Skessuhorn - 02.06.2004, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 2. TUNI 2004
a^iiMunui.
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Gríðarleg umferð var um eftirmiðdag á mánudag og myndaðist biðröð
við Hvalfjarðargöngin. Mynd: GE
Útgefandi: Skessuhorn ehf
Ritstjóri og óbm: Gísli Einorsson
Blaðamaður: Mognús Mognússon
Augl. og dreifing: íris Arthúrsdóttir
Umbrot: Olgeir Helgi Ragnorsson
Prentun: Prentmet ehf.
433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
899 4098 ritstjori@skessuhorn.is
894 8998 magnus@skessuhorn.is
696 7139 iris@skessuhorn.is
437 1677 gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð i lausasölu er 300 kr.
433 5500
Fátt er það í þessu lífi sem veitir mér jafn mikla ánægju og að
éta. Þess vegna skil ég ekki fullkomlega fólk sem lítur á þessa
athöfh sem kvöð er hafi þann tilgang einan að koma í veg fyr-
ir hungurdauða. Vissulega hef ég það á bak við eyrað að ég
myndi trúlega ekki verða miklu eldri ef ég hætti áti með öllu.
Það er samt ekki aðalástæðan fyrir því að ég legg ríka áherslu á
að matast, sem mest og sem oftast. Eg hef nefnilega afskaplega
mikla ánægju af því að rífa í mig góðmeti og troða mig út af
kræsingum. Mér þykir það bæði gaman og gott og sé af þeim
sökum ekki nokkra ástæðu til að slá slöku við í þessum efnum.
Ef ég fengi að ráða, sem er því miður ekki alltaf, þá væri ég
heima hjá mér allan daginn, alla dag og sérhæfði mig í snæð-
ingi. Það er hinsvegar svo að það er ekki eins og það sé alltaf
sem ég fæ að éta heima hjá mér og bæði þessvegna og af öðr-
um orsökum þarf ég stundum að fara af bæ. Það gerðist einmitt
í síðustu viku en seinni hluta hennar dvaldi ég á Vestfjörðum
og áður en ég lagði af stað hugsaði ég mér gott til glóðarinnar
þar sem Vestfirðingar eru annálaðir matmenn og þekktir fyrir
þjóðlegan mat og borðsiði einnig. Nóttina áður en ég lagði af
stað dreymdi mig vestfirskar kræsingar á borð við kæsta skötu,
rikkling, spikfeitt hangiket og önnur mikilfengleg matvæli sem
Vestfirðingum er gjarnt að hæla sér af. Um morguninn vakn-
aði ég slefandi af tilhlökkun og lét ég það meira að segja á móti
mér að sleppa úr heilli máltíð áður en lagt var í hann til að ég
gæti betur nýtt matarlistina þegar vestur væri komið.
Skemmst er frá því að segja að ég var ekki kominn langt þeg-
ar ég komst að því mér til mikillar skelfingar að þrátt fyrir að
Vestfirðir, vegna sinnar einangrunar, hafi að mestu eða öllu
leyti sloppið við bráðar búþárpestar þá hafa þeir eins og aðrir
landshlutar orðið hamborgarasýkinni að bráð. Hvar sem kom-
ið var þá var fátt annað í boði en vestfirskur hamborgari með
frönskum kartöflum og ekki einu sinn hnoðmör með. Það sem
vildi mér til lífs var að í söluskála á Patreksfirði komst ég yfir
hálft kíló af harðfiski og dollu af sméri.
Sem íslenskur matmaður geri ég þá kröfu að Tómas Tómas-
son, veitingamaður, sá sem öðrum fremur ber ábyrgð á land-
námi hamborgarans hér á landi, verði sóttur til saka fyrir
hryðjuverk.
Gísli Einarsson, sdrsvangur.
Slysalaus umferðarhelgi
Lögregluumdæmin í Borg-
arnesi, Akranesi og Snæfells-
nesi ásamt umferðardeild Rík-
islögreglustjórans höfðu með
sér samráð um hvítasunnun-
helgina og telja lögreglumenn
að það samstarf hafi skilað sér
vel sem fyrirbyggjandi lög-
gæsla, sérstaklega hvað umferð-
arhraða varðar. Lögð var á-
hersla á að hafa Iögreglubílana
sýnilega á þeim stöðum þar sem
vitað var að umferðarþunginn
yrði mestur á Vesturlandsvegi
frá Hvalfjarðargöngum, upp á
Holtavörðuheiði og vestur á
Snæfellsnes.
Einungis urðu tvö minni-
háttar umferðaróhöpp í um-
dæminu um hvítasunnuna og er
það mjög vel sloppið miðað við
mörg undanfarin ár. Theodór
Þórðarson, yfirlögregluþjónn í
Borgarnesi, segir að ekki sé
hægt að dæma um hvort þenn-
an góða árangur megi rekja að
einhverju leyti til aðgerða lög-
reglu en allavega sé ljóst að
miðað við umferðarþungann
geti menn vel við unað.
Alls voru 34 ökumenn teknir
fyrir of hraðan akstur í um-
dæmi lögreglunnar í Borgar-
nesi um hvítasunnuhelgina og
þá voru þrír ökumenn teknir
fyrir meinta ölvun við akstur.
GE
Vinsæl viðbótarlán
Mikil eftirspurn er á Akra-
nesi eftir svokölluðum viðbót-
arhúsnæðislánum íbúðalána-
sjóðs en tekjulágir einstaklingar
geta sótt um slík lán. Sveitarfé-
lög þurfa að samþykkja slíkar
lánsumsóknir þar sem þau á-
byrgjast 4% af lánsupphæðinni,
en það er óendurkræft framlag
bæjarsjóðs til varasjóðs hús-
næðismála. Að sögn Jóns Pálma
Pálssonar bæjarritara var í síð-
ustu viku samþykkt í bæjarráði
heimild til 50 milljóna króna
viðbótarlána. „Við höfðum 150
milljónir á fjárhagsáætlun árs-
ins til þessa málaflokks og höf-
um þegar ráðstafað 80% þeirr-
ar upphæðar nú fyrir maílok,"
sagði Jón Pálmi i samtali við
Skessuhorn.
MM
Hagstæð tjaldvagnaleiga
Nýverið stóð DV fyrir könn-
un á kostnaði við að leigja tjald-
vagna á hinum ýmsu stöðum á
landinu. Þar kom fram að
Tjaldvagnaleigan Stykkishólmi
er ódýrasti kosturinn þegar fólk
vill leigja slíka vagna t.d. í viku-
tíma. Það eru hjónin Agnar
Jónasson og Svala Jónsdóttir
sem reka fyrirtækið. I viðtali við
Skessuhorn sögðu þau að þessi
niðurstaða hafi ekki komið
þeim á óvart. „Hjá okkur kostar
23.000 krónur vikuleiga og
fylgir með kolagrill, gashella,
stólar og borð og kálfur (svefh-
tjald).“ Þau segja að ekki þurfi
endilega að leigja heila viku í
senn því á tímabilinum til 25.
júní og eftir Verslunarmanna-
helgi sé hægt að leigja vagnana
einungis yfir helgar og kosti
það 7.000 krónur en aukadag-
urinn 3.000 kr.
MM
s
Aldarafmæli Islandsbanka
I ár er þess minnst hjá ís-
landsbanka að 100 ár eru liðin
frá því forveri bankans, Islands-
banki gamli, tók til starfa 7. júní
árið 1904. I tilefni tímamót-
anna verður opnuð sögusýning
í öllum 28 útibúum bankans
víðs vegar um land á afmælis-
daginn. Þar verður gerð grein
fyrir þessari aldarlöngu sögu í
máli og myndum, bæði al-
mennt sem og því er snertir
hvert útibú sérstaklega. Skaga-
menn geta kynnt sér sögu og
starfsemi Islandsbanka á Akra-
nesi þegar Gísli Gíslason bæj-
arstjóri opnar sögusýningu
bankans í útibúinu að Kirkju-
braut 7. júní nk. kl. 10. Allir eru
velkomnir á opnunarhátíðina.
Sögusýningin er unnin í sam-
vinnu við Eggert Þór Bern-
harðsson sagnfræðing sem hef-
ur umsjón með sögudag-
skránni. Hún stendur frá 7. júní
til 9. júlí og er opin á opnunar-
tíma útibúsins.
{'fréttatilkynning)
Skóflan
lægst
Bæjarráð Akranskaup-
staðar hefur ákveðið að
taka tilboði Skóflunnar í
yfirborðsfrágang Furu-
grundar og Grundartúns.
I verkinu felst m.a. mal-
bikun, gangstígagerð auk
frágangs vegna lýsingar og
símalagna. Þegar tilboð
voru opnuð í verkið var
lægsta tilboð frá Þrótti en
eftir að búið var að yfir-
fara tilboðsgögn kom í
ljós reikningsskekkja sem
leiddi til þess að tilboð
Skóflunnar í verkið, fyrir
alls 35,5 milljónir króna
var lægst, eða 86% af
kostnaðaráætlun.
MM
Helga Björk Arnardóttir
sópran og Margrét
Jóhannsdóttir mezzósópran
halda útskriftartónleika í
Borgarneskirkju.
Útskrift
söngnemenda
Laugardaginn 5. júní
næstkomandi munu
Helga Björk Arnardóttir
sópran og Margrét Jó-
hannsdóttir mezzósópran
halda útskrifartónleika í
Borgarneskirkju og hefjast
þeir kl 16:00. Þetta er lið-
ur í lokaprófi við skólann
sem þær þreyttu í maí sl.
Helga Björk Arnardóttir
stundar söngnám hjá Dag-
rúnu Hjartardóttur og
mun hún m.a. syngja lög
úr ljóðaflokknum Frauen-
liebe un Leben eftir R.
Schumann og aríur. Mar-
grét Jóhannsdóttir stund-
ar söngnám hjá Theodóru
Þorsteinsdóttir og mun
hún m.a syngja antík aríur,
íslensk og erlend ljóð.
Meðleikari á píanó er
Zsuzsanna Budai. Tón-
leikarnir eru öllum opnir.
(Fréttatilkynning)