Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2004, Page 7

Skessuhorn - 19.05.2004, Page 7
a&CsauHu.^ MIÐVIKUDAGUR 19. MAI 2004 7 Ibúum fækkar lítillega Samkvæmt bráðabirgðatöl- um Hagstofunnar um búferla- flutninga í mánuðunum janúar til mars í ár, þá fækkar íbúum á Vesturlandi um 36 (burtfluttir umfram aðflutta). Mest fækkar á Akranesi um 38 íbúa, en mest fjölgar í Dalabyggð, eða sam- tals um 9 íbúa. Búferlaflutningar eftir sveit- arfélögum janúar-mars 2004 Aðfluttir umfram brottflutta Hvalfjarðarstrandarhreppur 5 Skilmannahreppur 0 Innri-Akraneshreppur 1 Akranes -38 Leirár- og Melahreppur 0 Borgarfjarðarsveit -4 Skorradalshreppur 0 Hvítársíðuhreppur 1 Borgarbyggð 1 Kolbeinsstaðahreppur 0 Eyja- og Miklaholtshreppur -3 Snæfellsbær -5 Grundaríjarðarbær 3 Helgafellssveit 1 Stykkishólmur -4 Saurbæjarhreppur -3 Dalabyggð 9 Samtals -36 MM Frá niðurrifi hússins í síðustu viku. Rauða myllan rifin Húsið við Stillholt 2 á Akra- nesi, sem gjarnan hefur verið nefnt Rauða myllan, var rifið í síðustu viku. Húsið var byggt árið 1959 fyrir Kaupfélag Suð- ur-Borgfirðinga sem verslun og var starfrækt allar götur þar til Kaupfélagið hætti starfsemi. Eftir það var ýmis starfsemi í húsinu svo sem veitingastaður- inn Rauða myllan, hárgreiðslu- stofa og fleira. Að sögn Björns S Lárusson- ar, framkvæmdastjóra Markvert ehf., verður strax hafist handa við byggingu íbúðarhúsnæðis á lóðinni en þar munu verða 6 íbúðir á tveimur hæðum. Það er Markvert ehf sem byggir, en á- ætlað er að framkvæmdum verði lokið í haust og íbúðirnar þá seldar á almennum markaði. „Til stóð að byggt yrði fyrir aldraða á lóðinni en af því varð ekki þar sem húsið var minnkað niður í þá stærð sem fyrra hús var,“ sagði Björn í samtali við Skessuhorn. MM Hópurinn að leggja í hann frá Æðarodda. Mynd: Hilmar Sigvaldason. Hópreið Dreyra Dreyrafélagar á Akranesi fengu góða heimsókn sl. laug- ardag þegar félagar úr hesta- mannafélaginu Herði í Mos- fellsbæ komu með fáka sína í heimsókn. Farið var með gest- unum í útreiðartúr upp að Akrafjalli og slegið að því loknu upp veislu í félagsheim- ili Dreyra. Jón Sólmundarson formaður Dreyra sagði í sam- tali við Skessuhorn að heim- sókn af þessu tagi væri nýjung, sem vafalaust myndi verða endurtekin og endurgoldin með ferð Skagamanna í Mos- fellsbæinn síðar. Alls voru 65 manns í ferðinni sem þótti takast mjög vel. MM Vor undir jökli Vorhátíð Snæfellsbæjar Dagana 21. - 23. maí næst- komandi verður vorhátíð Snæ- fellsbæjar haldin öðru sinni. Ekki veitir af að njóta vors- ins eftir kuldaköst síðustu vikna. Sem fyrr stefnum við á heil- brigða útivist, skemmtilegar uppákomur fyrir alla fjölskyld- una, söng, dansleik og tón- leika, góðan mat og menningu. Við bjóðum upp á allt það besta sem Snæfellsbær hefur að bjóða. Dagskráin hefst eftir hádegi föstudaginn eftir uppstigning- ardag og stendur alla helgina, vítt og breitt um bæjarfélagið. Þetta er í annað skipti sem ferðaþjónustuaðilar í Snæfells- bæ leggja í þetta samstillta átak til að vekja athygli á kostum bæjarfélagsins og er slík sam- vinna í ferðaþjónustunni til fyrirmyndar. Allir sem vilja njóta fjöl- skylduvænnar helgar í fallegu og afslöppuðu umhverfí eru hvattir til að láta sjá sig helgina 21.-23. maí í Snæfellsbæ, þar sem Jökul- inn ber við loft. ('fréttatilkynning) Söngvaka í Lyngbrekku Næstkomandi laugardag, 22. maí, verður almenn söngvaka í Lyngbrekku og hefst hún stundvíslega kl. 21. Þetta er sjötta vakan af slíku tagi sem þar er haldin, en sú fyrsta var vorið 1999. Hér er fyrst og fremst um venjulegan fjöldasöng að ræða þar sem fólk kemur saman og syngur við píanóundirleik eftir til þess gerðum textaheftum, og er gert ráð fyrir að samkoman standi til kl. 1. Venjulega hafa einhver skemmtiatriði verið á vökunni og má búast við að svo verði einnig nú. Aðgangseyrir er kr. 1000 og er kaffi innifalið. Undirleikari verður Bjarni Valtýr Guðjónsson. ('fréttatilkynning) Látum hendur standa fram úr ermum! Laugardaginn 22. maí verður hið árlega hreinsunarátak í Borgarnesi. Við hvetjum því íbúa til aó taka til hendinni \ r og hreinsa lóðir sínar og fjarlægja þaðan allt rusl. Starfsmenn Njarðtaks verða síðan á ferðinni og fjarlægja ruslið. Því viljum við biðja fólk um að búa vel um ruslið og setja það út við götu. Þá væntum við þess að trjágreinar sem standa út á gangstéttar og stíga og hindra umferð verði klipptar. Loks viljum við beina því til eigenda ónýtra og númerslausra bíla að fjarlægja þá hið fyrsta svo ekki þurfi að koma til frekari aógerða. Tökum höndum saman og nýtum laugardaginn 22. maí til að fegra og bæta umhverfi okkar! J V . i f Tæknideild Borgarbyggóar Borgarbyggð

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.