Skessuhorn


Skessuhorn - 02.06.2004, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 02.06.2004, Blaðsíða 1
Kr. 300 í lausasölu VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 22. tbl. 7. árg. 2. júní 2004 Fyrsti laxinn úr Norðurá Það bar vel í veiði hjá stjórn Stangveiðifélags Reykjavíkur sem að venju opnaði Norðurá í Borgar- firði í gærmorgun. Fyrsta klukkutímann komu þrír lax- ar á land en sá fyrsti var 13 punda hrygna. Sjá Veiðihomið hls. 13 Krakkarnir á leikskólanum Garðaseli á Akranesi fóru í vettvangsferð í Garðalund í síðustu viku. Garðalundur er frábært útisvæði fyrir börn sem fullorðna og ástæða til að hvetja fólk, sem ekki þekkir til, að ieggja þangað leið sína. Ljósm.: Hilmar Sigv.s. Borgarness kjötvörar úr Brákarey og tvöfalda umsvifin Eiríkur rauði á sjó Sjókajakmót Eiríks rauða var haldið í Stykkishólmi í fjórða sinn um Hvítasunnu- helgina. Þar var hraustlega tekið á að vanda og kajakræðarar og aðrir gestir nutu fegurðar Breiðafjarðar í blíðu veðri. Sjd bls 18 Síðastliðinn föstudag rituðu þeir Páll S Brynjarsson bæjar- stjóri og Þorsteinn Benónýsson nýráðinn framkvæmdastjóri Borgarness kjötvara undir vilja- yfirlýsingu um kaup Borgar- byggðar á eignum Borgarness kjötvara í Brákarey, en fýrirtæk- ið hyggst á næstu misserum reisa nýtt hús undir starfsemi sína í iðnaðarhverfinu ofan við Borgarnes. Jafnframt kom fram við þetta tækifæri að Borgarnes kjötvörur hafa handsalað sam- komulag um kaup á Kjötvinnslu Samkaupa miðað við 1. júní sl. Guðsteinn Einarsson, kaup- félagsstjóri og stjórnarformaður í Borgarness kjötvörum, sagði við þetta tækifæri að gert væri ráð fyrir 100% veltuaukningu hjá fýrirtækinu og fjölgun starfa um 13-15 hið minnsta. „Það er óhætt að segja að með þessum kaupum erum við að skapa fyr- irtæki í kjötiðnaði sem á að geta staðið traustum fótum í fram- tíðinni. Við munum byggja nýtt og sérhæft hús fýrir kjötvinnsl- una hér ofan við Borgarnes og munum byggja á lóð sem verð- ur sýnileg frá þjóðveginum. Það er búið að grófhanna húsið og gera kostnaðaráætlun fýrir verkið og verið að kanna með heppilega Ióð,“ sagði Guð- steinn. Hann segist sjá fyrir sér vöxt í kjötiðnaði í Borgarnesi í framtíðinni og það væri gleði- legt í ljósi þess að Borgarnes hafi séð að baki alltof mörgum störfum í matvælavinnslu und- anfarin ár. „Það lá fyrir að leggja átti niður kjötvinnslu Samkaupa í Keflavík og búið var að segja starfsfólki þar upp. Við ákváðum því að bregðast skjótt við og keyptum því rekst- urinn og styrkjum þannig til muna vinnsluna hér í Borgar- nesi,“ sagði Guðsteinn. Að- spurður sagði hann varðandi stórgripaslátrun í Borgarnesi, að hún yrði rekin áfram. „Það verður áfram slátrað stórgrip- um í Borgarnesi. Við höfum lagt í talsverðar lagfæringar á stórgripasláturhúsinu í Brákar- ey og það er engin uppgjöf hjá okkur á því sviði, þó svo við séum búin að selja önnur mannvirki í eyjunni,“ sagði Guðsteinn að lokum. MM Þeir undirrituðu viljayfirlýsingu um kaup Borgarbyggðar á eignum Borgarness kjötvara í Brákarey. F.v. Páll S Brynjarsson bæjarstjóri og Þorsteinn Benónýsson framkvæmdastjóri Borgarness kjötvara. 2r Heimasíða: www.kb eretlandi ath- nokkra daga leikfönð . ritfö»9 _,avettUn9*,r . bósáhöld - 9*£fl. og o.fl- Stórmarkaður Hyrnutorgi 1Hyrnutorg S. 430 5533 Opið mán.-fim. frá kl. 09-19 BORGARNESI I föstudaga frá kl. 09-20 -- .. ; r—' laugardaga frá kl.10-19 Góour kostur... sunnudagafrá kl. 12-19 y

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.