Skessuhorn - 02.06.2004, Blaðsíða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 2. TUNI 2004
^&iíssunu^
r
EIZHZI
Fasteign hf
vsr B3
UTBOÐ
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. byggir nýjar
höfuðstöðvar fyrir Sparisjóð Mýrasýslu í
Borgarnesi. Óskað er eftir tilboðum í uppsteypu
og utanhússfrágang nýbyggingar Sparisjóðs
Mýrasýslu í Borgarnesi.
Útboðsgögn verða afhent frá og með
miðvikudeginum 26. maí á Verkfræðistofu
SigurðarThoroddsen í Reykjavík og í Borgarnesi.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu VST í Borgarnesi
miðvikudaginn 16. júní kl. 14:00
og verða þau opnuð þar.
Afinælishátíð í Vallarseli
Helstu magntölur:
, Steypa 750 m3
Mót 3.800 m2
Gluggar og gler 470 m2
Klæðning, náttúrusteinn 650 m2
v________________________________________________)
Búmenn
Aðalfundur Borgarfjarðardeildar Búmanna verður
haldinn í Hyrnunni mánudaginn 7. júní kl. 20.
Dagskrá:
1. Kynntur undirbúningur byggingaframkvæmda.
2. Kosning tveggja fulltrúa á aðalfund Búmanna hsf.
3. Kosning stjórnar.
4. Önnur mál.
Fulltrúi frá stjórn Búmanna hsf kemur á fundinn.
Allir sem hafa áhuga fyrir málefnum Búmanna
eru velkomnir á fundinn.
Fimmtudaginn 27. maí 2004
héldu starfsmenn og börn í
Leikskólanum Vallarseli uppá
25 ára aftnæli skólans. For-
eldrafélagið bauð til grillveislu
af þessu tilefni. Dagana á und-
an höfðu börnin unnið skreyt-
ingar og hljóðfæri og var opið
hús einn daginn þar sem tæki-
færi gafst til að sjá börnin í
þessari vinnu. Garðurinn var
skreyttur og hver deild ein-
kennd með sama litnum. Til að
undirstrika það gaf foreldrafé-
lagið börnunum boli í sama lit.
Veðurguðirnir léku ekki al-
veg við „Vallarselsbúa“ því þeg-
ar afmælishátíðin hófst kl.
16:00 opnuðust gáttir himinsins
en lokuðust samviskusamlega
aftur þegar hátíðinni lauk
kl.18:00.
Leikskólastjóri setti hátíðina
og rakti lauslega byggingarsögu
skólans. Það var 20. maí 1979
sem Vallarsel opnaði og voru þá
tvær deildir fyrir hádegi og tvær
eftir hádegi eins og tíðkaðist í
þá daga. Slíkt fyrirkomulag
þekkist vart í dag. Vorið 1982
var hafist handa við að byggja
eina deild í viðbót og þeim á-
fanga laukvorið 1985.
I júní 2003 tóku börnin í
Vallarseli fyrstu skóflustunguna
að stækkun skólans um þrjár
deildir. I ágúst sama ár var haf-
ist handa og það liðu aðeins átta
mánuðir þar til byggingin var
tekin í notkun. Fyrir um 20
árum tók það þrjú ár að byggja
eina deild en í dag tók það að-
eins átta mánuði að byggja þrjár
deildir.
Afmælissöngurinn var síðan
sunginn við undirleik heimatil-
búnu hljóðfæranna og aðstoð
Bryndísar Bragadóttur.
Þó nokkuð rigndi, lét fólk
það ekki á sig fá en gæddi sér á
grilluðum pylsum með öllu til-
heyrandi.
Stjórn Borgarfjarðardeildar
Fálki
frá Geirshlíð
Faðir:
Oddurfrá Selfossi
Móðir:
Dögg frá Geirshlíð
MF:
Hrafn frá Holtsmúla
Fálki frá Geirshlíð er moldóttur 4ra vetra stóðhestur sem
verður í girðingu á Hurðarbaki í Reykholtsdal. Þeir sem hafa
| áhuga á að koma hryssum til hans, vinsamlegast hringið í
1 síma 4351194 - 435 1454 - 892 3552 - 852 3552.
I EDDA ÞÓRARINSDÓTTIR
Jónsborgarar og pottablóm
Mæðgumar Embla Guðmundsdóttir og Hrefna Jónsdóttir í veitingasöl-
unni á Kleppjárnsreykjum. Mynd: GE
Um Hvítasunnuhelgina var
opnuð veitingasala í Klepp-
járnsreykjahverfinu í Reyk-
holtsdal þar sem eitt sinn var
verslunin Blómaskálinn en hús-
næðið hefur að miklu leyti ver-
ið ónotað síðustu ár. Það eru
þau Embla Guðmundsdóttir og
Jón Pétursson, garðyrkjubænd-
ur í Björk á Kleppjárnsreykjum
sem reka veitingasöluna. „Við
byrjuðum reyndar aðeins í fyrra
og höfðum þá opið lítinn hluta
úr sumrinu. Það virkaði alla-
vega þannig að í vor hefur fólk
verið að hringja og spyrja hvort
Jónsborgararnir heimsfrægu
yrðu ekki aftur á boðstólnum í
sumar,“ segir Embla en því má
bæta við að Jónsborgararnir eru
með ýturvöxnustu hamborgur-
um sem þekkjast í hinum vest-
ræna heimi. Auk borgaranna og
annarra veitinga verða til sölu
pottablót og hverskonar græn-
meti í Blómaskálanum fyrrver-
andi en skálinn hefur ekki enn
hlotið nýtt nafn en sérstök
nafnanefnd vinnur nú í málinu.
Þá eru tjaldsvæði til útleigu við
skálann fyrir þá sem borða yfir
sig af Jónsborgurum eða þá sem
vilja hvfla lúin bein af öðrum á-
stæðum.
Opið verður í nafnlausa skál-
um á milli eitt og átta, alla daga
í sumar. GE