Skessuhorn


Skessuhorn - 02.06.2004, Síða 2

Skessuhorn - 02.06.2004, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. TUNI 2004 Mun standa steinn yfir steini Páll? „Já svo sannarlega, þa& hefur hins vegar lengi legib fyrir a& þyrfti að fjarlægja þessi hús sem fjarlægð hafa verið á síðustu vikum. Nú gefst tækifæri til að nýta sumar þessar lóðir undir nýjar byggingar. Það er líka verið að byggja upp. Hollvina- samtök Englendingavíkur eru að vinna að endurgerð gömlu húsanna í Englendingavík sem verða augnayndi þegar þau verða fullkláruð. Og svo þarf að gera Brákareyjuna glæsilega..." segir Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggðar. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni hefur sveitarfélagið Borgarbyggð verið að kaupa upp gömul hús til niðurrifs. Nú síðast var ákveðið að stefna að kaupum á stærstum hluta eigna Borgarness kjötvara í Brákarey. Skiptar skoðanir um fjölgun sumarbústaða á Amarstapa Sumarhúsaeigendur á Arnar- stapa hafa brugðist hart við fyr- irhugaðri sumarhúsabyggð sem Snæfellsbær hefur látið slapu- leggja í landi Bjargs og Fells. Um er að ræða fimmtíu lóðir á svæðinu frá Sölvaslóð, sem er nýtt sumarhúsahverfi á Arnar- stapa, að þjóðveginum og heimkeyrslunni á Arnarstapa. Eigendur sumarhúsa sem fyrir eru á svæðinu telja, sumir hverj- ir í það minnsta, að nýja byggðin sé óþarflega þétt og að þar með sé búið að spilla þeirri paradís sem þeir hafi tryggt sér hlut í þarna undir jöldi. Smári Björnsson, bæjar- tælmifræðingur Snæfellsbæjar staðfesti í samtali við Skessu- horn að borið hefði á óánægju eigenda sumarhúsa á Arnar- stapa. „Deilislapujag svæðisins var auglýst samltvæmt gildandi reglum. Fresturinn til að skdla inn athugasemdum var liðinn áður en lcvartanir fóru að ber- ast. Byggðin er ekld þéttari en gengur og gerist í vinsælum sumarbústaðalöndum ltér á landi. Auk þess er elcki fýrir- hugað að láta þetta allt í einu. Svæðinu verður sldpt niður í sjö reiti og hver reitur fýrir sig ldáraður áður en úthlutað verð- ur á þeim næsta. Við erum mjög ánægð með svæðið og teljum það mjög fínt. Eg er líka fullviss um að þetta verður áfram ró- legur og notalegur staður þótt sumarhúsum fjölgi nokkuð,“ segir Smári. Hann segir að þótt efdd sé byrjað að auglýsa lóðir í hinu nýja hverfi á Arnarstapa séu þegar komnar fýrirspurnir og ljóst að mildl eftirspurn verði eftir lóðum á þessum vinsæla ferðamannastað. GE Grjóthleðslunámskeið Síðastliðinn laugardag var fýrsti dagskxárliður sumarsins í svonefndri Viðburðaveislu á Ala-anesi 2004. Þá sýndu grjót- hleðslumeistarar handtök og verklag við grjóthleðslur og hlóðu um leið lítinn vegg á lóð Safnasvæðisins á Görðum. Það voru Drangabræðurnir Guðjón og Benjamín Kristinssynir sem stýrðu verkinu ásamt Guð- rnundi Sigurðssyni en þeir sögðu um leið gestum til um hvernig bera skal sig að við slík verk. Um næstu helgi verður dagskrár- liður tvö í Við- burðaveislu, en þá verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá tileinjflim sjávarfangi og sjó- mönnum laugar- daginn 5. júní. MM Það var skrafað og skeggrætt um grjóthleðslur sl. laugardag á Safnasvæðinu. Borgarbyggð og Sparisjóðurinn í nýtt húsnæði 2005: Stór eignasldptadagur Síðastliðinn föstudag má segja að kalla mætti dag undir- sHiftanna í Borgarnesi því þá voru á sama tíma undirritaðir samningar um eigendaskipti nolckurra verðmætra fasteigna í Borgarbyggð. Fyrst ber að nefna að Sparisjóður Mýrasýslu og Borgarbyggð undirrituðu formlegan samning vegna kaupa Borgarbyggðar á spari- sjóðshúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi sem haustið 2005 verður gert að ráðhúsi sveitar- félagsins. Sparisjóðurinn mun flytja höfuðstöðvar sínar í nýtt húsnæði á uppfýllingunni við Brúartorg næsta sumar en ráð- gert er að það verði tilbúið 1. júní 2005. Sem greiðslu fýrir sparisjóðshúsið afsalar sveitar- félagið Sparisjóðnum núver- andi bæjarskrifstofuhúsnæði að Borgarbraut 11-13 auk jarð- anna Alftáróss og Stapasels á Mýrum. Jafnframt var undirrituð viljayfirlýsing um makaskipti á lóðum í Borgarnesi. Borgar- byggð eignast fremsta hluta lóðarinnar við Digranesgötu, en svo nefnist nýja uppfýllingin við Brúartorg, þar sem nýja hús Sparisjóðsins mun rísa. Spari- sjóðurinn eignast í staðinn lóð og húsnæði Borgarness kjötvara í Brákarey, en eins og fram kemur annarsstaðar í blaðinu er ráðgert að byggja nýtt hús und- ir starfsemi Borgarness kjötvara ofan við Borgarnes á næstunni. MM Þeir staðfestu makaskipti eignanna íBorgarbyggð. F.v. Þáll S Brynjarsson, bæjarstjóri, Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri og Sigurður Már Einarsson, formaður stjórnar SPM. Vesturgata 121 verður rifin Bæjarráð Akraneskaup- staðar hefur heimilað sviðs- stjóra tækni- og umhverfis- sviðs að ganga til viðræðna við lægstbjóðanda um niður- rif húseignanna við Vestur- götu 121 á Akranesi en þar var eitt sinn frystihús Þórðar Oskarssonar. Það var fýrir- tækið Afltak sem átti lægsta tilboð í verkið, eða tæpar 5 milljónir króna. Alls bárust 3 tilboð og var það hæsta um þrefalt hærra, eða 14,3 mill- jónir. MM Guðmundur Páll í OR Bæjarráð Akraneskaup- staðar hefur tilnefnt nýjan fulltrúa í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í stað Sveins Kristinssonar. A síðasta fundi bæjarráðs var sam- þykkt að tilnefna Guðmund Pál Jónsson sem aðalmann og Agústu Friðriksdóttur sem varamann í stjórnina en kjör þeirra tekur gildi á næsta aðalfundi OR, sem verður 10. júní nk. Gunnar Sigurðsson sat hjá við af- greiðslu málsins. MM KB byggir í Grundarfirði Kaupfélag Borgfirðinga hefur fengið úthlutað lóð undir 400 fermetra verslun- arhúsnæði í Grundarfirði. KB rekur verslunina Grundaval í Grundarfirði og að sögn Guðsteins Einars- sonar kaupfélagsstjóra, er stefnt að því að flytja hana í nýtt húsnæði við aðalgötuna í Grundarfirði í síðasta lagi í byrjun desember á þessu ári. I nýja húsinu verður inat- vöruverslun og takmörkuð sérvara. GE Leiðrétting I frétt um útskrift FVA í síðasta tölublaði var missagt að Hallbera Eiríksdóttir hafi verið með besta árangur ný- stúdenta yfir skólaárið. Hið rétta er að Flallbera var með bestan árangur stúdenta á haustönn en Birna Björns- dóttir var hinsvegar með bestan árangur nemenda á vorönn við útskrift nýstúd- enta. Beðist er velvirðingar á þessu. MM

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.