Skessuhorn


Skessuhorn - 02.06.2004, Page 5

Skessuhorn - 02.06.2004, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 2. JUNI 2004 5 jntaaijnu... Hópurinn sem útskrifaðist á tröppum fíeykholtskirkju, en þar fór athöfnin að þessu sinni fram, enda hópur nemenda við skólann aldrif verið stærri. Mynd: Áskell Þórisson Brautskráning frá Hvanneyri Fyrstu nemendumir útskrifast af Umhverfisskipulagsbraut Síðastliðinn föstudag fór fram brautskráning nemenda frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri við hátíðlega og fjölmenna athöfn sem að þessu sinni fór fram í Reykholts- kirkju. Að athöfninni í Reyk- holti lokinni var öllum við- stöddum boðið til kaffidrykkju í matsal skólans á Hvanneyri. Að þessu sinni voru í fyrsta skipti útskrifaðir nemendur ffá skól- anum með 90 eininga BS próf af umhverfisskipulagsbraut, en brautin hefur verið starfrækt við LBH síðan haustið 2001. Veruleg fjölgun nemenda Við útskriftina sagði Magnús B Jónsson, rektor að á skólaár- inu hafi alls um 170 nemendur innritast til náms. Af þeim voru 45 nemendur innritaðir í reglu- legt nám við bændadeildir skól- ans og 41 í fjarnám á haustönn og 31 á vorönn í búfræði og 84 í ýmsar deildir háskólanámsins. „Þetta er veruleg fjölgun frá fyrra ári en þá voru nemendur ríflega 130. Brottfall hefur ver- ið óvanalega mikið úr reglulegu námi og eins og jafnan nokkuð í fjarnáminu," sagði Magnús. Að þessu sinni brautskráðust alls fjórtán nemendur með 90 eininga BS próf og þrír með 120 einingar. Alls útskrifuðust 17 nemendur á háskólastigi og 29 úr Bændadeild, þar af 7 sem stundað hafa fjarnám við skól- ann. Sex nemendur brautskráð- ust af búvísindabraut, fjórir af landnýtingarbraut og fjórir af umhverfisskipulagsbraut en það voru fyrstu nemendurnir sem útskrifast úr því námi hér á landi. Hæstu einkunn þeirra sem tóku 120 eininga próf hlaut Hallffíður Ósk Ólafsdóttir, en hún var með einkunnina 8,24. Af þeirn sem tóku 90 eininga BS próf var Oddný Steina Vals- dóttir hæst með 8,40 í einkunn. Hæstu einkunnargjöf fyrir BS ritgerð hlutu að þessu sinni tveir nemendur sem voru ná- kvæmlega jafnháir með 9,0. Það voru þau Lena Johanna Reiher og Borgar Páll Bragason. Þetta er í annað skipti sem nemendur útskrifast eftir að hafa stundað allt sitt háskóla- nám við LBH eftir að skólinn var formlega gerður að háskóla ineð lögum árið 1999. Við skól- ann er nú boðið upp á nám á fjórum sviðum auk búnaðar- námsins, þ.e. í búvísindum, landnýtingu, umhverfisskipu- lagi og skógrækt. Sigríðar ná góðum árangri I kjölfar þess að skólinn var formlega gerður að háskóla ótt- uðust margir að starfsmennta- námið myndi smám sama drag- ast sarnan. Við útskriftina sagði Magnús B Jónsson, rektor að það hafi ekki orðið raunin. „Að- sókn að bændadeildinni hehir ekki dregist saman nema síður sé og nemendur sem þaðan brautskrást fara í meira mæli í búskap en gerðist hér áður fyrr og við verðum ekki vör við ann- að en að námið standi á traust- um grunni,“ sagði rektor. Best- um árangri búfræðinga að þessu sinni náði Sigríður Ólafsdóttir með meðaleinkunnina 9,02, önnur var Sigríður Björk Ólafs- dóttir með 8,84 og þriðja var Sigríður Gísladóttir með ein- kunnina 8,03. „Og fleiri voru Sigríðarnar ekki“, sagði rektor þegar hann kynnti niðurstöð- urnar. MM Magnús B Jónsson, rektor ásamt hópi verðandi bænda þessa lands. Myndir: MM Kandidatar við útskriftina. Athygli vakti hversu fólkið klæddist þjóðleg- um búningum. Sannartega vel við hæfi og giæsiiegur hópur. SVEINAFELAG MALMIÐNAÐARMANNA A AKRANESI Félagsmenn athugid! Atkvæðagreiðslu um sameiningu Sveinafélagsins við Félag iðn- og tæknigreina lýkur 7. júní. Munið að póstleggja svarsendinguna fyrir þann tíma. Ef einhverjir telja sig ekki hafa fengi kjörgögn þá vinsamlega hafið strax samband við skrifstofu félagsins. | Félagsmenn eru hvattir til að greiða atkvæði. KJÖRSTJÓRN ■o V______________________________)

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.