grunnskólanum í Borganesi hjálma. Á myndinni sýnir
Alda Baldursdóttir lögreglumaður rétta notkun á hjálmi. Fyrirsætan er
Erta Björk Kristjánsdóttir. Mynd: Guðrún Vala
Fréttir frá Sambandi
borgfirskra kvenna
Sjötugasta og þriðja sam-
bandsþing S.B.K var haldi í
Ensku húsunum við Langá á
vordögum. Gestir fundarins
voru Helga Guðmundsdóttir
forseti Kvenfélagasambands Is-
lands, Elva Þorgrímsdóttir frá
Leiðbeiningarstöð heimilanna,
Guðríður Olafsdóttir félags-
málafulltrúi Orykjabandalags Is-
lands og Margrét Guðmunds-
dóttir forstöðukona Dvalar-
heimilis aldraðra í Borgarnesi.
Sögðu þær frá störfum sinna fé-
laga og stofnana. Ingrid Khulm-
an fr á Þekkingarmiðlun ehf flutti
erindi um „Að finna manneskj-
una í sjálfum sér“. Að endingu
sagði hún: „Það er ótrúlega mik-
ils virði að hafa trú á sjálfum sér,
við getum ekki ædast til þess að
aðrir hafi trú á okkur ef við höf-
um það ekki sjálfar.“
Tvær tíllögur vora samþykkt-
ar og var sú fyrri svohljóðandi:
„Að færa Kvenfélagi Hringsins
árnaðaróskir í tilefni af 100 ára
afrnæli Hringsins með sérstöku
þakklæti fyrir þann hlýhug sem
þær sýna landsbyggðarfólki.
Hringskonur gáfu fé tíl kaupa á
húsnæði fyrir foreldra utan af
landi sem þurfa að dvelja í höf-
uðborginni á meðan bömin era
til aðhlynningar á spítalanum.
Seinni samþykktín var að gefa
100.000 krónur til Minningar-
sjóðs Guðmundar Böðvarssonar
í tilefni af hundrað ára fæðing-
arafmæli skáldsins á þessu ári. Að
öðra leiti var fundurinn með
hefðbundnu sniði.
Stjóm Sambands
borgftrskra kvenna.