Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2004, Síða 15

Skessuhorn - 19.05.2004, Síða 15
SKESSUHöiai MIÐVIKUDAGUR 19. MAI 2004 15 Klórað í bakkann í fyrsta leik sumarsins Skagamenn jöfnuðu leikinn gegn Fylki á allra síöustu stundu Fyrsti stundarfjórðungur leiks Skagamanna og Fylkis í fyrstu umferð íslandsmótsins í knattspyrnu á Akranesvelli á sunnudag lofaði nokkuð góðu fyrir heimamenn. Heimamenn voru aðgangsharðari ( upphafi og áttu nokkur átgæt færi. Har- aldur Ingólfsson átti gott skot á markið og sömuleiðis Grétar Rafn Steinsson sem átti fínan leik á sunnudag. Fylkismenn áttu reyndar líka sín færi en vörn Skagamanna var föst fyr- Haraldur Ingólfsson lék sinn fyrsta leik með Skagamönn- um á íslandsmóti síðan 1997. Hann segir það hafa verið á- kveðin vonbrigði að ná ekki nema einu stigi gegn Fylkis- mönnum. „Við ætluðum okkur náttúrulega sigur en þeir náðu betri tökum á leiknum í fyrri hálfleik. Við náðum síðan yfir- höndinni í þeim síðari og jöfn- uðum verðskuldað þótt það væri á síðustu stundu." Haraldur segir mótið leggj- ast vel í sig og þrátt fyrir tvö töpuð stig sé ekki ástæða til annars en bjartsýni. „Fylkis- mönnum er spáð einu af toppsætunum og þeir eru erf- iðir andstæðingar. Mér sýnist reyndar að mótið geti orðið mjög jafnt og spennandi. Það eru mörg góð lið í deildinni og ir, alveg þartil á 28. mínútu það er að segja þegar Kári Steinn Reynisson sem lék í stöðu hægri bakvarðar að þessu sinni, gerði sig sekan um slæm mistök. Hann ætlaði að hreinsa frá marki og tók sér góðan tíma til þess en skotið fór í Sævar Þór Gíslason Fylkis- mann sem þakkaði pent fyrir sig og skoraði fram hjá Þórði Þórðarsyni í marki ÍA. Markið virtist slá Skaga- menn útaf laginu og réðu Fylk- Haraldur Ingólfsson ég held að hún sé að koma upp aftur eftir smá lægð. Gæðin eru að aukast að mínu mati. Það er hinsvegar langt síðan ég spilaði hér síðast þannig að það tekur smá tíma að sjá hvernig standardinn er miðað við hvernig hann var þá.“ Utlit fyrir jafnt og spennandi mót Víkingar byrja vel Víkingur Ólafsvík gerði jafn- tefli við Tindastól á Sauðár- króksvelli síðastliðinn sunnu- dag í fyrsta leik liðsins í 2. deild. Tindastóll koms yfir á 35. mínútu en Predrag Milosavljevic jafnaði fyrir Vík- ing á þeirri 66. Ejub Purisevic þjálfari var ágætlega sáttur við þessa frumraun sinna manna í 2. deildinni en hann vildi sjá fleiri mörk. „Miðað við færin hefðum við átt að vinna 20 -1. Þegar þeir skoruðu var í fyrsta skiptið sem þeir komust fram yfir miðju í leikn- um. Við sóttum hinsvegar all- an tímann og ég er nokkuð á- nægður með að við skildum koma til baka eftir að hafa lent undir.“ Ejub segir full snemmt að segja til um möguleika Vík- ings í deildinni í sumar. „Það er ekki fyrr en eftir svona 5-6 umferðir sem maður getur áttað sig á heildarmyndinni. Ég hef ekki séð það mikið til hinna liðanna heldur. Við eig- Ejub Purisevic um sjálfir eftir að læra ýmis- legt. Við erum með nokkra reynda leikmenn og síðan með unga stráka. Okkar akki- lesarhæll er að við erum með lítinn hóp. Okkur vantar 2. flokk til að framleiða leikmenn handa okkur. Við þurfum að styrkja okkur aðeins ef vel á að vera og við erum að leita að tveimur leikmönnum, sóknarmanni og miðjumanni. Mér skilst hinsvegar að það séu allir að leita þannig að það verður að koma í Ijós hvernig það gengur.“ Julian Johnson á fleygiferð f átt að marki Fylkismanna. ismenn lögum og lofum á vell- inum það sem eftir lifði hálf- leiksins. Þeir náðu algjörlega tökum á miðjunni og sköpuðu sér nokkur góð færi á meðan sóknaraðgerðir Skgamanna voru fálmkenndar og sending- ar ómarkvissar. Eins og við var búist komu heimamenn sprækari til leiks eftir predikun Ólafs Þórðarson- sonar þjálfara sem væntanlega hefur ekki verið neinn venjuleg- ur húslestur í þetta skiptið. Alen Marcina, hinn smái en knái Kanadamaður átti gott færi í upphafi hálfleiksins og Guðjón Sveinsson átti skömmu síðar góðan skalla sem fór í þverslána. Skaga- menn komust smátt og smátt betur inn í leikinn og Fylkis- menn virtust gefa eftir og freysta þess að halda fengnum hlut. Leikur Skagamanna var mun áferðarfallegri og öruggari eftir því sem leið á hálfleikinn og á köflum mátti sjá mjög skemmtilegt spil. Færin voru líka allnokkur. Meðal annars átti Hjörtur Hjartarson, sem kom inn á sem varamaður ágætt skot sem Bjarni Hall- dórsson markvörður Fylkis varði vel. Stefán Þórðarson átti sömuleiðis nokkur ágæt færi sem honum tókst ekki að nýta en skotfóturinn virtist stilltur fullhátt í þetta sinnið. Þá átti Alen Marcina þrívegis góða möguleika á að koma boltan- um í netið en hann var mjög á- kafur upp við mark Fylkis- manna. Það skilaði loks ár- angri þegar komið var farar- snið á áhorfendur en þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma Gunnar Sigurðsson formaður stjórnar Meistaraflokksráðs á sínum stað í brekkunni alvöru- þrunginn á svip. fékk Marcina langa sendingu frá Kára Steini inn á markteig Fylkismanna og náði að teygja sig í boltann og vippa honum í markið. Jafntefli varð því niður- staðan þrátt fyrir að flestir væru orðnir úrkula vonar. Var fögnuðurinn því mikill þó vissu- lega væru Skagamenn svekkt- ir fyrir því að landa ekki nema einu stigi í sinni heimahöfn. Gunnlaugur Jónsson og Grétar Rafn Steinsson voru bestu menn Skagaliðsins að þessu sinni. Julian Johnson átti einnig góðan leik og sömu- leiðis Guðjón Sveinsson. Alen Marcina átti einnig mjög fína spretti og lofar góðu. Lið ÍA: Þórður Þórðarson Kári Steinn Reynisson Gunnlaugur Jónsson Reynir Leósson Guðjón H Sveinsson Julian Johnson Grétar Rafn Steinsson (Hjörtur J Hjartarson 73) Þálmi Haraldsson Haraldur Ingólfsson (Andri Karvelsson 65) Stefán Þ. Þórðarson Alen Marcina (S) Bílás Kaupir þú bílfrá B&L hjá Bílás - nýjan eða notaðan - styrkír þú Knattspyrnufélag ÍA m LANDSBANKA OEILÐIN AKRANESVÖLLUR ÍA - Grindavík fimmtudaginn 20. maí kl. 14:00 | ALLIR Á X/ÖLLIIMIM V 4 T35P w 1 1 v [0KBBANKI Haraldur Böðvarsson hf. “ ^

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.